Morgunblaðið - 13.10.1973, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÖBER 1973
Fyrir nokkru afhenti Lions-
klúbbur Hafnarfjarðar St. Jóseps-
spítala að gjöf nýtt lækningatæki.
Tækið kallast á íslenzku frysti-
skurðtæki og er ætlað til lækn-
inga á kvensjúkdómum. Sérstak-
lega er það ætlað til að eyða sár-
Af Páli
áttræðum
Vegna línubrengla í grein Matt-
híasar Johannessen um dr. Pál
tsólfsson áttræðan er birtur hér
sá kafli, sem verst varð úti:
Tíminn líður með ógnarharða.
Páll situr í rauða stólnum sínum,
hugsi. „Húmorinn hverfur með
elli og sjúkdómum,“ sagði hann
nýlega, „en ég sakna hans ekki.
Ég sakna fjörunnar. Það var yndi
mitt að ganga á reka eftir óveður
og sjá, hverju hafið hafði skilað á
ströndina. Ég sakna þess, að geta
ekki gengið i fjörunni. Það er
mikill munur á því að ganga í
flæðarmáli eða vera bundinn hér
við stólinn og horfa á bóka-
skápinn fullan af bókum, en geta
ekki lesið, horfa á hjólastólinn og
geta ekki gengið. Þá reyni ég að
hugsa, en allt rennur saman í eitt.
Ég hugsa sjaldnast neitt sérstakt.
Samt flýgur mér eitt og annað í
hug, t.d. sönglagastef, en ég get
ekki skrifað þau niður. Það er
löng leið frá heila til handar,
grýtt og ógreiðfær. Fyrir því fær
maður að finna.þegar elli og sjúk
dómar sækja á. Ég skrifa lítið sem
ekkert, stundum nafnið mitt, ef
mikið liggur við. Eg hugsa oft um
það, sem haft er eftir séra Frið-
rik, þegar hann var orðinn blind-
ur, að hann þakkaði Guði fyrir, að
hann skyldi hafa gefið honum
blinduna. Mér finnst þetta gott
hjá séra Friðrik, en óskiljanlegt,
ekki gæti ég hugsað svona. En
hann var sannur guðsmaður. Eða
Job, sem var kaunum sleginn og
missti allt sitt, en sagði:
Drottinn gaf og Drottinn tók,
lofað veri nafn Drottins.
Þetta er mikill lærdómur. Við
verðum að taka því, sem að hönd-
um ber. Um annað er ekki að
ræða.“
Sýnir í SIJM
Einn af meðlimum SUM,
Tryggvi Ólafsson, opnar sýningu f
dag, laugardag, kl. 16, í Gallerfe
SÚM. Sýnir hann þar 23 málverk,
máluð ás.l. hálfu öðru ári.
Þetta er þriðja einkasýning
um og bólgum f leshálsi. Myndin
ér tekin, er Lionsfélagar afhentu
teækið, en viðstaddir afhending-
una voru læknarnir Jónas Bjarna-
son, Jósef Ólafsson og Vfglundur
Þór Þorsteinsson og priorinnan
systir Eulalia.
Tryggva hér á landi, en hann hef-
ur einnig tekið þátt f mörgum
samsýningum erlendis.
Sýningin er opin frá kl. 16—22
daglega og lýkur henni eftir hálf-
an mánuð.
Sýning
Jóhanns
opin til
14. október
MÁLVERKASÝNING Jóhanns G.
Jóhannssonar í Hamragörðum við
Hávallagötu var opnuð hinn 6.
október og verður opin til 14.
október daglega á tímabilinu frá
klukkan 15 til 22. 1 frétt í Mbl. af
opnun sýningarinnar var sagt, að
sýningin stæði til 10. október, en
það er rangt. Sýningin stendur til
14. október. Hlutaðeigendur eru
beðnir velvirðingar á þessari
prentvillu.
