Morgunblaðið - 30.08.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.08.1997, Blaðsíða 36
Jj6 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Um skógrækt á ' Reykjanesi og skemmdir í eplum GREIN þessi er skrifuð í tilefni greinar í Morgunblaðinu 19. ágúst sl. og viðtals fyrr í sumar í fréttum Ríkissjónvarpsins við Pétur Má Sig- urðsson, sem titlar sig fyrrverandi félagsforingja skátafélagsins Hraunbúa í Hafnarfirði. Okkur undirrituðum er eins og öðrum landsmönnum hlýtt til skátahreyfingarinnar og teljum hana vera góða og göfuga. Þykir okkur því illt að sitja þegjandi und- ir dylgjum og rógburði Péturs í garð íjáreigenda í Grindavík um að þeir séu vísvitandi að skemma tijárækt fyrir skátum í Hafnar- firði. En sjálfsagt er í skátahreyf- ingunni eins og annars staðar misjafn sauður í mörgu fé og gæti kannski leynst eitt skemmt epli í heilum kassa. Sumarið vonda 1997 Sumarsins sem nú er að líða "h'erður eflaust lengi minnst vegna erfiðrar veðráttu til heyskapar. Tala menn jafnvel um óþurrkasum- arið 1955 til samanjöfnuðar. Bænd- ur í Grindavík hafa ekki farið var- hluta af þessari ótíð frekar en aðr- ir, en þó hefur skapillska veðurguð- anna verið hátíð hjá óhróðri foringj- ans fyrrverandi í fjölmiðlum. í sjónvarpsfréttum fyrr í sumar fullyrti Pétur að tómstundabændur í Grindavík hefðu verið staðnir að því að troða heilu vörubílsförmun- -'íjsm af kindum inn í skátagirðing- una í Krýsuvík. í grein í Morgun- blaðinu 19. ágúst sl. segir hann: „1981 var komið að tómstunda- bændum sem voru að sleppa kind- um inn á svæðið okkar.“ Nú er ekki fullyrt hvaðan þessir tóm- stundabændur voru, ef þetta er þá rétt, sem við efumst stórlega um, miðað við málflutning Péturs. Við fullyrðum að þetta hafa ekki verið Grindvíkingar. Beitarhólf Hafnfírðinga á þess- um árum var öll gamla Krýsuvíkur- girðingin og var skátagirðingin inni í henni miðri. Núverandi beitarhólf Hafnfirðinga var ekki girt fyrr en 1989. Við trúum því ekki á nokk- sern fjáreiganda að hann fari að loka kindur sínar inni í smágirð- ingu, þegar nóg gras og vatn er allt um kring. Drápust ekki plönt- urnar bara í vetrarnæðingnum? Pétri er tíðrætt um hina fjár- heldu skátagirðingu. Það getur verið að hún hafi í upphafi verið vel girt, en við erum hræddir um að gleymst hafi að kenna skátunum að loka hiiðunum almennilega á eftir sér og hvað varð eiginlega um norðurhlutann? Tijárækt á Reykja- nesskaga er afar erfið eins og kem- ur fram í grein Péturs. Hann segir samt sem áður að þeir skátarnir hafi fengið það staðfest „hjá mörg- um skógræktarfræðingum, nátt- úrufræðingum og öðrum sérfræð- ingum að það sem við erum að gera og hvernig við berum okkur að því, sé alveg rétt.“ Hvernig Við erum hræddir um, segja greinar- höfundar, að gleymst hafí að kenna skátunum í Hafnarfirði að loka hliðum almennilega á eftir sér. ætli að standi á því að það þýðir ekki að reyna að rækta tré í Grinda- vík, nema koma fyrst upp skjóli? Milli Grindavíkur og Krýsuvíkur eru um 25 km. Ætli aðstæður séu ekki svipaðar? Ef ekið er upp að skólanum í Krýsuvík er á vinstri hönd girðing í hlíðarslakka mót suðaustri. Þar eru engin hlið sem gleymist að loka. Þar var plantað fjölda tijáa fyrir mörgum árum. Þar hefur ekki sést kind í manna minnum. Þar hefur ekki sést tré árum saman. Um beitarhólf Pétur Már hrósar mikið beitar- hólfum tómstundabænda í Hafnar- firði og á Vatnsleysuströnd. Eitt- hvað höldum við nú að þurfi að betrumbæta þær girðingar svo þær verði fjárheldar. Undanfarin haust hefur a.m.k. fé verið keyrt úr lög- réttum Grindavíkur í allar áttir nema suður. Fjáreigendur í Grindavík hafa tekið þátt í umræðum um beitar- hólf árum saman til að skapa frið. Við höfum náð samkomulagi við að minnsta kosti tvo landbúnaðar- ráðherra á undanförnum árum. En alltaf