Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993 ISLENSK DRÁTTARBEISLI fyrir flestar gerðir bila. Ásetning ó staönum. Somþykkt af Iðntækni- stofnun og Bifreiðaskoðun Islands. Póstsend- um. Áratuga reynsla. Gerið verðsamanburó. Veljum íslenskt. VÍKUR-VAGNAR Laufbrekku 24 (Dalbrekkumegin), símar91-43911 - 91-45270 - 91-72087 tfið pýmum M Allt að 50% afsláttur 1 af smátækjum og búsáhöldum BRÆÐURNIR (©JORMSSONHF Lágmúla 8, sími 38820. MÚTORVINDINGAR og aðrar rafvélaviðgerðir á vel búnu verkstæði. RAFLAGNAÞJÚNUSTA í skipum, verksmiðjum og hjá einstaklingum. VANIR MENN vönduð vinna, áratuga reynsla. Reynið viðskiptin. Vatnagörðum 10 • Reykjavík •S 685854 / 685855 • Fax: 689974 Úr vöndu er að ráða eftir Ólínu Þorvarðardóttur Með afgreiðslu á fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, sl. föstudag, staðfestu sjálfstæðismenn ótta sinn og ráðaleysi andspænis atvinnuleysj og efnahagsþrenginum borgarbúa. í samþykktinni fólst að ekki yrði ráð- ist til atlögu við aðsteðjandi erf- iðleika, heldur skyldi vandanum velt yfír á skammtímaskuldimar í formi aukaíjárveitinga síðar á árinu. Áætl- unin fól það í sér að nú skyldi leitað vars og beðið í aðgerðarleysi eftir betri tíð. Borgarfulltrúar stjórnarandstöð- unnar í Reykjavík voru annarrar skoðunar. í málflutningi lögðu þeir áherslu á að borgin beitti sér fyrir atvinnuskapandi aðgerðum, aukn- ingu framkvæmda og eflingu þjón- ustu - og að því lutu þær breyting- artillögur sem fram voru bornar. Ábyrgðarleysi og óráðsía Það er viðtekin skoðun, að þegar vel árar eigi opinberir aðilar að halda að sér höndum, og láta efnahagslífið um að blómstra og dafna, í stað þess að keppa við fyrirtæki á mark- aði um mannafla og þjónustu. Þegar kreppir að þykir hinsvegar skynsam- legt að hið opinbera veiti fjármunum út í efnahagslífið og stuðli þannig að aukinni þenslu á samdráttartím- um. Hvorugt hafa sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur gert þann áratug, sem þeir hafa setið við völd. Sjálfstæðismenn tóku við skuld- lausu búi árið 1982. í algleymi góð- ærisins var eytt og spennt - ráðist í rándýrar, þarflausar framkvæmdir af öllu kappi en engri forsjá. Um fjórir milljarðar króna af fjármunum Reykvíkinga fóru í tvær óþarfar húsbyggingar og hvert gæluverkefn- ið rak annað. Skuldir borgarinnar margfölduðust á sama tímabili, og í haust var svo komið að yfirdráttar- skuld borgarinnar í Landsbanka ís- lands losaði tvo milljarða króna. Fjárhagsáætlun ársins var því lokið með tveim stórum lántökum (sam- tals um 2,5 milljarðar króna) sem þó fóru ekki nema að óverulegu leyti til þess að greiða niður skammtima- skuldirnar. Á þessu ári mun Reykja- víkurborg greiða um einn milljarð króna í vexti og afborganir af lánum. Hvað er til ráða? Borgarfulltrúar Nýs vettvangs hafa bent á leið til þess að bregðast við atvinnuleysinu í borginni - leið sem aflar tekna án þess að íþyngja heimilunum. Við höfum lagt til að arður fyrirtækja í eigu borgarinnar verði hækkaður úr 2% í 6% og þann- ig aflað 1,442 mkr. umfram það sem gert var ráð fyrir í frumvarpi. Enn- fremur lögðum við til að Reykjavík- urhöfn yrði falið að verja 288 mkr. til að auka hafnsækna atvinnustarf- semi, auk þess sem við gerðum ráð fyrir nokkurri tilfærslu ijármuna; minni fasteignakaupum, aukinni sölu ióða og eigna, aðhald í áfengis- kaupúm, risnu- og ferðakostnaði. Samtals juku þessar tillögur tveim milljörðum króna við ráðstöfunarfé borgarinnar frá því sem nú er. í