Morgunblaðið - 30.08.1997, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 30.08.1997, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ferðafé- lagsmenn kæra HAUKUR Jóhannesson, formaður Ferðafélags íslands, segir að Ferða- félagsmenn séu ekki sáttir við úr- skurð skipulagsstjóra og hann verði kærður til umhverfisráðherra. For- sendur úrskurðarins voru ekki komnar í hendur Ferðafélags- manna, heldur aðeins úrskurðarorð- ið eitt. Haukur sagði að beðið yrði eftir forsendunum og kæran send inn í lok september, enda íynni kærufrestur ekki út fyrr en í byijun október. „Svo tekur þetta allt sinn tíma,“ sagði Haukur. Svínvetningar ánægðir Jóhann Guðmundsson, oddviti Svínavatnshrepps, segist ánægður með úrskurðarorðin og telur kröfur þær sem fram séu settar vera eðli- legar. Aðspurður hvað hann segði við fyrirhugaðri kæru Ferðafélags- manna sagði Jóhann að það væri þeirra mál. „Ég get i sjálfu sér ekkert sagt við því en ég bendi á að Hveravellir eru innan stjóm- sýslusvæðis Svínavatnshrepps og þetta eru hlutir sem okkur ber að vinna, skv. stjórnsýslulögum sem við höfum í hvívetna reynt að fara eftir.“ Óvíst hvenærframkvæmdir hefjast Jóhann sagði ekkert liggja fyrir um hvenær framkvæmdir hæfust. „Gert er ráð fyrir að þær hefjist innan þriggja ára í okkar gögnum en þetta er bara eitt skref af mörg- um sem taka þarf og við ætlum okkur ekki að taka nein heljar- stökk. Við þurfum að hafa sam- band við aðila sem myndu hugsan- lega vilja koma til samstarfs við okkur og enn er mikill undirbún- ingur eftir og hann þarf að vanda á öllum stigum.“ Fjölsóttir staðir aldrei ósnortnir Jóhann sagði að Svínvetningar fylgdust með gangi málsins. „Ég vona að þetta sé allt á réttri leið, enda er ég sannfærður um að fyr- ir fjölsótta ferðamannastaði á há- lendinu þurfi að vinna gott skipu- lag til að staðirnir nái að varðveit- ast til framtíðar. Fjölsóttir staðir verða aldrei ósnortnir og þess vegna þarf að hlúa að þeim eftir föngum," sagði Jóhann. Skipulagsstjóri ríkisins um framkvæmdir á Hveravöllum Samþykktar með fyrirvörum SKIPULAGSSTJÓRI ríkisins hefur kynnt úrskurð sinn og mat á um- hverfisáhrifum vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Hveravöllum. í úr- skurði sínum fellst skipulagsstjóri á framkvæmdirnar samkvæmt fyr- irliggjandi tillögu með nokkrum skilyrðum. Framkvæmdirnar sem um ræðir fela í sér byggingu allt að 640 fer- metra ferðamannamiðstöðvar, að hluta til innan friðlýsta svæðisins en að mestu í hvarfi frá aðalhvera- svæðinu á Hveravöllum. Þá er gert ráð fyrir nýjum aðkomuvegi, bíla- stæði og tjaldstæði. Einnig er gert ráð fyrir hitaveitu, neysluvatns- veitu, fráveitu, rafstöð og birgða- geymslu fyrir bensín og olíur. Að auki stendur til að girða hluta frið- lýsta svæðisins, leggja göngustíga og græða upp svæði innan girðing- arinnar. Þessar framkvæmdir á Hvera- völlum gera ráð fyrir að nýrri skáli Ferðafélags íslands verði fjarlægð- ur, ásamt salernisaðstöðu, aðstöðu Morgunblaðið/Þorkell FYRIRHUGAÐAR framkvæmdir á Hveravöllum gera ráð fyrir að nýrri skáli Ferðafélags Islands verði fjarlægður, ásamt salernisaðstöðu. sauðfjárveikivarna og núverandi í niðurstöðu skipulagsstjóra er aðkomuvegi og bílastæðum. fjallað um ýmsa þætti þessara framkvæmda en síðan segir að „fyr- irhuguð framkvæmd hafi ekki í för með sér umtalsverð neikvæð áhrif á umhverfi, náttúruauðlindir eða samfélag að uppfylltum settum skil- yrðum." Skilyrðin