Morgunblaðið - 25.02.1995, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Á barnið að fara í tónlistarskóla? Tónlistarskóli Kópavogs Hamraborg 11, Kópavogi Forskóli - Hóptímar Hámarks- Kennslust. Verð Tímabil fjöldi nem. á viku 15.500 1.okt.-1.maí 10 2x50 mín. Píanónám fyrir 12 ára nemanda ^ ^ Hóptímar Verð Tímabil Tónfræði/-heyrn 33.000 20. sept.-20. maí 60 mín. IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII Fjöiskyiduaf sláttur Ekki í forskóla. 2. nemandi, 15%, 3., 25%, 4., 40%, 5., 50%
Tónskóli Sigursveins D. Kristinss. Hellusundi 7, Reykjavik 21.600 15. sept.-10. maí 10 2x60 mín. 40.000 15. sept.-10. maí 60 mín. 10% fyrirtvo eða fleiri
Tónmenntaskóli Reykjavíkur Lindargötu 51, Reykjavík 28.000 19. sept.-8. maí 9 2x50 mín. 43.000 19. sept.-8. maí 50 mín. Tveir fá 15%, þrír, 25%. 50% afsl. á annað hljóðfæri
Tónlistarskóli FÍH Rauðagerði 27, Reykjavík - Enginn forskóli - - . 45.0001) 1. sept.-20. maí 90 mín. 0,1 af heildarupphæð
Nýi tónlistarskólinn Grensásvegi 3, Reykjavlk 18.000 eins og grunnskólar 10 2x45 mín. 44.000 eins og grunnskólar 90 mín. 0,05 af heildarupphæð
Tónlistarskólinn á Seltjarnarnesi Skólabraut, Seltjarnarnesi 13.400 5. sept.-5. maí 3/14 2> 2x30 mín. 28.800 5. sept.-5. maí 90 mín. 2. nemandi, 20%, 3., 40%
Tónlistarskólinn í Grafarvogi Hverafold 1 -3, Reykjavík 26.600 5. sept.-12. maí 8 2x45 mín. 44.000 5. sept.-12. maí 50 mín. 10% fyrirtvo eða fleiri
Tónskóli Eddu Borg Hólmaseli 4-6, Reykjavík 24.000 15. sept.-15. maí 8 2x45 mín. 42.000 15. sept.-15. maí 45 mín. 2. nemandi, 10%, 3., 20%
Tónlistarskóli Garðabæjar Smiðsbúð 6, Garðabæ 15.000 1. sept.-15. maí 12 2x50 mín. 33.000 1. sept.-15. maí 60 mín. 2. nemandi, 20%, 3. og fleiri, 40%
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar Strandgötu 32, Reykjavík 14.700 eins og grunnskólar 10 2x50 mín. 27.300 eins og grunnskólar 60 mín. 2. nemandi, 20%, 3. og fleiri, 40%
Tónlistarskóli Mossfellsbæjar Brúarlandi, Mosfellsbæ 10.000 7. sept.-20. maí 10 1x55 mín. 27.000 7. sept.-20. maí 60 m. e. 2. stig 2. nemandi, 20%, 3., 40%, 4., 100%
Á LANDSBYGGÐINNI
Tónlistarskóli Stykkishólms Skólastíg 11, Stykkishólmi 9.000 1. sept.-31. maí 4 2x30 mín. 18.000 1. sept.-31. maí 60 mín. Ekki í forskóla. 2. nemandi, 20%, 3., 40%, 4., 60%
Tónlistarskóli ísafjarðar Austurvegi 11, ísafirði 12.000 15. sept.-20. maí 1 ®) 2x15 mín. 24.000 15. sept.-20. maí 60 mín. 2. nemandi, 25%, 3., 50%
Tónlistarskóli V-Húnvetninga Hvammstangabraut 10, Hvammstanga 19.000 10. sept.-15. maí 13) 2x30 mín. 19.000 10. sept.-15. maí í hljófæratíma 2. nemandi, 33%, 3., 66%, 4., 100%
Tónlistarskólinn á Akureyri Hafnarstræti 81, Akureyri 20.000 15. sept.-15. maí 6 2x50 mín. 30.000 15. sept.-15. maí 60 mín. 2. nemandi, 15%, 3., 30%, 4., 45%
Tónlistarskóli Eyjafjarðar (grunnskólunum 12.000 1. sept.-31. maí 6 2x40. mín. 24.000 1. sept.-31. maí 60 mín. Tveir fá 15%, þrír eða fleiri, 25%
Tónlistarskóli Húsavíkur Skólagarðil, Húsavík 4.4004) 1. sept.-15. maí 7 2x30 mín. 18.000 1. sept.-15. maí 60 mín. 25% fyrir tvo eða fleiri
Tónlistarskólinn á Egilsstöðum Tjarnarlöndum 13, Egilsstöðum 9.000 1. sept.-31. maí 7 1x60 mín. 20.000 1. sept.-31. maí 45 mín. Ekki í forskóla. 2. nemandi, 33%, 3., 66%, 4., 100%
Tónskóli A-Skaftafellssýslu Hafnarbraut 17, Höfn 8.000 7. sept.-18. maí 9 1x50 mín. 14.000 7. sept.-18. maí samt. 3 klst. 2. nemandi 25%, 3., 50%
Tónlistarskóli Árnesinga Skólavöllum 3, Selfossi 7.000 15. sept.-15. maí 3 1x30 mín. 21.000 15. sept.-15. maí 60 mín. 2. nemandi, 25%, 50%
Tónlistarskóli Vestmannaeyinga Arnardrangi, Vestmannaeyjum 10.000 1. sept.-10. maí 3 2x30 mín. 19.000 1. sept.-10. maí 50 mín. 12,5% af heiidarupph. f. 2, 3. 50% af skólagj.
