Morgunblaðið - 27.05.1982, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MAÍ1982
Ásgair Sigurvinsson:
„Tvöföld vonbrigói"
Prá SiítrjgKÍ Si((trygKii8jni,
» fréttaatjóra MbL, í Rotterdam.
— Þsd voru tvöföld von-
brigði fyrir mig sð þessi leikur
skildi fsrs svons. I fyrsta Isgi
tapsði Bayern og svo fékk ég
ekkert að koms inni i leiknum.
Tv*r skiptingar áttu sér stsð
hjá okkur, en ég var greiniiega
ekki í náðinni hjá þjálfaranum
þetts kvöldið og varð að sitja á
bekknum. Yfírleitt hef ég feng-
ið sð koma inná í Evrópuleikj-
um með Bayern en nú brást
þsð. Bsyern-liðið átti sð vera
búið að gera út um leikinn
löngu áður en Villa skorsði.
Þetta vsr ægilegt, sagði Ásgeir
Sigurvinsson eftir úrslitaleik-
inn.
Það fór því aldrei svo að
íslenskur knattspyrnumaður
tæki þátt í úrslitaleik
Evrópukeppni meistaraliða
og yrði Evrópumeistari.
Asgeir sagði að vissulega
hefði hann vonast til þess að
fá að fara inná í leiknum, en
nú væri þessi vetur vonbrigða
búinn og hugur hans væri
kominn til Stuttgart. — Ég
er mjög feginn að þessu er
lokið, bætti Ásgeir við.
í gærkvöldi átti að halda
leikmönnum Bayern veislu á
hóteli í Rotterdam og síðan
var bæjarstjóri Mönchen bú-
inn að bjóða til veislu á
morgun, en að sögn Ásgeirs
hélt hann að dauft yrði yfir
mönnum á þessum stöðum,
skiljanlega. Ásgeir kemur
heim tii íslands á mánudag.
Hann er slæmur í nára og
óvíst er hvort hann getur
leikið með landsliðinu gegn
Englendingum á miðvikudag.
Peter Withe þrumar knettinum I netið hjá Bayern eftir
að hafa fengið fyrirgjöf frá útherjanum Tony Morley.
Fyrirliði Aston Villa, Denis Mortimer, hampar hinum
glæsilega bikar. sinumjndir ap.
Stemmningin ólýsanleg
Fri Sigtryggi Sigtryggssyni,
frétUatjóra Mbl., í Kotterdam:
FIMMTÍU og tvö þúsund
áhorfendur voru mættir til þess
að horfa á úrslitaleikinn í Evr-
ópukeppni meistaraliða í
knattspyrnu í gærkvöldi. Tólf
þúsund aðdáendur Aston Villa
settu mikinn svip á leikinn með
gífurlega öflugum hrópum og
köllum og var stórkostlegt
hversu vel þeir studdu við bak-
ið á sínum mönnum. Enda var
gleði þeirra ólýsanleg þegar
sigurinn var í höfn. Þá ætlaði
allt að ganga af göflunum af
gleði hjá þeim.
Leikmenn Bayern Miinch-
en buguðust hinsvegar sumir
hverjir og hreinlega grétu
eftir að sigurinn var genginn
þeim úr greipum. Gífurlega
ströng gæsla var viðhöfð á
vellinum. Leitað var á öllum
sem inná völlinn fóru, og
drukknu fólki var meinaður
aðgangur. Um 1500 löggæslu-
menn voru á leikvanginum.
Lögreglumenn með hunda
voru við hliðarlínur vallarins
og sérstakir karatemenn voru
mættir í grænum búningum
ef til óspekta kæmi.
Öllum krám í Rotterdam
hafði verið lokað og raddir
voru uppi um að margir
hefðu hætt við að fara á völl-
inn vegna hræðslu við að
óspektir myndu brjótast út.
Leiðindaleik lauk
með jafntefli 0—0
Aston Villa sigraði:
Oþekktur varamarkvörður
færði liði sínu sigur
Frí Sigtrjggi Sigtrjggsajni,
frétUstjóra Mbl.,
í Rotterdam.
KR og ÍA skildu jöfn, 0—0, í ein-
um leiðindaleiknum enn i 1. deild-
inni í knattspyrnu. KR-ingar voru
sterkari aðilinn ef á heildina er litið
og með dálítilli heppni hefði sigurinn
átt að hafna i vesturbænum. Byrjun
KR á mótinu nú hlýtur að teljast
með þeim betri hjá félaginu á síð-
ustu árum, fjórir leikir búnir og enn
hefur liðið ekki tapað. Skagamenn
mega hins vegar muna sinn fifíl
fegri, liðið er ekki að sjá líklegt til
afreka í sumar.
