Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1984, Blaðsíða 41
.<“881 HAOHaa'í huoaohaouaj .va
•------W.TjítIGART)’A'GURl”FEB'RtrAT?'ig84'.''
myndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Kvenréttindakonur ættu að fá eitthvað fyrir sig i Eidskírn, bandariskri kvik-
mynd um baráttu kvenna gegn karlaveldi.
in rússnesk kvikmynd verður sýnd á kvikmyndahátíðinni, er það Brautar-
stðð fyrir bæði, gamansöm mynd um tvær persónur sem hittast.
Kvikmynd Jean Becker, Banvænt
sumar, er franskt alþýðumeló-
drama þar sem fléttað er inn í
þjóðfélagslýsingum úr frönsku
þorpslifi.
ljósa skírskotum að ræða til banda-
rískra leikstjóra svo sem Aldrich eða
enn frekar Samuel Fuller.
HERBERGI ÚTI I BÆ (UNE
CHAMBRE EN VILLE)
Leikstjóri: Jacques Demy.
I dans- og söngvamyndum Jacques
Demy virðist allt verða að einum alls-
herjar söng og dansi. Samt býr gjarn-
an þjóðfélagsleg ókyrrð undir niðri.
Flestir þekkja mynd hans Regnhlíf-
amar í Cherbourg. I þessari fyrstu
dans- og söngvamynd hans í sextán ár
veitir hann félagslegum vangaveltum
og harmrænni skynjun inn í þetta sér-
ameríska kvikmyndaform.
FINNLAND
JÖN (JON)
Leikstjóri: Jaakko Pyhala.
Myndin um Jón hefur vakið einna
mesta athygli finnskra mynda í síðustu
árum og hefur þó verið um margar
mjög áhugaverðar myndir að ræða frá
þeim.
DANMÖRK
SAGAN AF KIMSKOV (HISTORIEN
OMKIMSKOV)
Leikstjóri: Hans-Heunrik Jörgensen.
Kim Skov býr með foreldrum sinum og
litlu systur úti á landi. Hann er 13 ára,
innhverfur og tilfinninganæmur. Fjöl-
skyldan flyst til borgarinnar og Kim á í
vaxandi erfiðleikum með skólanámið
og hið nýja umhverfi. Hann verður
fyrir aökasti í skólanum og er beittur
ofbeldi. Ef hann á ekki að vera stöðug-
ur þolandi ofbeldis og harðýðgi sér
hann þann kost vænstan að ganga til.
liðs við ofbeldisseggina.
HLIÐSTÆÐA LÍKH) (DET PARALL-
ELLELIG)
Lcikstjórar: Sören Melson og Hans-
Erik Phllip.
Hliðstæða líkið er gert eftir bók hins
þekkta danska reyfarahöfundar Frits
Remar. Hún segir frá sölustjóra
nokkrum sem vinnur við fyrirtæki
konu sinnar. Atvinnuöryggi sínu teflir
hann í tvísýnu þegar hann leiðist í
ástarsamband viö stjúpdóttur sína.
Vonlaus staða hans milli tveggja elda,
einkalífs og atvinnu, verður til þess að
hann grípur til örþrifaráða. Þó svo að
örvæntingin hafi heltekiö hann tekst
honum að skipuleggja hinn fullkomna
glæp í smæstu atriöum, kalt og yfir-
vegað...
BRETLAND
TEIKNARINN
(THE DRAUGHTSMAN ’CONTRACT)
Leikstjóri: Peter Greenaway.
I Teiknaranum dregur Peter Greena-
way upp ótrúlega nákvæma mynd af
sögulegu timabili, lífsháttum aðalsins
á sautjándu öld þegar siögæði hins ný-
ríka aðals var æði losaralegt og ýkjur í
tali og klæöaburði lygasögu likastar.
INDLAND
AFGREITT MÁL (KAHRIJ)
Leikstjóri: MrinalSen.
