Morgunblaðið - 21.10.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1983
25
Selen - líffræði-
legir eiginleikar
útbúnað, sem skólann vantar, þar
sem ekkert rafmagn er á staðnum.
Brýnust er þörfin fyrir skóla-
stofu, að mati forráðamanna skól-
ans, og ákváðu JC félögin á fslandi
því að ráðast í það verkefni að
fjármagna slíka skólastofu, sem
einnig yrði notuð fyrir verklega
kennslu. Junior Chamber Nairobi
sér síðan um byggingarfram-
kvæmdina. — JC félögin um allt
land vinna nú ötullega að þvi að
ljúka þessu verkefni. Mörg þeirra
hafa þegar iokið sínum hlut. Loka-
spretturinn er m.a. sala á endur-
skinsmerkjum í sambandi við um-
ferðarvikurnar, sem haldnar eru í
tilefni Nor,ræna umferðarör-
yggisársins. — Það er gleðileg
staðreynd að með því að efla ör-
yggi barna okkar í umferðinni
með endurskinsmerkjum gefum
við börnunum í Kenya einnig
tækifæri til betra lífs. Þannig get-
um við slegið tvær flugur í einu
höggi — þótt þær séu í raun sitt
hvoru megin á hnettinum.
Okkur fslendingum verður
gjarnan tíðrætt um verðbólgu og
veðráttu og finnum þá landi okkar
allt til foráttu. Við megum þó
sannarlega prísa okkur sæl að
byggja land, þar sem svo vel er að
okkur búið f heilbrigðis- og
menntakerfi, að allir fá notið full-
komins öryggis og geta nýtt hæfi-
leika sína til fulls, ef þeir nenna.
Þess vegna brosi ég bara að þess-
um „síðustu og verstu tímum" á
íslandi, þakka forsjóninni fyrir að
vera íslendingur og fyllist stolti
yfir að vera félagi í hreyfingu, eins
og JC, þar sem ungu fólki er gefið
tækifæri til að víkka sjóndeild-
arhringinn, m.a. með þátttöku í
alþjóðlegu samstarfi eins og því,
sem myndast hefur með JC Kenya
og JC íslandi. Allt of margir
hlusta eða horfa á lýsingar af
ástandi þessara fátæku þjóða,
yppa öxlum og segja: „Hvað getum
við svo sem gert?“ En JC félagar
hefjast handa og segja sem svo: —
Ef við getum bjargað einu barni
frá betli til bjargálna, er okkar
markmiði náð, því það er trú okkar
að manngildið sé mesti fjársjóður
jarðar.
Ragnheiður Karlsdottir er umsjón-
armaður með heimsrerkefni JC ís-
lands.
að halda uppi rekstri opinberra
fyrirtækja, á barmi gjaldþrots.
Sannleikurinn er sá, að banka-
kerfið í heild er sjálfstæður geiri f
hagkerfinu, sem á sinna hags-
muna að gæta. Þeir hagsmunir
fara ekki ætíð saman við hags-
muni þjóðarinnar, svo er t.d. um
hávaxtastefnu Seðlabankans. Að-
eins réttkjörin ríkisstjórn er fær
um að tryggja þá hagsmuni.
Seðlabankastjórn á aðeins að
veita ráðgjöf í meðferð peninga-
mála, ekkert fram yfir það, eins og
áður er minnzt á. Það er háskalegt
þegar hún telur sig hafa rétt til að
hlutast til um þjóðmál og stjórn-
mál, sem ættu einungis að vera á
ábyrgð þjóðkjörinna fulltrúa til
Alþingis, og um leið réttkjörinnar
ríkisstjórnar.
íslenzk bankayfirvöld sóttu á
sínum tíma fyrirmynd að verð-
tryggingu peninga til Brazilíu.
Verðbólga þar var á miðju þessu
ári komin í 130 stig p.a., erlendar
skuldir orðnar hrikalegar og engin
geta lengur til að standa í skilum.
Síðustu fregnir herma, að seðla-
bankastjórinn þar í landi hafi ver-
ið látinn víkja, að fyrirmælum Al-
þjóðabankans, sem nú virðist hafa
tekið í sínar hendur yfirráð fjár-
mála. Brazilía hefir þannig verið
svipt fjárræði og þar með glatað
efnahagslegu sjálfstæði.