þegar hefur átt að koma til framkvæmda hafa einhveijir í kerf- inu stoppað þær. Beitarhólf skal vera alltof lítið, þar sem minnsta beitin er og helst ekkert vatn. Málið er nefnilega það að við viljum beitarhólf þar sem góð beit er og við viljum iíka hafa vatn fyrir féð okkar. Yfirlýsingar landgræðslustjóra í fréttum ríkissjónvarpsins fyrr í sumar voru alveg stórfurðulegar. Hann sagði að Krýsuvíkursvæðið væri gjörsamlega óhæft til beitar. Samt er embætti hans búið að koma þar upp einu fjárhólfi (fyrir Hafnfirðinga) og vill endilega koma þar upp öðru fjárhólfi fyrir Grinda- víkurféð. Á afrétti okkar Grindvíkinga eru stór grassvæði, sem öll eru að fara á kaf í mosa og sinu, vegna vanbeit- ar, t.d. Selsvellir og Vigdísarvellir. Reyndar heyrist ekki lengur taiað um ofbeit á þessu svæði. í lok greinar sinnar talar Pétur um kröfu íbúa á höfuðborgarsvæð- inu, sem haldið er í gíslingu „af okkur sennilega“. Við viljum endi- lega benda Pétri og öðrum ófull- nægðum landgræðslu- og skóg- ræktarmönnum á að fara hér út undir Reykjanes og gi'æða upp. Þar er búið að vera friðað fyrir fé í áratugi og þar sést varla stingandi strá. Hvar er þá allur landgræðslu- áhuginn ef þetta svæði er ekki verðugt verkefni? Pétur gæti kannski notað þetta sem tilrauna- svæði! Á forðagæsluskýrslu í Grindavík veturinn 1996-7 eru 669 vetrar- fóðraðar kindur, hrútar og geml- ingar meðtaldir, fjáreigendur eru 45 talsins þannig að meðaltalið er tæpar 15 kindur á mann. Pétur fullyrðir að til séu þeir tómstunda- bændur í Grindavík, sem séu með á þriðja hundrað íjár. Þetta er nú eins og annað ruglið í þessum manni. „Einu sinni skáti, ailtaf skáti og skáti segir alltaf sannleik- ann“. Dagbjartur Einarsson, forðagæslumaður í Grindavík, Guðjón Þorláksson, Vík, Guðmundur Þorsteinsson, Hópi, Sigurður Gíslason, Hrauni, Þórir Kristinsson, Járngerðarstöðum. Feitimengun á fjörum HINN 27. maí sl. sendi ég grein í Mbl. undir þessari fyrirsögn, bara til að sýna og sanna að þetta er hreint íslenskt náttúrufyrir- bæri. Nú hef ég frétt að margir sem þykjast þó vera umhverfisfræð- ingar, skilja ekki þetta -•einfalda dæmi mitt. Síðan hefur það gerst (Mbl. 5. júní) að erlendir vísindamenn hafa komið hingað og fundið á kafbáti tvö hitasvæði austur af Grímsey, þar af var annað talið breitt og kraftmikið. Þetta er bara staðfesting á því sem við höfum þekkt árum saman. En við getum ekki af lýsingunni á hitadalnum fundið út hvernig torfa af loðnu eða jíækju lendir í svo miklum sjávarhita að hún drepst og bráðnar. Áfleiðing- arnar höfum við þekkt í nokkur ár, þ.e. feitarflekki á sjónum ef logn er, þannig að hún hefur næði til að safnast fyrir. Það sem hamlar mjög vitneskju á þessu sviði - mengun á fjörum - er hve fáir fara nú í ijörur til leita að sprekum eða rotuðum , (Iski. Það er engin fátækt í landinu til að reka menn af stað. Svo eru hér langar fjörur sem aldrei eru gengnar t.d. frá Grenivík austur að Skjálfanda og frá Grindavík austur að Selvogi eða Þorláks- höfn. Hingað til hafa menn verið fljótir að álykta ef olíumengun kemur í ijörur að eitthvert skip hafi sett út olíu. Þetta er algjör vitleysa enda sagt. í hugsunarleysi. Þegar skip setur út olíu er það á úthafi og rákin svo lítil og mjó að það getur ekki mengað neina íjöru. Kunnasta sönnunin um þetta er feitimengunin á Miðnesi árið 1651, löngu áður en vél var fundin í skip. Það sem vitað er um olíumengun á fjörum hér á landi í tímans rás er: Á Miðnesi 1651, annálar, á Strönd- um 1991, við Svalbarðseyri sumarið 1996 og hér á Álftanesi í janúar 1997. Því er við að bæta að óskað er eftir að þeir sem verða varir við olíumengun á fjörum láti yfirvöld og fréttaritara í sínu héraði vita. Hvalir Áður fyrr höfðu hvalir hreinan sjó að synda í en síðan vélskipin komu Hafíð, segir Ásgeir Ó. Einarsson, er