Mrinal Sen á þegar langan feril að baki
og er oft nefndur í sömu andrá og
Satyajit Ray. A áttundu áratugnum
fékkst hann aöallega viö þjóðfélags-
lega ádeilu í verkum sínum en undan-
farin ár hafa þau þróast út í margræöa
rýni á lífi millistéttarinnar indversku.
I þessari mynd er það sektarkennd
1 persóna og ýmisleg birtingaform
hennar sem Sen setur í brennidepil í
kvikmyndumglæp.
FELIPPSEYJAR
BONA(BONA)
Leikstjóri: LinoBroca.
Bona fjallar um lágstéttimar i Manila
og harkalega lífsbaráttuna í fátækra-
hverfunum. Lino Broca er einn fremsti
kvikmyndahöfundum á Filippseyjum
en undanfarið hefur risið þar mikil
kvikmyndabylgja. Af öðrum myndum
hans má nefna Jagúar, Imslang og
Manila í klóm neonljósanna.
KlNA
MINNINGAR MlNAR UM GÖMLU
PEKING
(CHENGNAN JIUSHI)
Leikstjórl: Wu Yigong.
Þessi kvikmynd hefur vakið mesta
athygli allra þeirra kínversku mynda
sem gerðar hafa veriö á undanförnun
árum.
VESTUR-ÞÝ SKAL AND
QUERELLE
Leikstjóri: Rainer Wemer Fassbind-
er..
Querelle er síðasta mynd Fassbinders
en hann lést 1982 aöeins 36 ára aö aldri.
Hann hafði þá gert fjörutíu og eina
mynd. Auk þess var hann mikilvirtur
leikstjóri í sjónvarpi og leikhúsi og rit-
aði einnig leikrit. Querelle byggir
Fassbinder á sögu eftir Genet um sam-
kynhneigö.
GALDRAMAÐURINN FRÁ
BABÝLON
(DER BAUER VON BABYLON)
Leikstjóri: Dieter Schidor.
Þetta er heimildarmynd um Rainer
Wemer Fassbinder að vinna að siöustu
mynd sinni, Querelle. I henni em viðtöl
við helstu leikara Querelle., Brad
Davis, Franco Nero og Jeanne
Moreau, um myndina og leikstjórann.
HOLLAND
VATNSBRAGÐ (DE SMAAK VAN
WATER)
Leikstjóri: OrlowSeunke.
Mynd þessi fékk gullljónið á Feneyja-
hátíöinni 1982 fyrir fyrstu mynd og
þykir einhver hugljómaðasta kvik-
mynd sem gerð hefur verið í Hollandi.
Með þessari mynd vill Orlow Seunke
sýna fram á að kvikmynd sé annað og
meira en bara að setja saman sögu
sem fyrir er í myndformi.
KANADA
BRAGÐAREFURINN (THE GRAY
FOX)
Leikstjóri: Phillp Borson.
Bragðarefurinn er kímin og smekk-
lega unnin kanadísk kvikmynd byggð á
hinni ótrúlegu en sönnu sögu af Bill
Miner, sem var heillandi og „heiðar-
legur” þjófur í Bandaríkjunum og
Kanada á seinni hluta 19. aldar og fyrri
hluta þeirrar tuttugustu.
SVIÞJOÐ
LEYNDARMÁL (HEMLIHETEN)
Lelkstjórar: Rainer Hartleb og
Staffan Lindqulst.
Leyndarmál er ástarsaga um tvö stór-
borgarböm sem alist hafa upp í vel-
ferðarþjóðfélaginu. Gagnrýnandinn,
Jannika Alunda, sagöi um þessa
mynd: „Þessi kvikmynd er fuU af
ódrepandi lífslöngun. Hún snýst gegn
öllum eyðingaröflum á galvaskan
hátt.”
LÍFSÞRÖTTUR (MOT AT LEVA)
Leikstjóri: Ingela Romare.
I þessari óvenjulegu mynd eru landa-
mæri lífs og dauða helsta yrkisefni
Ingelu Romare. Hún minnist þess
hvemig þær hittust fyrst, hún og Pia
Kakossaios, ung sænsk stúlka af grísk-
um uppruna, á námskeiði um konur og
kvikmyndir. Þær hittust ekki aftur
fyrr en Pia var komin með krabba-
mein sem dró hana til dauða á skömm-
um tíma en hún dó aðeins 24 ára að
aldri.
