Morgunblaðið - 27.05.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MAÍ1982
23
Talið víst
að kveikt
hafi verið
í hælinu
Aire-vSur-LÁdour, Frakklandi, 26. maí. AP.
NÚ ER talið fullvíst að um íkveikju
hafi verið að ræða, þegar heli fyrir
unglinga með geðræn vandamál
brann á þriðjudagskvöld með þeim
afleiðingum að 15 létust samstundis
og 6 síðar af völdum alvarlegra
brunasára.
Telja sérfræðingar að ekkert
nema skipulegar aðgerðir geti
hafa orsakað bruna sem þennan.
Kom eldur upp á nokkrum stöðum
samtímis á annarri hæð hælisins
árla morguns. Magnaðist eldurinn
fljótlega og barst víða um bygg-
inguna. Tók fjórar klukkustundir
að ráða niðurlögum hans.
Eins er enn saknað og 9 eru á
sjúkrahúsi, sumir með alvarleg
brunasár. A meðal þeirra er létust
var hjúkrunarkona. Helmingur
byggingarinnar gereyðilagðist í
eldsvoðanum.
Vopna-
sending
stödvud
Tel Aviv, 26. maí. AP.
ÍSRAELSMENN hafa neitað því,
að vopn um borð í þotu frá Ecua-
dor, sem kyrrsett var af banda-
rískum yfirvöldum á Kennedy-
flugveili, hafi verið ætluð Argent-
ínumönnum. Skýrt var frá þessu í
útvarpi hersins í ísrael í dag.
Yfirvöld hafa hins vegar neit-
að að gefa upp ákvörðunarstað
þotunnar og segja það ekki koma
Bandaríkjamönnum við. Orð-
rómur er á kreiki í New York
þess efnis, að í flugvélinni séu
vopn ætluð Argentínumönnum.
Talsmaður flugfélagsins í New
York sagði að í vélinni væru
varahlutir í flugvélar, en viður-
kenndi ennfremur að í farminum
kynni að vera „hernaðarút-
búnaður".
Upp komst um farminn er vél-
in fór í gegnum venjulega toll-
skoðun á flugvellinum. Israels-
menn hafa til þessa selt bæði
Argentínumönnum og Ecuador
vopn. Utanríkisráðherra ísraels
neitaði að tjá sig um málið. Vit-
að er að Argentínumenn eiga
eftir að fá hluta vopnasendinga,
sem samið var um við ísrael áð-
ur en Falklandseyjadeilan
braust út.
Spellvirki í
Norðursjó
Frá Jan Krik Lauré í Ósló.
RÆKILEG rannsókn er hafin á
tveimur skemmdarverkatilraunum á
sænska íbúðarpallinum „Safe Conc-
ordia“ í Norðursjó.
Komið hefur í ljós að einhver
hefur reynt að eyðileggja tæki,
sem stjórna akkerum borpallsins.
Pallinn rak undan vindi aðfara-
nótt mánudags og þegar farið var
að rannsaka málið kom í ljós að
einhver hafði skemmt akkeris-
stýrið.
Seinna kom einnig í ljós að 300
lítrum af vatni hafði verið hellt á
þrjá eldsneytisgeyma, sem þyrlur
nota til áfyllingar. Sem betur fer
uppgötvaðist þetta áður en þyrl-
urnar voru fylltar. Þá hefði þyrla
farizt.
settur sem hann væri“.
Hann minntist lítillega á
Gurka-hermennina, sem eru á
leið til Falklandseyja til að-
stoðar Bretum. Lýsti hann
þeim sem „dvergum, sem væru
útlits eins og sambland snjó-
mannsins ógurlega og fjalla-
geitanna í Nepal".
Hann hélt áfram: „Hvað
myndu Bretar segja ef Argent-
ínumenn fengju til liðs við sig
málaliða frá Kúbu, eða jafnvel
Rússa eða írani? En hafið eng-
ar áhyggjur. Argentínumenn
eru fullfærir um þetta. Við
þurfum enga annarlega utan-
aðkomandi aðstoð til að sýna
fordæmi."
Margaret Thatcher líkt við
geðsjúkling í Argentínu
Buenos Aires, 24. maí. AP.
AUGLÝSING Julio A. Garcia
Martinez í hinu virta blaði, La
Nacion, þykir bera því gott vitni
hvern hug Argentínumenn bera
til Breta um þessar mundir.
Martinez þessi skrifar sig “lög-
fræðing, prófessor, fyrrum rekt-
or, rithöfund, útgefanda,“ og
annað í þeim dúr. í auglýsingu
hans segir m.a. eitthvað á þessa
leið:
„Leiðtogi, sem hagaði sér
eins og Margaret Thatcher,
væri talinn geðveikur í Arg-
entínu og hvaða öðru Suður-
Ameríkuríki. Strax næsta dag
myndu liggja 1000 beiðnir
fyrir dómstólum um, að hún
yrði úrskurðuð geðveik og ætti
heima á geðveikrahæli."
Lýsti Martinez aðferðum
Thatcher, sem „framúrskar-
andi óraunsæjum" og sagði
ennfremur að slík hegðan leið-
toga í Argentínu myndi kosta
hann stöðumissi „hversu hátt-
Sendiherra Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu Þjóðunum,
Jeane J. Kirkpatrick, ásakaði
utanríkisráðherra Panama á
sunnudag fyrir óviður-
kvæmileg ummæli í garð
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Breta. Sagði Jorge
Illucea, að þrákelkni Thatcher
í deilunni ætti rætur sínar að
rekja til „kirtlastarfsemi
kvenna" eins og hann orðaði
það.
SUMARFRAKKAR
•'HMffl
LAUGAVEGI 47 SÍM117575
6.166
íslenskir
FÁNAR
Allar stæröir
Fánalínur
Fánalínufestingar
•
HANDFÆRAVINDUR
NÆL0NLÍNUR
SJÓSPÚNAR M. GERDIR
PIKLAR M. ÚRVAL
HANDFÆRASÖKKUR
HANDFÆRAÖNGLAR
SIGURNAGLAR
HÁKARLAÖNGLAR
SKÖTULÓDAÖNGLAR
KOLANET
SILUNGANET
ARAR
ÁRAKEFAR
BJÖRGUNARVESTI
FYRIR BÖRN OG FULLORONA
GARÐYRKJUÁHÖLD
SKÓFLUR ALLSKONAR
RISTUSPAÐAR
KANTSKERAR
GAROHRÍFUR
GIRÐINGATENGUR
GIRÐINGAVÍR, GALV.
GARÐKÖNNUR
GARÐSLÖNGUR
VATNSÚÐARAR
SLÖNGUKRANAR
SLÖNGUTENGI
SLÖNGUVAGNAR
SLÖNGUGRINDUR
GARÐSLATTUVELAR
HJÓLBÖRUR
JÁRNKARLAR
JARDHAKAR
SLEGGJUR
MÁLNING
0G LÖKK
FERNISOLÍA. VIDAROLÍA
HRÁTJARA
CARBÓLÍN
BLAKKFERNIS
PLASTTJARA
PENSLAR. KÚSTAR
RULLUR
RYDEYDIR — RYÐVÖRN
MÚRARAVERKFÆRI
MURSKEIDAR
MURBRETTI
MÚRHAMRAR
MURFÍLT
STÁLSTEINAR
M00EL-GIPS
i 25 KG POKUM
.JUiVU M IUU4WI3I