Athugasemd
Vegna fréttar í Morgunblaðinu
f dag, föstudag, um væringar á
ritstjórn Tímans, vill stjórn
Blaðamannafélags Islands óska
þess, að það komi fram,að félag-
inu hefur engin kæra borizt frá
starfsmönnum Timans né öðrum,
um yfirborganir blaðamanna.
Samningar Blaðamannafélags-
ins við blaðaútgefendur varðalág-
markskaup, og allar aukagreiðsl-
ur eru samkomulagsatriði útgef-
enda og blaðamanna.
Með þökk fyrir birtinguna.
F.h. stjórnar Bí, 12. okt. 1973.
Bjarni Sigtryggsson formaður.
— Segir af sér
formennsku
Framhald af bls. 1
mér. Ég hef því ákveðið að segja
af mér formennsku Sjálfstæðis-
flokksins. Önnur skyldustörf
fyrir flokkinn, svo -sem þing-
mennsku, mun ég halda áfram að
rækja eftir fyllstu getu og vona,
að á þvf verði ekki misbrestur. Ég
hef tekið þessa ákvörðun, án þess
að aðrir beri ábyrgð á henni en ég
sjálfur, en hún er tekin af einlæg-
um huga í trausti þess, að hún sé
öllum viðkomandi fyrir beztu.
Með vinarhug.
Jóhann Hafstein.
Ummæli Geirs
Hallgrímssonar
Morgunblaðið sneri sér í gær
til Geirs Hallgrímssonar, sem nú
hefur tekið við sem formaður
Sjálfstæðisflokksins og leitaði
umsagnar hans um ákvörðun
Jóhanns Hafstein. Geir Hall-
grimsson sagði:
„Við sjálfstæðismenn hörmum,
að formaður okkar, Jóhann Haf-
stein, hefur talið nauðsynlegt af
heilsufarsástæðum að taka þá
ákvörðun að segja af sér sem for-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Flokkurinn hefur mikið misst,
þegar hann lætur af starfi sem
formaður hans.
Á þessari stundu eru okkur
sjálfstæðismönnum efst í huga
þakkir, sem við víljum flytja
Jóhanni Hafstein og óskoruð virð-
ing, sem við viljum tjá honum.
Við óskum þess, að hann megi
sem fyrst ná fullum bata.
Jóhann Hafstein tók við for-
mennsku Sjálfstæðisflokksins við
erfiðar aðstæður, en hefur innt
formannsstörf af hendi með
dugnaði og dómgreind, reisn og
lagni.
í starfi mínu sem formaður
Sjálfstæðisflokksins er mér mikill
styrkur að fá að njóta ráða og
atbeina Jóhanns Hafstein. Ég
æski eftir góðu samstarfi við allt
sjálfstæðisfólk, hvarvetna á land-
inu og vonast til, að með samstarfi
okkar allra getum við laðað sem
flesta islendinga til fylgis við
hugsjónir sjálfstæðisstefnunnar.“
— Alfreð Flóki
Framhald af bls. 3
gildi hans fyrir listina. „Ég held,
að það sé nauðsynlegt fvri
listamann að kynna sér magíu,
þar sem öll list er upp úr henni
sprottin." Hitt er svo annað mál,
að Flóki kvað galdur Crowleys
vera nokkuð varasaman. „Hann
átti það til að leggja snörur fyrir
amatörana, þannig að ef menn
ætluðu að granda tengdamóður
sinni með galdri, gat vel svo farið
að menn dræpu ömmu sína í stað-
inn.“
Alfreð Flóki sagði þessa
sýningu vera í stórum dráttum
framhald síðustu sýningar í Boga-
salnum, sem var 1970. „En nú
held ég að einhver gerjun sé að
eiga sér stað, — og þá helzt 1
demóniskri, fantastískri átt.“
Myndirnar á sýningunni eru 37
talsins, þar af 30 til sölu, og eru
gerðar í iauðkrit, svartkrít og
túss. Hún er opin í Bogasalnum
13. — 21. október frá 14—22.