tillögu okkar um hækkun arð- greiðslna var skilyrt að fyrirtækjum skyldi gert að mæta hækkuninni með öðrum hætti en í gegnum gjald- skrár. Það þýðir að sum þeirra þyrftu að taka hagstæð langtímalán. Við teljum það ekki koma að sök, því öll eru þessi fyrirtæki fjárhagslega sterk og nánast skuldlaus. Þau velta samanlagt um tíu milljörðum króna í ár, og eiga mörg hver innistæður í borgasjóði. Hinsvegar myndi þessi ráðstöfun geta létt skuldabyrðinni af borgarsjóði, því í tillögum okkar fólst að um 630 mkr. yrði varið til þess að greiða niður rándýra yfir- dráttarskuld borgarsjóðs í Lands- bankanum. Að hrökkva eða stökkva Sé einhver meining á bak við fög- ur fyrirheit um að ráðast gegn at- vinnuvandanum, þarf borgin óhjá- kvæmilega að auka sitt ráðstöf- unarfé. Það verður ekki gert nema með tvennum hætti: 1. Að auka álögur (og þar með skuldasöfnun) á almenning með hækkun útsvars. Sú leið hefur þegar verið útilokuð með ákvörðun um óbreytt útsvar, enda ljóst að heimil- unum verður ekki íþyngt meir en orðið er. Þá stendur hinn kosturinn eftir: 2. Að kalla fyrirtæki í eigu borg- arinnar til samábyrgðar í erfiðum aðstæðum. Borgarsjóður verður að hafa svig- rúm til þess að ráðstafa fjármunum til þarfra framkvæmda, og hann verður að hagræða skuldastöðu sinni og stemma stigu við óhóflegri söfnun skammtímaskulda. Hærri arð- greiðslur myndu gera hvort tveggja kleift. Okkur er Ijóst að hækkun arð- greiðslna er tímabundin ráðstöfun. Arður er tekinn af skuldlausri eign fyrirtækja, og því lækka greiðslurn- ar strax á næsta ári ef fyrirtækin mæta hækkuninni með lántöku. Það er því engin hætta á að stoðum sé kippt undan starfsemi þeirra, því öll standa þessi fyrirtæki traustum fót- um. Þessi ráðstöfun þýðir að íjár- streymið í borgarsjóð yrði mest í fyrstu en dvínaði þegar frá liði. Hefði borgarstjóm ákveðið að fara þessa leið, hefði borgarsjóði „Ferðin til Jórdaníu var ánægju- leg og áhugaverð. Þeir hafa á und- anförnum árum lagt mikla áherslu á að auka samskipti þjóðanna, eins og sést af tíðum heimsóknum Huss- eins Jórdaníukonungs til íslands og framlagi þeirra til Listahátíðar í Reykjavík á síðastliðnu sumri. Jafn- framt styður Jórdaníustjórn íslensk- Ólína Þorvarðardóttir „Sjálfstæðismenn tóku við skuldlausu búi árið 1982. í algleymi góðær- isins var eytt og spennt - ráðist í rándýrar, þarflausar framkvæmd- ir af öllu kappi en engri forsjá. Um fjórir millj- arðar króna af fjármun- um Reykvíkinga fóru í tvær óþarfar húsbygg- ingar og hvert gælu- verkefnið rak annað.“ verið sköpuð skilyrði til þess að veita fjármunum út í atvinnulífið, án þess að steypa sér í stórskuldir sem hann rís illa undir. Aukning fjárstreymis á krepputímum er þekkt hagstjórn- artæki sem beitt hefur verið með góðum árangri í öðrum löndum. Brýnustu verkefnin Þau verkefni sem borgarfulltrúar Nýs vettvangs hefðu viljað að ráðist yrði í, fyrir þá 2 milljarða sem tillög- ur okkar gerðu ráð fyrir eru að stærstum hluta uppbygging þjón- ustu í borginni. Þar brennur heitast an stúdent til náms í Jórdaníu og íslenska ríkisstjórnin hefur heitið því að gera hið sama gagnvart Jórdaníu- manni sem vill leggja stund á jarð- hitafræði hér á landi. Það er nokkur jarðhiti í Jórdaníu sem þeir ætla að nýta til upphitunar sundlauga og baða. Ég átti stuttan fund með Sharif að ráðast í byggingu nýs hjúkrunar- heimilis fyrir aldraða, en í þeim málaflokki ríkir neyðarástand um þessar mundir. Nú þegar bíða 250-300 aldraðir í brýnni