Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 43
MORQUNB^ÐIÐ. ÞjtlEfflJDftqyR 13. MAilZ . 199(| , 43 I tileftii af gamalli grein eftir Gísla Sigurbjömsson Hvað er framúndai eftirHelga Geirsson Ég rakst á grein í Morgunblaðinu 16.9. 1988, eftir Gísla Sigurbjörns- son forstjóra. Greinin er látlaus og kurteis eins og Gísla er vant, en gefur okkur, sem höldum að við vitum allt, sígildan boðskap sem við ættum öll að meðtaka, hvar sem við störfum í íslensku þjóðfélagi. Gísli segir hér margt í stuttri grein, en vili fyrst og fremst koma á framfæri við einstaklinga og þjóð- ina í heild, að lengur sé ekki kostur- inn annar, en að SPARA. í því felst ekki eingöngu að halda fast í þá peninga sem til eru, eftir eyðsluæði undanfarin ár og hugsa tvisvar og þrisvar áður en þeim er eytt, heldur einig að fara vel með það sem ein- staklingar og almenningur hefur fjárfest í á undanförnum „góð- árum“ og enn að hemja innflutning á ónauðsynlegum vörum frá útlönd- um fyrir verðmætan gjaldeyri svo að ekki sé talað um útlanda-fland- ur. Forstjórinn hefur gefið okkur þessar sömu sígildu ráðleggingar í gegnum „góðu árin“ allt frá stríðslokum. Raunar má segja að það sé nokkuð seint að spara þegar öllu hefur verið eytt og þjóðin er orðin svo skuldug erlendis að hætta er á að börn okkar fæðist í fjötra erlendra lánardrottna. Þess vegna er það sem Gísli bendir okkur á „fröken neyð“, eins og hann kemst að orði — að hún sé á næsta leiti ef við sjáum ekki að okkur fljótt.. . Það er enginn efi í huga mínum að íslendingar eru yfirleitt einstak- lega skynsamir og duglegir, og að ráðamenn okkar eru þar engin und- antekning, vænti ég því góðra lausna sem duga. En eins og Gísli Sigurbjörnsson bendir á, er eins og að þeir sem ráða leggi of mikla áherzlu á bókarmenntun og sýndar- mennsku, helzt að hún sé blönduð útlendingadýrkun og mennta- .mannahroka. í stað þess að spyrja viðkomandi íslenzkan almenning — og þá fyrst og fremst þá sem hafa raunverulega reynslu, eru í eldlín- unni og vandamálin snerta beinlínis. Þá komum við beint að öðru at- riði sem Gísli bendir á: Að við berum ekki nægilega virðingu fyrir gamla fólkinu, hvorki fyrir þeim sem þurfa aðstoð þjóðfélagsins, né þeim sem geta hjálpað þjóðfélaginu á ómetan- legan hátt. Það er ekki auðvelt fyr- ir Gísla að benda okkur á þetta, því að það er í raun hlutverk yngri manna, Gísli er nú sjálfur aldraður og er með meiri reynslu í málum aldraðra en nokkur annar maður á íslandi — já, ég voga mér að stað- hæfa í heiminum. Menn sem ekki þekkja Gísla gætu í óvitaskap sínum haldið að hann sé að leita eftir ein- hveiju hrósi og eftirtekt, en ég vil fullvissa Iesendur um að ekkert sé Qær huga hans en það. Gísli er vel stæður, öflugur og sjálfstæður Námskeid í stjðrnuspeki 14.-28. mars. Gunnlaugur Guðmundsson. Stjörnuspekistöðin, Aðalstræti 9, sími 10377. eftirGísIa Sigurbjörnsson Eitt er vlst að nú eru & flestum sviðum alvariegar horfúr í þjóðmál- um fslendinga og verður að leita allra ráða til að sigrast á erfiðleik- unum. Lengi vel átti allt að lagast með bjartsýni og frjálsræði. Allt er fer- tugum fært, er stundum sagt, en við sem eldri erum vitum, að án þess að styðjast við og íærs af reynslunni, þá endar þetta svona. Að vísu getum við keypt tölvur og hö' -n við sar.