Tónlistarskóli Keflavíkur Austurgötu 13, Keflavík 13.600 1. sept.-31. maí 8 2x45 mín. 24.900 1. sept.-31. maí 50 mín. 10% fyrirtvo, 20% f. þrjá, 30% f. fjóra
1) Yngstu riemendureru 13 ára. 2) Yfirleitt 3 saman ítíma, en á 4ra vikna fresti er 14 nemendum skipt ítvo hópa. 3) Ekki eiginlegur forskóli heldur einstaklingskennsla.
4) Húsavíkurbær greiðir skólagjöld nemenda í forskóla vegna samstarfsverkefnis leik-, grunn- og tónlistarskóla. 5) Ekki eiginlegur torskóli heldur einstaklingskennsla á blokkflautu.
Mikill verðmunur á tónlistarnámi barna eftir búsetu
Tónlistarskólar í Reykjavík
með hæstu skólagjöldin
Verðkönnun vikunnar
í verðkönnun á tónlistarnámi barna kom m.a. í
Ijós að foreldrar í Hafnarfírði greiða 14.700 kr. í
skólagjöld á ári fyrir bam í forskóla, en foreldrar
í Reykjavík greiða 18.000-28.0000 kr. fyrir
kennslu á sama stigi með álíka kennslutíma á viku.
AÐEINS fjársterkar fjöl-
skyldur hafa bolmagn til
að kosta bömin sín í
íþróttir, tónlistarnám og
allt það sem þeim stendur til boða
utan skólanna, segir Lára Björns-
dóttir, félagsmálastjóri í Reykjavík
í kynningarblaði Landssamtakanna
Heimili og skóli, sem fylgdi Morg-
unblaðinu nýverið.
Trúlega þurfa margir foreldrar
að leggja töluvert á sig til að kosta
böm sín í tónlistarnám. í samtölum
við skólastjóra tónlistarskóla kom
engu að síður í ljós að skólamir eru
þétt setnir og víða langir biðlistar.
Neytendasíðan kannaði verð á
tónlistamámi fyrir börn í forskóla
og píanónámi fyrir 12 ára nemend-
ur. í báðum tilvikum reyndust
skólagjöld mun hærri í Reykjavík
en í nágrannabyggðarlögum og á
landsbyggðinni. Hæstu skólagjöld í
forskóla voru í Tónmenntaskóla
Reykjavíkur, eða 28 þús. fyrir 2x50
mín. kennslustundir. í Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar var verðið
14.700 kr. fyrir sama tíma og í
Tónlistarskóla Keflavíkur 13.600
kr. fyrir 2x45 mín.
í öllum skólunum var miðað við
píanónám í 1 klst. á viku, annað-
hvort 2x30 mín. eða 1x60 mín. og
auk þess var tónfræði og tónheyrn
kennd í 45-90 mín. á viku. Slíkt
nám var á 27 þús. í Tónlistarskóla
Mosfellsbæjar, 14 þús. í Tónskóla
A-Skaftafellssýslu, Höfn (annað
fyrirkomulag á tónfræðitímum, sjá
töflu) og 45 þús. í Tónlistarskóla
FIH (yngstu nemendur 13 ára).
Mismunandi rekstrar-
fyrirkomulag
Lögum samkvæmt eiga bæjar-
eða sveitarfélög að greiða laun
kennara og skólagjöld að fara í
annan rekstrarkostnað. Njáll Sig-
urðsson, námsstjóri tónlistarskóla í
menntamálaráðuneytinu, segir að
stjórnendur tónlistarskóla ákveði
skólagjöld sín sjálfir. I Reykjavík
séu tónlistarkennarar starfsmenn
skólanna en annars staðar yfirleitt
starfsmenn viðkomandi bæjar- eða
sveitarfélags. Tónlistarskólar í
Reykjavík þurfi að senda starfs- og
fjárhagsáætlun til borgaryfirvalda,
og fái íjármagn samkvæmt þeim
til að greiða laun kennara. miðað
við ákveðinn tímafjölda á viku.
