Morgunblaðið - 21.10.1987, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1987
Svipmyndir úr borginni / ólafur ormsson
„Eina fyrir svefninn“
Veðurblíðan hefur verið slík það
sem af er hausti að fyrsta dag októ-
bermánaðar, í logni og ágætu veðri,
týndi ég bláber og krækiber í stóra
plastfötu skammt frá þjóðveginum
furir austan fjall, í sumarbústaðar-
landi við Lögberg. Það er ekki fyrr
en viku af októbermánuði að fara
að blása norðanvindar, og hiti er
um eða yfir frostmarki og veturinn
minnir á sig.
Þannig var veðrið þriðjudags-
morguninn 6. október og kuldalegt
um að litast í miðborginni og
beinlínis notalegt að setjast við borð
inni á Nýja kökuhúsinu við Austur-
völl yfir ijúkandi kaffibolla og
rúnstykki. Björgvin Vilmundarson,
bankastjóri, kemur þar oft og var
einmitt þennan þriðjudagsmorgun
við eitt borð og spjallaði um daginn
og veginn við tvo kunningja er sátu
með honum við borðið. Hallmar
Sigurðsson, nýráðinn leikhússtjóri
Leikfélags Reykjavíkur, og Þórunn
Sigurðardóttir, rithöfundur, sátu
við annað borð. Leikhúsin hafa byij-
að starfsemi sína á nýju leikári og
kannski að Þórunn sé með nýtt
verk á fjölunum. Það hefur örugg-
lega ekki skort umræðuefni við
borðið.
Og svo er skammdegið framund-
an og Ríkisútvarpið-Sjónvarp búið
að senda litprentaðan bækling í
tugþúsundatali inn á flest ef ekki
öll heimili á landinu til að minna á
vetrardagskrána. Stöð 2 átti eins
árs afmæli fímmtudaginn 8. októ-
ber síðastliðinn, og þar á bæ er slík
bjartsýni ríkjandi að þeir taka
líklega forskot á sæluna og halda
upp á jólin óvenju snemma í ár.
Samkeppnin er að aukast á fjöl-
miðlamarkaðinum og t.d. engin
ástæða til að afskrifa Alþýðublaðið
sem býður upp á fjölbreytt lesefni
þessa dagana og sýnist til alls
líklegt.
Ekki veit ég hvort það er dæmi-
gert íslenskt heimili nú á dögum
sem ég kom inn á um daginn með
kunningja. Þar voru Qölmiðlar
óspart notaðir og hver stund nýtt
til hins ítrasta. Húsráðandinn í fjög-
urra herbergja blokkaríbúð, maður
um fertugt sem vinnur yfirleitt
fjórtán til sextán tíma á sólarhring,
hafði afþakkað yfirvinnu nokkra
daga þar sem konan var erlendis,
í London í innkaupaferð, og hann
einn heima við með ungum syni
þeirra. Húsráðandinn var að kaupa
ný hljómflutningstæki og undir nál-
inni var hin kunna hljómplata Bat
out of Hell með Meat Loaf, „kjöt-
hleifí", sem tryllti æskulýðinn í
ReiðhöIIinni í Víðidal og olli vist
uppþoti á staðnum.
Þama í blokkaríbúðinni öskraði
„kjöthleifur" af öllum lífsins sálar
kröftum og sonur hjónanna; fimm
ára, grét ofan í sængina. A sjón-
varpsskerminum, í bandarískum
framhaldsmyndaflokki á Stöð 2, var
verið að taka af lífi fómarlamb of-
beldismanns. Húsráðandinn hellti
upp á könnuna og bandaríski fram-
haldsmyndaflokkurinn á Stöð 2
hélt áfram með enn meiri spennu.
Húsráðandinn bar fram kaffí og
bakkelsi og settist gegnt okkur og
starði eins og dáleiddur á sjón-
varpsskerminn.
Ég horfí eingöngu á spennu-
mjmdir, aldrei á fræðslumyndir eða
myndir frá Norðurlöndunum og
Rússlandi, sem nóg er af hjá ríkis-
sjónvarpinu. Ég nota tækifærið á
meðan konan er erlendis og vinn
heldur minna þessa dagana. Ég
sótti fullan kassa af hryllingsmynd-
um út á myndbandaleigu.
Hann benti á stóran pappakassa
fullan af myndbandsspólum.
— Langar ykkur að skoða eina?
spurði hann.
Þegar við sýndum engan áhuga
sagði hann að konan, yfírvaldið,
eins og hann kallaði hana, kæmi
frá London næstu daga og þá væri
friðurinn úti.
— Ég má þakka fyrir að hún
kaupi á mig sokka. Hún hefur þre-
faldar tekjur á við mig. Er við
lögfræðistörf hjá einkafyrirtæki.
Það_ voru auglýsingar á Stöð 2
og húsráðandinn stóð upp úr sæti
sínu og bað okkur um að koma
með sér yfír í annað herbergi þar
sem var stór og voldugur fataskáp-
ur. Ég ætla að sýna ykkur inn í
fataskápinn.