Við erum því miður á sömu leið
og Brazilía, nema gripið verði í
taumana nú þegar af réttum
stjórnvöldum.
Ég lýk þessum skrifum með því
að endurtaka lokaorð greinar
minnar frá 29. júlí sl. „Við þurfum
nýja stefnu í peningamálum og
nýja menn. Ella eru dagar efna-
hagslegs sjálfstæðis senn liðnir".
Kgill Sigurðsson er endurskoðandi
og starfar sjálfstætt sem slíkur.
— eftir Stefán
Niclas Stefánsson
Frumefnið selen uppgötvaðist árið
1817 af Svíanum Jöns Jacob Berzeli-
us (1779—1848). Aðeins 6xl0+5% af
jarðskorpunni er selen, og er því
mjög misdreift um jörðina. Þannig
er jarðvegur í vissum fylkjum
Bandaríkjanna mjög selenríkur, en
afar snauður f öðrum fylkjum. í
Skandinavíu er jarðvegurinn mjög
snauður af selen.
Það var ekki fyrr en árið 1957, að
full vissa fékkst fyrir þvf, að selen er
mikilvægt snefilefni, bæði fyrir
menn og dýr.
Snefilefni eru frumefni, sem lík-
aminn þarfnast daglega, í örlitlu
magni. Magn þessara efna, í fæðu,
er einnig lítið. Fái líkaminn ekki
nægjanlegt magn snefilefna, er
hætta á skortseinkennum. Af öðr-
um snefilefnum má nefna kóbalt,
kopar, króm, mólybden, zink, joð,
flúor og járn.
Selen reyndist í senn vera nauð-
synlegt snefilefni, jafnframt því
að vera eitt af eitruðustu frumefn-
unum. Það sýndi sig, að ýmsir
sjúkdómar, svo sem vöðvarýrnun,
nýrna- og lifrarskemmdir, hjarta-
vöðvarýrnun, taugaskemmdir og
trefjamyndun í briskirtli (pan-
creatic fibrosis) stöfuðu beinlínis
af selenskorti. Einnig reyndist of
hár blóðþrýstingur, í vissum til-
vikum, orsakast af selenskorti.
Flesta þessa sjúkdóma má lækna
með E-vítamíni, þó ekki trefja-
myndun í briskirtli, sem einvörð-
ungu stafar af selenskorti.
Selen hefur einnig mikilvægu
hlutverki að gegna sem dýralyf.
Það er notað til að lækna og með-
höndla vöðvarýrnun og „lifrardys-
trofi" í svínum, kálfum og lömb-
um. Einnig er selen gefið við
ákveðnum heilasjúkdómi (ence-
phalomalaci) í kjúklingum. Hér á
landi er selen gefið, ýmist eitt sér
eða með E-vítamíni, við riðuveiki í
sauðfé. Selen er oftast gefið sem
natríumselenít eða natríumselen-
at, en einnig tengt lífrænum efna-
samböndum.
Árið 1972 uppgötvaðist m.a., að
selen er hluti af lífsnauðsynlegu
enzymi, er kallast glutathionperox-
idasi. Þetta enzym breytir skaðleg-
um lípíðperoxíðum, er myndast
við efnaskipti fitu, í skaðlausa
alkohóla. Jafnvel E-vítamín og
katalasa-enzym fyrirbyggja
skemmdir á frumuhimnum af
völdum peroxídasa. Þess vegna
eru E-vítamín og selen oft gefin
saman.
Einnig ver selen prótein gegn
oxun (skemmdum af völdum súr-
efnis) og er talið, að glutathion-
peroxidasi gegni því hlutverki.
Selen kemur fyrir í nethimnu aug-
ans. Dýr, sem hafa góða sjón, hafa
u.þ.b. 100 sinnum meira selen í
nethimnunni, en þau, sem sjá illa.
I Bandaríkjunum er leyfilegt að
nota ýmist natríumselenít eða
natriumselenat i fóðurbæti handa
sauðfé.
Ef skortur verður á fyrrnefndu
enzymi í blóði, mynda blóðflög-
urnar kekki, og hættan á blóð-
tappamyndun eykst, enda hefur
mesta selenmagn hjá manninum
mælst í blóðflögum og skjaldkirtli.
