Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1989, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1989, Blaðsíða 44
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 1989. " 44 Andlát Sigríður Kjartansdóttir frá Völlum lést í Landakotsspítala 2. júní. Helga Jónasdóttir, Kirkjuvegi 5, Hafnarfirði, lést fóstudaginn 2. júní sl. Jarðarfarir Ingibjörg Jónsdóttir, Samtúni 32, lést í öldrunardeild Landspítalans, Há- túni lOb, 24. maí. Jarðarfórin hefur farið fram í kyrrþey. Ingibjörg Guðmundsdóttir bókari, Bjarnarstíg 6, Reykjavík, andaðist þann 22. maí síöastliðinn. Jarðarfór- in hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hermann Jóhannesson frá Saurum, Eyjabakka 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 6. júní kl. 13.30. Útfór Sverris Magnússonar renni- smiðs, Hlíðargerði 24, verður gerð frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 7. júní kl. 13.30. Carlo Jensen tannlæknir, Raadhus- gade 8, Brönderslev, lést 20. maí sl. Jarðarförin hefur farið fram. Finnbogi Guðlaugsson, Bröttugötu 4, Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju miðvikudaginn 7. júní kl. 14. Ármann Jóhannsson, Frakkastíg 26b, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju mánudaginn 5. júní kl. 15. Pétur Pálsson, Hraunbraut 1, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu í dag, 5. júní, kl. 13.30. Þorsteinn Gunnarsson kennari verð- ur jarðsunginn frá Kópavogskirkju 7. júní kl. 13.30. Tónleikar ------------------------- Einsöngstónleikar Esther Helga Guðmundsdóttir sópran- söngkona og David Knowles píanóleikari halda tónleika að Laugalandi þann 6. júní nk., á Hvolsvelli þann 8. júní og Vík í Mýrdal 13. júní. Allir tónleikarnir munu hefjast kl. 21. Meðal höfunda að efnis- skránni eru Kaldalóns, Grieg, Sibelius, Bernstein, Puccini og Verdi. HEFURÐU PANTAÐ SKÍÐANÁMSKEIÐ SUMARSINS? Nm ferallt að fylíast B rottfcir Tí’gund námskeids Daga- fjöldi Grunngjald. brcytilegt eftiraldri þátttakenda 1 únt 21 UNCLINCAR 5 13.150 UPPSELT 25 UNCLINGAR 6 17.150 UPPSELT 1 úlí 2. FIÖLSKYLDUR 6 I 1 100 til 19.400 BIÐLISTI 9 FIÖLSKYLDUR 6 1 1 100 fí/ 19.400 BIÐLISTI 16 FIÖLSKYLDUR 6 1 I 100 til 19.400 BIÐLISTI 23 ' FIÖLSKYLDUR 6 1 1 100 til 19 400 30 I8ÁRAOC ELDRI 6 19 400 Ágúst 4. ALMENNT tverstunarmannahelgi1 4 6 400 til I I 600 FÁEIN SÆTI LAUS 7. FIÖLSKYLDUR 5 7.900 til 14.900 BIÐLISTI 13 UNCLINCAR 6 17.150 FÁEIN SÆTI LAUS 20 UNCLINCAR 6 17.150 25. ALMENNT 5 7.100 til 13.400 GRUNNGJALD felur í sér fceði og fiúsrtceði í Skíðaskólanum, ferðir milli skála og skíðalands, afnot af skíðalyftum og aðgang að kvöldvökum, svo og skíðakennslu fyrir 15 ára og yngri. KENNSLUGJALD FYRIR FULLORÐNA (16 ára og eldri) er kr. 1.700 á 4 daga námskeiði, kr. 1.200-2.200 á 5 daga námskeiði og kr. 2.900 á 6 daga námskeiði. FARGJALD REYKJAVÍK - KERLJNGARFJÖLL - REYKJA- VÍK er kr. 2.800. Afsláttur fyrir bórn yngri en 12 ára á fjöl- skyldunámskeiðum og almennum námskeiðum. HELGARNÁMSKEJÐ (föstud. - sunnud.) allar fielgar á tímabilinu 30. júní til 27. ágúst. Grunngjald kr. 4.250 til 7.400. Kennslugjald fyrir fullorðna kr. 1.200. Fáein sæti laus í iúní oa iúlí. Laus sceti í áaúst. UPPLÝSJNGAR OG BÓKANIR: FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI 26900 OG ,UMBOÐSMENN ÚRVALS UM LAND ALLT Merming Barokk & ról Langt er síðan íslenskur listamað- ur hefur slegiö um sig með eins skrautlegum tilburðum og yfirlýs- ingum og Kristinn Nicolai sem hingað er kominn eftir langa París- ardvöl til að sýna olíumálverk í Gallerí Borg. Slíkt og þvílíkt er auðvitað krydd í tilveru listamannsins og okkar hinna og hefur þar að auki talsvert auglýsingagildi eins og Alfreð heit- inn Flóki vissi mætavel. Margt fólk vill enn hafa sína lista- menn í meira lagi sérvitra og út- sláttarsama. En til lengdar breiðir enginn listamaður yfir getuleysi eða and- legan sljóleika með gegndarlausri auglýsingastarfsemi, þó svo Dali kallinn hafi komist nokkuð áleiðis í því. Um Kristin Nicolai er það að segja að hann hefur tileinkað sér tækni gömlu meistaranna og náð á henni býsna góðu valdi, nógu góðu til þess aö skapa sér sérkennilegan myndheim í stíl sem kannski mætti kalla barokk & ról, gæti raunar verið sambland af Dali á yngri árum, de Chirico á efri árum og Rúbens-fabrikkunni. Þungamiðja hinnar nicolaísku