Þjóðviljinn - 13.11.1982, Qupperneq 31
Hclgin 13.-14. nóvember 1982
ÞJÓÐVILJINN — StÐA 31
Ráðstefnu um vinnuvernd lauk í gær:
Yiír 20 erindi ilutt
Ráðstefnu Vinnueftirlitsins um
vinnuverndarmál var fram haldið i
gærmorgun og lauk síðdegis í gær.
Var m.a. rætt um gildi fræðslu- og
upplýsingastarfs á sviði vinnu-
verndar og um þjóðfélagslegt gildi
hennar. Þá fluttu gestir frá sam-
tökum launafólks og atvinnurek-
enda í Danmörku ávörp og einnig
komu fram sjónarmið aðila vinnu-
markaðarins hér á landi svo og full-
trúa þingflokkanna.
Vigfús Geirdal ræddi í sínu er-
indi um gildi fræðslustarfs á sviði
vinnuverndar. Hann minnti á að
fræðslu- og upplýsingastarf væri
gífurlega viðamikið verkefni serri
næði til þjóðarinnar allrar. Hann
sagði að Vinnueftirlit ríkisins ætti
ekki og gæti ekki sinnt þessu verk-
efni eitt og sér, samtök aðila vinnu-
markaðarins þyrftu að leggja sitt af
ntörkum og að það þyrfti að virkja
hið almenna skólakerfi í þessu
skyni. Vigfús kvað stárfsmenn
Vinnueftirlitsins hafa flutt hundr-
uð erinda um vinnuvernd á þeim
tveimur árum sem Vinnueftirlitið
hefur starfað. Þá minntist Vigfús á
námskeið fyrir öryggistrúnaðar-
menn sem er einn mikilvægasti
hlekkurinn í fræðslustarfsemi
Vinnueftirlitsins.
Jörgen Elikofer fulltrúi danska
Alþýðusambandsins flutti erindi á
ráðstefnunni í gær. Hann kvað gott
og heilbrigt vinnuumhverfi hafa
verið eitt af helstu baráttumálum
danskrar verkalýðshreyfingar frá
Frá ráðstefnu um vinnuvernd. Guðjón Jónsson stjórnarmaður í Vinnueft-
irlitinu og fundarstjóri, Eyjólfur Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlitsins
og í ræðustól er Þorvarður Brynjólfsson stjórnarformaður Vinnueftirlits
ríkisins. Ljósm. eik.
upphafi. Fyrir rúmum áratug síðan
hafði verkalýðshreyfingin gert sér-
stakt átak í vinnuverndarmálunum
og í dag byggju Islánd og Danmörk
við fullkomnustu vinnuverndarlög-
gjöf í heimi. En það væri svo að
lög, þó góð væru, dygðu skammt ef
verkalýðshreyfingin sjálf væri ekki
sífellt á verði og sæi um að tryggja
verkafólki mannsæmandi vinnu-
aðstöðu.
Baráttan gegn
vinnuslysum
í Svíþjóð 1955-1980:
Dauðaslysum
á vinnustað
fækkaði um
70%
Mikill árangur hefur náðst í Sví-
þjóð í baráttunni gegn vinnuslysum
á síðustu áratugum. Árið 1955 lét-
ust 425 starfsmenn af afleiðingum
vinnuslysa en árið 1980 létust hins
vegar aðeins 124 starfsmenn af
völdum slysa á vinnustað. Þeim
hafði því fækkað um 70%. Þetta
kom fram í erindi sem Eyjólfur
Sæmundsson forstjóri Vinnueftir-
lits ríkisins hélt á ráðstefnunni um
Fjöldi iátinna af völdum vinnuslysa í Svíþjóð 1955-1980.
urinn málsins mætti ekki gleymast sem baráttan fyrir aukinni vinnu
þegarfjallaðværiumþann kostnað vernd leiddi af sér. -v.
SOVÉSKIR DAGAR 1982:
Tónleikar og
danssýning
Lokatónleikar listafólksins frá Miö-Asíu, óperusöng-
konunnar Ojat Sabzalíevu, píanóleikarans Valamat-
Zade og Söng- og dansflokks rúbobleikara Ríkisfíl-
harmóníunnar í Tadsjikistan, veröa í Gamla bíói sunn-
udaginn 14. nóv. kl. 20.30.
Aðgöngumiðar á kr. 100.- seldir á listiönaðarsýning-
unni í Asmundarsal viö Freyjugötu föstudag kl. 16-19
og laugardag og sunnudag kl. 14-19, og við inn-
ganginn ef eitthvað verður þá óselt.
Missið ekki af einstæðum tónleikum og litríkri
danssyningu.
MÍR.
Akraneskaupstaður
Aðalbókari
Laust er til umsóknar starf aðalbókara á bæj-
arskrifstofu Akraneskaupstaðar.
Um er að ræða mjög umfangsmikið og fjöl-
breytt bókhald. Auk venjubundinna bók-
haldsstarfa er aðalbókara m.a. ætlað að
sinna upplýsingagjöf, innra kostnaðareftirliti
og stefnumótun á sviði bókhalds.
Við leitum að manni með mikla starfsreynslu
og góða menntun á sviði reikningshalds.
Upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri og
bæjarritari.
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofu Akra-
neskaupstaðar fyrir 25. nóvember 1982.
Bæjarstjóri
vinnuvernd í gær.
Eyjólfur fjallaði um þjóðhags-
legt gildi vinnuverndar og benti á
að ráðstafanir sem gætu komið í
veg fyrir vinnuslys og atvinnusjúk-
dóma ýmiss konar væru alltaf góð
fjárfesting, bæði fyrir viðkomandi
fyrirtæki og þjóðfélagið í heild.
Auk þess sem slíkt yki oft fram-
leiðni og þar með beinar tekjur
væri árangurinn færri vinnuslys, en
þau væru þjóðfélaginu dýr, færri
sjúkdómar og líkamsslit, minna
eignatjón í fyrirtækjum og betra
samband launafólks og atvinnu-
rekandans.
Fram kom í erindi Eyjólfs Sæm-
undssonar að truflanir á rekstri
fyrirtækja og eignatjónið yllu mun
meira tjóni en næmi öllum rekst-
urskostnaði Vinnueftirlits ríkisins.
Eyjólfur minnti á það í lokin að hin
háleitu markmið vinnuverndar
væru auðvitað að vernda líf og
heilsu starfsmanna og að sá merg-
Leiðrétting
í Þjóðviljanum í gær var rang-
lega sagt að erfingjar Einars Birnis
hefðu selt borginni land við sunn-
anverðan Grafarvog. Hér er um að
ræða erfingja Björns Birnis í Graf-
arholti, þau Einar Birnir, Björn
Birnir og Guðrúnu Birnir. Er
beðist afsökunar á þessu mishermi.
^ :oio:o: -s
Mjólkuxdagar’82
í husi Osta og smjörsölunnar, Bitruhálsi 2
Ifynning verður á nýjustu framleiðsluvörum mjólkursamlaganna og boðnar bragðprufur.
Einnig verða neytendakönnun og atkvæðagreiðsla.
Markaóur
Fjölbreytt úrval af ís- og ostanýjungum á kynningarverði.
Hátíðaboió Kynnt verða þrjú hátíðaborð auk partíborðs. Bæklingar með
munu liggja frammi.
Hlutavelta verður í gangi allan tímann og verða vinningar
m.a. ýmsar mjólkurafurðir.
r
Okeypis aðgangur Opið laugardag og sunnudag frá
kl. 13 - 20.
Mjólkurdagsnefnd