.SOVÉTRIKIN
] BRAUTARSTÖÐ FYRIR BÆÐI
(VOKZAL DLIA DVOIH)
Leikstjóri: Eldar Riazanov.
I gamanmyndum Riazanovs lenda
persónumar í furðulegum ævintýrum
á óvenjulegum stöðum, skrifstofum,
venjulegum íbúðum eða járnbrautar-
stöðvum. Astin er rauði þráðurinn í
mynd Riazozovs. Tvær manneskjur
hittast, bæði komin af léttasta skeiði og
hvorugt hefur verið lukkunnar
pamfíll f ram aö þessu.
HK.
Of
41
V er slunar húsnæði
400—500 fermetra jarðhæð óskast til leigu strax,
helst í Múlahverfi eða Skeifunni.
Upplýsingar í síma 41600 í dag og sunnudag.
BMW 528i automatic árg.
1982
BMW 520i automatic árg.
1983
BMW 520i automatic árg.
1982
BMW 520i árg. 1982
BMW 520 árg. 1981
BMW 520 árg. 1980
BMW 518 árg. 1982
BMW 518 árg. 1981
BMW 518 árg. 1980
BMW 323i árg. 1982
BMW 323i árg. 1981
BMW 320 automatic árg.
-1982
BMW 320 árg. 1982
BMW 320 árg. 1981
BMW 320 árg. 1979
BMW 318i árg. 1982
BMW 318i árg. 1981
BMW 318 automatic árg.
1979
BMW 316 árg. 1982
BMW 316 árg. 1981
BMW 315 árg. 1982
BMW 315 árg. 1981
Renault 20 TL árg. 1979
Renault 20 TL árg. 1978
Renault 20 GTL árg. 1979
Renault 18 TS árg. 1982
Renault 18 GTL árg. 1980
Renault 18TS árg. 1980
Renault 18 TL árg. 1979
Renault 16 TL árg. 1971
Renault 12 TL árg. 1977
Renault 5 GTL árg. 1980
Renault 4 TL árg. 1980
Renault 4 Van F6 árg. 1979
Renault 4 Van F6 árg. 1982
Renault Traffic 800 kg, árg.
1982
Mitsubishi Colt árg. 1981.
OPIÐ LAUGARDAG KL. 2-4.
E
LANDSVIRKJUH
Blönduvirkjun
Útboð á vélum, rafbúnaði, spennum,
lokum og þrýstivatnspípum
fyrir Blönduvirkjun.
Landsvirkjun auglýsir eftir tilboðum í framleiðslu, afhend-
ingu og uppsetningu á vélum og búnaði fyrir 150 MW virkjun í
Blöndu.
Að þessu sinni eru boðnir út 6 verkhlutar:
Útboðsgögn Verð á gögnum
Fyrsta eintak Viðb. eintak
krónur krónur
9530 Hverflar, rafalar og fylgibúnaður (Turbines, Generators and Accessory Equipment) 6000 3000
9531 Aflspennar (Power Transf ormers) 3000 1500
9532 132 kV Háspennubúnaður 3000 1500
9534 Kranar (Cranes) 3000 1500
9535 Lokubúnaður (Gate Equipment) 3000 1500
9536 Þrýstivatnspípa (SteelPenstock) 3000 1500
Tilboða er leitaö í hvern útboðshluta fyrir sig eða fleiri saman.
Útboðsgögn verða fáanleg hjá Landsvirkjun, Háaleitisbraut
68, 108 Reykjavík, frá og með mánudeginum 13. febrúar 1984
gegn óafturkræfri greiðslu á ofangreindri fjárhæö í krónum
eða jafnvirði í annarri mynt.
Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68,108
Reykjavík, eigi síðar en kl. 11.00 að íslenskum tíma
fimmtudaginn 14. júní 1984.
Reykjavík, 4. febrúar 1984
Landsvirkjun