myndsýnar er listamaðurinn sjálf- ur, í fullum leðurskrúða og með flaksandi hár, oftar en ekki í mjög svo dramatískum stellingum, kannski með svínshöfuð til hálfs eða dálk gegnum leyndarliminn. Strákapör á striga Eins og stendur eru galleríhöldar úti í heimi einmitt ginnkeyptir fyr- ir nákvæmri útlistun á ólíkindalát- um af þessu tagi. Ennfremur fmnur listamaðurinn sig knúinn til að mála óskyld fyrir- bæri eins og „Fallandi hest með stór eistu“ (nr. 18), hermenn með yfirskegg (nr. 20-24), hægindastól með áfóstum höndum (nr. 26) og eigin málningatúpur sem í með- forum Nicolais verða auðvitað „galdratúpur" (nr. 11-17). Kristinn Nicolai - Ihugun um mína næstu sköpun, olía á striga, 1987 DV-mynd Brynjar Gauti Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson Þrátt fyrir tilraunir listamanns- ins til að magna upp dulúð, jafnvel óhugnað, í þessum myndum sínum með hjálp dumbrauðra lita og ískyggilegra má eiginlega flokka flestar þeirra undir ósköp meinlaus strákapör á striga. Enda er ekki laust við að bregöi fyrir glotti á sumum sjálfsmyndum listamannsins. Sýningu hans í Gallerí Borg lýk- ur þann 6. júní. -ai. Fréttir Tölvuklúður í viðtali við DV hinn 29. maí full- yrti undirritaður aö veruleg mistök hefðu átt sér stað í tölvumálum ýmissa ríkisstofnana. Sem dæmi tók undirritaður tölvumál Húsnæöis- stofnunar. Skúli Jóhannsson verkfræðingur kýs að svara gagnrýni undirritaðs með bréfi í DV hinn 1. júní síðastliö- inn. Skúli telur mig gagnrýna hvernig staðið var að kaupum á Wang-tölvu stofnunarinnar 1981 og segir „Menn eins og Bjarni spyrja nú hvers vegna IBM var ekki valið þegar Húsnæðis- stofnun hóf tölvuvæðingu 1981.“ Það er ekki rétt. Ég gagnrýni hins vegar harölega þau vinnubrögð sem voru viöhöfð á síðari stigum málsins. Fram kemur í bréfi Skúla að keypt var önnur Wang-tölva til stofnunar- innar í desember 1985, einungis 8 mánuðum eftir síðustu stækkun! Rúmu ári síðar, í upphafi árs 1987, var ljóst að nýja tölvan annaði engan veginn því álagi sem var innan stofn- unarinnar. Var þá búnaðurinn end- urnýjaður með ærnum tilkosnaði. Tölva sem þessi ætti ekki að endast skemur en í 3 ár. Þaö er þetta sem er ámælisvert og ber vitni um alvar- leg mistök, að tvær meiri háttar stækkanir og breytingar á tölvubún- aði stofnunarínnar þurftu aö eiga sér stað á jafnskömmum tíma og raun ber vitni. Þó er þetta ekki þaö alvarlegasta í málinu. Skúli Jóhannsson hefur sem ráðgjafi Húsnæðisstofnunar ráðlagt þeim að skipta um tölvugerð. Sem verktaki fær hann síöan sjálfur það verk að endurskrifa allan hugbúnað. Aö lokum kemur hann fram í hlut- verki endurskoðandans og endur- skoðar eigin verk. Þetta eru vinnu- brögð sem RUT-nefndin hefur gagn- rýnt og telur sérlega slæmt, að sami aðili skuli koma fram sem ráðgjafi og verktaki í sama máli. Ég tel óheppilegt að elta ólar frekar við Skúla Jóhannsson á þessum vett- vangi. Mál sem þetta verða ekki leyst með langlokum þar sem innri mál stofnana eru tíunduð í smáatriðum á síðum dagblaða. En eitt hljótum við Skúli Jóhannsson þó að vera sammála um. Málið í heild sinni er mjög alvarlegt og verður best leyst með sérstakri formlegri úttekt. Út- tekt sem þessi, unnin af hlutlausum aðilum, ætti aö ná yfir alla þætti málsins, bæði kaup á vélbúnaði, gerð hugbúnaöar, samanburð kostnað- aráætlana við raunverulegan kostn- að o.fl. Skúli Jóhannsson hlýtur að fagna slíkri úttekt. Bjarni Júliusson tölvufræðingur 15 landsþing LHS Á 15 landsþingi Landssambands hjálpar- sveita skáta voru samþykktar tillögur að skipun hjálparsveitanna í flokka eftir aldri þeirra, búnaöi, þjálfun og getu. Flokkunin er miðuð við að hún virki hvetjandi og einnig eiga stjórnendur björgunaraðgerða að sjá með skjótum hætti styrk viðkomandi hjálparsveitar. Hingað til hefur ekki verið til i landinu ákveðin skilgreining yfir björgunarsveit- ir önnur en sú að það sé hópur manna sem ákveður að kalla sig björgunarsveit. Með samþykkt landsþings hjálparsveit- anna, 19.-20. maí 1989, hefur þessu verið breytt. Á þinginu var Ólafur Proppé kjör- inn nýr formaður LHS og tók hann við af Tryggva Páli Friðrikssyni, sem nú gegnir starfi félagsmálastjóra LHS. Auk Olafs eru í stjóm LHS þeir Arnfinnur Jónsson, Páll Árnason, Ögmundur Knútsson og Bjami Axelsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.