— Israelsmenn
Framhald af bls. 1
mjög ósamhljóða, og hvor um sig
hreykir sér af því að hafa eyðilagt
ótölulegan grúa flugvéla og skrið-
dreka fyrir hinum aðilanum.
Segja fréttamenn mjög erfitt að
afla nákvæmra og sannra frétta
af gangi mála.
EGYPTAR GAGNRYNA
VOPNASENDINGAR TIL
ÍSRAELA
Egypzka stjórnin hefur gagn-
rýnt mjög harðlega, að Bandarík-
in senda vopn til israela og segir,
að það sé dæmigert, að Bandarík-
in ætli af göflunum að ganga.
þegar hergögn komi til þeirra og
Sýrlendinga frá Sovétrikjunum,
en þyki sjálfum ekkert eðlilegra
en birgja Israela upp af vopnum.
Sé þetta fullkomin ögrun við
Arabarikin.
ÍSRAELAR TAKA LlKLEGA
EKKI DAMASKUS.
Talsmaður israelshers var að
því spurður í dag, hvort israelar
hefðu í hyggju að reyna að taka
Damaskus herskildi. Hann sagði,
að Israelar væru að verja hendur
sínar og fyrir þeim vekti það eitt
að reka árásarmennina af hönd-
um sér. Hann gaf í skyn, að ekki
vekti fyrir israélum að gera
áhlaup á Damaskus. Samkvæmt
AP — fréttum í kvöld voru
ísraelskir herflokkarkomnir milli
12 og 16 mflur inn fyrir gömlu
vopnahléslínyna við sýrlenzku
landamærin. Blaðið Ma-ariv i Tel
Aviv sagði í morgun, að þegar
Sýrlendingar hefðu verið gjör-
sigraðir, myndu Israelar snúa sér
að því af fullum krafti að yfir-
buga hersveitir Egypta á Sinai-
skaga.
KISSINGER GAGNRÝNDI
RÚSSA
HENRY Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í dag,
að Sovétríkin hefðu ekki verið
beinlínis hjálpfús í Miðaustur
landastyrjöldinni og hefðu ekki
sýnt þá ábyrgðartilfinningu, sem
af þeim hefði mátt vænta, vegna
ástandsins f flestum öðrum
heimshlutum. Kissinger vék að
vopnasendingum Sovétríkjanna
til Araba og sagði, að héldu þær
áfram, yrði stjórn Nixons að
gripa til mótleiks. En hann lét
ekki uppi, hver sá leikur gæti
orðið.
Varað við flutningum sjálf-
boðaliða. Samband arabfskra
flutningáverkamanna varaði 1
dag erlend flugfélög við þvf að
flytja sjálfboðaliða til tsraels 1
stórum stíl og hótaði kröftugum
hefndaraðgerðum, ef slfkt héldi
áfram. Væri ekki unnt að túlka
slika flutninga öðruvfsi en sem
beina ögrun við Arabarfkin.
ORÐSENDINGAR GANGA A
VtXL
I AP-fréttum er skýrt frá því,
að Nixon Bandarfkjaforseti hafi
sent orðsendingu til Houari Bou-
mediene, forseta Alsír, þar sem
hann lætur í ljós vonir um, að
bar.daríska stjórnin geti treyst
þvi, að Alsírstjórn reyni af
fremsta megni að finna leiðir til
að binda enda á styrjöldina.
Nixon segir Bandaríkjstjórn
vinna ötullega að því marki.
Þá bárust um það fréttir i dag,
að Feisal konungur Saudi Arabiu
hefði sent „mikilvæg einkaskila-
boð“ til Nixons, og fór utanríkis-
ráðherra landsins í skyndi til
Washington, en hann hefur verið
á þingi S.Þ. i Hvíta húsinu hefur
ekki verið staðfest, að þangað hafi
komið orðsending frá konungi.