Þar að auki safnast selen í lifur,
nýru, briskirtil og skjaldkirtil. Því
meiri áreynslu, sem hjartavöðvinn
verður fyrir, þeim mun meiri þörf
er fyrir selen, til að verjast frumu-
skemmdum. Selen er einnig hluti
af ónæmiskerfinu, og kemur jafn-
vel fyrir sem selen-innihaldandi
prótein í vöðvum.
í Kína hafa læknar nýlega sýnt
fram á, að með natríumseleníti er
unnt að lækna ákveðna tegund
hjartasjúkdóms, sem algeng er
hjá bændafólki í vissum fjallahér-
uðum þar. í Finnlandi hefur einn-
ig sýnt sig, að meðal fólks frá sel-
ensnauðum svæðum eru hjarta-
sjúkdómar 6—7 sinnum algengari
en á svæðum, sem eru tiltölulega
selenauðug.
Rannsóknir hafa sýnt áberandi
lægri krabbameinstíðni á svæðum,
sem hafa mikið eða nægilegt sel-
enmagn í jarðvegi og fæðu. Hjá
krabbameinssjúklingum hafa sel-
en- og glutathionperoxidasa gildi í
blóðvökva mælst lág. Þetta á eink-
um við um krabbamein í brjósti,
ristli og brisi. í spendýrum hefur
komið í ljós, að selen minnkar
verulega áhrif krabbameinsvald-
andi efna.
Athyglisvert er, að tíðni heila-
og mænusiggs (multiple sclerosis
er hærri á selensnauðum svæðum.
Ekki er þó enn hægt að fullyrða,
að þessi sjúkdómur stafi af sel-
enskorti, en fróðlegt verður að
fylgjast með rannsóknum á þessu
sviði.
Önnur athyglisverð staðreynd
er sú, að selen hefur þann hæfi-
leika að draga úr eituráhrifum
annarra þungra málma, svo sem
kadmíums, og kvikasilfurs. Ef sel-
en er gefið með þessum málmum,
getur það meira að segja afstýrt
áhrifum banvænna skammta
kvikasilfurs og kadmíums í til-
raunadýrum.
Mikilvægustu fæðutegundir,
sem innihalda selen eru: fiskmeti,
skeldýr, hvítlaukur og vissar
sveppategundir. Dagleg selenþörf
líkamans er talin liggja á bilinu
50—200 míkrógrömm.
Þeir, sem fyrst og fremst ættu
að tryggja sér nægjanlegt selen-
magn eru:
a. Fólk, sem er í megrun.
b. Þeir, sem drekka mikið áfengi,
og tapa þar með miklu magni
af snefilefnum, elektrólytum og
vatnsleysanlegum vitamínum.
c. Sykursýkissjúklingar, sem
einnig tapa miklu vökvamagni
úr líkamanum.
d. Sjúklingar, sem fengið hafa
hjartaáfall.
e. Krabbameinssjúklingar, sem
gangast undir geislameðferð og
eru meðhöndlaðir með frumu-
eitri (cytostatika, antineoplast-
ika).
Víða um heim er nú farið að
selja selentöflur í apótekum, en
selentöflur hafa um nokkurra ára
skeið verið fáanlegar í svokölluð-
um „náttúrulækningaverslunum"
Mér er þó ekki kunnugt um, að
slíkar töflur fáist hér á landi.
Enginn skyldi ætla eftir lestur
þessarar greinar, að selen sé
eitthvað undralyf, sem sé örugg
vörn gegn krabbameini og hjarta-
sjúkdómum. Selen er aðeins eitt af
„Enginn skvldi ætla eftir
lestur þessarar greinar, aÖ
selen sé eitthvað undralyf,
sem sé örugg vörn gegn
krabbameini og hjarta-
sjúkdómum. Selen er að-
eins eitt af mörgum snefíl-
efnum, sem eru líkaman-
um nauðsynleg, í örlitlu
magni, til þess að hann
geti starfað eðlilega.“
mörgum snefilefnum, sem eru lík-
amanum nauðsynleg, i örlitlu
magni, til þess að hann geti starf-
að eðlilega. Of stórir skammtar af
selen, eða efnasamböndum þess
valda seleneitrun, sem orsakað
getur hárlos, ljósfælni, skemmdir
á lifur, nýrum, meltingarfærum,
hjarta og lungum.