að verða hálfgerður drullupollur fyrir hvali til að lifa í. til sögunnar hefur olíumengun verið um allan sjó. Þar við bætist sá mikli fjöldi verksmiðja um allan heim sem dæla olíu og sýrum út í sjó. Þar við bætist nú olían og sýrum út í sjó. Þar við bætist nú olían frá eldijöllum neðansjávar hér við land og í Indó- nesíu. Það má því segja að hafið sé að verða hálfgerður drullupollur fyr- ir hvali að lifa í. Þess vegna er meira um hvali hér norður frá en t.d. við Bretlandseyjar, þ.e. vegna hinna mörgu verksmiðja og hinna miklu skipaferða í Vestur-Evrópu. Þegar logn er og olíuflekkir mynd- ast kemur það fyrir að heil fjöl- skylda af hvölum kemur upp í slíkum olíuflekki og fær olíubað yfir sig, sem er mjög óþægilegt fyrir augun og önnur skynfæri þeirra. Þeir leita í hreinan sjó og synda hratt og langt til að þvo olíuna af sér. Það gengur illa í söltum sjó en ef þeir komast í árósa áa sem renna út í hafið, t.d. Ölvesá eða Skjálfanda, er þeim að mestu borgið með hreinsunina. Ásgeir Ó. Einarsson Leikskólinn - heimur barnsins HVAÐ hefur barnið mitt fyrir stafni í leik- skólanum á daginn? Hvemig líður því meðan ég er í vinnunni? Þessar spurningar og fleiri álíka brenna iðulega á vörum foreldra leik- skólabarna. Foreldrar vilja vita hvað börn þeirra aðhafast í leik- skólanum, hvernig er búið að þeim, hvemig er hugsað um þau og hvaða þýðingu leik- skóladvöl hefur fyrir þau. Það er réttur hvers foreldris að fylgjast með því uppeldsstarfi sem fram fer í leikskól- anum og hafa áhrif á það. Hvernig er leikskólinn og starfsfólk hans í stakk búið til að takast á við þarfír bamsins? Er því veitt það öryggi, ástúð og umhyggja sem það á rétt á, veitir leikskólinn þær uppeldisað- stæður sem henta hveijum og einum? Leikskólinn er sérstaklega hann- aður sem ákjósanlegur heimur fyrir Leikskólinn er hannaður fiirir börn, segir Kristín Ólafsdóttir, og hann veitir börnunum fjöl- breytt tækifæri til leiks og starfa. barnið með þarfir þess og þroska í huga. Allt sem þar er inni er miðað við bamið. Húsgögn eru hönnuð í samræmi við þarfir barna frá 1 til 6 ára aldurs. Allt skipulagt starf og útfærsla á því miðast við börnin, þarfir þeirra og þroska. Leikskólinn er hannaður fyrir börn og hann veitir bömunum flölbreytt tækifæri til leiks og starfa. Leikskólinn býður upp á skapandi efnivið til leikja úti og inni, myndlist- ar, tónlistar og hreyfingar, þar sem barnið fær að njóta sín sem skap- andi einstaklingur. Þannig gefst barninu kostur að taka þátt í leik og starfi leikskólans og njóta ijöl- breyttra uppeldiskosta barnahópsins undir leiðsögn leikskólakennara. Leikskólastarf er byggt upp með það í huga að örva alla þroskaþætti hjá hveiju barni. í leikskólanum fær Ég nefndi í fyrri grein átta dauða hvali sem fundust í sandfjöru rétt innan við Þorlákshöfn. Ég reikna með að þeir hafí lent í olíuflekki í nánd við eldgjána sunnan Reykjaness og á eftir tekið strikið austur með landi þar til þeir komu í betra vatn þar sem Ölvesá blandast í hafíð. Þá fóru þeir inn í ósinn og fengu þar enn betra vatn og góða hreinsun. Hreins- un var jú mest í varið en eftir hinn langa sundsprett, sem var eins og fælni hjá villihestum, hafa þeir verið úrvinda af þreytu og leitað eftir sléttri sandfjöru sem þeir fundu auðveld- lega. En hvers vegna liggja þeir svo dauðir efst í ijörunni, hlið við hlið eins og stjórnað af þjálfara. Þeir koma í aðflæði, raða sér á íjöruna og eru á því dýpi sem þeir geta hvílst og andað en þegar þeir fá vatn í öndunaropið, færa þeir sig ofar og loks efst í fjöruna. Þeir geta ekki farið afturábak, geta ekki snúið við af því að þeir liggja of þétt saman. Smám saman gerir þungur líkami þeirra dæld í sandinn sem þeir kom- ast ekki upp úr. Annars er dauðalega þeirra svo skipulögð að þar virðist engin