Morgunblaðið - 09.01.2000, Page 9

Morgunblaðið - 09.01.2000, Page 9
Kjaraumræður snúast ekki eingöngu um krónur og aura. Vinnudagur á íslandi er með því lengsta sem þekkist í heiminum. VR vill endurskoða dagvinnutíma félagsmanna til að tryggja launafólki aukin lífsgæði. Þannig aukum við einnig framleiðni í fyrirtækjum - til hagsbóta fyrir alla. • VR vill aö félagsmenn fái greidd viðunandi laun fyrir dagvinnu sína svo þeir þurfi ekki að sækjast eftir yfirvinnu til að hækka launin. • VR vill að félagsmönnum verði gert kleift að tvinna saman einkalíf og vinnu með styttri vinnuviku, sveigjanlegri vinnutilhögun, jöfnum rétti foreldra til fæðingarorlofs og rétti beggja foreldra til að sinna börnum sínum. Rannsóknir sýna einmitt að sveigjanlegur vinnutími og svigrúm til að sinna einkalífi eru nátengd almennri starfsánægju og vinnuafköstum. • Þrátt fyrir óhóflega langan vinnudag á íslandi er framleiðni minni hér á landi en í nágrannalöndum okkar. Aukin framleiðni er ein helsta forsenda almennrar hagsældar í landinu. Þú færð nánari upplýsingar á www.vr.is Verzlunarmannafélag Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.