Morgunblaðið - 27.05.1982, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MAÍ1982
34
Minning:
Margrét Guðmunds-
dóttir frá Reyðarfirði
Hinn 20. maí 1982 andaðist í
fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað elsti borgari í Reyðarfjarð-
arhreppi, Margrét Guðmundsdótt-
ir. Hún var fædd 25. janúar 1891 á
Papaósi í Austur-Skaftafellssýslu
og var því 91 árs þegar hún lést.
Hér á Reyðarfirði var hún búin
að eiga heima í nærfellt 63 ár.
Foreldrar Margrétar voru Guð-
mundur Sigurðsson, söðlasmiður
og verslunarmaður, og kona hans,
Sigríður Jónsdóttir.
6 ára gömul fluttist Margrét
með foreldrum sínum til Hafnar í
Hornafirði og dvaldist þar í for-
eldrahúsum þar til hún flutti til
Reyðarfjarðar. Hún stundaði nám
í Kvennaskólanum í Reykjavík um
eins vetrar skeið, en veiktist af
brjósthimnubólgu og gat ekki lok-
ið náminu við skólann. Hefur það
vafalítið valdið henni vonbrigðum
svo fróðleiksfús sem hún var alla
tíð. Á Hornafirði kynntist hún
manni sinum, Eiríki Beck frá
Sómastöðum í Reyðarfirði, en
systir hans, Þórunn, var gift Jóni,
bróður Margrétar.
Þau Margrét og Eiríkur giftu
sig 8. nóvember 1919 í Reykjavík.
Eiríkur var ekkjumaður. Fyrri
kona hans var Sigríður Stefáns-
dóttir og lést hún árið 1910. Áttu
þau einn son, sem Emil hét.
Eftir móðurmissinn dvaldi hann
hjá föðursystur sinni, Guðnýju
Beck, og manni hennar, Sveinbirni
Guðmundssyni, sem þá bjuggu í
Seylu. Emil flutti svo til föður síns
þegar hann giftist Margréti.
Emil, sem var hinn mesti efnis-
maður, fórst með vélbátnum Oddi
árið 1925. Margrét og Eiríkur hófu
búskap uppi á lofti í sjóhúsi, sem
kennt var við bóndann og kallað
Eiríkshús. Eiríkur hafði komið sér
upp þessari aðstöðu til útgerðar og
fiskverkunar.
Með þeim á loftinu voru þau
Áslaug Maack og Þorsteinn Páls-
son og þar munu elstu synir
beggja hjóna fyrst hafa séð dags-
ins ljós. Þetta þættu sjálfsagt ekki
merkileg húsakynni í dag, en þetta
varð að nægja, í önnur hús var
ekki að venda um sinn. Síðar
fluttu fjölskyldurnar svo í eigin
húsnæði, Seylu og Ekru.
Margrét og Eiríkur eignuðust
tvö börn. Þau eru Páll Þór, kenn-
ari á Hvolsvelli, kvæntur Guð-
björgu Helgadóttur, og Sigríður
Ingibjörg, húsfrú á Reyðarfirði,
gift Steingrími Bjarnasyni.
Þá var til heimilis hjá þeim
Þorbergur Marteinsson sem systk-
inin kölluðu „afa“. Hann var korn-
ungur tekinn í fóstur á Sómastöð-
um, en fluttist til Eiríks, þegar
hann hóf búskap og dvaldi hjá
honum og hans fólki til æviloka.
Einnig var Jakobína, hálfsystir
Eiríks, að nokkru fóstruð upp hjá
þeim hjónum, enda nefndu systk-
inin hana gjarnan „stóru systur".
Þótt hvorki sé hátt til lofts né
vítt til veggja í Seylu, þá blessað-
ist þetta allt saman hið besta. Og
fleiri komu reyndar við sögu, því
að oft voru kostgangarar hjá
Margréti, sumir árum saman, og
gestagangur mikill. Þau Margrét
og Eiríkur bjuggu samfellt í 25 ár
í Seylu. Eiríkur lést 9. júlí 1950.
