Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990 ____U_______í----!---------------<- 23 Gasolían lækkar en verð á bensíni er stöðugra VERÐ á gasolíu hefur farið hríðlækkandi á Rotterdam- markaði, samkvæmt upplýsing- um, sem Morgunblaðið fékk hjá einu olíufyrirtækjanna. I árs- byrjun kostaði tonn af gasolíu 233.25 bandaríkjadali, en er nú komið niður í 167 dali. Útsölu- verð á gasolíu hér var lækkað í samræmi við þetta um síðustu mánaðamót. Bensínverð er svip- að nú og í ársbyijun, var þá 209.25 bandaríkjadalir hvert tonn af súper-bensíni, en er nú 211,50 dalir. Verð á blýlausu bensíni er nær hið sama nú og í ársbyijun, eða 199 bandaríkja- dalir á móti 198,50 dölum hvert tonn. Nokkrar verðsveiflur hafa verið á bensíni á tímabilinu, en ekki í líkingu við verðbreyting- ar á gasolíu. Bensín- og olíubirgðir í landinu eru með venjulegum hætti, til 2-3 mánaða. Sending af súper-bensíni ér nýkomin til landsins og venju- legar birgðir eru af blýlausu bensíni. Blýlaust bensín kostar hér 49,90 krónur. Stærsti hluti verðs- ins, 33,17 krónur eða 66%, rennur til ríkisins vegna ýmissa gjalda s.s. bensíngjalds og virðisauka- skatts. Innkaupsverðið er 9,67 krónur, dreifingarkostnaður 6,93 krónur og flutningsjöfnunargjald 0,85 krónur. Samanlagt gerir Samsetning eldsneytis- verðsins 1 á íslandi Bensínlítrínn: kr. 49,90 ‘Dreifingarkostnaður, flutningsjöfnunar- gjald, framlag úr innkaupajöfnunarsjóði Hráolíulítrinn: kr. 21,10 *Dreifingarkostnaður, flutningsjöfnunar gjaid, tillag úr innkaupajöfnunarsjóði þetta 50,62 krónur, en 72 aura framlag úr innkaupajöfnunarsjóði ÚR DAGBÓK LÖGREGLUIMNAR í REYKJAVÍK: 9.-11. mars 1990 Mjög þungfært var í og við borgina um helgina vegna snjóa, sérstaklega á laugardeginum. Til- kynnt var um 45 árekstra. Víst má telja að árekstrar hafi orðið miklu fleiri og eignartjónið því umtalsvert. Þá urðu 4 umferðar- slys. Ungur drengur varð fyrir bifreið á Suðurfelli við Nönnufelli um klukkan sex á föstudagskvöld. Ökumaðurinn ók af vettvangi, en fannst síðar um nóttina. Um miðj- an dag á laugardag slösuðust tveir farþegar og ökumaður í árekstri fimm bifreiða á Vesturlandsvegi við Grafarholt. Síðar þann dag slasaðist ökumaður í árekstri þriggja bifreiða á Vesturlandsvegi við Nesti. Snemma á sunnudags- morgun var tvennt flutt á slysa- deild eftir árekstur tveggja bif- reiða á gatnamótum Grensásveg- ar og Miklubrautar. Rúmlega 50 ökumenn voru kærðir fyrir umferðarlagabrot um hefgina, flestir fyrir að aka á móti rauðu ljósi. Skráningarnúm- er voru tekin af allmörgum bif- reiðum vegna vanrækslu eigend- anna að færa þær til skoðunar. 18 bifreiðir voru fjarlægðar með kranabifreið vegna hættulegrar stöðu þeirra. 14 ökumenn voru stöðvaðir í akstri og grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis. Auk þeirra eru þrír aðrir, sem lent höfðu í umferðaróhöppum, grunaðir um ölvun við akstur um helgina. Tilkynnt var um 9 innbrot og 4 þjófnaði á gæslusvæðinu. Brot- ist var inn í verslun, hesthús, skóla, söluturn og bíla. Nokkrir voru staðnir að verki við iðju sína. Ávísanahefti var stolið úr íbúð og veskjum í íþróttaaðstöðum. Þjóf- arnir höfðu í öllum tilvikum lítið upp úr krafsinu. Minniháttar skemmdarverk voru unnin á tveimur stöðum og 3 rúðubrot voru tilkynnt til lög- reglu. Á einum stað höfðu tveir ungir drengir í óvitaskap brotið allmargar rúður í nýbyggingu. 24 einstaklingum var veitt að- stoð, ýmist við að. komast inn í læstar bifreiðir, íbúðir eða á ann- an hátt. 85 ölvaðir einstaklingar, sem lögreglan þurfti að hafa afskipti af, kunnu ekki fótum sínum for- ráð. 47 gistu fangageymslurnar, 20 á föstudagsnótt, 16 á laugar- dagsnótt og 11 á sunnudagsnótt. 