Fyrri hálfleikur var eitt alls-
herjar þóf og teljandi á fingrum
annarrar handar þau skipti sem
samleikur náðist milli fleiri sam-
herja en þriggja í einu. Skaga-
mennirnir voru ívið ákveðnari, en
litlu munaði. Engin opin færi ylj-
uðu áhorfendum í kvöldnepjunni,
en Sigurður Halldórsson átti
sæmilegan skalla utan úr teignum
sem Stefán markvörður bjargaði í
horn og hinu megin varði Bjarni
Sigurðsson vel þrumuskot Sigurð-
ar Indriðasonar eftir aukaspyrnu.
KR-ingar voru mun betra liðið í
seinni hálfleik, en sama þófið var
þó ríkjandi. Hins vegar var
ánægjulegt að sjá KR-ingana
reyna að leika saman og má heita
virðingarvert þó útkoman hafi
ekki verið brött. KR-ingarnir
fengu fáein færi í seinni hálfleik,
Willum Þórsson fékk knöttinn á
markteig á 62. mínútu, en Bjarni
hirti hann af tám hans. Bjarni lék
sama leikinn við Óskar Ingimund-
arson nokkrum mínútum síðar, en
Óskar átti færið að þakka Skaga-
manni. Magnús Jónsson átti
sæmilegan skalla að marki sem
Bjarni varði, en mest var þó hætt-
an á síðustu mínútunni, er auka-
spyrna Sæbjarnar frá vinstri sveif
óáreitt inn í markteig ÍA og hrökk
knötturinn í þverslá af þvögu leik-
manna.
Best er að hafa sem fæst orð um
liðin að þessu sinni, vonandi geta
þau gert miklu betur en þau
sýndu. Hjá KR bar Willum Þórs-
son nokkuð af. Aðrir börðust allir
vel, en kappið bar forsjána allt of
oft ofurliði. Lið ÍA var slakt í
leiknum og hefur ekki sýnt góða
leiki það sem af er mótinu. Liðinu
var stillt einkennilega upp með þá
Kristján Olgeirsson, Björn H.
Björnsson og Júlíus Pétur Ing-
ólfsson alla utan vallar. Kristján
kom svo inn á í hálfleik, en þá
fyrir Sveinbjörn Hákonarson, eina
mann IA-liðsins að Árna Sveins-
syni undanskildum sem reyndi að
spila af viti í fyrri hálfleik. Júlíus
kom inn á þegar leikurinn var
nánast á enda, en Björn, hinn
bráðefnilegi ungi miðvörður liðs-
ins, fékk að sitja út leikinn þó svo
að þeir menn sem um miðvarð-
arstöðurnar sjá hafi verið allt
annað en sannfærandi. ÍA-liðið
virðist ekki hafa ráð á að svelta
þessa menn, en það er þeirra mál.
I stuttu máli:
íslandsmótið í knattspyrnu: 1.
deild: KR-ÍA 0-0.
Áminningar: Engar.
Dómari: Eysteinn Guðmundsson.
Varamarkvörður Aston Villa, Nig-
el Spink, hlýtur að vera hamingju-
samur þessa stundina. Þessi óþekkti
leikmaður, sem er aðeins 21 árs
gamall og var að leika sinn annan
leik með aðalliði Aston Villa er liðið
mætti Bayern í úrslitum Evrópu-
keppni meistaraliða í knattspyrnu,
færði liði sínu sigur með aldeilis
frábærri markvörslu I leiknum.
Spink þurfti að koma inná þegar að-
almarkvörður Villa, Jimmy Rimmer,
meiddist á 9. minútu fyrri hálfleiks-
ins. Hinn ungi markvörður lét hina
miklu spennu ekki þjaka sig og
sýndi stórstjörnum Bayern í tvo
heimana er hann varði hvert skotið
af öðru af hreinni snilld.
Fyrstu 30. mínútur fyrri hálf-
leiksins sótti lið Aston Villa mun
meira en leikmenn Bayern. Ekki
tókst leikmönnum Villa þó að
skapa sér nein stórhættuleg færi.
Evans og Withe áttu góða skalla
rétt framhjá og það voru einu færi
Villa. Bayern átti skyndisóknir og
á 15. mínútu bjargaði Villa á
marklínu skalla frá Augenthaler.
Þá átti Rummenigge glæsilega
hjólhestaspyrnu á mark Villa sem
sleikti vinkilinn. Það færðist fljótt
nokkur harka í leik liðanna, og
taugaspenna einkenndi nokkuð
leikinn framanaf.
