Lesbók Morgunblaðsins - 22.04.1951, Side 1
15. tbl.
JHoYgunÞIato im
Sunnudagur 22. apríi 1951.
XXVI. árgangur.
Kornrækt Klemensor Kristjánssonor
hefir reynst örugg og arðsöm í 28 ár
Eftirtektarverðar niðurstöður
FYRIR nokkru átti jeff all-ítarlegt samtal við Klemens Kristjánsson, um
kornrækt, túnrækt og aðrar tilraunir, sem hann hefur fengist við. Hann
hefur nú stundað kornrækt í 28 ár. Tilraunastöðina á Sámstöðum hel'ur
hann rekið fyrir Búnaðarfjelag íslands og ríkið í 24 ár.
Jeg bað Klemens að gefa mjer stutt yfirlit yfir þessar tilraunir sínar
og reynslu, sem hann hefur fengið í þessu langa og ötula starfi hans,
í þágu ræktunarinnar.
FYRST byrjuðum við að tala um
árangurinn og veðráttuna í sumar
sem leið. Komst hann þannig að
orði:
20 TUNNUR AF HEKTARA
Veðráttan í fyrravor var fremur
góð en miðpartur sumarsins var
erfiðari. Sumarið var í meðallagi
hlýtt, september góður, óvenjulega
þurr um uppskerutímann. Korni
var sáð síðustu daga apríl og áfram
með vissu millibili fram til 10.
maí.
Kornið þroskaðist fremur seint,
en náði að lokum ágætum þroska.
Nýting var góð og náðist kornið
vel þurrt inn.
Alls voru hjá mjer um 8 hektar-
ar undir korni, bæði byggi og höfr-
um. Um þ>að bil helmingurinn af
þessu landi var nýbrotið land.
Uppskeran reyndist að meðaltali
rúmar 20 tunnur af héktara, en
hefði orðið ’mikið meiri, ef ekki
hefði korn fokið af tveimur bygg-
tegundum, Dönnesbyggi og Eddu-
korni. Aftur á móti varð Sigur-
kornið færeyska nú 26 tunnur af
hektara.
SIGURKORNIÐ FÆREYSKA
ER TILVALIÐ
Uppskeran af þessu Sigurbyggi
hefur komist allt upp í 30 tunnur
á hektara í Færeyjum. Það er þó
ekki mjög bráðþroska. Hjá mjer
hefur náðst 29Ví tunna af hektara.
Síðan jeg byrjaði að rækta Sig-
urkorn, hefur minnsta uppskeran
hjá mjer verið 18 tunnur á hekt-
ara. Þetta var sumurin 1947 og
1949. En af öðrum byggtegundum,
sem jeg hefi ræktað, hef jeg feng-
Klemens Kristjánsson.
ið minnsta uppskeru 5—6 tunnur
af hektara af Dönnesbyggi og
Eddu-byggi. En að uppskeran varð
svo lítil, stafaði eingöngu af því,
hve mikið fauk af korninu, áður
en það var slegið og hirt.
Sigurkornið færeyska er örugg-
asta byggtegundin. sem hjer liefur
verið ræktuð á þeim 28 árum, sem
tilraunir mínar hafa staðið yfir.
Auk þess má nefna Floja bygg