Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.1984, Blaðsíða 6
Marion Jóhannsson Lesbók/KÖE
Broddurinn
er skafinn af öllum
tilfinningum
Islendingar virðast finna til sektarkenndar og skammast sín fyrir að vera
mannlegir. Þeir eiga yfir höfuð afar erfitt með að tjá tilfinningar sínar,
ótta, reiði, angist, ást eða samúð, viðast telja það veikleikamerki að hafa
slíkar tilfinningar, og þeir eru hræddir við að sýna þennan veikleika.
Lífsviðhorf þeirra virðist mótast af stóískri ró, sem getur verið aðdáunar-
verð undir vissum kringumstæðum, en
hún reynist mörgum dýru verði keypt.
Það er svo, að allir menn þurfa að tjá
tilfinningar sínar, og hafi fólk ekki lært
það, flýr það oft raunveruleikann með
því að neyta lyfja, drekka áfengi í óhófi
eða með annarri afbrigðilegri hegðun.
Þetta eru stór orð, en Marion Jó-
hannsson veit hvað hún er að segja.
Glöggt er gestsaugað, og meira en það.
Marion hefur undanfarið hálft þriðja ár
stundað einkaráðgjöf hér á landi, og hafa
leitað til hennar hartnær fjögur hundruð
einstaklingar, ekki svo lítið úrtak úr
Reykjavík og nágrenni. Marion hefur nú
sest að í föðurlandi sínu, Bandaríkjun-
um, ásamt manni sínum, Stefáni Jó-
hannssyni, og munu þau stunda þar ráð-
gjöf í skólum og fyrirtækjum auk einka-
ráðgjafar. Ráðgjöf af því tagi sem hér
um ræðir (councelling service) er hart-
nær óþekkt fyrirbrigði á fslandi, en er
mikið stunduð í Bandaríkjunum til að
liðsinna þeim, sem eru komnir í tilfinn-
ingalegar ógöngur en þurfa þó vart á
hjálp sálfræðinga eða geðlækna að
halda. Prestar, sálfræðingar og
félagsráðgjafar sinna þessu hlutverki
einkum hér á landi, en eigi að síður fann
Marion frjóan starfsakur hérlendis þeg-
ar hún fluttist hingað ásamt manni sín-
um Stefáni, sem hún kynntist þegar
hann var við nám við Hazelden-stofnun-
ina í Minnesota.
— Þegar einstaklingurinn er svona
tilfinningalega bældur, heldur Marion
áfram, fer fyrir honum eins og hraðsuðu-
katli með stíflaðan ventil: fyrr eða síðar
springur hann. Ég kynntist einu sinni
manni, sem hafði verið kvæntur í fimm-
tán ár, og hann sagði mér að á þessu
tímabili hefði hann þrisvar sinnum sagt
konunni sinni að hann elskaði hana. Eg
sagði við hann að ég þakkaði Guði fyrir
að vera ekki hlaðin því oki að vera elskuð
af honum. Ég stundaði um skeið hjóna-
ráðgjöf í Bandaríkjunum og er vön að
segja að gott hjónaband skapist milli
tveggja einstaklinga, sem báðir eru jafn-
mannlegir, breyskir, og gera sér grein
fyrir því.
Ég vona að orð mín verði ekki túlkuð
sem neikvæð gagnrýni á íslendinga —
þvert á móti á hún að vera uppbyggileg,
jákvæð. Sjálf kem ég úr þjóðfélagi þar
sem fólk á auðveldara með að skiptast á
upplýsingum og brosa en gengur og ger-
ist meðal íslendinga, en það verður að
segjast eins og er með landa mína,
Bandaríkjamenn, að þeir virðast eiga í
eins miklum erfiðleikum með að tjá til-
finningar sínar og íslendingar.
Ég get ekki neitað því að ég varð fyrir
miklum menningarlegum áhrifum, kúlt-
úrsjokki, þegar ég kom fyrst til íslands.