örvæntingarfull tilraun hafa verið gerð til að losa sig. Sama hefur verið með hvalina sjö sem fundust dauðir austan Langaness, nema þeir hafa fengið sína mengun af norð- austur svæðinu. Það er lífið í sjónum og náttúran sem raðar hvölum svona skipulega í dauðann. Höfundur er dýralæknir. barnið tækifæri til að vinna að ýmsum verk- efnum á sínum eigin for- sendum en ekki á for- sendum hinna fullorðnu, sem þýðir að barnið lær- ir af sinni eigin reynslu og uppgötvunum. Hug- myndir þess eru aðalatr- iðið. Leikskólakennarinn ber virðingu fyrir getu bamsins og þroska. Bamið fær að skoða hið stóra og hið smáa frá öllum hliðum, spyija spuminga. Oftar en ekki kemur spuming á móti sem leiðir til þess að bamið fer að leita svara, rannsaka ofan í kjölinn þau viðfangsefni sem verið er að vinna með, hvort sem það eru tré, moldin og ormarnir, fuglar himinsins eða það sjálft og fjölskylda þess. Bamið fær verkefni í hendurnar sem örva sköp- unarhæfni þess og ímyndunarafl, verkefni sem hæfa aldri þess og þroska. Hvað er skemmtilegra fyrir lítinn þriggja ára snáða en að koma í leikskólann með myndir að heiman af mömmu og pabba, afa og ömmu, systkinum og jafnvel húsinu sínu til að deila með félögum sínum á deild- inni. Engin reynsla bamsins er svo lítilmótleg að hún sé ekki þess virði að gefa henni gaum. Hversdagsleg fyrirbæri geta orðið kveikjan að mjög ijölbreyttum og skemmtilegum rannsóknum og þá er skapandi þátturinn alltaf í fyrirrúmi. í samræðum þjálfast börnin í að koma reynslu sinni og þekkingn í orð og deila henni með öðrum. Börnin fá tækifæri til að vinna saman í litlum hópum og læra þannig almennar sam- skiptareglur og kynnast ánægjunni af því að vinna með öðrum. Þannig verður einstaklingurinn sjálfstæður og skapandi og leitar uppi þá þætti í tilverunni sem ekki em áþreifanleg- ir. Það segir sig sjálft miðað við það sem hér á undan er sagt, að ábyrgð leikskólakennarans er mikil og verk- efni hans mörg, hann þarf að skapa tækifæri fyrir alla þá ólíku einstakl- inga sem eru í leikskólanum, verkefni sem eru alltaf í réttu hlutfalli við getu og þroska hvers einstaklings. í leikskólanum er leitast við að efla persónuleika barnsins. Leikskóla- kennarinn sinnir hveiju einstöku barni, hlustar á það af athygli og styður það í þekkingarleit sinni. Leik- skólakennarinn stuðlar að góðri foreldrasamvinnu og hann er vel und- irbúinn fyrir vinnu hvers dags til að geta leyst hana markvisst af hendi. Það er rætt um hvað á að gera og hvers vegna, en ekki trúað á tilviljan- ir og að hlutirnir gerist af sjálfu sér. Það er hlutverk leikskólakennarans að leiða starfið og hafa mótandi áhrif. Gott uppeldi er mikilvægasta veganesti sem hver einstaklingur getur öðlast. Það skiptir sköpum um framtíð hans og velgengni í lífinu og hefur áhrif á allt þjóðfélagið. Börnin eru það dýrmætasta sem við eigum og eiga skilið það besta sem hægj; er að gefa þeim. Lág laun eru ein aðalástæðan fyr- ir skorti á leikskólakennurum í leik- skólanum. Skortur á leikskólakennurum er mikill og aðalástæða þess er allt of lág laun, sem sýnir mikið virðingar- leysi fyrir menntun leikskólakenn- ara, uppeldi barna og framtíð þeirra. Sú krafa Félags íslenskra leikskóla- kennara um 110.000 kr. í grunnlaun er skref í rétta átt. Þau laun sem leikskólakennarar hafa í dag eru til skammar og virðast endurspegla við- horfín til uppeldismála í þjóðfélaginu. Þau sýna kannski best hvert verð- mætamatið er í þessu landi. Það er löngu tímabært að auka skilning á mikilvægi góðs uppeldis hér á ís- landi. Ein leið að því marki er að hækka laun leikskólakennara, þann- ig að starfið verði eftirsóknarvert og að leikskólakennarar geti lifað af launum sínum. Höfundur er leikskólakennari á Selfossi. _ Kristín Ólafsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.