Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 22
22 ______________MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990 UM VEIÐILEYFA- SÖLU OG SÓSÍALISMA Fáeinar ábendingar til Hannesar H. Gissurarsonar eftir Markús Möller Hannes H. Gissurarson skrifaði grein hér í Morgunblaðið 7. feb. um fiskveiðistjómun. Þótt greininni væri formlega beint gegn Gylfa Þ. Gíslasyni, þá var henni ætlað víðtækara markmið: Að stimpla þá alla bolsa, sem ekki eru tilbúnir að afhenda Kristjáni Ragnarssyni og umbjóðendum hans íslensku fiski- stofnana til ótakmarkaðrar ráðstöf- unar. Ég tel slíka afhendingu hreint ekki sjálfsagða, og álít mig þó jafn- góðan iýðræðis- og einkarekstrar- sinna og hvern annan. Ýmislegt reynist líka athugavert við röksemd- ir Hannesar, og er ekki seinna vænna að finna að áður en boðað ritverk hans um nýtingu fískistofn- anna tekur á sig endanlega mynd. Fyrst er að festa hugtökin: í þess- um línum kalla ég það almanna- kvóta ef veiðiréttur er seldur á eðli- legu markaðsverði og andvirðið rennur með einum eða öðrum hætti til almennings, en fámenniskvóta ef takmörkuðum hópi er úthlutaður veiðirétturinn til eignar. Þýðir almannakvóti ríkisrekstur? Hannes heldur því fram að í al- mannakvóta ráðstafi ríkið veiðileyf- unum. Það eru vægast sagt stór- brotnar ýkjur. í almannakvótanum einskorðast hlutverk opinberrar kvótasölu við að ákveða heildarafla og bjóða hann upp eða koma í verð á markaði eftir ströngustu reglum. Allar rekstrar- og fjárfestingar- ákvarðanir verða í höndum sjávarút- vegsfyrirtækja, og allt verð er ákveðið af framboði og eftirspurn. Þetta þýðir meðal annars að samlík- ingin sem Hannes telur sig sjá við markaðssósíalisma Óskars Lange er missýning: Lange gerði ráð fyrir að allt verð og allar fjárfestingar yrðu ákveðnar af hinu opinbera nema hvað á vinnumarkaði og markaði fyrir endanlegar neysluvör- ur skyldi ríkja nokkurt frelsi. Raun- ar má leiða að því rök, að ákvarð- anataka verði dreifðari í almannak- vóta en fámenniskvóta, því ef út- gerðarmenn fá óskoruð yfírráð yfír fískistofnunum, þá kallar það á sam- ráð, t.d. um heildarafla, sem hætt er við að leiði til hringamyndunar og einokunar á fleiri sviðum. Það er svo alkunna að samkeppni gefst betur en einokun, og samkeppnin verður trúlega virkari í almannak- vóta en fámennis. Hannes segir að í almannakvóta verði útgerðarmenn leiguliðar ríkis- ins, vegna þess að þeir verða að greiða sannvirði fyrir veiðirétt sem þeir eignast, en mér er spurn: Eru þeir þá klafabundnir skipasmiðjum og netagerðum? Hvort tveggja er auðvitað bábilja. Það er alger mis- skilningur hjá Hannesi að sam- keppni og einkarekstur byggist á því að fyrirtækin eigi ævarandi til- kall til framleiðsluþátta sinna. Það er meginregla fremur en undan- tekning, að aðföng eru keypt á markaði. Styrkur frjáls atvinnulífs er einmitt fólginn í því hvernig markaðsöflin samhæfa gróðásókn fjölmargra einstaklinga og virkja hana nauðungarlaust til hagsbóta fyrir allan almenning. Bóndi, skóg- arhöggsmaður, smiður og verslun- armaður, sem vinna hver í sínu lagi en koma þó í sameiningu smíðisgrip til neytanda, eru lýsandi dæmi um undravél markaðsskipulagsins. Samnjörvun allra framleiðslustiga er miklu fremur einkenni á austræn- um framleiðsluháttum en vestræn- um. Jafiigildir almannakvótinn skattheimtu? Hannes skrifar að sala veiðileyfa og þar með almannakvótinn jafn- gildi skattheimtu á sjávarútveg. Svo er ekki. Ég hef gert þessu máli nokkur skil í nýjasta hefti Stefnis og fer því hratt yfír sögu hér. Skatt- ur er lögþvingað gjald, en