Þjóðviljinn - 13.11.1982, Side 19
Helgin 13.-14. nóvember 1982 t>JóÐVILJINN — SÍÐA 19
erlendar bæhur
Werner Miiller
Gúnther Vogel:
dtv-Atlas zur Baukunst
Tafeln und Texte. Band I - Allgemeine
Teil - Baugeschichte von Mesopotamicn
bis Byzanz. Band 2 - Baugeschichte von
der Romantik bis zur Gegenwart. De-
utscher Taschenbuch Verlag 1974-81.
Þetta er stíl og listasaga bygginga
frá upphagi og fram á okkar daga,
einnig tæknileg útlistun aðgerða
við byggingar. Uppdrættir og skýr-
ingarmyndir í litum fylgja í texta.
Uppdrættir og myndir eru alls 264
og lesmál alls 600 blaðsíður, Um-
fjöllunin er eftir tímaröð og í
greinagóðu efnisyfirliti má strax
finna þá þætti sem menn vilja
kynna sér sérstaklega einnig fylgir
ágætt registur.
Þetta rit einkennist af knöppu og
skýru formi, ítarlegum upplýsing-
um og ágætum uppdráttum og
myndefni, en þetta eru einkenni
dtv-Atlasanna um aðrar greinar.
Nigel Fisher:
Harold Macmillan
A Biography. Weidenfeld and Nicoison
1982.
Macmillan skráði minningar sín-
ar, sem komu út í sex bindum á
árunum 1966-73. Þær þykja nokk-
uð svo þurrar á köflum, enda er
maðurinn ekki af þeirri tegund
manna, sem blaðrar um einkamál
og innstu hugrenningar sínar og ef
hann ætti perlur myndi hann aldrei
kasta þeim fyrir svínin. Macmillan
var einn af þessum gömlu íhalds-
mönnum, sem fátt er orðið um nú á
dögum. Ævisöguritarinn er einnig
íhaldsmaður og hann segir að Mac-
millan hafi gert sig að íhaldsmanni.
Bók Fishers er sett saman með
fullu samþykki Macmillans, en þeir
hafa þekkst síðustu 35 árin. Höf-
undurinn rekur ættir Macmillans,
lýsir barnæsku hans og námi í Eton
og Oxford, herþjónustu hans í
Fyrri-heimsstyrjöldinni og síðan
ferli hans sem þingmanns frá 1924.
Hann starfaði við útgáfufyrirtæki
ættar sinnar, sem er nú meðal
þeirra viðameiri á Englandi og með
útibú og dótturfyrirtæki víða um
heim, sem ber sama nafn. Hann
varð ráðherra í ýmsum ráðuneyt-
um og loks forsætisráðherrá Breta
á árunum 1957-63. Bók þessi er lið-
lega skrifuð skýrsla um ævi þessa
stjórnmálamanns.
Marguerite Yourcenar:
Memoirs of Hadrian.
Translated from the French by Grace
Frick in colloboration with the author.
Penguin Books 1982.
Höfundurinn er fyrsta konan
sem valin var í frönsku akademí-
una, og var þarmeð rofin margra
alda hefð. Hún varð heimsfræg
eftir að Hadrian kom út 1951.
Marguerite de Crayencour, eins og
hún heitir réttu nafni var mög
bráðgjör, las Racine og grísku
leikritaskáldin átta ára gömul og
tók að læra latínu 10 ára og grísku
12 ára. Hadrian ber þekkingu
hennar á sögu og máli Rómverja
glöggt vitni og er listilega skrifuð
bók og ofar tímunum.
Hjólbarðasólun — Kaldsólun — Heitsólun
Úrvals dekk — Einstakt verð
Hjólbarðasala
r
a
sóluðum
og
nýjum
hjólbörðum
Sendum gegn póstkröfu um land allt
Öll hjólbarðaþjónusta - Opið alla daga
GÚMMtVINNUSTOFAN
Skipholti 35 — Reykiavik — Sími 31055.