- , 'ega Helgi Geirsson „Ég hef verið að láta mér detta í hug hvernig þjóðfélagið gæti nýtt, þá gífurlegu reynslu og þekkingu sem reyndir menn eins og Gísli búa yfir, því að flestir þeirra forðast skítkast stj órnmálanna. “ maður, sem helgar sig þjónustu fyrir aldraða íslendinga og hefur vakandi auga á íslenskum þjóðmál- um. Hann hefur verið sæmdur æðstu orðu hérlendis og erlendis fyrir starf sitt og þarf því ekki mitt hrós né annarra. Ég vil samt segja að Gísli Sigurbjörnsson for- stjóri er einn af bestu sonum íslensku þjóðarinnar. Ég hef verið að láta mér detta í hug hvernig þjóðfélagið gæti nýtt, þá gífurlegu reynslu og þekkingu sem reyndir menn eins og Gísli búa yfir, því að flestir þeirra forðast skítkast stjórnmálanna. Helzt gæti ég hugsað mér að nefnd og ráð (nokkurs konar hugmyndabanki eða „think tank“) væri stofnað, sem forseti Islands tilnefndi í, til að koma saman og ræða almenn og ákveðin þjóðmál. Þetta yrði gert Brids Amór Ragnarsson Bridsfélag Reykjavíkur Þegar einu kvöldi er ólokið í aðal- sveitakeppni félagsins er staða efstu sveita þannig: V erðbréfamarkaður Islandsbanka 115 Tryggingamiðstöðin 112 Púlogbasl 112 Jón Þorvarðarson 109 Modemlceland 106 Delta 104 Samvinnuferðir/Landsýn 102' Flugleiðir 96 í síðustu umferðinni eigast m.a. við: VÍB-Modem I., Ti-yggingamiðstöðin- Delta, Púl og basl-Jón Þ., S/L- Frímann, Flugleiðir-Júlíus. Bridsdeild Skagfirðinga Þriðja konfektkvöld Skagfirðinga var spilað sl. þriðjudag þrátt fyrir aftakaveður á höfuðborgarsvæðinu. 16 pör létu sig hafa að mæta til keypt. Stóru elliheimilin v á síðustu ráðstcfnu um e yrðu lögð niður, úreltir st< Allir fá allt eða eiga að fá, aðstoð, heimahjúkrun, he mat og ótal margt am vissulega ber að þakka. H kostar og hver á að borj annað mál. Viðhorfin hafa breysi fólk er yfirieitt ekki talið 1 ar skoðanakannanir en Þeim, sem eru yfír áttrætf reglulega en yrði algjörlega utan við „flokkapólitík“ okkar og forseti mundi haga þessu eftir aðstæðum, en enginn í ráðinu hefði þar fast sæti, heldur sæti hver þar hveiju sinni að boði forseta. Niðurstöður umræðna þessa ráðs um ýmis mál- efni mætti síðan gefa viðkomandi aðilum, sem gætu notað þær sér til hliðsjónar. Það væri ekki óeðli- legt að taka þessar umræður upp á sjónvarpsspólur fyrir framtíðina. Væri ekki tilvalið að þessar um- ræður færu fram á Þingvöllum í nafni Fjölnismanna, sem vildu að Alþingi væri haldið þar? Mætti ekki jafnvel kalla nefndina Fjölnis- mannanefnd? Það er svo margt sem er sameiginlegt með góðum göml- um Islendingum og Fjölnismönnum nítjándu aldar, við skuldum þeim svo mikið, en gleymum svo fljótt! I öllum bænum hlustum á menn eins og Gísla Sigurbjörnsson forstjóra. Höfundur er búsettur í Kanada og starfar sem alþjóðlegur ráðgjafi um rafmagnskerfi. Vinningstölur laugardaginn 10. mars ’9Q VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 3 818.041 O Z. 4af5'S$p 9 47.374 3. 4af5 149 4.936 4. 3af 5 5.182 331 Heitdarvinningsupphæö þessa viku: 5.331.195 kr. UPPLVSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 COLA leiks. Sigurvegarar kvöldsins urðu Aðalbjörn Benediktsson og Jóhann- es Guðmannsson, báðir frá Hvammstanga, en búsettir hér í Reykjavík. Að Iaunum fengu þeir stærsta konfektkassa bæjarins. Röð efstu para varð þessi: Aðalbjöm Benediktsson — Jóhannes Guðmannsson 253 Sigmar Jónsson — VilhjálmurEinarsson 243 Helgi Hermannsson - Kjartan Jóhannsson 241 Ólína Kjartansdóttir - Ragnheiður Tómasdóttir 240 Ragnar Jónsson — Þröstur Ingimarsson 229 Ármann J. Lárusson — Lárus Hermannsson 227 Konfektkvöldunum verður fram- haldið næstu þriðjudaga. Allt spilaáhugafólk er velkomið. Spilað er í Drangey v/Síðumúla 35, 2. hæð og hefst spilamennska kl. 19.30. Stjórnandi er Ólafur Lárusson, s. 16538. AFMÆLISLEIKU R Næstu sex vikurnar fra 12/3 - 2/4 verða valin afmælisbörn dagsins á Bylgjunni. Öll börn fædd 1981 eða síðar geta verið með. Á hverjum degi verða valin þrjú börn sem fá RC-cola gos og RC-cola bol. Aðeins þarf að hringja inn nöfn þeirra á Bylgjuna í síma 611111. Á laugardögum verða valin afmælisbörn vikunnar og fá: uer þrjú þeirra EGILSGOSBÍL með RC-cola gosi otr 10 börn fá RC-cola töskur iM' 20 börn fá RC-cola boli. Verid med í afmælisleik Öigerdarinnar og Bylgjunnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.