Nokkur ríki f Asíu hafa lýst yfir
stuðningi við Araba í striðinu,
meðal annars var sagt frá því í
Kuala Lumpur í Malaysiu, að sent
hefði verið skeyti til Kairó, þar
sem látinn var I ljós stuðningur
við málstað Araba. Þá hafa sam-
tök „Frjálsra bardagamanna",
sem telja um 5 þúsund sjálfboða-
liða, lýst yfir því, að þeir séu
reiðubúnir að fara til Miðaustur-
landa til að berjast gegn ísrael-
um. Svo virðist sem stjórn Bangla
Desh sé á þessari sömu línu, og
hefur hún heitið Arabaríkjunum
öllum þeim stuðningi, sem landið
geti látið þeim í té.
GRÍSKU SKIPI SÖKKT OG
SOVÉZKT LASKAÐ
Gríska utanrfkisráðuneytið
mótmælti í dag harðlega í Aþenu,
að ísraelar hefðu sökkt grísku
skipi í höfninni í Latakia í Sýr-
landi á miðvikudag. Létust þá
tveir skipverjar og sjö slösuð-
ust. Þá segir í fréttum frá Beirut,
að sovézkt flutningaskip hafi orð-
ið fyrir árás ísraelskra eldflauga í
sýrlenzku hafnarborginni Tartus.
Að sögn var verið að skipa upp
sovézkum tækjum. Engar fréttir
voru um manntjón.
ÍSRAELAR GETA BÚIÐ TIL
5—10 KJARNORKUSPRENGJ-
UR
Samkvæmt fréttum frá Alþjóð-
legu friðarransóknastofnun-
inni í Stokkhólmi eiga israelar í
fórum sínum 75 pund af puntoni-
um, og dugar það til að framleiða
5—10 kjarnorkusprengjur. Vitað
er, að israelar hafa kunnað að
framleiða kjarnorkusprengjur
síðan 1968, en ekki vitað, hvort
þeir hafa gert það. Ekki hefur
heldur verið gefið í skyn, að þeir
kunni að beita slíkum vopnum
nú.
— Vonbrigði í Japan
Framhald af bls. 15
fuglategundar, sem er að verða
útdauð á eyjaklösunum.
Helzti árangur ferðarinnar var
annars sá að sovézku leiðtogarnir
sögðu Tanaka, að Japanir myndu,
í samvinnu við evrópsk og banda-
rísk fyrirtæki, fá forgang við
vinnslu gas-, olíu- og timburnáma
í Sovétrikjunum. Þó er ekki ljóst,
hvort leysa þarf deilurnar um
Kúrileyjarnar, áður en þeir geta
gengið inn í námuvinnsluna.
Kínverjar eru sagðir einkar
ánægðir með þetta ástand mála
milli Rússa og Japana. Þeir hafa í
sjálfu sér ekkert á móti því, að
japönsk fyrirtæki vinni sovézkar
námur f samráði við Evrópumenn
eða Bandarfkjamenn, — en þeir
hafa af því áhyggjur, að fram-
kvæmdir þeirra eigi eftir að
styrkja mjög hernaðaraðstöðu
Sovétríkjanna f Síberíu.
Sjálfboða-
liðar
Sjálfboðaliða vantar f dag f bygg-
ingarvinnu við nýja Sjálfstæðis-
húsið kl. 13—19. Sjálfstæðis-
menn. Leggið ykkar af mörkum.
Mætið á morgun.
— Agnew-málið
Framhald af bls. 3
mikið um mál hans f fjölmiðlum,
og kannski eru ekki öll kurl
komin til grafar. Það, sem nú
liggur fyrir, er að velja nýjan
varaforseta, og Nixon hefur lýst
því yfir, að hann muni leggja
áherzlu á að leggja sem allra fyrst
fyrir þingið útnefningu á nýjum
varaforseta. Þrjú nöfn ber hæst:
Nelson Rockefeller, fylkisstjóri f
New York, John Connally, fyrrum
fylkisstjóri í Texas og f yrrverandi
fjármálaráðherra, og Ronald
Reagan, fylkisstjóri í Kaliforniu.
