Morgunblaðið - 27.05.1982, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MAÍ1982
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 110 kr. á mánuði innanlands. (lausasölu 7 kr. eintakiö.
Ótvíræð úrslit
Sjálfstæðisflokkurinn var ótvíræður sigurvegari í sveitarstjórn-
arkosningunum. Meðaltalsfylgi hans reyndist 45,2% í þeim
sveitarfélögum, sem kosið var í, en 46,9% ef kaupstaðirnir eru skoðað-
ir sérstaklega. Þau úrslit sem mesta athygli vöktu vóru meirihluta-
sigur flokksins í Reykjavík, sem augu allra landsmanna beindust að,
en þar hlaut flokkurinn 52,53% atkvæða og 12 borgarfulltrúa af 21, og
stórsigur hans í Vestmannaeyjum, en þar hlaut hann 58,9% kjörfylgis
og 6 bæjarfulltrúa af 9. Sigurinn í Vestmannaeyjum á naumast sinn
líka í sögu íslenzkra sveitarfélaga.
Sjálfstæðisflokkurinn vann og hreinan meirihluta í Njarðvík, fjóra
bæjarfulltrúa af 7. Hann hélt meirihlutaaðstöðu glæsilega í Garðabæ,
á Seltjarnarnesi og í Mosfellssveit, hlaut 5 bæjarfulltrúa af 7 á
tveimur fyrrnefndu stöðunum og 4 af 7 í Mosfellssveit.
Sjálfstæðisflokkurinn reyndist og stærsti flokkurinn í flestum
kaupstöðum landsins. Ef litið er til nágrannasveitarfélaga Reykjavík-
ur, annarra en þegar er getið, skorti flokkinn aðeins einn viðbótar-
fulltrúa í hreinan meirihluta í Kópavogi, þar sem flokkurinn bætti við
sig miklu fylgi, í Hafnarfirði, í Keflavík og á Akranesi. Sama má
raunar segja um Ólafsfjörð, ísafjörð, Bolungarvík, Grindavík, Selfoss,
Eskifjörð og Siglufjörð, en á síðastnefnda staðnum tvöfaldaði flokk-
urinn bæjarfulltrúatölu sína og vann sigur sem vakti athygli um land
allt.
í kauptúnahreppum var svipaða sögu að segja. I Stykkishólmi hlaut
flokkurinn 61,5% atkvæða og 5 fulltrúa af 7, í Hveragerði 55,3% og 4
fulltrúa af 7, í Garði 52% og 3 fulltrúa af 5 og á Flateyri 50,3% og 3
fulltrúa af 5. Víðar vann flokkurinn verulegt fylgi í kauptúnahrepp-
um.
Hér hafa verið nefndir nokkrir staðir af mörgum, þar sem sjálf-
stæðisfólk vann flokki sínum góða sigra og fleiri sveitarfélög mætti
tína til. Mergurinn málsins er þó sá, að sveiflan, sem sveitarstjórn-
arkosningarnar sýna, frá vinstri flokkum til Sjálfstæðisflokks, nær
til landsins alls. Víða ráða staðbundnar aðstæður og persónulegar
vinsældir frambjóðenda miklu um úrslit, en þegar þau falla í sama
farveg svo að segja hvar sem er á landinu má ljóst vera, að vinstri
flokkarnir hafa verið vegnir — í ljósi tiltækrar reynslu — og léttvæg-
ir fundnir, og þá fyrst og fremst Alþýðubandalagið, samhliða því sem
kosningaúrslitin eru ótvíræð stuðningsyfirlýsing við þau sjónarmið,
sem sjálfstæðisfólk hélt fram í kosningabaráttunni.
Sjónarmið sem
hlutu stuðning
Sjálfstæðisflokkurinn lagði hvarvetna megináherzlu á nauðsyn
þess að styrkja rekstrarstöðu atvinnuveganna, auka framleiðni
þeirra og verðmætasköpun, sem og að skjóta nýjum stoðum undir
afkomu þjóðarheildarinnar, enda væri verðmætasköpunin, þjóðar-
tekjurnar, eina raunhæfa undirstaða lífskjara í landinu. Samfélags-
leg þjónusta hvílir, ekkert síður en einkaneyzlan, á aflatekjum og
efnahagslegum styrkleika þjóðarbúsins.