Eftir það dvaldi Margrét á heimili
dóttur sinnar og flutti með fjöl-
skyldunni í nýtt húsnæði árið
1966. Hér hefur aðeins verið dreg-
inn ófullkominn rammi utan um
nokkra þætti í lífi Margrétar Guð-
mundsdóttur.
Margrét var lagleg kona, tíguleg
á velli og hafði hlýtt viðmót. Hún
var glaðsinna og félagslynd og
naut þess að blanda geði við annað
fólk, ekki hvað síst ungt fólk. Haft
er eftir ungri stúlku sem eitt sinn
dvaldi hér í þorpinu, að Margrét
væri ólík mörgu fullorðnu fólki,
hún skildi unga fólkið svo vel. Seg-
ir vitnisburður þessi sína sögu.
„Æ, ósköp er langt síðan þið
hafið komið, elskurnar mínar,“
sagði hún stundum þegar við
hjónin komum í heimsókn til
hennar.
Og satt er það, stundirnar hjá
henni hefðu gjarnan mátt vera
fleiri, því að hún var fróð um
marga hluti. Margrét hafði áhuga
á ættum og uppruna fólks og las
mikið bæði í bundnu og óbundnu
máli.
Hún tók virkan þátt í félagslífi
fyrr á árum, sat í sóknarnefnd,
söng í kirkjukórum, starfaði í
kvenfélaginu, tók þátt í leikstarf-
semi, svo nokkuð sé nefnt. Og það
var gaman að heyra hana rifja
upp liðna atburði á sinn ljúf-
mannlega og látlausa hátt.
Hún var lengst af vel ern og
stálminnug. Eftir aðjiún gat ekki
tekið þátt í störfum heimilisins og
heilsunni hrakaði jafnt og þétt
naut hún einstakrar umhyggju og
ástúðar dóttur sinnar og tengda-
sonar allt til hinstu stundar. Og
gagnkvæm var umhyggja dóttur-
sonanna þriggja, þeirra Eiríks,
Bjarna og Páls, og ömmu þeirra,
Margrétar. Þessi sómakona kveð-
ur nú eftir vegferð langa sátt við
Guð og menn. Hún hélt sinni
barnatrú og treysti á handleiðslu
Guðs í öllum hlutum. Reyðfirð-
ingar kveðja aldursforseta sinn
með virðingu og þökk fyrir þann
skerf sem hann hefur lagt til þess
mannlifs er hér hefur verið og er
lifað.
Persónulega þakka ég henni
margar ánægju- og fróðleiks-
stundir og sendi aðstandendum
öllum mínar innileguspi samúðar-
kveðjur. Guðmundur Magnússon.
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
veröa að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga.
(■reinar mega ekki vera í sendi-
brófsformi. Þess skal einnig get-
ið, af marggefnu tilefni, að frum
ort Ijóð um hinn látna cru ekki
birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Ilandrit þurfa
að vera vélrituð og með góðu
línubili.
Geturðu ímyndað
þérmoigun
Pá geturðu eins vel
ímyndað þér allan gang
heimsmálanna eins og ^
þauleggjasig t.d.ástandið
í Póllandi,síðustu fréttir
af átökum ráðamanna í
austri og vestri um eldflaugar í Evrópu,
stöðuna í olíulöndunum í Mið-Asíu, mis-
réttið í Afrfku o.s.frv.
ímyndaðu þér líka hvað er að gerast
heima fyrir, hvenær sláum við næsta verð-
stjórnmálunum.
Svo skaltu ímynda
þér eitthvað skemmti-
legt: veistu t.d. hvaða
nýjustu kvikmyndir er
verið að sýna, hvaða
sýningar og tónleikar eru væntanleg,
hvaða íþróttaafrek voru unnin í gærkvöldi,
hvernig stjörnuspáin þín er í dag, hvað allt
forvitnilega fólkið er að aðhafast....?
Geturðu ímyndað þér morgun eða
bólgumet, h ver er staða frystiiðnaðarins,
hvað kostar ein pylsa með öllu eftir síðustu jafnvel heilan da"g án Moggans?°
hækkun, hvað er að gerast að tjaldabaki í Óskemmtileg tilhugsun, ekki satt?
>
m
Meira en þú geturímyndað þér!