Mörg erlend dagblöð og tímarit
hafa birt greinar um niðurstöður
síðustu rannsókna á þessu merka
frumefni, en ég hef ekki séð neitt
ritað um selen í íslenskum dag-
blöðum. Þessu greinarkorni minu
er því aðeins ætlað að varpa ljósi á
þýðingu selens fyrir líkamann,
sem uppgötvuð hefur verið á síð-
ustu árum, og vona ég að það megi
verða almenningi til einhvers
fróðleiks.
Stefán Niclas Stefánsson
Heimildir:
Hagers Handbuch Der Pharma-
zeutischen Praxis, VI. Band
(353-355), 1977.
Remington’s Pharmaceutical
Sciences 16th edition, (973)
(976-977), 1980 Arthur Osol,
Chairman, Easton, Pennsyl-
vania.
The Merck Index (940), Rahway,
N.J., U.S.A. 8th edition, 1968.
Fass Vet. 1982-1983,
(304—306), Sverige.
Dorland’s Illustrated Medical
Dictionary, 26th edition (1186),
1981.
Current Medical Diagnosis &
Treatment, Marcus A. Krupp &
Milton J. Chatton, (750), 1975.
Martindale, The Extra Pharma-
copoeia, 28th ed.
Handbook of Poisoning, Robert
H. Dreisbach, 8th edition, (218),
1974.
Focus Uppslagsbok, Band 1
(320-321),1877.
Nokkrar greinar úr sænskum
dagblöðum.
Stefán Niclas Stefánsson stundar
nám í lyfjafræði rið háskólann í
Uppsölum.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgedeild
Skagfirðinga
Önnur umferð í þriggja kvölda
tvímenningi var spiluð síðasta
þriðjudag, efst urðu eftirtalin
pör:
A-riðill:
Sigmar Jónsson
— Vilhjálmur Einarsson 188
Jón Hermannsson
— Ragnar Hansen 183
Stígur Herlufsen
— Hreinn Magnússon 182
B-riðill
Björn Hermannsson
— Lárus Hermannsson 200
Óli Andreasen
— Sigrún Pétursdóttir 191
Guðni Kolbeinsson
— Magnús Torfason 186
Eftir tvö kvöld er þá staða
efstu para:
Guðni Kolbeinsson
— Magnús Torfason 380
Lúðvík ólafsson
— Rúnar Lárusson 379
Björn Hermannsson
— Lárus Hermannsson 372
Jón Hermannsson
— Ragnar Hansen 368
Lokaumferð verður spiluð
þriðjudaginn 25. október kl.
19.30. Spilað er í Drangey, Síðu-
múla 35.
Bridgeklúbbur hjóna
í annarri umferð þriggja
kvölda tvímenningskeppni
Bridgeklúbbs hjóna fengu eftir-
talin pör bestu skor:
Halla Marínósdóttir
— Bjarni Bragason 135
Gróa Eiðsdóttir
— Júlíus Snorrason 134
Dóra Friðleifsdóttir
— Guðjón Ottósson 132
Esther Jakobsdóttir
— Valur Sigurðsson 131
Sigríður Ingibergsdóttir
— Jóhann Guðlaugsson 131
Meðalskor: 108 stig.
Fyrir síðustu umferðina eru
þessi pör efst:
Dröfn Guðmundsdóttir
— Einar Sigurðsson 254
Gróa Eiðsdóttir
— Júlíus Snorrasön 244
Halla Marínósdóttir
— Bjarki Bragason 243
Bridgedeild Barð-
strendingafélagsins
Eftir tvær umferðir í Aðaltví-
menningskeppni félagsins (32
pör) er staða 10 efstu para þann-
Viðar — Arnór 477
Sigurbjörn — Helgi 477
Ragnar — Úlfar 465
Birgir — Björn 462
Ingvaldur — Þröstur 450
Sigurður — Edda 440
Ingólfur — Jón 439
Spilað er í Síðumúla 25.
Keppni hefst stundvíslega kl.
19.30.
_upplausntil
abyrgdar
A RETTRI LEIÐ
Hvammstangi
Almennur stjórnmálafundur veröur haldinn í Félagsheimilinu, neöri
hæð, sunnudaginn 23. október, kl. 15.00. Sverrir Hermannsson,
iönaöarráðherra ræðir störf og stefnu ríkisstjórnarinnar. Þingmenn
flokksins í kjördæminu mæta á fundinn. Allir velkomnir.
Sjálfstæöisflokkurinn.