Sjálfstæðisflokkurinn lagði jafnframt áherzlu á að sporna fótum
við ofsköttun, sem dregur úr vinnuframlagi, framtaki, eðlilegum vexti
og tæknivæðingu atvinnugreina — og þar með úr verðmætasköpun,
þjóðartekjum og lífskjörum í landinu, eins og raun er á orðin, þegar
þjóðhagsspá stendur til 2% rýrnunar þjóðartekna 1982. Hóflegri
skattastefna, sem verkar gagnstætt, þ.e. sem hvati í þjóðarbú-
skapnum, eykur hinsvegar umsvif og það sem til skiptanna verður.
Þannig geta lækkaðar skattaprósentur leitt til stækkaðra skatt-
stofna, þegar til lengri tíma er litið, og traustari tekna ríkis og
sveitarfélaga, samhliða batnandi lífskjörum og vaxandi afkomuör-
yggí-
Þá lagði sjálfstæðisfólk jafnframt áherzlu á manneskjulegra og
fegurra umhverfi, enda er það meginkjarni sjálfstæðisstefnunnar, að
tryggja þegnrétt og velferð hvers einstaklings. Samfélagið á að vera
til einstaklinganna vegna en ekki öfugt. Raunveruleg geta á þeim
vettvangi byggist, eins og flest annað, á því að tryggja afl þeirra
hluta, sem gera þarf, þ.e. fjármagnið, arðsemina í þjóðarbúskapnum.
Það er stuðningur við þessi meginsjónarmið, sem lesa má út úr
þeim kosninganiðurstöðum, sem taldar vóru upp úr kjörkössunum um
sl. helgi. Það eru þessi sjónarmið sem sjálfstæðismenn verða að
leggja höfuðkapp á að hrinda í framkvæmd, hvar sem þeir geta beitt
áhrifum sínum. Þannig, og aðeins þannig, geta þeir reynzt. þess
trausts verðugir, sem þeir hlutu í sveitarstjórnarkosningunum vítt
um land.
Listahátíð í Reykjavík
í úrvali Schonbergs
„VERÖLDIN ein samfelld tónlistarhátíð" er yfirskrift
aukablaðs sem fylgir The New York Times í maíbyrjun.
Þar fjallar Haroíd Schonberg, einn virtasti og þekktasti
tónlistargagnrýnandi samtíðarinnar, um tónlistarhátíðir
sem haldnar verða víðsvegar um heimsbyggðina í sumar.
Nánar tiltekið er um að ræða 90 hátíðir í 27 löndum.
Schonberg velur úr þessum 90
hátíðum fimm hátíðir sem hann
mælir sérstaklega með að menn
gaumgæfi og er listahátíðin sem
hefst í Reykjavík 5. júní nk. í því
úrvali. Hinar eru haldnar í
Wúrtsburg, Drottningholm, Hol-
landi og Wexford.
Um Reykjavíkurhátíðina segir
Schonberg:
„Píanóleikarinn frægi, Vla-
dimir Ashkenazy, á hlut að Lis-
tahátíð í Reykjavík, en hann á
þar heimili og er kvæntur ís-
lenzkri konu. Ýmsir úr fremstu
röð tónlistarmanna koma fram á
hátíðinni sem haldin er í þessari
yndislegu litlu borg. Þar að auki
er gefinn kostur á að skoða hver-
ina og eldfjallið Heklu sem á
miðöldum var talin vera hlið
heljar."
Harold Schonberg kann skil á
fleiri listgreinum en tónlist.
Hann var hér í Reykjavík á veg-
um The New York Times þegar
heimsmeistaraeinvígið í skák fór
fram sumarið 1972 og skrifaði þá
greinar í Morgunblaðið.
Listahátíð
í Reykjavík
hefst 5. júní
Setningarathöfn Listahátíðar f
Reykjavík verður laugardaginn 5.
júní. Þá um kvöldið verður Silki-
tromman, verk þeirra Atla Heimis
Sveinssonar og Örnólfs Árnasonar,
frumsýnd í Þjóðleikhúsinu. Alls
verða þrjár sýningar á Silkitromm-
unni.
