Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1917, Qupperneq 26
26
þurt, veltugott heytorf hefði verið lagt bæði undir og
yfir líkið; mátti sjá leifar af grasrótum i því, þó að
svo væri það fúið, að það fjelli í duft, er við því var
hreyft. Vestast í niðurgreftinuin komu fram fótleggir
af 3 grindum, og var svipað utanum tvær grindurnar.
Mjer taldist svo til, að þarna hefðu komið í ljós 11
grindur.
Þarna var hvergi neinar minstu menjar að flnna
— ekkert nema beinin tóm. örlitla flís af fúinni
spýtu höfðu þeir fundið við eina grindina, en vissu
ekki fyrir víst nema hún hefði hrokkið annarstaðar að.
Það er enginn vafi á því, að þarna heiir verið
grafreitur einhvern tima fyr á öldum og kirkja þarna
á hólnum. Öskulag, 2—4 þuml. þykt, lá um alt þetta
niðurgrafna svæði, hjer um bil l*/4 alin frá yfirborði,
og voru víða í því spýtnakol. Og grafir þær, sem sá
á, náðu niður í gegnum öskulagið; var það rótað yfir
grindunum, svo að grafreiturinn hefir verið notaður
eftir að hús hefir brunnið á þessum stað. Munu þarna
vera leifar kirkju þeirrar, er getið er í Guðmundar sögu
dýra, 23. kap (Sturl. I. 300), þegar Sigurður grikkur
kom Kálfi Guttormssyni í kirkju, þegar Guðmundur
dýri ætlaði að ná lífi. hans. En hvenær sú kirkja hefir
niður lagst, hefi eg enga hugmynd um«.
Máldagi kirkjunnar á Auðbrekku er meðal hinna
svo nefndu Pjeturs -máldaga (byskups Nikulássonar),
frá 1394 hjer um bil, prentaður i Fornbrs, III. b., bls.
521. — I alkirknatali einu, sem prentað er i Fornbrs.
V. b., bls. 359—61, er getið Auðbrekku og að þar skyldi
prestur vera annað hvert ár, eins og líka sagt er í
máldaganum; kirknatalið er af útgefanda álitið vera
frá tíð Olafs byskups Rögnvaldssonar, síðari hlut 15.
aidar.
6913. 10/7 Ari Jónatansson, Auðbrekku: Bygg, brent, 10 gr. að
þyngd, i litlu glasi. — Kom upp við gröftinn i Auð-
brekku, sbr. nr. 6902—12.
6914. — Sami: Fjöl með útskurði á annari hlið, grein með
blöðum, lágt upphleypt verk, sennilega frá 17. öld.
Efni fura; 1. 101,6 sm., br. 15—19,5 smv þ 2,7—3,3 sm.
Virðist vera af húsi, líklega bútur af vindskeið. Frá