Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990 KAFARAR igum áv'allt á lager úr- val af köfunarvörum frá DACOR og US DIVERS t.d. lungu, kúta, gler- augu, fit, mæla, Ijós, blý, belti, hnífa, vettlinga, sokka o.fl. Útvegum með stuttum fyrirvara búninga frá NORTHERN DIVERS. Sérverslun meö kafaravörur. ÍÞRÓTTABÚÐIN Borgartúni 20 sími 91-20011 INGÖLFSSTRETI -1r .. Nú er Ljósmyndabúðin fiutt af Laugavegi 118 og býður þig velkominn í nýja verslun að ingólfsstræti 8 þar sem þú færð allar þær Ijósmyndavörur sem þig gæti vantað, og okkar landsþekktu gæðaframköllun. Sama góða þjónustan á nýjum og betri stað. - ÆBE’ Hlgi LIÓSMYNDABÚDIN Ingólfsstræti 8 Sími27744 Reykhólasveit: Dvalarheimilið Barmahlíð Morgunbladið/Sveinn Guðmundsson Dvalarheimilið Barmahlíð, Reykhólum. Reykhólasveit. FYRIR tæpum tveimur árum eða 11. mars 1988 var Dvalarheimilið Barmahlíð tekið í notkun. Barmahlíð stendur á fögrum stað á Reykhólum, þar sem víðsýni er mik- ið. I .suðvestri blasir við í góðu skyggni Snæfellsjökull, og hinum meg in Breiðafjarðar sjáum við Skor, en það örnefni gerði Matthías Jochumsson frægt með kvæði sínu um Eggert Ólafsson. Sagt er að eyjarnar á Breiðafirði séu nær óteljandi, en þær blasa við úr gluggum Barmahlíðar eins og fagurt mynstur í glitvefnaði. Þegar horft er í suður sjáum við tignarleg fjöll og ber Hafratind þeirra Saurbæinga hátt. Hann var líka eyktamark hér áður fyrr. Einn- ig blasir við Búðardalur, sá eini og sanni í hugum þeirra eldri. Þar bjó til dæmis Magnús Ketilsson sýslu- maður (f. 1723). Magnús var langt á undan sínum samtíma og Þor- steinn Karlsson bóndi í Búðardal segir að þar vaxi í varpa kúmen er Magnús sáði til. Hann reyndi líka að rækta tóbaksjurtina, en það dæmi gekk ekki upp. Innar í dalnum eru leifar af skógi er Magnús plant- aði og er hann sennilega fyrsti skógræktarmaður á Islandi. Frá Barmahlíð sést í mynni Gils- fjarðar og þar glyttir í Ólafsdal, en hann var þekktur fyrir að hýsa fyrsta búnaðarskólann (1880- 1915). Þar fengu margir gott vega- nesti út í lífið. Nú verður aðeins litið í áttina að Geiradalnum og til Króksfjarðar- ness. Einnig er litið til Innsveitar Reykhólahrepps og augun stöðvast við Bjartmarsstein þar sem fólk trúði því að væri kaupstaður álfa. Hér hefur verið farið hratt yfir. Frá Dvalarheimilinu Barmahlíð blasa við forn og ný minni og ekki má gleyma fegurðinni. I samtali við Ingibjörgu Krist- jánsdóttur, hjúkrunarfræðing, í Gaipsdal, en hún er . formaður stjórnar Dvalarheimilisins Barma- hlíðar, kom fram að margt hefur verið gert á árinu en margt er líka eftir. Tilbúin eru vistrými fyrir 10 ein- staklinga og hjúkrunarleyfi að hluta. Hægt er að auka við vist- rými, en það fer eftir fjármagni og þörfum. Vakt er allan sólarhringinn og mötuneyti er á staðnum. Húsnæði sem búið er að taka í notkun er vistlegt. Búið er að steypa stétt í kringum húsið og í henni eru rör með heitu vatni. Nærri er búið að ganga frá lóð hússins og gróður- setja plöntur til skjóls. Einnig er búið að setja upp fánastöng. Vísir er að félagsstarfi fyrir aldraða og þar er starfrækt föndurkennsla, sem margt eldra fólk nýtir sér. Ingibjörg biður fyrir áramóta- kveðjur til vistfólks, starfsfólks og meðstjómenda Barmahlíðar. Einnig sendir hún fýrir hönd stjórnar þakk- ir heiinilisins til allra velunnara stofnunarinnar og þakkar