sem Skipulagsstjóri setur fyrir framkvæmdum felast einkum í samráði við Náttúruvernd ríkisins um endanlega hönnun þjón- ustumiðstöðvar og annarra mann- virkja svo og framkvæmdir við að- komuveg og bílastæði, Iagningu hita- og vatnsveitu, vöktun um- hverfis og framkvæmd uppgræðslu á svæðinu. Þá er það skilyrði sett að bensín- og olíusala verði heimil að vetrar- lagi og verði fyrst og fremst um neyðarsölu að ræða. Þá skuli geng- ið frá eldsneytistönkum á þann veg að þeir verði ekki sjáanlegir. Að lokum setur skipulagsstjóri það skilyrði að þjónusta í miðstöðinni verði í samræmi við þá stefnu sem mörkuð verður í svæðisskipulagi miðhálendisins. Hlaupið hefur úr báðum kötlum Skaftáijökuls Breytingará eldvirkni metnar ÁRNI Snorrason, forstöðumaður vatnamælingasviðs Orkustofnun- ar, segir að vísindamenn muni á næstu dögum draga saman niður- stöður mælinga um rennsli í Skaftárhlaupi og á grundvelli þeirra reyna að álykta um hugsan- legar breytingar á eldvirkni í jökl- inum. Hann segist telja að um 200 gígalítrar hefðu runnið í hlaupinu sem sé í minni kantinum. Dæmi séu um helmingi stærri hlaup í Skaftá. Hlaupið úr vestari sigkatli Skaftátjökuls hófst sl. mánudag og kom í kjölfar hlaups úr eystri sigkatlinum. Ámi sagðist ekki telja að beint orsakasamband væri á milli þessara hlaupa. Reiknað hefði verið með hlaupi úr eystri katlinum í ár, en að jafnaði liðu u.þ.b. 40 mánuðir milli hlaupa. Meiri óregla hefði verið á hlaupum úr vestari katlinum, en hlaup úr honum kom í fyrra. Mælir vatnamælingamanna er við Sveinstind sem er 17 km rieðan við upptök Skaftár. Sigvaldi Árna- son, verkfræðingur á Orkustofnun, sagði að þegar síðara jökulhlaupið var í hámarki hefði rennslið í ánni verið 340 rúmmetrar á sekúndu. Á fimmtudag var rennslið 240 rúm- metrar á sekúndu og fór 'minnk- andi. Til samanburðar má nefna að í síðustu viku, þegar hlaupið úr eystri sigkatlinum var í há- marki, var rennslið 870 rúmmetrar á sekúndu. Sigvaldi sagði að tekin hefðu verið sýni úr ánni, en þau gæfu vísbendingar um hvort breyt- ingar væru að verða á eldvirkni í Skaftátjökli. Niðurstöður þeirra mælinga liggja ekki fyrir. Engra jarðskjálfta hefur orðið vart í tengslum við þetta hlaup og því er ekkert sem bendir til þess að gosið hafi í sigkatlinum. Sem kunnugt er gaus í stuttan tíma í eystri sigkatlinum eftir að hlaupið úr honum náði hámarki í síðustu viku. Hlaupvatn í Hverfisfljóti Árni Snorrason mældi rennsli í Hverfisfljót og sagði hann greini- legt að hlaupvatn hefði runnið í fljótið. Það væri frekar óvenjulegt en hefði komið fyrir áður. Hann sagði ekki ljóst hvers vegna þetta gerðist en hugsanlegt væri að vatn rynni með Skaftáijökli og í Hverfis- fljót. Enn skelfur í Hengli Má búast við skjálft- um áfram JARÐSKJÁLFTA sem mældist rúm 3 stig á Richter varð vart á Hengilssvæðinu kl. 23.47 í fyrra- kvöld og á eftir fylgdu nokkrir smærri skjálftar. „Virknin jókst rétt fyrir mið- nættið og var mest milli klukkan tólf og eitt en þá mældust um 60 kippir á klukkustund. Síðan hefur þeim fækkað verulega, eru komnir vel undir tíu á klukkustund," sagði Páll Halldórsson, jarðskjálftafræð- ingur á Veðurstofunni, í samtali við Morgunblaðið um hádegi í gær. Upptök skjálftans voru nálægt Hrómundartindi, norður af Hvera- gerði, en það er nokkru norðar en upptök skjálftanna um síðustu helgi, sem voru skammt austur af Litla Skarðsmýrarijalli. Eftir hrínuna um síðustu helgi