Morgunblaðið - 21.10.1987, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1987
59
Blátt veski
Blátt veski með skilríkjum o.
fl. tapaðist laugardaginn 10. októ-
ber. Finnadi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 685183.
Fundariaun.
Stór og feit læða
Stór og feit læða, bröndótt með
hvíta bringu, kom í hús á Melun-
um fyrir nokkru. Eigandi hennar
er beðinn að hringja í síma 25858.
Eyrnalokkur
Eymalokkur tapaðist fyrir
nokkru á Holiday inn. Á eyma-
lokknum er gyltur hringur með
glæmm steinum. Skilvís finnandi
er vinsalmlegast beðinn að hringja
í síma 41845.
Svört læða
Kisa fór að heiman frá sér að
Blöndubakka 7 fyrir rúmri viku.
Hún er svört, afskaplega mann-
elsk og gegnir nafninu Birta. Þeir
sem hafa orðið varir við hana era
beðnir að hringja í síma 73544.
Páfagaukur
Fagurblár páfagaukur tapaðist
frá Sólvallagötu 6 miðvikudaginn
4. október. Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma 18332. Fund-
arlaun.
Kvenreiðhjól
Kvenreiðhjól er í óskilum í
Kópavogi. Þetta er nýlegt reiðhjól
með gíram. Réttur eigandi getur
gefíð sig fram í síma 46144 milli
kl. 13 og 19 virka daga.
Plasthöldur
Spurst var fyrir um það í Vel-
vakanda hvar plasthöldur á lítra-
hymur væra fáanlegar. Slíkar
plasthöldur hafa fengist í Ham-
borg, Mjólkurbúðinni að Háaleitis-
braut 2, Miklagarði og Kaupfélag-
inu á Selfossi. B. Thorvaldsson,
umboðs- og heildverslun, hefur
heildsölubirgðir af þessum vam-
ingi.
Kvengullúr
Kvengullúr tapaðist við
Fellsmúla fyrir skömmu. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 32439.
Fundarlaun.
Skrifaði ekki
greinina
Elísabet Berta Bjamadóttir
.félagsráðgjafi, hafði samband við
Velvakanda og óskaði að það
kæmi fram að hún skrifaði ekki
greinina „Dagur vonar: Einstæður
listviðburður" sem birtist í Vel-
vakanda miðvikudaginn 14.
október.
Hvolpur
Lítill svartur hvolpur með hvíta
bringu fannst í Hamraborg í
Kópavogi í gær. Upplýsingar í
símum 42516 og 641046.
Gul skólataska
Lítil gul skólataska er í óskilum
í Menntamálaráðuneytinu og get-
ur eigandinn vitjað hennar í
afgreiðsluna á 1. hæð Hverfisgötu
4.
Sakna Andra Back-
mann
Kaupmaður í Norðurmýri
hringdi:
„Varla liður sú helgi að ég
bregði mér ekki á Mímisbar Hótel
Sögu. Undanfarin ár hefur Andri
Backmann séð þar um músíkina
ásamt félögum sínum. Þeir hafa
leikið gömul góð lög sem fallið
hafa í kramið hjá gestunum og
gert kvöldin ánægjuleg. Nú
bregður svo við að Andri er hætt-
ur á Mímisbar og eram við
fastagestimir afar óhressir með
það. Við viljum fá Andra aftur
og teljum okkur eiga inni hjá
húsráðendum skýringu á því hvers
vegna hann hætti."
f
Örlítil viðbót um reiðhjóiastuldi
Til Velvakanda.
Mig langar að koma með smáinn-
legg í skrif um hjólreiðastuldi.
Hjóli 9 ára sonar míns var stolið
snemma í sumar. í viðræðum við
lögreglu kom fram atriði, sem hlýt-
ur að skýra að einhverju leyti hvað
veldur því að böm geta birst með
nýleg hjól á heimilum sínum. For-
eldranum er einfaldlega sagt frá
hjóli, sem „hann Siggi" ætli að selja
á mjög góðu verði. Leyfi fæst til
að „kaupa" það og þar með sjá
foreldramir ekkert athugavert við
tilkomu þess. Af þessum sökum vil
ég brýna fyrir foreldram bama, sem
koma með slík tilboð, að kanna hjá
foreldram „Sigga", ef hann er þá
til, hvort hann megi selja hjólið sitt.