veiði- leyfasalan yrði nauðungarlaus. Eng- inn myndi kaupa kvóta nema hann teldi sig hagnast á því. Verð veiði- leyfa yrði ekki hærra en við fámenn- iskvóta heldur sennilega lægra, og umbun dugmikilla manna í sjávarút- vegi myndi sízt minnka. Það sem hefur skilað sumum útgerðarmönn- um hagnaði í gegnum tíðina er dugnaður og góð stjómun, en ekki að þeir hafi haft einkarétt á að gera út. Það verður áfram gróða- vænlegt að vera góður stjórnandi, þótt kvótinn verði seldur. Þeir sem standa sig best nú, munu dafna í almannakvóta og stækka fyrirtæki sín mun hraðar en í fámenniskvóta, þar sem hinir slakari eiga þess kost að dóla áfram og láta kvótaeign sína borga upp rekstrartapið. Þeir, sem hafa keypt skip sín langt yfir sannvirði, munu að sönnu tapa ef skipin Iækka í verði meðan flotinn minnkar niður í hagkvæmustu stærð. Slíkt tjón er tæplega bóta- skylt. Verðmæti veiðiréttarins er þó svo mikið, að hægt er að gera vel við alla. Leiða má að því sterk rök að verðmæti framseljanlegs kvóta sé 10-15 miiljarðar króna á ári. Því er auðvelt að bæta eignatjón vegna verðfalls á tækjum og gott betur með því að framlengja núverandi kvótakerfi með auknum framsals- rétti í svo sem 5 ár. Ríkisbrestur? Hannes segir að ríkið hafi svikist um að koma á skynsamlegu fyrir- komulagi í fiskveiðum á borð við það sem gilti um landareignir og annað. Hann svíkst sjálfur um að gera grein fyrir hvers vegna eignar- réttur nær yfír sum verðmæti en ekki önnur. Hvers vegna hefur hér á landi þróast einkaeignarréttur á bújörðum en ekki á afréttum og fiskimiðum? Líklegasta skýringin er erfíðleikar við gæslu. Það svaraði ekki kostnaði að stúka sundur há- lendið eða halda úti gæsluskipum. En með fullyrðingunni um ríkisbrest fiettir Hannes ofan af staðreynd, sem er málstað hans heldur óþægi- leg: Almannavaldið er forsenda eignarréttarins, og fískistofnamir við landið eru mun meira virði þeg- ar skipulegar eignarreglur eru í gildi en þegar veiðar em óheftar. Þá er spurningin þessi: Hver eða hverjir eiga þá tilkall til þess viðbótarverð- mætis sem myndast við það að eign- arrétti er komið á fískistofnana? Útgerðarmennimir, sem fyrir em, hófu starfsemi ótilneyddir þegar veiðar vom óheftar og hljóta því að hafa talið sig skaðlausa af að heija rekstur við þau skilyrði: Arðurinn eða tapið af óheftum veiðum er því eðlilegt afgjald fyrir íjárfestingu þeirra og fyrirhöfn. Þau verðmæti sem almannavaldið skapar með því að koma eignarrétti yfír fiskistofn- ana em því fundið fé, rétt eins og fyndist gull í Vatnajökli fyrir tilvilj- un og heppni. Ég get ekki setið á mér að riija upp orð sem Hannes lét falla á fundi sem Landsmálafélagið Vörður hélt um fiskveiðastjórnun skömmu fyrir jól. Hann sagði þá að hægt væri að úthluta réttlátlega verðmætum sem enginn ætti með a.m.k. tvennu móti og talaði um réttlæti uppboðs annars vegar og réttlæti biðraða hins vegar: Þegar menn hefðu kost- að nokkru til, staðið í biðröð, væri ekki óeðlilegt að úthluta eftir því hve mikið þeir hefðu lagt á sig. Þegar um væri að ræða fundið fé, svo sem gull í Vatnajökli eða olíu á sjávarbotni, þá væri ekkert að at- huga við að bjóða upp eignina og dreifa afrakstrinum til Iandsmanna. „Það er alger misskiln- ingur hjá Hannesi að samkeppni og einka- rekstur byggist á því að fyrirtækin eigi ævar- andi tilka.ll til fram- leiðsluþátta sinna. Það er meginregla fremur en undantekning, að aðfong eru keypt á markaði. Styrkur frjáls atvinnulífs er einmitt fólginn í því hvernig markaðsöflin samhæfa gróðasókn fjölmargra einstaklinga og virkja hana nauðungarlaust til hagsbóta fyrir allan al- menning.