Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1977, Blaðsíða 8
HirSfólk miðnæturdrottrtmgarinnar.
Sundurgerðarlegi Kyklópurinn frá Kadmandu.
NY
FEGURÐ
Jóhann Hjálmarsson
skrifar um myndlist
ALFREÐS
FLÓKA
Engum getur dulist að
nýjustu myndir Alfreðs Flóka
(pennateikningar og svartkrft-
armyndir) eru f senn árangur
markvissra vinnubragða og
óvenjulegra gáfna. Flóki var
undrabarn f myndlist, en hefur
ræktað garðinn sinn af dugnaði
og eljusemi. Ilann var snemma
mótaður myndlistarmaður og
gerði sér grein fyrir hvert
stefna skyldi, hvað hann vildi.
Engu að sfður eru tfmabil f list
hans þar sem hann virðist hafa
slakað á, en honum hefur alltaf
tekist að komast upp úr slfkum
öldudölum og koma fólki á
óvart með hugmyndaauðgi
sinni og leikni.
Á flestum sýningum Flóka
hafa verið svartkrftarmyndir
þótt hann hafi jafnan lagt
höfuðáerslu á pennateikningar.
Ég verð að játa að stundum
hafa mér þótt svartkrftar-
myndir Flóka dálftið utangátta
innan um pennateikningarnar.
Sumar þeirra hafa virst fálm-
kenndar f samanburði við
pennateikningarnar. Þetta
hefur stafað af þvf að penna-
teikningin hefur verið helsta
tjáningarform Flóka, f henni
hefur hann notið sfn best. Nú
er aftur á móti Ijóst að með því
að leggja alúð við svartkrftina
hefur Flóka tekist að gæða
hana þeirri dýpt sem einkennir
bestu teikningar hans. Það sem
meira er um vert: Ekki sfst
vegna þcss að þær eru stærri,
mál þeirra kraftmeira en hinna
ffngerðu pennateikninga þar
sem mest reynir á skyn njót-
andans. Aftur á móti eru
pennateikningar Flóka til
marks um sjaldgæfa og þróaða
list og þær verða Ifklega taldar
merkasta framlag hans til
íslenskrar myndlistar hvað sem
sfðar kann að verða.
List Flóka dregur dám af
evrópskri hefð: symbólisma
fyrri alda, súrrealisma. Yfir-
leitt leitar fólk ekki ráðninga
mynda hans, heldur lætur
nægja að dást að fþrótt þeirra.
Margt í myndum Flóka er
sprottið úr undirvitundinni,
myndirnar eru hugljómanir og
vekja frekar grun en þær miðli
vissu. Fegurð þeirra getur
verið óhugnaneg, eins konar ný
fegurð, endurmat. List og
boðun vfkja til hliðar viður-
kenndu mati á þvf sem er
fagurt. Kvenlegur yndisþokki
birtist f myndunum við hlið
afskræma úr mann- og goð-
teimi. Æsku og blóma er stefnt
gegn elli og hrörnun. Ef við
virðum fyrir okkur mynd eins
og Næturgesti sjáum við unga
lostafulla konu. Ilúnheldur um
háls ónáttúrufugls næturinnar.
í höfði konu sem stendur að
baki er hreiður fuglsins. Hann
minnir Ifka á slöngu, en í
myndum Flóka eru þær tákn
visku og sköpunarkrafts. Paul
Delvaux sagði að allar konur f
myndum sfnum væru hreinar
meyjar. Mfnar eru allar hórur f
bestu og clstu merkingu
orðsins. segir Flóki, engin
óspjölluð. Maðurinn eða
skrfmslið sem situr hjá
konunum tveim er úrkynjaður
kýklóp (samanbcr Odysseifs-
kviðu). Ilann er með varúlfs-
kjaft og klæddur eins og betri
borgari á nftjándu öld. Eina
augað f enni hans er ekki
ákveðið tákn. Baksviðið eins og
f fleiri myndum Flóka gegnir
þvf hlutverki að vera til skreyt-
ingar lfkt og leiksviðsmynd.
Egg Kólumbusar gæti verið
úr leikriti eftir nútfma-
Shakespeare. Á sviðinu eru
undrun, ótti og vitfirring.