Ég vil einnig brýna fyrir foreldr-
um að skrifa strax niður stellnúmer
á hjólum, sem keypt era, gjaman
inn á nótuna og geyma hana síðan.
Þá er hægt að sanna eignarrétt,
ef með þarf. Númerið er neðst á
stellinu og þarf að snúa hjólinu við
til að sjá það. Þetta vita ekki allir.
Arvekni vinar sonar míns leiddi
til þess að hjólið hans fannst 5—6
vikum eftir að því var stolið. Á því
var drengur, sem í fyrstu sagðist
hafa keypt það en síðan fundið
það. Útlitinu hafði verið breytt og
var hjólið nokkuð skemmt. Ég varð
fyrir miklum vonbrigðum þegar ég
talaði við móður drengsins. Hún
sagði hann hafa fundið það, en
hafði enga tilraun gert til að kanna
hvort einhver hefði tapað því.
Sigríður Halldórsdóttir
Reiðhjól tek-
ið á Bræðra-
borgarstíg
Reiðhjól af ítalskri gerð (Scoff)
var tekið síðastliðið laugardags-
kvöld fyrir utan Bræðraborgarstíg
49. Hjólið er blátt að lit og var með
gulu og hvítu bandi utanum stýrið.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um
hjólið era vinsamlegast beðnir að
hringja í síma 16937.
Skipsij órnarmenn
Verið ávallt minnugir ábyrgðar ykkar á öryggi skipveija.
Sjáið um að öll öryggistæki séu í lagi og að hver einasti
skipverji kunni meðferð þeirra og viti hvemig og hvað hann
eigi að gera á neyðarstundu.
LISTASAFN ÍSLANDS
hefur flutt skrifstofu sína að
Fríkirkjuvegi 7.
Jafnframt hefur það tekið í notkun
nýtt símanúmer:
62-1000
ÓKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum
starfsf rama og betur launaðri vinnu. Þú stundar námiö heima
hjá þér á þeim hraöa sem þór hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón-
ir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann! Littu á listann og
sjáöu öll þau tækifæri sem þérgefast. ICS-bréfaskólinn hefur
örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír-
teini í lok námskeiöa. Sendu miöann strax í dag og þú færö
ÓKEYPIS BÆKLING sendan í flugpósti. (Setjiö kross i aöeins
einn reit). Námskeiðin eru öll á ensku.
□ Tölvuforritun
□ Rafvirkjun
□ Ritstörf
□ Bókhald
□ Vélvirkjun
□ Almenntnám
□ BiNólavirkjun
□ Nytjaliat
□ Stjórnun
fyrirtœkja
□ Garóyrkja
□ Kjólasaumur
O Innanhús-
arkitektúr
□ Stjórnun hótela
og veitingastaóa
□ Blaóamennska
□ Keelitækni og
lottræsting
Nafn:.......................................................
Heimilisfang:................................................
ICS Internatlonal Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High
Street, Sutton, Surrey SM11PR, England.
mHOTEL&
" TOURISM
h SCHOOL in
m SWITZERLAND
Hr. A. Semonite, stjórnandi HOSTA, auglýsir
kynningarnámskeið
H sem fjalla á um
h hótelrekstur og ferðamannaiðnað
^ á Holiday Inn hótelinu í Reykjavík 22. október
1987 frá kl 20.30.
H Allirsemáhugakunnaaðhafaeruvelkomnir.
H Ef að einhver sér sér ekki fært að mæta, getur
sá skrifað til aðfá nánari upplýsingartil:
H HOSTA, Ch-1854 Leysin, sími 9041 /25 341814,
H
tlx: 456152.
hhhhhmmhhhhhhhHHh
Sýning á leikhúsmyndum Halldórs Péturs-
sonar í Kristalsal Þjódleikhiissíns lýkur
næstkomandi sunnudag 25. okt.
Sýningin eropln aiia daga frá kl. 17—19. Ath. sýriing-
in er sölusýning.