Morgunblaðið - 24.12.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
297. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Kristinn
Jólasveinn í klóm
reiknimeistara
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÓNEFNDIR reiknimeistarar
hafa komist að þeiiTÍ niðurstöðu
að jólasveinninn sé ekki til og
byggja fullyrðingu sína á útreikn-
ingum á starfssviði hans. Þá hef-
ur breska kirkjan reynt að draga
úr áhrifum jólasveinsins vegna
allrar kaupmennskunnar í kring-
um hann. Sjálfur mun sveinki
hafa tekið þessum fregnum með
ró.
Það er hins vegar rétt að jóla-
sveinninn hefur í nógu að snúast
fyrir jólin. Þar sem hann heim-
sækir öll kristin böm verður hann
að hafa viðkomu á um 108 millj-
ónum heimila þar sem hann hittir
alls 378 milljónir barna. Reiknað
hefur verið út að fari jólasveinn-
inn frá Norðurpólnum, norður af
Finnlandi og í vesturátt, hafi
hann 31 tíma til stefnu og sé þá
tekið mið af tímabeltum. Verður
hann því að Ijúka 967,7 heimsókn-
um á sekúndu. Það nemur um
einum þúsundasta á sekúndu til
að leggja sleðanum, deila út gjöf-
um og koma sér á næsta stað.
Á þessari ferð leggur jóla-
sveinninn 140 milljón km að baki.
Hann verður því að hafa hraðann
á og fara með 1.040 km hraða á
sekúndu.
Sé reiknað með því að hver gjöf
sé hálft kfló vegur sleðinn 189
milljón kíló. Á landi getur hvert
hreindýr dregið sleða sem er um
140 kfló að þyngd en í himin-
geimnum er allt auðvitað léttara.
Geti hvert hreindýr dregið tíu
sinnum þyngra hlass í háloftun-
um þarf jólasveinninn að spenna
135.000 hreindýr fyrir sleðann.
Þá er þyngdin á öllu komin upp í
210 milljón kfló.
Þegar svo þungt hlass fer um
með 1.040 km hraða á sekúndu
gengur mikið á vegna loftmót-
stöðunnar. Hreindýrin og sleðinn
hitna jafnmikið og geimskip sem
skotið er upp í loft og hætt er við
að fleira en nef hreindýranna yrði
rautt við allan hamaganginn.
Reyndar yrði raunin líklega sú að
hreindýrin og sleðinn myndu
springa í loft upp.
Clinton reynir á ný
að miðla málum
Washington, Jerúsalem, Gaza. AP, AFP.
BILL Clinton
. Bandaríkjaforseti
hugðist í gær eiga
nýjan fund með
samningamönn-
um Palestínu-
manna og ísraela
í Washington til
að reyna að greiða
fyrir samkomu-
lagi. Talsmenn
Palestínumanna
sögðu að horfurnar væru slæmar og
ekkert hefði þokast í rétta átt. En
fulltrúar bandarískra stjómvalda
bentu á að þótt mikið bæri í milli
væm samningamennirnir samt enn á
staðnum.
Ætlunin var að viðræðunum lyki í
gær og var upphaflega vonað að nið-
urstaðan yrði að kallaður yrði saman
leiðtogafundur þar sem þeir Ehud
Barak, forsætisráðherra Israels, og
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, myndu reyna að semja um
frið.
Fjórir Palestínumenn féllu í átök-
um við ísraelska hermenn á föstudag
og var fyrirhugað að jarðsetja þá í
gær. Spáðu Palestínumenn að dag-
urinn yrði enn einn „dagur reiði“ á
sjálfsstjómarsvæðunum. Alls hafa nú
355 fallið í átökunum sem hófust í
haust og era langflest fómarlömbin
Palestínumenn.
Að sögn BBC lögðu fulltrúar ís-
raela fram tilboð um að stjóm Ara-
fats fengi meiri völd yfir gamla borg-
arhlutanum í Jerúsalem en gert var
ráð fyrir í fyrri viðræðum deiluaðila.
í staðinn myndu Palestínumenn
slaka til í kröfunum um að palestínsk-
ir flóttamenn fengju allir að snúa
heim til fyrri heimkynna sinna í ísra-
el sem margir flóttamannanna eða
foreldrar þeirra yfirgáfu fyrir rúm-
lega 50 áram. Fulltrúar Palestínu-
manna sökuðu ísraela í gær um að
hafa síðan dregið tilboð um málamiðl-
un tíl baka en þeir vísuðu þeim full-
yrðingumábug.
Danny Yatom, öryggismálaráð-
gjafi Baraks, sagðist í gær ekki vera
viss um að takast myndi að ákveða
leiðtogafund. Hann lagði áherslu á að
samið yrði um allsheijarlausn og þá
ekki síst um framtíð Jerúsalem en
einnig um framtíð byggða landnema
úr röðum gyðinga á svæðum Palest-
ínumanna og loks að samið yrði um
hlutskipti palestínskra flóttamanna.
Þeir era yfir þrjár milljónir og búa
flestir á sjálfsstjómarsvæðunum en
einnig margir í Jórdaníu og í fleiri
löndum.
„Ef tíl vill er þetta í síðasta sinn
sem boðin er málamiðlun," sagði Yat-
om. „Fari viðræðumar út um þúfur
gætu afleiðingamar orðið slæmar en
ég er bjartsýnn," bætti hann við.
MORQUNBLAÐtB 24. DESEMBER 2000
Bill
Clinton