Morgunblaðið - 02.02.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRUAR 1974
3
Sjálfstæðis-
menn þinga
um sveitar-
stjórnarmál
Geir Hallgrímsson flytur ávarp. Við borðið frá. vinstri sitja ritararnir Halldór Finnsson og Sigrfður
Asgeirsdóttir og fundarstjóri Halldór Jónsson. Fjær sitja framsögumenn, Birgir Isl. Gunnarsson,
Arni Grétar Finnsson, Asthildur Pétursdóttir og Ólafur B. Thors.
Ráðstefna Sjálfstæðis-
flokksins um sveitar-
stjórnarmál hófst í gær-
morgun með ávarpi for-
manns flokksins Geirs
Hailgrfmssonar. Mættir
voru til þessarar tveggja
daga ráðstefnu fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins f
sveitarstjórnum víðs veg-
ar að af landinu. Fundar-
stjóri var Halldór Jóns-
son, en ritarar Sigríður
Ásgeirsdóttir og Halldór
Finnsson.
Að ræðu formanns lokinni
fluttu framsöguerindi Ölafur
B. Thors um framtíðarverkefni
og tekjustofna sveitarfélaga,
Asthildur Pétursdóttir um
frumkvæði sveitarfélaga í fé-
lagslegri þjónustu, Birgir Isl.
Gunnarsson um verndun nátt-
úru og mótun umhverfis og
Arni Grétar Finnsson um orku-
mál og sveitarfélögin. Fimmti
framsögumaður var Sigurður
Sigurðsson, en þar sem hann
var veðurtepptur á Akureyri,
gerði Sigfinnur Sigurðsson
grein fyrir málaflokknum um
byggðastefnuna.
Síðdegis voru þessi mál rædd
í umræðuhópum, þannig að
stjórnendur og framsögumenn
fluttu sig á milli hópa og allir
fjölluðu því um alla málaflokk-
ana. Stjórnendur umræðuhóp-
anna voru Ölafur G. Einarsson,
alþingismaður, Markús örn
Antonsson, Lárus Jónsson, Sig-
finnur Sigurðsson og dr. Gunn-
ar Sigurðsson.
Ráðstefnan hefst aftur í dag
kl. 10 með umræðum um álit
umræðuhópanna. En eftir há-
degishlé verða almennar um-
ræður um sveitarstjórnarmál
og stefnumörkun í þeim. I
kaffihléi verður hið nýja Sjálf-
stæðishús skoðað og bjóða
Hvatarkonur upp á kaffi þar.
Albert Guðmundssón flytur
ávarp. Kl. 17 verður haldið
áfram fundum og ráðstefnunni
lokið um kvöldmatarleytið.
A sunnudag hefst önn-
ur ráðstefna með sömu
fulltrúum á Hótel Loft-
leiðum. Er það ráðstefna
Sjálfstæðisflokksins um
undirbúning sveitar-
stjórnarkosninga.
Við setningu ráðstefnu sjálfstæðismanna um sveitarstjórnarmál í gærmorgun
Fálkinn gefur út leikritið
Sókrates á hljómplötu
FALKINN h.f. hefur gefið út
hljómplötu með leikritinu Sókra-
tes eftir Matthfas Johannessen.
Leikritinu var útvarpað í nóvem-
ber 1971. Leikstjóri er Helgi
Skúlason, tónlist er eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson og er leikin
af hljómsveit undir stjórn hans.
Hlutverkaskrá er þannig, að
Sókrates leikur Valur Gíslason,
Madame de Pampadour leikur
Helga Bachmann, Van Gogh
leikur Arni Tryggvason, Darwin
leikur Gunnar Eyjólfsson, Galileó
leikur Ævar R. Kvaran, Sólkon-
unginn leikur Jón Aðils, Sölva
Samræma
sumartíma
á Norður
löndum
RAÐHERRANEFND Norður-
landa, sem átti fund hér I Reykja-
vfk f gær, ákvað að skipa nefnd til
þess að athuga möguleika á þvf að
samræma reglur um sumartima á
Norðurlöndum öllum eða nýjan
meðaltfma. Nefndin skal hraða
störfum sfnum og skila áliti fyrir
mittár 1974.
Með því að breyta klukkunni
yfir sumarmánuðina og færa
hana eftir þvl, hvenær sól kemur
upp og sól sezt, nýtist t.d. mun
betur birtaii og sparast þá orka. I
Noregi hafa verið ákvæði um að
sumartimi gildi frá 1. mai til 14.
september ár hvert, en nokkur ár
eru frá þvf er íslendingar felldu
niður vetrartíma og er nú ávallt
hérlendis sumartími, sem er hinn
sami og meðaltími áGreenwitch.
Helgason leikur Þórhallur
Sigurðsson og þulinn leikur Helgi
Skúlason.