þörf, eftir úrræðum. Biðtíminn eftir hjúkrunar- rýmum er talinn í árum en ekki mánuðum, öllum þeim til skammar sem komið hafa að öldrunarupp- byggingunni, bæði ríki og borg. Hraðari uppbygging leikskólahús- næðis er sömuleiðis eitt af brýnust verkefnum borgarinnar enda bíða að jafnaði 2.000-2.500 börn eftir leikskólaúrræðum á biðlistum. Þeir listar segja þó ekki nema takmark- aða sögu, því færri komast á þá en vilja. Þá lögðum við til að borgin yki framlag sitt til smíði og kaupa á félagslegu húsnæði, enda er eftir- spurn eftir eignar- og leiguíbúðum margfalt meiri en framboð. Aukin uppbygging skólahúsnæðis, efling almennings-samgangna og bætt umferðaröryggi voru einnig for- gangsverkefni í okkar tillögum. Ótti og ráðaleysi Þessar tillögur náðu ekki fram að ganga - illu heilli. Þess í stað verð- ur haldið áfram á þeirri óheillabraut ótta og ráðaleysis sem vörðuð hefur verið með samþykkt frumvarpsins. Söfnun skammtímaskulda sem óhjá- kvæmilega hlýst af sífelldum aukafj- árveitingum verður eina „úrræðið" þegar líður á framkvæmdaárið. Vart getur það talist ábyrg stjórnun í erfiðu árferði. Borgarstjórn Reykjavíkur átti þess kost að þessu sinni að taka höndum saman í viðureign við sam- eiginlegan andstæðing: Atvinnuleys- ið. Þegar þannig árar væri æskilegt ef allir flokkar og fylkingar, gætu endurskoðað veganesti sitt og í sam- einingu tekið málefnalega á því sem heitast brennur á borgarbúum um þessar mundir. Vilji minnihluta- flokkanna er til staðar - en sjálf- stæðismenn hafa slegið á útrétt hönd. Eftir stendur sú hryggilega stað- reynd að lausnir eru fáar eða engar í sjónmáli - aðrar en óhóflega upp- söfnun skammtímaskulda og enn verri fjárhagur borgarsjóðs um næstu áramót. Menn hafa hikað. Vonandi aðeins um hríð. Því verði ekki fljótlega gripið til raunhæfra úrræða - er leikurinn tapaður. Höfundur er borgarfuHtrúi Nýs vettvangs. Zeid Ben Shaker forsætisráðherra og einnig með Abdul Karim A1 Kaba- riti, starfandi ferðamálaráðherra. Við vorum sammála um að leggja áherslu á að athuga hvernig unnt yrði að auka viðskipti milli land- anna. Fyrir okkur íslendinga er Jórdanía mjög áhugaverð vegna þeirra trúarsögulegu minja sem þar eru og er ógleymanlegt að kynnast, og fornborgarinnar Petru, sem hafði verið lokuð vestrænum mönnum um aldir. Þar eru mjög merkilegar forn- minjar frá ómunatíð. Halldór Blöndal samgönguráðherra Anægjuleg og áhugaverð heimsókn til Jórdaníu HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra, fór í opinbera heimsókn til Jórdaníu í byrjun þessa árs. Halldór sagði ferðina gagnlega og ánægjulega og átti hann fund með forsætisráðherra landsins og starf- andi ferðamálaráðherra. Ræðismaður íslands í Jórdaníu, Stefanía Kahlife, greiddi mjög götu okkar, og það var skemmtilegt að sjá íslenska fánann blakta yfir skrif- stofu hennar. Hún er okkur ómetan- leg í sambandi við hvers konar tengsl, viðskipti og möguleika sem við kunnum að hafa í Miðausturlönd- um. Maður hennar er umfangsmikill eigandi verksmiðju á sviði efnaiðnað- ar og hefur hann hug á því að fjár- festa hér á landi ef hann sér mögu- leika á, í tengslum við annan rekstur sinn. Við gerðum samkomulag um það, ég og starfandi ferðamálaráðherra Jórdaníu, að skiptast á gagnkvæm- um heimsóknum þeirra aðila úr við- skiptalífinu í báðum löndum sem sjá möguleika á frekari viðskiptum. Jórdanía gæti jafnframt opnað leiðir inn í önnur lönd þessa heimshluta.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.