Innlwlhmpeningaseðla og
myntar í gömhim krónum
Athygli fólks er vakin á því að nú er hver síðastur að fá gömlum krónum
skipt fyrir nýjar, en lokafrestur til að innleysa seðla og mynt í gömlum krónum
rennur út um nœslu áramót.
I Slegnirpeningar(mynt)
1 KRÓNA Þvermál: 22,5 mm Þyngd: 4,75 g 1 KRÓNA Þvermál: 17 mm Þyngd:0,61 g
Málmur: Nikkel/látún Útgefnir: 1925-1975 Málmur: Á1 Útgefnir: 1976-1980
5 KRÓNUR Þvermál: 20,75 mm Þyngd: 4,00 g 10 KRÓNUR Þvermál: 25 mm Þyngd: 6,50 g
Málmur: Kopar/nikkel Útgefnir: 1969-1980 Málmur: Kopar/nikkel Útgefnir: 1967-1980
ÍOO
100 KRÓNUR
Stærð og myndefni sbr. A 100 krónur. Aðallitir: Blágrænn og
fjöllitaívaf (framhUð), blágrænn (bakhlið).
Peningaseðlar, útgefnir af SEÐLABANKA ÍSLANDS skv. lögum nr. 10
frá 29. mars 1961:
500 KRÓNUR
Stærð: 150 x 70 mm. Myndefni: Á framhlið er mynd af
Hannesi Hafstein, en á bakhlið er mynd af fiskibát og áhöfn hans á veiðum.
AðaUitir: Grænn (framhlið og bakhlið).
oo
1000 KRÓNUR
Stærð: 160 x 70 mm. Myndefni: Á framhlið er mynd af
Jóni Sigurðssyni óg Alþingishúsinu, en á bakhlið cr mynd af Þingvöllum.
AðalUtir: Blár og fjöUitaxvaf (framhlið), blár (bakhUð).
5000 KRÓNUR s
Stærð: 160 x 70 mm. Myndefni: Á framhlið er mynd af
Einari Benediktssyni og rafstöðinni við Irafoss, en á bakhlið er mynd af
Dettifossi. Aðallitir: Ljósbrúnn og fjöllitaívaf (framhlið og bakhlið). |
Œ
í öllum framangreindum peningaseðlum (A og B) er lóðréttur i
öryggisþráður og vamsmerki, sem ber mynd af Sveini Björnssyni,
fyrsta forseta lýðveldisins. g
Bankar og sparisjóðir eru ekki lengur skuldbundnir til að innleysa gamlar krónur,
en munu taka að sér milligöngu fyrir viðskiptavini að fá þær innleystar hjá
Seðlabankanum, en hann mun innleysa peningana að einum hundraðshluta
ákvæðisverðs fram til 31. desember 1982.
Reykjavík, í nóvember 1982
SEÐLABANKI ÍSLANDS
50 KRÓNUR Þvermál: 30 mm Þyngd: 12,50 g
Málmur: Nikkel Útgefnir: 1968 (minnispeningur)
50 KRÓNUR Þvermál: 30 mm Þyngd: 12,50 g
Málmur: Kopar/nikkel Útgefnir: 1970-1980
II Peningaseðlar
A
Peningaseðlar, útgefnir af LANDSBANKA ÍSLANDS - SEÐLABANKA
skv. lögum nr. 63 frá 21. júní 1957:
ÍOO
100 KRÓNUR
Stærð: 150 x 70 mm. Myndefni: Á framhlið er mynd af
Tryggva Gunnarssyni og Hólum í Hjaltadal, en á bakhUð er mynd
af fjárrekstri og Heklu í baksýn.
AðaUitir: Blágrænn og fjöllitaívaf (framhlið), ljósgrænn (bakhUð).
1000 KRÓNUR
Stærð, myndefni og Utir sbr. A 1000 krónur.