Þjóðviljinn - 13.11.1982, Síða 2
2 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Heigin 13.-14. nóvember 1982
5000 króna
vöruúttekt í verðlaun
Nú hefst ný lota í áskrifendaget-
raun Þjóðviljans og verður hún fjóra
sunnudaga í röð, en að þeim loknum
geta menn sent inn lausnir. Verð-
launin að þessu sinn er vöruúttekt
fyrir 5000 krónur í heimabyggð
þess sem þau hlýtur. Getur þar bæði
verið um að velja hátíðarmatinn og
annað, en úttektin verðurekki bundin
við eina verslun. Eins og fyrr verður
spurt úr fréttum Þjóðviljans dagana á
undan.
í Geldinganesi
b
á Miklatúni
c
á örfirisey
Hvar er áhugi á að nýtt álver rlsi?
Atvinnumálanefnd Reykjavíkur hefur lýst
áhuga á því að kannaðir veröi möguleikar á að
álver eða annar orkufrekur iðnaður rísi í Reykja-
vlk. Hvar?
a
laun ekki útborguö á
réttum tíma
b
fjársvelti Námsgagn-
astofnunar
c
réttindalausum
kennurum
Hverju mótmæltu kennarar?
Kennarar mótmæltu:
Jón Baldvin
Vilmundur
Kjartan
a
Jón Baldvin Hanni-
balsson náöi naum-
lega kjöri í fram-
kvæmdastjórn
flokksins
b
Vilmundur Gylfason
tapaöi naumlega
kosningu í varafor-
mannsembætti
c
Helmingur þingfull-
trúasathjáerKjartan
Jóhannsson var kjör-
inn formaöur flokks-
Átök urðu á flokksþingi krata í Reykjavík.
Mikið verðfall varð á
þorskblokk á Banda-
ríkjamarkaði
b
Súr, morknuö og
ormétin skreiö var
endursend frá Italíu
c
Svfar vilja ekki kaupa
saltsíld
Þorskblokk
Skreið
Sfld
Fiskframleiðendur urðu fyrir áfalli.
a
Campomanes frá Fil-
ippseyjum
b
.Guðmundur G. Þór-
5 arinsson frá Islandi
c '
Kortsnoj frá Sviss
Campomanes Gubmundur Kortsnoj
Nýr forseti FIDE var kjörinn. Hver er hann?
Hver verður
lygalaupur
mánaðarins?
Hér kemur önnur lygasaga nóvembermánaðar og keppir
höfundurinn um nafnbótina lygalaupur mánaðarins. Og enn er
fólk beðið að setjast niður og segja eina góða lygasögu á
pappír, helst þó ekki lengri en 1-2 vélrituð blöð. Fólk má skrifa
undir dulnefni en rétta nafnið verður þó aö fylgja með. Sendið
Þjóðviljanum, Síðumúla 6, Rvík, c/o Guðjón Friðriksson, trún-
aðarmál. Og höfundur sögunnar að þessu sinni nefnir sig Absid
invidia.
Lygasaga
Svo er sagt að tveir menn séu
ófrýnilegastir í heimi og muni
þeir ætla að steypa heiminum og
muni gera það bráðun. Eftir það
verður of seint að skrifa söguna af
þessu þeirra ógeðslega athæfi og
verður að gera það nú þegar, því
stutt er til stefnu.
Þá er fyrst að segja að þessi
dusilmenni eiga sér ofboðsfælu af
ljótum vopnum sem hvert fyrir
sig mundi megna að myrða allan
heiminn, gera hvern líkamskropp
að dauðyfli, fletta ózónhjúpnum
af, láta blása niðdimma nótt við
hverju auga, áður sjáandi, láta
upp koma ógnarlega emjan og
gól um allan hnöttinn, síðan
þagni það gól og verði ekki neinn
hávaði ofanjarðar úr því.
