Morgunblaðið - 21.10.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1987
29
Yngsti hjarta-
þeginn við
bærilega líðan
Loma Linda, Kaliforníu, Reuter.
LÆKNAR ungsveínsins
Pauls, yngsta hjartaþegans
til þessa, er sögð bærileg.
Drengurinn er þriggja
daga gamall og vár skipt
um hjarta í honum rétt eft-
ir að hann kom í heiminn.
í fyrstu voru læknar var-
fæmir I yfirlýsingum um,
hvort Paul myndi braggast,
en hafa nú sagt að horfur
vænkist með degi hverjum.
Paul er enn í öndunarvél og
verður það um hríð. Hann hreyf-
ir sig eðlilega og virðist spræk-
ur. Hann var 12 merkur þegar
hann fæddist. Vitað var að hann
var með hjartagalla, sem að
öðru óbreyttu hefði dregið hann
til dauða innan fárra vikna.
Skýrt hefur verið frá því, að
drengurinn hafi fengið hjarta
úr landa sínum, Gabrielle, sem
fæddist án heila.
Úkraínu-
maðurfyrir
aftökusveit
Moskvu, Reuter.
DÓMSTÓLL í borginni Kamen-
Kashirsky i Úkraínu dæmdi á
mánudag úkrainska þjóðemis-
sinnann Ivan Goncharuk til
dauða og verður hann leiddur
fyrir aftökusveit, að sögn TASS-
fréttastofúnnar.
TASS sagði að Goncharuk hefði
barizt með uppreisnarsveitum
úkraínskra þjóðemissinna árin
1944 og 1945. Þýzkir nazistar
hefðu haft forgöngu um stofnun
sveitanna. Um 50 fómarlömb og
sjónarvottar að morðum, pynting-
um, ránum og skemmdarverkum
þjóðemissinna hefðu vitnað gegn
Gonchamk við réttarhöld yfir hon-
um.
Sovézk yfirvöld leita enn að
meintum samstarfsmönnum naz-
ista, 42 ámm eftir lok heimsstyij-
aldarinnar síðari. Flestir þeirra, sem
nást, em dæmdir til dauða. Skammt
er síðan Gonchamk var handtekinn.
Sellóleikarinn Jaqueline du Pre látin:
Veikindi bundu snögg-
an enda á glæstan feril
I onrlnn Rontor
Jaqueline du Pre ásamt eigin-
manni sínum Daniel Barenboim.
London, Reuter.
BRESKI sellósnillingurinn Jaqu-
eline du Pre lést í London í gær
42 ára að aldri. Banamein hennar
var heila- og mænusigg en árið
1973 neyddist hún til að hætta
ferli sínum sem einleikari sökum
sjúkdómsins.
Jaqueline du Pre vakti mikla at-
hygli strax í bamæsku og er hún
kom fyrst fram sem einleikari árið
1961 vom tónlistargagmýnendur
sammála um að hún byggi yfir ein-
stökum tónlistarhæfíleikum. Einnig
þótti hún sérlega glæsileg á sviði
er hún lék á hljóðfærið sem sjálfur
Stradivarius hafði smiðað fyrir tæp-
um 300 ámm. Árið 1967 giftist hún
píanóleikaranum og hljómsveitar-
stjóranum Daniel Barenboim og
héldu þau hjónin víða tónleika sam-
an auk þess sem þau tóku upp
fjölda hljómplatna. Komu þau m.a.
hingað til lands og léku á Lista-
hátíð árið 1970.
Árið 1973 greindist sjúkdómur-
inn sem varð henni að bana.
Jaqueline du Pre tjáði vinum sínum
að hún myndi brátt halda tónleika
að nýju en af því varð aldrei. Sjúk-
dómurinn, sem leggst á taugakerfíð
og heftir hreyfíngar vöðva, varð
þess valdandi að hún var ófær um
að leika af sömu snilld og áður.
Hún sneri sér þá að kennslu og gat
þannig látið aðra njóta hæfileika
hennar þau fjórtán ár sem hún átti
ólifuð.
Noregur:
Heimsmet 1
hákarls-
veiðum
Osló. Frá Jan Erik Laure fréttaritara
Morgunblaðsins.
ÞEIR sem þekkja tíl hákarlsveiða
telja að heimsmet hafi verið sett
í Þrándheimi um helgina er mað-
ur ein dró 775 kg hákarl úr sjó
á veiðistöng.
Veiðimaðurinn, Teije Nordtvedt,
var fleiri klukkustundir að púla við
að koma skepnunni um borð í bát
sinn. „Ég var alveg búinn eftir
stritið við að koma hákarlinum um
borð. Nokkrum sinnum var ég að
því kominn að gefast upp,“ sagði
hann að veiðiferð lokinni.
Þegar hákarlinn loks komst inn-
byrðis gúlpuðust uppúr honum
mörg kíló af fiski. Hefur hákarlinn
eflaust vegið vel yfír 800 kg á
meðan Teije var að fást við hann.
Hákarlinn verður tilreiddur næst-
komandi laugardag í Þrándheimi
og geta allir sem vilja fengið að
smakka.
Áskriflarsiminn er 83033
töhniprentnrar
Tölvuprentarar frá STAR styöja þig í starfi. Þeir eru
áreiöanlegir, hraðvirkirog með úrval vandaðra leturgerða.
STAR prentarar tengjast öllum IBM PC tölvum og öðrum
sambærilegum.
Leitin þarf ekki að verða lengri. Hjá Skrifstofuvélum hf. eigum
við ekki aðeins rétta prentarann, heldur einnig góð ráð. Nú er
tíminn til að fullkomna tölvuumhverfið meö góðum prentara.
|| - STAR ER STERKUR LEIKUR.
Verð frá kr. 25.500,-
- og við bjóðum þér góð kjör.
£
A3
%
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
Hverfisgötu 33, sími: 62-37-37
Akureyri: Tölvutæki - Bókval
Kaupvangsstræti 4, sími: 26100