5 þeirra, sem sýnt höfðu af sér sérstaka ókurteisi, voru færðir fyrir dómara að morgni og boðið upp á að afgreiða sín mál með nokkurra þúsunda króna sáttar- greiðslum. 6 gistu fangageymsl- urnar um helgina þar sem þeir áttu hvergi annars staðar höfði sínu að halla og veðráttan báuð ekki upp á útivist. Nokkrir ræddu við áfengisvarnarfulltrúa embætt- isins eftir vistun í fangageyslun- um. 3 voru í fangageymslunum fyrir önnur embætti. Karlmaður, sem reyndi að framselja falsaða ávísun í banka, var handtekinn á föstudag. Karlmaður var fluttur á slysa- deild eftir að hfa fallið á hálku á Frakkastíg. Karlmaður var handtekinn á veitingastað eftir að hann hafði tekið þar greiðslukort ófijálsri hendi og reynt að nýta sér mögu- leika þess. Eldur varð laus í íbúð í húsi við Kleppsveg aðfaranótt laugar- dags. Húsráðanda var bjargað og greiðlega tóks að ráða niðurlögum eldsins. Skemmdir urðu veruleg- ar. Karlmaður var fluttur á slysa- deild eftir slagsmál tveggja á vínveitingastað. Tilkynnt var um slasaðan svan á Tjörninni. Fuglafræðingur var fenginn í málið. lækkar verð hvers lítra í 49,90. í sumum öðrum Evrópulöndum er blýlaust bensín dýrara, til dæm- is í Danmörku, Finnlandi, Frakkl- andi, Hollandi, írlandi, Ítalíu, Nor- egi og Portúgal. Ódýrara blýlaust bensín fæst einnig í Evrópu, svo sem í Englandi, Grikklandi, Lúx- emborg, Sviss og á Spáni. Innkaupsverð á hráolíu er um helmingur verðs hennar. Hver lítri kostar hér 21,10 krónur, en inn- kaupsverðið er 10,49 krónur. Dreifingarkostnaður er hærri en opinber gjöld, eða 5,38 krónur á móti 4,31. Af þeim tuttugu Evróp- ' ulöndum, sem tekin eru dæmi af í meðfylgjandi töflu, er aðeins eitt þar sem hráolían er ódýrari, en það er Grikkland. Bensínverð í Evrópulöndum (ífebrúar 1990) Blýlaust Super Diesel Austurríki 48,60 50,60 43,90 Belgía 48,60 51,70 36,40 Danmörk* 53,30 60,20 40,80 England 39,10 42,20 39,10 Fínnland 58,70 62,90 48,40 Frakkland 52,60 54,80 36,90 Grikkland 32,50 34,30 14,30 Holiand 52,30 55,00 33,50 írland 56,40 59,20 51,60 ÍSLAND* 49,90 54,40 21,10 Ítalía 66,70 69,10 45,20 Júgóslavía 37,90 31,10 25,40 Lúxemborg 34,10 37,90 24,40 Noregur 53,80 56,30 25,40 Portúgal 52,30 53,10 31,50 Sviss 39,40 42,60 41,80 Spánn 44,60 44,00 32,80 Svíþjóð 49,80 52,20 36,90 A-Þýskaland 39,90 43,60 35,30 V-Þýskaland *Verð 8. mars 1990 38,30 41,90 33,60 257 milljónir til Þjóðar- bókhlöðu ekki skilað sér RÚMLEGA 501 milljón kr. hafði verið innheimt um síðustu áramót af 684 milljónum, sem lagðar voru á skattgreiðendur á árunum 1987-’89 vegna þjóðarátaks til byggingar Þjóðarbókhlöðu. Fjár- hæðin átti lögum samkvæmt að renna óskipt til Þjóðarbókhlöðunnar en tæplega helmingi hefur verið varið til þeirra hluta. 257 milljónir króna eru enn í vanskilum, að sögn Finnboga Guðmundssonar form- anns byggingarnefhdar Þjóðarbókhlöðunnar. Finnbogi segir að væri farið að lögum um fjárveitingar væri nú til nægilegt fé til að ljúka smíðinni. Hann segir að með þessum hætti hafi stjórnvöld brotið gegn lands- lögum. Enn hefur ekki tekist að inn- heimta 183 milljónir króna vegna eignarskattsaukans 1987-’89 og óvíst hvemig þeir fjármunir skila sér. í fjárlögum þessa árs er kveðið á um að ný lög um eignarskatts- auka skili 270 milljónum króna. Af þeirri fjárhæð eiga 67 milljónir að renna til Þjóðarbókhlöðu en auk þess leggur Háskóli íslands til 53 milljónir af sjálfsaflafé sínu sem varið verður til að tölvuvæða Þjóð- arbókhlöðuna. Finnbogi sagði að í árslok 1990 skorti 754 milljónir króna til að ljúka byggingu Þjóðarbókhlöðunn- ar. „Væri farið að lögum um fjár- veitingar til Þjóðarbókhlöðu og full