Rummenigge átti ofsaskot úr
góðu færi í fyrri hálfleik innan
vítateigs sem Spinks varði af
snilld. f síðari hálfleik snerist
dæmið við. Leikmenn Bayern tóku
leikinn alveg í sínar hendur og
sóttu mjög stíft. Á 53. mínútu átti
Breitner hörkuskot sem fór rétt
yfir. Þremur mínútum síðar kom
góð fyrirgjöf fyrir mark Villa.
Þrír leikmenn Bayern voru í
dauðafæri og teygðu sig í knöttinn
en hann skoppaði framhjá þeim
öllum. Áfram sótti Bayern. Á 59.
mínútu varði Spink á hreint ótrú-
legan hátt frá Durnberger sem
hafði komist einn innfyrir vörn
Villa alveg inn í miðjan vítateig.
Sigurmark Ieiksins kom svo á
66. mínútu. Tony Morley tók mikin
sprett og einlék glæsilega í gegn
um vörn Bayern alveg upp að
endamörkum og gaf síðan vel
fyrir. Peter Withe var einn og
óvaldaður inni í vítateig Bayern
kom á fullri ferð og skoraði með
þrumuskoti rétt utan markteigs,
stöngin og inn. Þetta virkaði sem
reiðarslag á leikmenn Bayern.
Þegar aðeins fjórar mínútur voru
svo til leiksloka var Peter Withe
brugðið illa inni í vítaeig Bayern
og um greinilega vítaspyrnu var
að ræða en dómarinn sleppti
henni.
Lið Aston Villa sigraði því í
leiknum, 1—0, og er það í sjötta
skipti í röð sem enskt félagslið
sigrar í Evrópukeppni meistara-
liða. Bestu menn í liði Villa voru
markvörðurinn Spink, Mc-Naught
í vörninni, Des Bremner og Withe.
Morley átti góða spretti.
Lið Bayern var betra liðið á
vellinum og átti skilið að sigra.
Besti maður Bayern var Breitner,
var mjög mikið spil í kring um
hann. Augenthaler var góður og
Rummenigge stórhættulegur þeg-
ar hann slapp úr gæslunni. Tvær
skiptingar voru hjá Bayern. Guttl-
er kom inná fyrir Mhati á 51. mín-
útu og Niedermayer kom inná
fyrir Kraus á 78. mín.
Leiö Bayern og Villa
í úrslitaleikinn
Bayern Munchen og Aston Villa,
knattspyrnufélögin sem léku í
gærkvöldi til úrslita um Evrópu-
bikar meistaraliða, lögðu mörg fé-
lög að velli samanlagt á leið sinni i
úrslitaleikinn. Félög af ýmsum
styrkleikum. Hér verður til gam-
ans rakin slóð félaganna og byrjað
á fyrstu umferð. Þá mætti Bayern
sænska meistaraliðinu Öster og
vann samtals 6-1, 1-1 og 5-0. Aston
Villa dróst gegn Val eins og menn
muna og sigraði 5-0 og 2-0, eða 7-0
samanlagt.
I 2. umferð mættust Bayern og
portúgalska liðið fræga Benfica.
Bayern var ekki í vandræðum,
úrslitin 1-1 og 3-0, samtals 4-1.
Villa fékk þá að glíma við harð-
jaxlana hjá Dinamo Berlín. Villa
vann heima 1-0, tapaði úti 1-2 og
komst því áfram á útimarkaregl-
unni.
Undanúrslitin stilltu Bayern
upp gegn rúmenska liðinu Uni-
versitate Craiova og Villa gegn
sovéska liðinu Dinamo Kiev.
Bayern vann útileikinn gegn
Craiova 2-0 og liðin skildu síðan
jöfn, 1-1, í Munchen, samtals 3-1.
Vilia vann Kænugarðsliðið í báð-
um leikjunum með sömu marka-
tölunni, 1-0, samtals 2-0.
Bayern lenti í miklum svipt-
ingum í undanúrslitunum gegn
búlgarska herliðinu CSKA. Úti-
leikurinn tapaðist 3-4 og voru
brestirnir í vörn Bayern gífur-
legir vægast sagt. Liðinu tókst
þó að setja fyrir lekann í seinni
leiknum og Bayern vann örugg-
lega 4-0, eða samtals 7-4. Aston
Villa mætti hins vegar Pétri
Péturssyni og félögum hjá And-
erlecht. Tveir hörkuleikir þar og
Villa vann heimaleikinn 1-0, hélt
síðan hreinu og marði marka-
laust jafntefli í seinni leiknum.