Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993 AF INNLENDUM VETTVANGI PÉTUR GUNNARSSON Iðnrekendur krefjast undirboðstolla ef keyptir verða sænskir jakkar á íslenska lögreglu Munar um 10 þúsund krónum á íslenskum jakka og sænskum Ódýrari einkennisföt geta þýtt kjararýrnun fyrir lögreglumenn FÉLAG íslenskra iðnrekenda segist munu krefjast þess að undir- boðstollum verði beitt komi til þess að íslenska ríkið taki lægsta tilboði í útboði sem nýlega fór fram á hluta einkennisfatnaðar fyrir lögreglumenn. Um er að ræða vinnujakka og kuldaúlpur lögreglumanna, sem fyrirtækið Max hefur átt þátt í að hanna og hefur framleitt fyrir lögreglumenn undanfarin ár. Við opnun til- boða, sem alls voru 13, kom í ljós að verðmunur á vinnujakka frá Max og sænsku fyrirtæki, sem heildverslunin Hexa hefur umboð hér á landi fyrir, er 10.200 krónur á hvern jakka; stykkið kostar 16.036 frá Max en 5.841 frá sænska fyrirtækinu. Tilboðin munu þó ekki sambærileg að því leyti að í tilboði Max eru innifalin lög- reglueinkenni, hnappar og axlaspælar, sem metin eru á u.þ.b. 2.600 krónur. Að sögn Guðmundar í. Guðmundssonar, skrifstofu- stjóra Innkaupastofnunar ríkisins, fæst væntanlega niðurstaða í málinu á stjórnarfundi stofnunarinnar í vikunni. Stjórn Landssambands lögreglu- manna hefur sent frá sér álykt- un um þessi mál þar sem lýst er yfir eindregnum stuðningi við Max hf. og ráðuneytið hvatt til að taka tilboði þess fyrirtækis. í ályktuninni er annars vegar skírskotað til þess að Max hafí veitt afar góða þjón- ustu með vandaða vöru og hins vegar til þess að ekki sæmi stjóm- völdum að flytja vinnu úr landi á atvinnuleysistímum hérlendis. Ein- kennisföt lögreglumanna, eins og annarra ríkisstarfsmanna sem ganga í einkennisfatnaði, teljast til skattskyldra hlunninda og eru því skattskyldar tekjur lögreglu- manna reiknaðar nokkru hærri eftir því sem einkennisfötin eru dýrari. Ódýrari föt geta þýtt minni tekjur Einkennisjakka II, sem svo er kallaður, fá lögreglumenn af- hentan á 18 mánaða fresti en kuldaúlpu á 3 ára fresti. í útboði býður Max kr. 16.036 fyrir hvem jakka en 21.000- 23.600 kr. fyrir hveija úlpu en Hexa býður 5.841 kr. fyrir hvern jakka en 7.890 krónur fyrir úlp- ur. Framleitt er fyrir um 650 lög- reglumenn og er því um að ræða ca. 400 jakka á ári og því er heild- arfjárhæðin á bilinu 2-5 milljónir króna eftir því hvort miðað er við sænska eða íslenska tilboðið. Varðandi framleiðslu á úlpunum, en af þeim verða um 200 stk. af- hent á ári, er um svipaðar upphæð- ir að ræða. Fyrir lögreglumann sem í ár á rétt á bæði kuldaúlpu og jakka II nema viðskiptin því allt að 40 þús. krónum í Max en 13-14 þúsundum verði sænska til- boðinu tekið. í samtali við Morgunblaðið staðfesti Jónas Magnússon, for- maður Landssambandsins, að þess væm dæmi að lögreglumenn, sem ekki þyrftu að endurnýja einkenn- isfatnað sinn fengju afhentan ann- an fatnað til eigin nota þess í stað og því mætti segja að ódýrari ein- kennisföt þýddu kjararýrnun fyrir lögreglumenn. í samtali við Jónas og Sævar Kristinsson hjá Max kom fram að ekki væri þó mikið um þetta, flest- ir lögreglumenn þyrftu að end- urnýja einkennisföt sín á þeim tíma sem til sé ætlast. Jónas Magnússon sagði þetta ekki hafa ráðið því að Landssambandið hef- ur látið málið til sín taka, heldur ótti við að verið sé að kaupa verri fatnað og mun lakari þjónustu en menn búi nú við og auk þess sú almenna skoðun lögreglumanna að í erfiðu atvinnuástandi eigi að styðja við bakið á íslenskum iðn- aði og þar eigi hið opinbera að sýna fordæmi. í bréfí sem Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra iðnrekenda, hefur ritað dómsmálaráðherra greinir hann frá samanburði sem félagið hefur látið gera með aðstoð íslenska sendiráðsins í Svíþjóð á tilboði sænska fyrirtækisins sem Hexa hefur umboð fyrir, og verði á sam- bærilegum jökkum fyrir lögreglu í Svíþjóð og Noregi. Þar komi í ljós að í Svíþjóð sé verð á lögreglu- jakka, sambærilegum við jakka sem svo er kallaður, hér á landi 12.266 krónur en í Noregi 13.138 krónur. Refsitollur eyði verðmun Síðan segir í bréfinu: „Sam- kvæmt þessu er ljóst að í sænska tilboðinu er greinilega um verulegt undirboð að ræða. Sænska lög- reglan kaupir sína jakka á rúm- lega tvöföldu því verði sem boðið er hér. Verði sænska tilboðinu tekið mun Félag íslenskra iðnrek- enda krefjast álagningar undir- boðstolls [...] þannig að heildar- verð jakkans hingað komið verði sambærilegt við verð hans í Sví- þjóð.