Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 13
MQRQUfjBLAÐlÐ (1&.; MARZ j9j)0 i 13; Jón Falstaff og Herra Vað (í dulargervi), Dagur Eggertsson og Jón Oddur Guðmundsson. Myndin er tekin á æfingu. Klækir kátra kvenna _________Leiklist____________ Jóhanna Kristjónsdóttir Herranótt Menntaskólans í Reykjavík frumsýndi í Iðnó: Vindsórkonumar kátu eftir William Shakespeare Leikmynd: Pétur Gautur Svav- arsson Búningar: Sigrún Guðmunds- dóttir Lýsing: Egill Eyjólfsson Ljósamaður: Adam Birkenhead Yfirsmiður: Björn Jónsson Sýningarstjórar: Tinna Rut Jó- hannsdóttir og Ingibjörg Sveins- dóttir Hljóð: Páll Garðarsson og Hrannar Ingimarsson Þýðing: Helgi Hálfdanarson Leiksljóri: Hlín Agnarsdóttir Gamanleikur Shakespeares um kátu konurnar í Windsor var fyrst fluttur 1597 fyrir Elísabetu I. drottningu. Leikritið ber mörg bestu einkenni höfundarins. Bygg- ingin pottþétt og þráðurinn vindur sig vel áfram og skilmerkilega. Tvær persónurnar, Jón Falstaff og Spræk húsfreyja, koma einnig við sögu í Hinriki IV. en standa hér vitanlega sem fullkomlega sjálf- stæðar persónur. Falstaff riddari telur sig vera mikinn atgervismann og eftirsóknarverðan í augum kvenna. Hann ákveður að fara á fjörurnar við tvær sómakærar eig- inkonur á staðnum og sendir þeim sams konar ástarbréf. Konurnar hafa í bland gaman af og ákveða að leika á Falstaff og tvívegis er hinum ólánlega riddara forðað undan trylltum eiginmanni, fyrst í þvottakörfu og síðar dulbúinn sem digurkvendi. Þegar hér er komið sögu er annar eiginmaður- inn, Herra Vað, orðinn óður af afbrýðissemi, fer til Falstaffs i dulargervi náttúrlega og hugsar sér að afhjúpa svikula eiginkonu. Samtímis því að þetta ævintýri leikur sér á sviðinu er dóttir hinna hjónanna, fröken Anna Pák, að beijast við að fá að giftast mannin- um sem hún elskar, Fentún aðals- manni. Biðlar hennar eru á hveiju strái og foreldrarnir eru vitanlega ekki sammála hennar vali. En svo fer allt vel að lokum eins og vera ber. Menntaskólinn í Reykjavík býr að langri leiklistarhefð eins og Orri Hauksson vék réttilega að í Skraparótsprédikun. Eðli málsins samkvæmt eru gerðar meiri kröfur til sýninga Herranætur en ýmissa annarra skólafélaga. Krakkarnir standa sig mörg svo að er til fyrir- myndar. Mikið er í sýninguna lagt, sniðið hefur verið af áhorfenda- bekkjum til að leikmyndin njóti sín til fullnustu og hefur hún tekist mætavel. Allt ytra byrði annað er líka alveg ljómandi. Dagur Eggertsson er Jón Fat- staff og leikur af krafti og gaman- semi, Jón Oddur Guðmundsson er Herra Vað hinn afbrýðissami og hefði stundum þurft að dempa sig aðeins. Sólveig Arnarsdóttir er frú Vað og Matthildur Sigurðardóttir er frú Pák. Þær Sólveig og Matt- hildur sýndu öryggi í sviðsfram- komu og skólaða frámsögn. Anna María Pitt var ástfangna stúlkan Anna Pák og Fentún var í höndum Kormáks Hennannssonar. Þau voru sæt og ljúf og Anna María sýndi tilþrif en einhvern veginn fannst mér ástarævintýrið verða útundan í leiknum hvort sem það er meðvitað eða ekki. Hildur Hjörleifsdóttir stóð sig ágætlega sem séra ívar og Erlend- ur Svavarsson var hæfilega aula- legur sem Slápur, einn af vonbiðl- um Önnu. Sigurþóra Bergsdóttir var fyrirferðarmikil sem Spræk húsfreyja og Þórmundur Jónatans- son var sniðugur og hæfilega af- káralegur sem Kajus. Margir fleiri koma við sögu og standa fyrir sínu. Framsögn er jafnan veikasti hlekkurinn í skóla- sýningum og vottar fyrir því hér eins og eðlilegt er. Sviðsframganga menntskælinga er býsna fagmann- leg og Hlín Agnarsdóttir leikstjóri hefur haldið utan um þennan stóra hóp af útsjónarsemi og vandvirkni. VIRÐISA LJKINN í VELTUNA Reglugerð um virðisaukaskatt heimilar að draga 24,5% VSK frá bílverði við kaup á nýjum sendibifreiðum, sé hún eingöngu notuð vegna skattskyldrar starfsemi. Það vita e.t.v. ekki allir, að neðangreindar gerðir flokkast undir þessa skilgreiningu. ISUZU Gemini Verð (rá 761.000 stgr. Verðfrá 611.000 stgr. án VSK. OPEL Kadett Station Verð frá 1.155.000 stgr. Verð frá 926.000 stgr. án VSK. ISUZU Trooper DIX Verð frá 1.697.000 stgr. Verð frá 1.363.000 stgr. án VSK. CHEVROLET Pickup 4x2 drif Verð frá 940.000 stgr. Verð frá 755.000 stgr. án VSK. GMC Pickup 4x4, 6,2L Diesel Verð frá 2.560.000 stgr. Verð frá 2.056.000 stgr. án VSK. Bílar, framleiddir af General Motors eru sterkbyggðir, með mjög lága bilanatíðni og þar af leiðandi hagstæðir í rekstri. Hafðu samband við okkur sem fyrst og athugaðu okkar hagstæða verð og greiðsluskilmála. HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 n nœstu daga með miklum afsketti! borð - kommóður - eldhúsborð - tölvuborð - spilaborð 5% 4" STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR VISA RAÐGREIÐSLUR habitat LAUGAVEGI13 - SÍMI 625870 INNGANGURIHÚSGAGNADEILD SMIÐJUSTÍGSMEGIN AUGLÝSINGASTOFA BRYNJARS RAGf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.