Ég var óviðbúin afskiptaleysi íslendinga
og því sem mér virtist vera tómlæti í fasi
þeirra, og hélt í fyrstu að það stafaði af
andúð. Seinna, þegar ég kynntist leik-
reglum þjóðfélagsins, vissi ég betur, því
vinátta fslendinga, þegar maður hefur
unnið sér hana, er sönn og einlæg. Á
þeim stutta tíma sem ég hef dvalið hér
hefur mér auðnast að eignast jafnmarga
góða vini og ég hafði eignast á hálfri
mannsævi í heimalandi mínu.
Að vinna traust er galdur, sem ekki er
öllum gefinn. Marion Jóhannsson býður
af sér slíkan þokka einlægni og fölskva-
lausrar umhyggju að niann blátt áfram
langar til að opinbera tilfinningar sínar
fyrir henni strax við fyrstu kynni. Þegar
hún spurði hvernig mér liði — en sú
spurning skýtur afar sjaldan upp kollin-
um í blaðaviðtölum — gaf ég mig þeirri
freistingu á vald að tala um sjálfan mig
og tilfinningar mínar, og leið snöggtum
betur á eftir.
— íslendingar eru lítið fyrir að lúta
boðum og bönnum, segir Marion,
— iafnvel þótt í almenningsþágu sé.
Eg ætla að fara að andmæla þessu en
man þá að ég lagði bílnum mínum uppá
gangstétt rétt við gatnamót er ég kom til
fundar við hana ...
— Þetta kemur ekki aðeins fram í um-
ferðinni, heldur einnig í öðrum sviðum
mannlífsins. Foreldrar virðast t.d. vera
stoltir af þrákelkni og óþægð í börnum
sínum og telja það merki um sjálfstæði
þeirra.
Margir foreldrar virðast forðast þá
ábyrgð sem fylgir því að eiga börn, og
búa við rangt lífsgæðamat. Algengt er að
báðir foreldrar vinni úti og hafi ekki
tíma til að sinna börnum sínum, vinni úti
ekki til þess að hafa til nauðþurfta held-
ur til að eignast æ meira af veraldlegum
gæðum: vídeó, nýrri bíl, enn stærra hús-
næði. Þannig verður dansinn kringum
gullkálfinn til þess að börn og foreldrar
ná ekki saman; milli þeirra myndast gjá
tilfinningalegs afskiptaleysis sem leiðir
til tjáningarskorts og bælingar. Ég hef
stundum sagt foreldrum sem til mín
hafa leitað að fara niður á Hallærisplan-
ið og sjá hvernig börnin þeirra, tán-
ingarnir, hafa það, en fáir hafa viljað
taka þá áhættu.
Framfarir í læknavísindum og aukin
lífsþægindi hafa lengt mannsævina,
bæði hér og í Bandaríkjunum. En hvaða
tilgangi þjónar það að líkaminn lifi utan
um vanrækta sál? Hvaða gildi hefur það
líf, sem hlaðið er inn á stofnanir af því
fjölskyldan hefur hvorki tíma né vilja til
að sinna því? Þetta er vandamál, sem
taka þarf föstum tökum ef okkur á að
auðnast að auka gildi þess lífs sem við
lifum, því þegar öll kurl koma til grafar
skiptir það máli hvernig lífi við lifum en
ekki hve langi við tórum. Að vinna og
vinna mikið, er hverjum manni hollt, og
það má ekki ræna fólk á efri árum þeirri
lífsfyllingu sem er vinnunni samfara.
Hinsvegar þurfa allir að kunna að
slappa af, hvílast. í Bandaríkjunum kem-
ur það oft fyrir, að menn 1 störfum sem
fylgir mikið álag detta niður dauðir
skömmu eftir að þeir ætla að fara að
njóta áhyggjulausrar elli. Margir halda
sér þó gangandi með því að flytja spenn-
una sem hefur haldið þeim gangandi
gegnum æfina með sér út á golfvöllinn.
— En víkjum aftur að því hve lokaðir
íslendingar eru. Það hefur nú löngum
þótt ósiður hér að bera tilfinningar sínar
á torg.
— íslendingar hafa alltaf tamið sér
stóíska ró og talið hana kost á hverjum
manni. Það er eins og þeir hafi verið
herptir í ellefu hundruð ár. Stóísk hugs-
un og viðbrögð hafa gengið í arf mann
fram af manni. Eftirfarandi setningar
heyrði ég jafnt manna á meðal og á
skrifstofu minni: „Það er rangt að sýna
tilfinningar sínar eða deila þeim með
öðrum."