voru skjálftakippirnir komnir niður í 150 skjálfta á sólarhring en voru yfir 1.100 þegar mest var. ERU ÞEIR AD FA’ANN? Enn stefnir í metí Svartá Morgunblaðið/Golli Björn Finnbogi Magnússon, 16 ára, með 17,5 punda hæng af Alviðrusvæðinu í Sog- inu. Laxinn tók svartan Tobý á Breiðunni. Enn stefnir í metveiði í Svartá. í gær voru komnir 373 laxar á land, en metveiðisumarið 1995 veiddust þar 547 laxar. Leigutakar eru með ána til 20. september, en eftir það veiða bændur í nokkra daga. Jón Steinar Gunnlaugsson, einn leigutaka, sagði í gær að á sama tíma 1995 hefðu verið komnir 363 laxar á land og væri veiðin því enn „aðeins á undan" metsumrinu, en hvort met næðist í sumar hlyti að ráðast af árferði í haust. „Svartá er síðsumarsá og^met- sumarið hélst hlýtt í veðri fram eftir öllum september. Þess vegna skilaði áin afar góðri haustveiði og met var sett. Það þarf ýmislegt að ganga upp, sérstaklega hvað varð- ar veðurfar, til þess að nýtt met verði sett. Það var til dæmis holl að hætta hjá okkur í gær sem lenti í kulda og erfíðleikum og fékk að- eins sex laxa. Hollið á undan var aftur heppnara með skilyrði og fékk 28 laxa. Við erum að tala um tveggja daga holl með þremur stöngum," sagði Jón Steinar. Afl- inn í sumar er langmest 4-6 punda hængar, en reytingur hefur verið af vænni laxi og sá stærsti í sumar var 16 punda. „Það hefur verið alveg þokkaleg veiði í Úlfarsánni í sumar, veiðin er komin hátt í 300 laxa og það er ekki slæmt á tvær stangir. Laxinn er að veiðast um alla á. Það hefur talsvert af laxi gengið á efri svæðin og svo er enn að reytast inn nýr fiskur niður frá,“ sagði Jón Aðalsteinn Jónsson, einn leigu- taka árinnar, í samtali í gærdag. Líflegt í Laxá í Miklaholtshreppi Veiði hefur verið góð í Laxá í Miklaholts- hreppi í sumar. Leigu- takar sóttu ekki um leyfi fyrir sleppingu á hafbeitarlöxum, en slepptu þess í stað nokkur hundruð eldis- bleikjum. Þær hafa skilað sér illa í veiði, en sjóbleikjuveiði hefur glæðst mjög í ágúst og laxveiði verið þó nokk- ur. Um miðja viku voru komnir rúmlega 40 laxar úr ánni og þá hafði einn hópur veitt 8 laxa á tveimur dög- um. Veitt er með tveimur dagstöngum. Bleikjuveiði var og góð og fiskar allt að 6 pund. Silungsveiði hefur verið upp og ofan í sumar. Þannig hefur hún verið verulega slök í Veiðivötnum, Þórisvatni og í Köldukvísl. í Veiði- vötnum kenna menn um lélegum hrygningarskilyrðum urriða sam- hliða mikilli netaveiði á haustin, en Þórisvatn hefur verið vatnsmik- ið og skolað. Góð veiði hefur verið í Frosta- staðavatni og Dómadalsvatni á Landmannaleið í sumar, bleikja í fyrrnefnda vatninu, en urriði í því síðarnefnda. I báðum vötnum hef- ur fiskur verið vænn, mest 1-3 pund, en algengt að fá upp í 5-6 punda fiska í bland. Spinnerar og beita hafa gengið vel í urriðann og púpur með kúluhausum hafa gefið vel í bleikjunni. Eskihlíðar- vatn hefur hins vegar verið lélegt. Á fjórða hundrað bleikjur hafa veiðst í Soginu fyrir landi Torfa- staða, að sögn Ingólfs Kolbeins- sonar, sem þar var að veiðum fyr- ir skömmu. Um 10 laxar hafa einnig veiðst. „Bleikjan er væn, ég fékk fimm stykki og þær voru allar 3,5 pund. Bleikjan er þarna í torfum," sagði Ingólfur. Þá hefur sjóbleikju og sjóbirt- ingsveiði verið að glæðast í Olfusá hjá Hrauni og í Þorleifslæk í Öif- usi. Menn hafa verið að fá upp í 5-10 fiska á dag að undanförnu, mikið 2-4 punda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.