fyrir hin- ar mörgu gjafir er Barmahlíð hafa borist. F'orstöðumaður Barmahlíðar er Sólrún Gestsdóttir, Reykhólum. - Sveinn Fréttapistill úr Meðallandi: Togaraflakið á Skarðsflöru horfið Hnausum, Meðallandi. FYRIR jól gat ég þess í fréttabréfi að spáð væri versnandi tíð með febrúar. Var þetta ekki á vegum veðurstofunnar og mundum við hér ekki treysta henni til slíkra hluta. Nú er þetta komið fram og spá- menn hinir hressustu sem fiill ástæða er til. Ekki er sömu sögu að segja með þorrablótsnefndina hérna. Ovíst er hvað gerist hjá henni og mun hún líta alvarlegum augum á tíðarfarið. Ekki er glæsilegt ef nefndin sæti uppi með allan matinn óétinn í blindbyl. Gæti slíkt verið óþarflega mikil freisting, nú á tímum offítu og svo óþrotlegir drykkir með matn- um. Nú hafa verið hér tvö þorra- blót á milli sanda, í Kirkjuhvoli og Tunguseli. Þóttu bæði mjög vel heppnuð. Varð því blótið hér að færast fram á góuna því ekki þykir fært að hafa minna en tvær vikur milli slíkra skemmtana. Ofsaveður af austri var á dögun- um. Þá voru 12 vindstig á Fagur- hólsmýri. Frá því um jól hafa kom- ið hér mikil sterkviðri. I einu þeirra hefur togaraflakið á Skarðsfjörunni horfið í hafíð. Þetta var belgískur togari, Van der Veyden, frá Oost- ende í Belgíu, og strandaði 1957. Reynt var að bjarga honum en hann rak upp á annnað togaraflak sem var þar á kafi í sjó og sandi og gat því ekki sokkið. Smátt og smátt reif brimið skipið niður og núna fyrir jól var ketillinn eftir og aðeins sást á undirstöðuna undir brúnni. En líklega hefur það verið í veðr- inu, þegar mestu sjávarflóðin urðu, að Ægir hafði það af að velta katl- inum út af flakinu og því sem eftir var af skipinu. En togarinn sem undir var hefur liklega strandað skömmu eftir síðustu aldamót. Nú er þarna eftir nokkuð af járnflökum sem brimið hefur tætt upp á fjöruna og aðeins sést bijóta á skipsflökun- um þar sem þau hafa lagst til hinstu hvíldar. Hefði belgíski togarinn ekki rekið ofan á hinn væri hann löngu horfínn. Það mun hafa komið fyrir að gömlum, ónýtum skipum hefur ver- ið sökkt í hafíð. Væri ekki miklu betri lausn á því máli að láta þau reka hér upp í sandinn? Mundi Ægir ekki telja eftir sér að grafa þau. Nóg er plássið hér í skipa- kirkjugarðinum þótt ótrúlega mörg skip séu grafin á Meðallandsfjöru. - Vilhjálmur Sjálfstæðismenn á Akranesi: Benedikt Jónmunds- son í efsta sæti FRAMBOÐSLISTI sjálfstæðismanna á Akranesi fyrir bæjarstjórnai kosningarnar i vor var samþykktur á fundi fúlltrúaráðs sjálfstæðit félaganna íyrir skömmu. I efsta sæti listans verður Benedikt Jór mundsson. Níu efstu sætin á lista Sjálfstæðis- flokksins við bæjarstjórnarkosning- arnar á Akranesi verða þannig skip- uð: 1. Benedikt Jónmundsson, útibús- stjóri og bæjarfulltrúi. 2. Sigurbjörg Ragnarsdóttir, augn- þjálfí. á. Gunnar Valur Gíslason, verk- fræðingur. 4. Herdís Þórðardóttir, húsmóðir. 5. Guðmundur Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri. 6. Ellert Ingvarsson, raftæknir. 7. Elín Sigurbjörnsdóttir, ljósmóðir. 8. Hjörtur Gunnarsson, tæknifræð- ingpr. 9. Olafur Grétar Olafsson, skrifstofu- maður. Sjálfstæðisflokkurinn á nú tvo fulltnáa af níu í bæjarstjórn Akra- nes. Ritvinnsla -Töflurei ) stundir, frábært ;mr verð l Tölvuskóli íslands . - - J-lt SS’JSES™ mÍmm, ~ ' J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.