skil gerð á innheimtum eignar- skattsauka áranna 1987-89, eins og menntamálaráðherra hefur lofað að gera, skorti um 500 milljónir króna til að ljúka smíðinni,“ sagði Finnbogi. Enn er ólokið þeim framkvæmda- þáttum sem kostnaðarsamastir em en meðal þeirra eru allar innrétting- ar, hengiloft með raflögnum og hill- ur. Finnbogi sagði að það hefði frá upphafi verið ljóst að þessi þáttur byggingarinnar yrði fjárfrekastur. Samgönguráðuneytið: Samið við Ungverja um samskipti í ferðamálum STEINGRÍMUR J. Sigfússon samgönguráðherra var í opinberri heim- sókn í Ungverjalandi í boði ungverska ferðamálaráðherrans, Imre Gellai, dagana 5.-8. mars sl. Á miðvikudag var undirritað samkomulag í Búdapest, milli viðskiptaráðuneytis Ungverjalands og samgönguráðu- neytisins, um samskipti landanna á sviði ferðamálk. Fyrsta tölu- blað Róms komið út TÍMARITIÐ Rómur, 1. tölublað, er komið út. í blaðinu er að fínna Ijóð, sögur og önnur hugverk auk greina um sagnfiræði, tónlist og heimspeki. Einnig eru í Rómi viðtöl við frjótt athafnafólk. Myndir skipa stóran sess í blaðinu og er eitt markmiða þess að auka hróður svart-hvítra ljósmynda. Auk þess vill Rómur koma róti á skapandi hugmynd- asmíð og efla innbyrðis tengsl list- greina. í fréttatilkynningu frá útgefanda segir meðal annars að allir höfund- ar og myndasmiðir séu fagfólk á sínu sviði. Ritstjóri tímaritsins Róms er Charles Egill Hirt. Blaðið er selt í bókaverslunum víða um land en er einnig selt í póstkröfu. í frétt frá samgönguráðuneytinu kemur fram, að ráðherra heimsótti alþjóðlega ferðakaupstefnu í Berlín á sunnudag og sat þar meðal annars fund ferðamálaráðherra nokkurra Evrópuríkja. í Ungverjalandsheim- sókninni ræddi hann við Imre Gellai ferðamálaráðherra, Sándor Kálnoki Kiss samgönguráðherra, Támas Beck viðskiptaráðherra, er landbúnaðarráðherra og leiðtoga þriggja stærstu stjórnmálaflokk- anna. í samkomulagi ríkjanna um sam- skipti á sviði ferðamála er gert ráð fyrir að stjórnvöld í löndunum hvetji til samvinnu milli ferðaskrifstofa og annarra aðila í ferðaþjónustu með það fyrir augum að auka ferðalög milli landanna. Sérstaka áherslu á að leggja á skipulagða ferða- mennsku, t.d. hópferðir. Þá hyggjast löndin auka samvinnu á alþjóðavett- vangi og bæta gagnkvæma þekk- ingu á aðstöðu fyrir ferðamenn, m.a. með þátttöku í sýningum, sem skipulagðar eru í löndunum. Áuk samgönguráðherra var með í ferðinni eiginkona hans frú Bergný Marvinsdóttir, Ólafur St. Valdimars- son ráðuneytisstjóri og Birgir Þorg- ilsson ferðamálastjóri. Leigiibílstjórar íhuga að kæra sendibílstjóra LEIGUBÍLSTJÓRAR íhuga nú að kæra sendibílstjóra vegna aksturs þeirra með farþega um helgar. Sendibílstjórar óku fólki endurgjalds- laust um helgina í mótmælaskyni við reglugerð um verkaskiptingu leigfu- og sendibíla, og verður þessum aðgerðum fram haldið næstu helgar, samkvæmt upplýsingum frá samtökum sendibílstjóra. Ekki kom til árekstra milli sendi- og leigubílsljóra um helgina. Leigubílstjórar ætla hins vegar ekki að sitja'þegjandi undir aðgerð- um sendibílstjóra. Ingólfur M. Ing- ólfsson, formaður Stéttarfélags leigubílstjóra, Frama, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að til greina kæmi að leigubílstjórar legðu fram kæru á hendur sendibílstjórum fyrir aðgerðirnar. Sendibílstjórar eru ósáttir við að leigubílstjórum skuli leyfast að flytja pakka án þess að innheimta virðis- aukaskatt, en sendibílstjórum beri að greiða virðisaukaskatt af flutn- ingum sínum. Þeir fá hins vegar felldan niður virðisaukaskatt af bílum sinum og aðföngum að þeim, en leigubilstjórar ekki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.