“ Ég tel mig hafa leitt hér tvímæla- laus rök að því að verðmætin sem sköpuð eru með því að koma veiði- réttinum í verð séu fundið fé. Þá hef ég fyrir því orð Hannesar sjálfs, að almenningi sé frjálst og átölu- laust að selja góssið á uppboði og úthluta sjálfum sér andvirðinu. Áhrif á þjóðarhag Þótt almenningi sé heimilt að hirða arðinn sem skapast við mynd- un eignarréttar, kemur fámennis- kvótinn samt til álita ef hann trygg- ir jafngóð lífskjör og/eða meiri vald- dreifíngu en almannakvótinn. Hann- es skrifar: „Þótt fískistofnarnir við landið séu sameign þjóðarinnar, hafa núverandi veiðimenn öðlast veiðiréttindi í krafti sögulegrar hefðar, og aðrir Islendingar skaðast ekkert á því að þessi réttindi verði viðurkennd." Fyrri hluta þessarar málsgreinar tel ég mig hafa hrakið hér að framan, og reyndar í lengra máli í nýútkomnu hefti Stefnis. Raunar er sérstök ástæða til að vekja athygli á að þegar Hannes talar um hefðarrétt veiðimanna, þá á hann alltaf við útgerðarmenn en ekki sjómenn. Væri í meira lagi fróð- legt að fá hann til að útskýra af hveiju annar hópurinn hefur allan rétt en hinn engan. Það er sejnni hluti tilvitnaðrar málsgreinar, um áhrif á kjör almennings, sem líklega ræður mestu um hvað þjóðin myndi kjósa, væri hún spurð. Sá hluti stenst ekki skoðun fremur en hinn fyrri. Það fer ekki milli mála að tekjur alls almennings verða lægri í fámenniskvóta heldur en í al- mannakvóta, þótt tekjur útgerðar- manna verði að sjálfsögðu mun hærri. Hér mætti kveða fastar að: Það er fullvíst að lífskjör almenn- ings munu batna ef komið verður á almannakvóta, en hreint ekki útilok- að að þau versni frá því sem nú er ef fámenniskvótinn verður ofan á. Það væri því ekki einasta óskylt, heldur beinlínis gálaust af íslenskum kjósendum að sætta sig við að veiði- rétturinn verði afhentur útgerðar- mönnum um aldur og ævi, nema þá að leidd verði að því sterk rök að sáralitlu muni í lífskjörum á al- mannakvóta og fámenniskvóta. Mér fínnst það aldeilis með ólíkindum, að nú skuli vera búið að leggja fyr- ir Alþingi frumvarp um eilífan fá- menniskvóta án þess að ábyrgðar- menn þess og þá einkum sjávarút- vegsráðherra sjáist hafa af þessu minnstu áhyggjur, hvað þá sýni til- burði til að grennslast fyrir um heildaráhrif fámenniskvótans. Er þeim þó líklega ljósara en mörgum öðrum, hvílík undirstaða sjávarút- vegurinn er í íslensku efnahagslífí. Ég trúi því í lengstu lög að þarna ráði yfirsjón en ekki ásetningur, og að með rökum megi fá ráðherrann til að fara gætilegar. Það mál verð- ur vitaskuld að eiga við ráðherrann og alþingi, en ekki holdgervinga fijálshyggjunnar. Þrjú smáatriði Ýmislegt annað er sérkennilegt, missagt eða vafasamt í grein Hann- esar. Lokakaflinn um bann við sölu veiðileyfa úr landi og skyldun út- gerðarmanna til að selja almenningi hlut í kvótanum á niðursettu verði kemur eins og skrattinn úr sauðar- leggnum. Ég get tæplega túlkað hann öðru vísi en sem undanhald og merki um vonda samvisku. í öðru lagi sýnist það alrangt sem haldið er fram í greininni, að auð- lindaarður í sjávarútvegi muni lækka ef tekinn verður upp fámenn- iskvóti, þar eð aðrir atvinnuvegir styrkist: Styrking annarra atvinnu- vega í kjölfar fámenniskvóta stafar þvert á móti af lægra raungengi sem hækkar auðlindarentuna. í þriðja lagi er það sem sagt er um ranga gengisskráningu byggt á sams kon- ar misskilningi. Hátt raungengi hef- ur fremur haldið aftur af offjárfest- ingum í sjávarútvegi. Það er hins vegar óeðlileg lánafyrirgreiðsla sem útgerðin hefur kríað