Sveinn Einarsson þjóðleikhús-
stjóri ritar á umslagssíðu um
íslenzka leikritun og leikritun
Matthíasar Johannessen. Sveinn
segir um Sókrates:
„Skömmu síðar samdi svo
Matthías þennan leikþátt, Sókra-
tes, fyrir útvarp. Þetta er gletti-
legt verk,skreytt skáldlegum hug-
dettum, leynir á sér og lofar góðu
fyrir framtfðina.“
Umslagssiða er skreytt af Hall-
dóri Péturssyni, en hún er
prentuð hjá Grafik h.f.
I bréfi, sem Morgunblaðinu
barst frá Haraldi Ólafssyni for-
stjóra Fálkans í tilefni útgáf-
unnar segir:
„Á sölumarkað er að koma
hljómplata með leikritinu Sókra-
tes eftir Matthfas Johannessen
skáld. Leikrit þetta var leikið f
útvarpi f nóvember 1971, en ekki
síðan.
Ég fór þess á leit við Matthias
Johannessen, að hann gæfi
Fálkanum heimild til að gefa út
leikrit eða leikþátt eftir hann, og
datt okkur fyrst í hug leikþáttur-
inn Jón gamli, sem sýndur var í
sjónvarpinu. En þegar til kom,
var ekki hægt að nota upptöku þá,
sem til var, til útgáfu á hljóm-
plötu, þótt ýmsir agnúar væru
sniðnir af.
Þá kom okkur Matthíasi saman
um að gefa út á hljómplötu leik-
ritið Sókrates, sem mér fannst
mjög athyglisvert eftir að hafa
hlustað á uppfærslu þess í Ríkis-
útvarpinu. Hér teflir Matthfas
saman ýmsum þekktum persón-
um veraldarsögunnar, svo sem
Sókratesi, Darwin, Galileó, Van
Gogh, Lúðvík 14. og lagskonu
hans, Madame de Pompadour,
ásamt Sölva Helgasyni. Sveinn
Einarsson þjóðleikhússtjóri skrif-
aði umsögn á baksíðu umslagsins,
og Halldór Pétursson listmálari
teiknaði framhliðina.
Ég sendi yður hér með eina
hljómplötu til umsagnar og vænti
þess, að þér getið hennar að ein-
hverju sem fréttar, ef yður þykir
ástæða til.
Þessi útgáfa er ekki gerð í
gróðaskyni. Heldur tel ég, að
hljómplata þessi, sem og aðrar
hljómplötur með flutningi
fslenzkra bókmennta, er áður
hafa komið út á vegum Fálkans,
eigi erindi til almennings og hafi
nokkurt menningarlegt gildi.“
Stefán Jónsson segir
sögur á Alþingi
A FUNDI sameinaðs þings sl.
fimmtudag flutti Stefán Jóns-
son Alþýðubandalagsþingmað-
ur ræðu, sem sennilega verður f
minnum höfð f þingsögunni.
Ræðu þessa flutti þingmaður-
inn, er verið var að ræða um
þingsályktunartillögu um að
hrundið yrði þeirri ákvörðun
að fella niður z f ritmáli.
Var hann á móti tillögunni,
taldi allt málfræðistagl vera
skólakennslu til óþurftar og
sagði sögur máli sinu til
stuðnings.
Ein sagan, sem þingmaðurinn
sagði, var eitthvað á þessa Ieið:
Þegar hann kom fyrst að
Laugaskóla til að taka þar við
störfum sem kennari, hefði
gamall maður tekið á móti sér.
Sá hefði sagt við sig, að varla
liði nú langur tími, þar til
Stefán yrði hrakinn frá
kennslunni. Nú hvers vegna?
Jú, ástæðan var sú, að skólavist-
in væri nemendunum svo mikil
kvöl, að þau gerðu líf kennar-
ans að martröð. Dæmi væri um
það frá skólanum einn vetur-
inn, að kennari hefði skömmu
eftir áramótin verið kominn á
fremsta hlunn með að hengja
sig og stuttu síðar hefði skóla-
stjórinn verið fluttur brott af
staðnum í spennitreyju.
Þá sagði þingmaðurinn, að
ekki hefði verið hægt að
komast inn f efnafræðistofu
skólans, þar sem hurðin hefði
verið læst. Hann hefði þvi kikt
á gluggann og séð, að fyrir
innan hefði verið búið að skera
og brenna leðurlíki á stólum
skólastofunnar og einhver
hefði hægt sér á skólaborðið
(Orðalag Mbl. Blaðið telur
orðalag þingmannsins óprent-
hæft i dagblaði).
Morgunblaðið hafði samband
við þingmanninn til að fá leyfi
til að hafa orðrétt eftir honum
úr ræðunni. Fór hann þess á
leit við blaðið, að það birti ekki
framangreinda sögu, þar sem
hann hefði ekki tekið nægilega
skýrt fnam, að hún hefði verið
ýkjusaga, höfð eftir gömlum
manni á staðnum. Ekki var orð-
ið við þeim tilmælum, en hins
vegar þykir Morgunblaðinu
rétt, að með fylgi framangreind
skýring þingmannsins á orðum