Nixon vill fá mann, sem ekki
kemur á stað deilum við þingið,
og demókratar reyna áreiðanlega
að koma í veg fyrir, að maður,
sem gæti farið sterkur í framboð
1976, verði fyrir valinu. Er ekki
ólíklegt, að John Conally, sem
áður var demókrati, sé sá
maður, sem þingið helzt gæti sætt
sig við.
Enginn veit, hvað við tekur hjá
Agnew. Hann er ekki efnaður
maður og er nýbúinn að kaupa sér
hús, sem hann skuldar mikið f.
Hann verður því að fá sér ein-
hverja vinnu, og það kann að
verða erfitt fyrir hann að fá vel-
launað starf, sem hann getur sætt
sig við eftir að hafa gegnt í 5 ár
embætti næstæðsta manns Banda-
ríkjanna.
Þessi málalok eru mikið áfall
fyrir bandarísku þjóðina í heild,
og þau hljóta að vera það fyrir
Nixon. I bréfinu, sem hann
skrifaði Agnew f gær og hann
byrjaði „Kæri Ted“, segir Nixon,
að afsögn hans sé sér mikill „per-
sónulegur" missir. Líklegast er
þó, að f dag sé enginn maður
fegnari en Nixon. Komist hann
sæmilega klakklaust gegnum
Watergatemálið hefur hann 3 ár
til að reyna að snúa mótvindi í
meðbyr, en hann er ekki öfunds-
verður af þvf hlutskipti.
— Þingvikan
Framhald af bls. 14
sem allir flokksbræður hans geta
sætt sig við, og á hann þar áreið-
anlega erfitt verkefni fyrir hönd-
tim. Er sennilega bezt að spá sem
minnst um, hver framvinda þess
máls verður.
Efnahagsmálin munu að venju
verða meðal aðalverkefna Al-
þingis. Þegar hefur fjárlagafrum-
varpið verið lagt fram, eru niður-
stöðutölur þess nú í upphafi 27Vé
miiljarður króna. Að venju mun
frumvarpið hækka verulega í
meðförum þingsins, og er ekki
óeðlilegt að álykta sem svo, að
niðurstöðutölurnar verði farnar
að nálgast 30 milljarða, áður en
yfir lýkur. Sennilega hefur þvf
Halldór E. Sigurðsson verið að
ásaka Magnús Jónsson fyrrver-
andi fjármálaráðh. fyrir of mikla
aðhaldssemi í fjármálum
ríkisins, þegar hann spáði þvf á
þingi 1969, að með sama áfram-
haldi yrðu fjárlög Magnúsar kom-
in í 19,5 milljarða árið 1975.
Þessa fyrstu daga þingsins
hefur fátt markvert gerst, sem
ástæða er til að f jalla um. Þó vakti
það athygli við kosningu forseta
efri deildar þingsins, að Alþýðu-
flokkurinn hafnaði boði Samtaka
frjálslyndra um forsetasætið.
Gylfi Þ. Gíslas. gaf þá skýingu í
viðtali við Morgunblaðið í gær, að
ekki bæri að brjóta þá gömlu
hefð, að forsetar þingsins
væru stjórnarþingm. Þetta eru nú
varla sannfærandi rök. Einhver
hefði nú haldið, að Alþýðuflokk-
urinn sæi stefnumálum sínum
best borgið með því að koma liðs-
mönnum sínum til áhrifa á sem
flestum stöðum. Trúlegra er, að
hér sé um að ræða einhverja
hernaðartækni i sameiningarmál-
inu, en samningamakkið í því
máli er svo flókið, að venjulegum
mönnum er varla ætlandi að spá
þar í.
Jón Steinar Gunnlaugsson.