út, sem hefur leitt til kaupa á þeim skipum sem falla í verði þegar eign kemst á veiðiréttinn. Stalínisminn og frjálshyggjan Norðmaðurinn Otto Larsen var sósíalisti á yngri árum, en læknað- ist eftir nokkra dvöl á þeim spítölum sem Stalín rak í Gúlaginu. Hann segir frá því í bók sinni, Nytsömum sakleysingja, að hann og fleiri Norð- menn áttu tal við heldur vitgrannan Rússa, sem batnaði seint og taldi að allur hryllingurinn væri svo sem ójöfnur og aurbleyta á veginum til fyrirheitna landsins. Aðspurður hvernig hið fullkomna samfélag só- síalismans yrði, svaraði Rússinn: Þar fá allir nóg að borða og þak yfir höfuðið. Norðmennimir sögðu honum að þessu marki væri löngu náð í Noregi. Rússinn þagði við svo- litla stund, en sagði svo: Það er nú samt ekki sósíalismi. Ég er ekki frá því að Hannesi sé farið eins og Rússanum í Gúlaginu: Honum dug- ar ekki að almannakvótinn leiðir til betri lífskjara en fámenniskvótinn, dreifðari ákvarðanatöku og virkari samkeppni, því það er samt ekki kapítalismi og samt ekki fijáls- hyggja. Þá gleymir hann því sem er aðalatriðið, og varð sósíalisman- um að falli í Austur-Evrópu: Þegar upp er staðið er gildi stjórnarhátta ekki metið eftir stimplum og vöru- merkjum, heldur hinu, hvernig þeir tryggja frelsi og farsæld fólks. Höfundur er hagfrædingur. NAVtSUMiNASIOt Nl \ Lesörk um stríð og frið komin út Hjá Námsgagnastofnun er kom- in út lesörkin Stríð og friður. Lesörkin er þemakver, nýjasta útgáfan í flokki lesarka sem stofin- unin hefúr gefið út á undanförn- um árum. Fjöldi höfunda sem á efni í lesörk- inni er á ljórða tug og er efnið dreg- ið saman úr ýmsum áttum: Innlend- ir textar og þýddir, bundnir og óbundnir, fornir og nýir. Textar bók- arinnar fy'alla allir um stríð eða frið í einhveijum skilningi. Lesörkin er einkum ætluð 7.-9. bekk grunn- skóla. Kennararnir Ásmundur Sverrir Pálsson og Steingrímur Þórðarson völdu efnið og Ingiberg Magnússon teiknaði myndir. Bókin er 144 blaðs- íður og sá Námsgagnastofnun um setningu og umbrot. Steinholt hf. prentaði en bókband annaðist Fé- lagsbókbandið Bókfell hf. Sjötta versl- un Grundar- kjörs opnuð GRUNDARKJÖR opnaði í gær- morgun sína sjöttu verslun á höf- uðborgarsvæðinu. Nýja verslunin er í Eddufelli í Breiðholti, en fyrir- tækið festi fyrir helgi kaup á fyrr- um verslun Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis þar. Jens Ólafsson kaupmaður í Grundarkjörum sagðist ekki vilja spá um frekari stækkun fyrirtæk- isins. „Ég er þeirrar skoðunar að í Breiðholti sé mikill óplægður akur í verslunarmálum," sagði Jens í sam- tali við Morgunblaðið um ástæður kaupanna. „Ég hef haft augastað á þessari verslun í rúmt ár, og hafði reyndar hugsað mér að hún yrði Grundarkjaraverslun númer tvö.“ Aðspurður sagðist hann ekki vilja tjá sig um möguleika á frekari stækkun fyrirtækisins. „Við eigum nú verslanir í öllum hverfum bæjar- ins að austurbænum og Árbæ und- anskildum. Það er aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér,“ sagði Jens. Höfin í Hornafírði: Jafiiaðarmenn stofiia félag STOFNAÐ verður félag jafnaðar- og félagshyggjufólks á Höfn í Hornafirði á miðvikudagskvöldið. Að félaginu standa sömu aðilar og buðu fram H-Iista óháðra í síðustu sveitarstjórnarkosningum sem fékk 3 fúlltrúa af 7. Björn Grétar Sveinsson formaður verkalýðsfélagsins Jökuls og fyrrum ritari Alþýðubandalagsins er meðal framsögumanna á fundinum. Þegar hann var spurður hvort það þýddi að tengsl hans við Alþýðubandalagið væru að rofna sagði hann svo ekki vera.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.