Morgunblaðið - 27.05.1982, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1982
33
Hvað segja þau um úrslit kosninganna
Seyðisfjörður:
Höfum verið
með Framsókn
í stjórn — það
breytist varla
„VIÐ NÁÐUM því að verða sá flokkur
í bæjarstjórn, sem er með flest at-
kvæði á bak við sig og ég er ákaflega
ánægður með þann árangur, sem
þakka má góðu starfi Sjálfstæðis-
flokksins hér undanfarin ár,“ sagði
Theódór Blöndal efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins á Seyðisfirði en
þar vann flokkurinn einn mann af Al-
þýðuflokknum, hlutu I allt þrjá menn
kjörna, og bestu útkomu í bæjarstjórn-
arkosningum síðan 1950 að sögn
Theódórs.
„Við höfum verið í meirihluta-
samstarfi hér í bænum undanfarin
átta ár og úrslitin sýna það helst,
myndi ég segja, að fólk er ánægt
með þann árangur sem náðst hefur
á undanförnum árum. íbúarnir vilja
halda áfram þeirri þróun, sem átt
hefur sér stað hér á Seyðisfirði og
fólkið hefur gefið okkur traust til að
veita henni forystu.
Við höfum verið í samstarfi með
Framsóknarflokknum þau átta ár,
sem við höfum verið í bæjarstjórn
og ég geri ekki ráð fyrir að það eigi
eftir að breytast," sagði Theódór
Blöndal í lokin.
Dalvík:
„Alla tíð verið
sterkt Fram-
sóknarsvæði“
„ÉG HELD við höfum gert okkur von-
ir um að halda okkar tveimur
mönnum í þessum kosningum, en við
gerðum okkur jafnframt Ijóst að það
gæti alveg eins farið á annan veg. Þó
held ég að við höfum aldrei búist við
að Framsókn myndi ná þeim árangri
sem raun ber vitni.“ Þetta sagði Helgi
Imrsteinsson, efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins á Dalvík, en þar
missti flokkurinn einn mann. Hafði
áður tvo en er nú aðeins með einn.
„Þá var fylgishrun Alþýðubanda-
lagsins miklu meira en mann gat
órað fyrir,“ hélt Helgi áfram. „Þess
má geta að það er ekki rétt, sem
komið hefur fram, að Alþýðu-
flokkslistinn hér hafi verið hreinn
flokkslisti heldur var hann borinn
fram af bæði Alþýðuflokknum og
óháðum. Einhver hluti af óháðum
eru menn, sem annars hefðu kosið
D-Iistann og fylgt okkur að máli. En
það hefur þó varla verið nema hluti
af þeim.
En hér hefur alla tíð verið sterkt
framsóknarsvæði og þó er eins og
þeir hafi varla búist við því sjálfir
að fá svona mörg atkvæði, sem raun
ber vitni,“ sagði Helgi Þorsteinsson
á Dalvík í lokin.
Neskaupstaöur:
Vonandi lag-
ast þetta
„ÉG GETT ekki sagt að ég sé óánægð-
ur með úrslitin en því er ekki að neita
að miðað við landið í heild fáum við
heldur lakari útkomu en félagar
okkar á öðrum stöðum," sagði Hörður
Stefánsson, efsti maður á lista Sjáif-
stæðisflokksins á Neskaupstað, í sam-
tali við Mbl. Á Neskaupstað fengu
sjálfstæðismenn tvo menn kjörna.
„Eg vona bara að þetta eigi eftir
að lagast því menn hljóta að læra af
reynslunni. En það er kannski ekk-
ert skrítið að við skulum ekki halda
í við félaga okkar á öðrum stöðum á
landinu því þetta svæði hér hefur
verið talið óvinnandi vígi alþýðu-
bandalagsmanna. Þeir hafa haft
töglin og hagldirnar má segja á
næstum því öllum hlutum hér. Þeir
hafa hér óvenjulega traust fylgi. En
í kosningunum 1978 féll einn al-
þýðubandalagsmaður úr bæjar-
stjórninni og þeir hafa ekki náð
honum inn ennþá, sem sýnir að
þróunin er í rétta átt,“ sagði Hörð-
ur Stefánsson.
ÁNANAUSTUM v/ GRANDAGACIO
121 REYKJAVÍK — SÍMI (91) 26122
PÓSTHÓLF 506 — TELEX: 2073
N.NR.: 9175—3685
DAGA TIL AÐ
SLÁ ÞÉR Á
ÚTVARPSVIÐTÆK
FRÁ AKAI MEÐ
20% VERÐLAUNA
AFSLÆTTI. *
Laugavegi 1(
sími 27788
80 69
* Miðað við
staðgreiðslu
FARÐU EKKITÆKJAVILLT
- TRYGGÐU ÞÉR IT?T1 GÆÐI