Svo opnaði hann skápinn, í ljós
komu samkvæmiskjólar í öllum
regnbogans litum og svo skiptu
tugum.
— Svona kjóla sjáið þið varla í
kvenfataverslun í Kringlunni, sagði
húsráðandinn. Enda keyptir í Lon-
don og í New York.
Það var laugardagskvöld og
húsráðandinn sem vinnur á þunga-
vinnuvélum gerði undanþágu og
stillti á ríkissjónvarpið. Hafði keypt
nokkra Lottómiða og beið spenntur
eftir að hjólið færi af stað og von-
brigðin voru mikil, þegar hann var
ekki með nema eina tölu rétta. Þá
stillti hann aftur á Stöð 2, á enn
eina spennumyndina, bandaríska.
Ég notaði tækifærið og spurði hvort
hann liti ekki stöku sinnum á
íslenskt efni, t.d. umræðuþætti og
íslensk leikrit.
— Nei, aldrei. Það er drepleiðin-
legt efni. Konan, yfirvaldið, horfir
stundum á slíkt efni og þá stilli ég
á Stjömuna eða Bylgjuna.
Húsráðandinn fagnaði því að
eiga þess kost að velja um nokkrar
útvarpsrásir og sagðist yfírleitt
vakna með Stjömunni á morgnana
við kraftmikla rokkmúsík.
— Ég er að verða fertugur, hef
samt ailtaf jafn gaman af rokkinu,
gamla góða rokkinu. Þoli hvorki
sinfóníur eða jazz.
— Hvað með bókalestur? Fer all-
ur tími þinn í sjónvarpsgláp? spurði
kunningi minn húsráðandann.
— Ég get nú ekki sagt að ég
hafí litið í bók síðustu árin. Það er
þá helst reyfara, ísfólkið eða Regn-
bogabækumar.
Aður en við kvöddum húsráðand-
ann í flögurra herbergja blokkarí-
búðinni og klukkan var langt
gengin í ellefu hafði hann valið úr
pappakassanum glænýja hroll-
vekju.
— Eina fyrir sveftiinn, sagði
hann og brosti.
— Ég neita því ekki að það kem-
ur þó fyrir að mig dreymir ekki
vel, sagði hann svo, þegar hann
lokaði útidyrahurðinni og ég og
kunningi minn héldum út í nátt-
myrkrið að næstu strætisvagna-
stoppistöð...
Vestmannaeyjar:
Nýr líkamsræktarsal-
ur í íþróttamiðstöðinni
Vestmannaeyjum.
NÝLEGA var opnaður í íþrótta- fermetra líkamsræktarsalur auk
miðstöðinni í Eyjum nýr 150 þess sem aðstaða kennara og
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
í hinum nýja þjálfunarsal er gott gólfpláss tíl leikfimi auk ýmissa
tækja og tóla er líkamsþjálfun fylgja.
starfsfólks hefur verið bætt. í
kjölfar opnunar hins nýja salar
hefur verið uppselt á öll líkams-
ræktarnámskeið. Hópur manna á
besta aldri mætir nú reglulega i
salinn, hoppar um, lyftir járnum
og teygir gorma. Öflugir maga-
vöðvar þeirra, sem hafa verið í
hvUd í nokkurn tima, öðlast nú
óðum fyrri styrk.
í hinum nýja þjálfunarsal er gott
gólfpláss til leikfími auk ýmissa
tækja og tóla er líkamsþjálfun
fylgja. Kennarar hafa fengið nýja
skrifstofu og starfsfólk stóra og
myndarlega kaffístofu. Einnig er
komin ný áhaldageymsla og sjoppa.
í íþróttamiðstöðinni er stór
keppnissalur og innisundlaug og á
útisvæði eru heitir pottar og vað-
laug.
Kaffi og kökur voru á boðstólnum i tilefni opnunar salarins.
í viðtali við Vigni Sigurðsson,
forstöðumann íþróttamiðstöðvar-
innar, kom fram að breytingamar
hafa kostað um þrettán hundruð
þúsund krónur.
Vignir sagði að í bígerð væri að
setja upp á næstunni tvo vandaða
vatnsnuddpotta á útisvæði og fjölga
sólarlömpum úr fjórum í sjö, en
geysileg sókn hefur verið í þá þrátt
fyrir sólríkt sumar héma.
Allir skólamir í Eyjum nota
íþróttamiðstöðina til kennslu í sundi
og leikfimi. Auk þess fer öll inni-
þjálfun íþróttafélaganna fram í
húsinu. Vignir kvað aðsóknina í
íþróttasalinn svo mikla, að hann
væri fullnýttur frá því snemma á
morgnana og langt fram á kvöld
alla daga vikunnar. Gerðar hefðu
verið teikningar að viðbyggingu
sem í væri nýr íþróttasalur sem
myndi nota bað- og búningsaðstöðu
eldri salar. Ekki vildi Vignir nefna
daginn þann, sem byijað yrði á við-
byggingunni, en allir vonuðu að það
yrði sem fyrst.
— Bjarni.
Ifíðskiptaferð til Afríku?
- Arnarflug og KLM - bestl koslurlnn.