Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1917, Page 36
Skýrsla.
1. Aðalfundur hins íslenska Fornleifafje'ags 1917.
Aðalfundur fjelagsins var haldinn 27. nóv. 1917.
Formaður mintist fyrst látinna fjelagsmanna: biskups Þórhalls
Bjarnarsonar, landshöfðingja Magnúsar Stephensens, kaupmanns
Geirs Zoega, bankastjóra Tryggva Gunnarssonar og læknis Þorgríms
Johnsens.
Formaður lagði fram endurskoðaðan ársreikning fjelagsins um
árið 1916.
Formaður gat þess, að vegna aukins prentunarkostnaðar myndi
eigi annað verða fært, en að minka árbókina að miklum mun
Eftir það var gengið til kosninga á stjórn fjelagsins um 2 ár
hin næstu, og mæltist formaður, próf. Ehíkur Briem, undan endur-
kosningu. Hann var einn af stofnendum fjelagsins og hafðinúver-
íð formaður þess síðustu 25 árin og starfað dyggilega að viðgangi
þess. Hann var síðan kosinn heiðursfjelagi í einu hljóði.
II. Stjórnendur fjeiagsins.
Formaður: Pálmi Pálsson, yfirkennari.
Varaformaður: Björn M. Olsen, prófessor.
Fulltrúar: Guðmundur Helgason, prófastur.
Hannes Þorsteinsson, aðstoðarskjalavörður.
Jón Jacobson, landsbókavörður.
Jón Þorkelsson, dr., þjóðskjalavörður.
Magnús Helgason, skólastjóri.
Matthias Þórðarson, þjóðminjavörður.
Skrifari: Jón Jacobson, landsbókavörður.
Varaskrifari: Jón Þorkelsson, dr., þjóðskjalavörður.
Fjeliirðir: Matthias Þórðarson, þjóðminjavörður.
Varafjehirðir: Pjetur Halldórsson, bóksali.
Endurskoðunarmenn: Halldór Daníelsson, yfirdómari
Eggert Claessen, yfirdómslögmaður.