Engin heimsókn verður af hálfu
jazzlistamanna, en poppunnendur
hafa ástæðu til að kætast. Breska
hljómsveitin Human League, sem
notið hefur mikillar hylli hérlend-
is jafnt sem í heimalandi sínu,
Bretlandi, heldur tvenna tónleika
á vegum Listahátíðar í Laugar-
dalshöllinni, dagana 11. og 12.
júní.
Ýmissa annarra grasa kennir á
Listahátíð. Fiðluleikarinn Gidon
Kramer og píanóleikarinn Oleg
Maisenberg halda tónleika saman
og þá heldur James Galway
flaututónleika með Sinfóníu-
hljómsveitinni undir stjórn David
Measham. Þá má nefna tónleika
Boris Christoff með sinfóníu-
hljómsveitinni og tónleika Ung-
verjans Zoltán Kocsis.
Fjöldi annarra atriða og sýn-
inga verður á Listahátíð.
Human League. Fyrir miðju er Phil Oakey, söngvari sveitarinnar.
Unnið að stofnun nýs jafnað-
armannafélags í Reykjavík
„ÞAÐ er ekkert leyndarmál, það
stendur til að stofna nýtt féiag jafn-
aðarmanna í Reykjavík eftir helgi,“
sagði Bjarni P. Magnússon, þriðji
maður á lista Alþýðuflokksins i
borgarstjórnarkosningunum, í sam-
tali við Mbl. í gær.
„Við höfum að undanförnu verið
að skoða ýmsa þætti málsins og
ætlum að reyna að fá breiða sam-
stöðu um þetta félag," hélt Bjarni
áfram. „Það er alveg óhætt að
segja það hreint út að þessi hug-
mynd er einungis komin vegna
óánægju með gamla félagið, AI-
þýðuflokksfélag Reykjavíkur.
Okkur vantar samastað fyrir fólk
sem vill starfa að málefnum
flokksins en hefur ekki viljað gera
það innan Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur, enda er nauðsynlegt,
til að jafnaðarmannaflokkur sé
lifandi, að fram fari öflug og mikil
skoðanaskipti innan hans. Ein
leiðin til að gera það er að stofna
nýtt félag.“
Samkvæmt flokkslögum Al-
þýðuflokksins sem samþykkt voru
á aukaflokksþingi síðastliðið
haust, er fullgildum flokks-
Flokksstjórn Alþýðuflokksins hef-
ur verið boðuð til fundar að Hótel
Esju í kvöld kl. 20.30. Tilefni fund-
arins er úrslitin i bæjar- og sveitar-
mönnum frjálst að vera í hverju
því félagi sem þeir kjósa, enda
starfi það samkvæmt flokkslög-
um. Sérhvert félag innan Alþýðu-
flokksins hefur síðan rétt til að
senda fulltrúa á flokksþing í hlut-
föllunum einn á móti hverjum
fimmtán félögum viðkomandi fé-
lags.
stjórnarkosningunum um síðustu
helgi og eru þau eina málið á
dagskrá nú. í flokksstjórn Alþýðu-
flokksins sitja 75 manns.
Flokksstjórnarfundur
hjá Alþýðuflokknum
Finnskt sendiráð á íslandi
FINNSKA ríkisstjórnin ráðgerir
nú að setja á stofn finnskt sendi-
ráð á íslandi. Finnar hafa löng-
um haft hug á að starfrækja
sendiráð hérlendis og virðist það
ætla að verða að veruleika síðar
á þessu ári.
í Finnlandi mun hafa verið
lögð fram tillaga um fjárveit-
ingu til stofnsetningar og
starfsemi sendiráðs á Islandi.
Finnska utanríkisráðuneytið
hefur ekki enn sent frá sér
opinbera tilkynningu hér um.
Utanríkisráðuneyti íslands
upplýsti, þegar Mbl. hafði
samband við það, að því væri
kunnugt um þessar ráðagerð-
ir, en engin formleg tilkynning
hefði borist. Þá staðfesti Har-
aldur Björnsson, aðalræðis-
maður Finnlands á íslandi, að
þessi mál væru nú á dagskrá
og myndu líklega skýrast inn-
an mánaðar.