“ Þá benda iðnrekendur á að minni kröfur séu gerðar til er- lendra tilboðsaðila hvað varðar sundurliðum tilboða því erlendir aðilar þurfi ekki að sundurliða sín tilboð eins og innlendir. Sævar Kristinsson fram- kvæmdastjóri Max sagði við Morgunblaðið að þegar tilboð væru metin þyrfti að taka inn í myndina þá vinnu sem fyrirtæki sitt hefði lagt í að hanna og þróa þessa vöru frá upphafi. Við þá vinnu hefði verið lögð áhersla á að verða við óskum notendanna um þægindi, sníða við mál hvers og eins og hafa afgreiðslufrest sem stystan, sem skipti t.d. máli þegar flíkur yrðu fyrir skemmd- um. Vinna við einkennisfatnað væri ákveðin kjölfesta í starfsemi fyrirtækisins, sem hefur 60 starfs- menn, og hefði verið lagður metn- aður í að sinna því vel og gera sífellt betur. Á þessum grundvelli sem fyrirtækið hafí lagt undanfar- in ár hafí útboðið verið byggt og sér virðist að framlag þess í þenn- an tíma sé lítils metið ef tekið verði erlendu undirboði. Jóhann Christiansen hjá Hexa vísaði í samtali við Morgunblaðið samanburði iðnrekenda á bug og sagði að upplýsingar sem hann hefði aflað sér frá Svíþjóð bentu til að sambærileg vara við þá sem fyrirtæki sitt byði á 5.841 krónu kostaði um 260 sænskar krónur, eða innan við 3.000 íslenskar, til sænsku lögreglunnar og væri sá jakki framleiddur í Noregi. Hann sagðist bjóða gæðavöru frá sænsku verksmiðjunum Fristads sem framleidd yrði í einni af verk- smiðjum þess fyrirtækis, sennilega í Litháen. Lögfræðingar fyrirtæk- isins væru að kanna aðdróttanir sem heyrst hefðu opinberlega um gæði vörunnar. Verðlag of hátt Aðspurður um þann mikla verð- mun sem væri á sínu tilboði og tilboði íslenskra framleiðenda sagði Jóhann að hann væri einfaldlega sá að verðlag væri of hátt hér á landi. „íslenskir iðnrekendur ættu að einbeita sér að því að fínna hvar meinin liggja hjá þeim sjálfum í stað þess að hanga í pilsinu hjá ríkinu. Það er ekki að ástæðulausu sem íslendingar fara í hópum í verslunarleiðangra erlendis. Verð- lag hér er of hátt og menn verða að átta sig á því að það er kominn tími til að hætta að láta skattgreið- endur halda vemdarhendi yfír okri,“ sagði Jóhann. Tilbob í ríkisbréf ii ibvikudaginn 27. januar Um er að ræða 1. fl. 1993 í eftirfarandi verðgildum: Kr. 2.000.000 Kr. 10.000.000 Kr. 50.000.000 Ríkisbréfin eru til 6 mánaða, með gjalddaga 30. júlí 1993. Þessi flokkur verður skráður á Verðbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands viðskiptavaki ríkisbréfanna. Sala nýrra ríkisbréfa fer fram með þeim hætti að löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa- miðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst kostur á að gera tilboð í bréfin samkvæmt tilteknu tilboðsverði. Lágmarkstilboð er kr. 2.000.000 að nafnvirði. Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisbréf eru hvattir til að hafa samband við framangreinda aðila sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra tilboða (meðalávöxtun vegin með fjárhæð). Öll tilboð í ríkisbréfin þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins miðvikudaginn 27. janúar fyrir kl. 14. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 62 60 40. Athygli er vakin á því að þann 29. janúar nk. er gjalddagi á 3. fl. ríkisbréfa sem gefinn var út 31. júlí 1992. LÁNASÝSLA RÍKISINS Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.