„Það er rangt að hlæja of mikið eða
gráta." „Maður á ekki að útjaska orðun-
um ást og fegurð með því að ofnota þau.
„Fjölskylduvandamál ber maður ekki á
torg og ræðir þau ekki sinu sinni heima
hjá sér.“ „Það er veikleikamerki að gef-
ast upp, gefa eftir eða leita málamiðlun-
ar.“ Ég get aldrei látið í veðri vaka að ég
sé þreyttur eða veikur." „Best er að trúa
á sjálfan sig og treysta engum." Þannig
gæti ég lengi talið. Ást, samhygð og
mannleg þörf fyrir samneyti eru bæld
niður ekki síður en hræðsla, reiði, blygð-
un og sársauki. Þannig er broddurinn
skafinn af öllum tilfinningum. Þær radd-
ir sem ég hef heyrt og þau andlit sem ég
hef séð hafa ekki í fyrstu endurspeglað
tilfinningar viðkomandi heldur bælingu
hans og seiglu. Stundum virðist fólk orð-
ið svo hlédrægt, að meira líkist uppgjöf
fyrir lífinu en sáttum við það.
í meira en þúsund ár hafa íslendingar
barist fyrir afkomu sinni með einföldum
meðulum. En nú er öldin önnur. Á síð-
ustu 45 árum hefur nútíminn haldið
hraða innreið í þjóðfélagið, með öllum
sínum kvillum. Færri gifta sig, hjóna-
skilnuðum fjölgar, táningar gerast upp-
reisnargjarnir, fleiri konur vinna utan
heimilis, umferð, skattar og verðbólga
magnast og aðrir streituvaldar færast í
aukana. Hefðbundin viðbrögð við áreiti
lífsins duga ekki lengur.
Flestir þeirra sem leitað hafa til mín
hafa brugðist við álagi með því að draga
sig inn i skelina, þræla sér út, veikjast, fá
taugaáfall, reyna sjálfsmorð eða finna
flótta í kynlífi, áfengi eða lyfjum. Flestir
hafa verið lamaðir af sektarkennd og
skömm yfir því að fá ekki afborið sárs-
auka á sama hátt og eldri kynslóðin ger-
ir.
En það má margt jákvætt tína til.
Hvergi eru tiltölulega fleiri sjúkrarúm
fyrir ofneytendur áfengis og fíkniefna en
á íslandi. Stjórn landsins, kirkja og þeir
sem með fræðslumál fara gera sér æ bet-
ur grein fyrir vandanum sem fylgir
neyslu vímuefna og leita leiða til að
greina vandann og vinna gegn honum.
Atvinnurekendur eru farnir að velta
fyrir sér gildi skipulagðrar aðstoðar við
starfsmenn sína, en læknastéttin virðist
hafa dregist aftur úr á þessu sviði.
Læknaþjónusta er til fyrirmyndar á
mörgum sviðum, t.d. í greiningu og með-
ferð á krabbameini, en margir læknar
virðast mjög fákunnandi um drykkju-
sýki. Til bóta væri ef læknanemar yrðu
fræddir meira á þessu sviði og læknar
skyldaðir til símenntunar.
Þrátt fyrir allt þetta óskar Marion
þess að njóta ellinnar hér á íslandi. Von-
andi bíða hennar færri verkefni þegar
hún kemur hingað næst. Ég tek undir
það sem hún sagði við mig þegar hún
þrýsti hönd mína í kveðjuskyni: Enginn
þarf að vera hræddur við að sýna ást
sína. Hún gengur aldrei til þurrðar, held-
ur vex hún því meira sem af henni er
tekið. Ef allir tileinkuðu sér þessi sann-
indi, myndi okkur öllum líða betur.
Marion Jóhannsson sem um árabil hefur stundað sálræna ráðgjöf í Bandaríkjunum og á íslandi, telur að
Islendingar séu tilfinningalega bældir og segir þeim opinskátt til syndanna í samtali við Guðbrand Gíslason