Illmennin vilja ekki deyja sjálf,
til þess þykjast þau of góð og ger-
ist nú nokkuð sem engan hefði
grunað, þeir tala saman í síma við
rúmstokkinn og koma sér saman
umað láta smíða sér eitt geimskip
báðurn sem farið geti um himin-
hvolfin (alheimsgeiminn) með
þeim hraða sem doktor Albert
Einstein taldi geimskip geta farið
með mestum, mjög er það nærri
því að vera hraði ljóssins. Af
samtali þeirra svo gagnmerku
hlaust síðan smíði aldarinnar,
smíði geimskips sem flytja skyldi
þá báða saman til Grænfoldu, en
það er ágæt reikistjarna langt úti í
geim. Ferjan var síðan fermd
varningi og skyldi hafa hann til
ferðarinnar, ekkert mátti vanta,
ekki einu sinni stúlkur og átti að
eiga börn með þeim ef Grænfolda
fyndist, en ekki treystu þeir sér til
að gera það .sjálfir, svo af sér
gengnir sem þeir voru af margvís-
legu amstri sem fylgir því að
stjórna stórum löndum, gamlir
að auki, höfðu af því sagnir að
stúlkur gætu átt börn með eng-
um, eða draug upp úr mold, eða
trekkvindinum eða heilögum
anda. Héldu þetta mundi duga.
Karlmenn náðu þeir sér í líka og
voru allir nóbelsverðlaunahafar,
einnig tölvumeistarar, sátu
saman og töluðu en stúlkurnar
hafðar í byrgi fyrir aftan og gefið
brauð og epli og þurfti þá engan
drykk.
Enn eitt.
Dólgarnir tveir voru búnir að
koma sér upp dólgi sem átti að
vera þeim herlögregla og böðull
og hræðslugjafi á ferðalaginu og
það var dólgur sem sagði sex, blár
sem hel og digur sem naut, gat
kyrkt þá báða sinn í hvorri greip.
Tölvumaður sem þeir treystu var
fenginn til að hafa hemil á hon-
um. Sú fyrirætlun brást.
Dagurinn mikli rann upp blár
og heiður sem dagur getur orðið,
sól á Iofti fögur og geislandi og
stigu nú dólgarnir upp í með föru-
neyti, höfðu með sér eldspýtur til
að bera logandi að kveikjuþræði
þeim sem hafa skyldi til að
kveikja í sprengunni sem síðan
geri það bál sem ekkert stenst og
ekkert lifi af. Kveiktu svo í og sjá:
rauður loginn brann. Stigu svo
upp í og læstu á eftir sér og voru
þá allir komnir inn og burt þaut
ferjan sem ferðast skyldi í hundr-
að þúsund ár eða lengur án þess
nokkur maður sem í henni sat,
eltist neitt. Tölvumennirnir
stunduðu hver sitt verk. Og allt
féll í ljúfa löð, nema ekki hræði-
legi dólgurinn: hann var gneypur.
Hugsaði sitt ráð.
Og þegar ótal ár voru liðin og
Grænfolda kom í ljós, þetta fyrir-
heitna land og allir farnir að
hlakka til að fara þangað ofan,
láta geimskipið lenda þar sem
þeir tölvumeistararnir kölluðu
Boccarossa, til sinna ráða, tók og
kyrkti hvern af öðrum í greip
sinni, tvo í senn og dóu þeir, ætl-
aði sér svo stúlkurnar, hefði
aldrei náð þeim því stúlkur kunna
ráð við öllu, seinast tóku þeir
dólgana tvo sem kveiktu í
jörðinni með eldspýtu, ætlaði
aldrei að takast því þeir voru líf-
seigir eins og Skrattinn eða Rasp-
utin, hafðist samt af.
Þá gerðist það sem hann gat
ekki grunað svo heimskan dólg:
geimflaugin sprakk, því tölvu-
meistararnir voru allir dauðir.
A bupp.
Absid invidia.