Sigursveinn Magnússon skóla-
stjóri Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar sagði að varðandi
tónlistarskólanna tíðkuðust aðal-
Iega tvö rekstrarform. Skólarnir í
Reykjavík nytu styrkja frá Reykja-
víkurborg, sem svöruðu launum
kennara. Námsgjöldum væri varið
til reksturs; kostnaðar vegna hús-
næðis s.s. húsaleigu og viðhalds
húsnæðis, ljóss og hita, launa skrif-
stofu- og ræstingafólks, skrifstofu-
kostnaðar; síma, pappírs, ijölritun-
ar, prentunar, ljósritunar og hvers
konar stofnkostnaðar vegna
kennslutækja, hljóðfærakaupa og
viðhalds hljóðfæra.
Utan Reykjavíkur sæju bæjarfé-
lög um rekstur tónlistarskólanna
og létu þeim í té húsnæði og hljóð-
færakost auk þess að skapa þeim
önnur nauðsynleg starfsskilyrði.
Rekstur og kennsluhættir eru
mismunandi eftir tónlistarskólum,
þótt ekki verði farið nánar út í það
hér. Sumir þjóna mörgum hreppum
eins og Tónlistarskóli Eyjafjarðar;
hann hefur aðstöðu í grunnskólum
sjö sveitarfélaga, sem standa að
rekstri hans. Engu fé er því varið
í rekstur húsnæðis en að sögn Atla
Guðlaugssonar er aksturskostnaður
kennara hár.
Forskóli
Flestir tónlistarskólar bjóða
yngstu nemendunum upp á svokall-
aðan forskóla, sem yfirleitt er
tveggja ára undirbúningsnám.
Nemendur eru flestir 6-8 ára og
allt niður í fjögurra ára. Kennslu-
gögn eru oftast innifalin
í skólagjöldum, utan
blokkflauta, sem nem-
endur verða yfirleitt að
kaupa sér sjálfir, enda
víðast notuð sem aðal-
hljóðfærið auk ýmissa
ásláttarhljóðfæra, sem
skólarnir bjóða afnot af. Nemendum
er kennt frá þremur upp í tíu sam-
an í hóp í hálfan til tvo tíma á viku.
í Tónlistarskóla ísafjarðar og Tón-
listarskóla V-Húnvetninga er þó
ekki um eiginlegan forskóla að
ræða heldur einstaklingskennslu.
Ekki var hægt að bera Tónlistar-
skóla íslenska Suzuki-sambandsins
saman við aðra tónlistarskóla á töfl-
unni, þar sem kennslufyrirkomulag
er með öðrum hætti en tíðkast ann-
ars staðar. Kennt er að spila eftir
eyranu á hljóðfæri, sem barnið vel-
ur sér og oft hefja börn nám 2 ára,
eða jafnvel í móðurkviði. Ætlast er
til að foreldrar taki þátt í námi
barnanna í tímum og heima. Jöfn-
unarverð er á skólagjöldum 41.500
kr. fyrir mismikinn tímaijölda, t.d.
eru 4 ára börn tvisvar í viku í 30
mín, en 12 ára í allt að ijórar klst
á viku.
Allir 7 og 8 ára Húsvíkingar
læra á blokkflautu
Á töflunni kemur fram að skóla-
gjöld í forskóla eru áberandi lægst
í Tónlistarskóla Húsavíkur, eða
4.400 kr. Árni Sigurbjarnarson,
skólastjóri, segir að þar
í bæ sé í gangi sam-
starfsverkefni leikskóla,
grunnskóla og tónlistar-
skóla um tónlistar-
kerinslu yngstu bæj-
arbúanna. Allir 7 og 8
ára nemendur læri á
blokkflautu en 9 ára fái að velja
sér hljóðfæri. Skólamir hafi fengið
styrki til verkefnisins úr þróunar-
sjóðum og bæjarfélagið borgi skóla-
gjöld nemenda, sem endurspegli
raunverulegan kostnað.
Af gefnu tilefni skal tekið frani
að verðkönnun þessi er einungis til
að varpa ljósi á verðlag í hinuni
ýmsu tónlistarskólum, án tillits til
kennslutilhögunar, rekstrarfyrir-
komulags og aðbúnaðar nemenda.
Tónlistarskól-
ar þétt setnir
og víða bið-
listar.