Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 2
800f jJAUMAl .08 íJUÍ)AOUJ.aUW Gia/ja/UOÍlOí/ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993 Veghefíll á viltígötum Morgunblaðid/Albert Kemp Veghefíll sem sendur var frá Fáskrúðsfírði til að opna vegi sem lokuðust í fannferginu sem kyngdi niður á sunnudag, endaði för sína utan vegar enda hafði skafið í háa skafla og ekki augljóst hvar voru vegir og hvar vegieysur. Öflugur vörubíll með krana og hefiltönn var gerður út af örkinni til að koma ruðningstækinu upp á veg og í gagnið á ný. Ekki skorti verkefnin; meðal annars þurfti að ryðja í gegnum þijú snjóflóð sem fallið höfðu á veginn við Vatt- amesskriður. Hin seinni ár hafa 10 til 15 bát- ar veitt lax á alþjóðlega hafsvæðinu milli íslands og Noregs. Þær veiðar hafa verið bannaðar samkvæmt al- þjóðlegu samkomulagi síðustu árin, en útgerðir sumra bátanna gripu þá til þess ráðs að skrá bátana í Póllandi og Panama sem eiga ekki aðild að veiðibanninu. Staðfesting pólskra embættismanna kemur Stjóm Borgarspítala gengur til viðræðna víð stjómendur Landakots Leitað leiða til hagræðing- ar með aukinni samvinnu Lagt til að sjúkrahúsin vinni saman að gæðasljórnunarverkefnum YFIRSTJÓRN St. Jósefsspítala á Landakoti hefur sent stjóra sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar (Borgarspítala) bréf þar sem óskað er eftir viðræðum um frekari sam- vinnu sjúkrahúsanna tveggja. í bréfinu er lagt til að unnið verði að könnun á rekstri þjónustudeilda, svo sem innkaupa- deilda, þvottahúss, eidhúsa, tölvudeilda o.fl. í þeim tilgangi að finna hagkvæmustu leiðina til rekstrar þessarar starf- semi fyrir báða spítalana. Að sögn Araa Sigfússonar, for- manns stjómar sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar, hefur stjórain samþykkt að ganga til viðræðna um efni bréfsins. Hugað að rneiri verkaskiptingu í bréfi yfirstjórnar St. Jósefs- spítala er lagt til að sjúkrahúsín vinni sameiginlega að ýmsum gæðastjómunarverkefnum í því skyni að bæta þjónustu við sjúklinga og að fagleg starfsemi verði tekin til endurskoðunar með það í huga að halda áfiram að koma á enn frekari verkaskiptingu milli spítalanna með hagræðingu í huga. Þá er lagt til að tilnefndir verði fjórir menn frá hvorum aðila í samvinnunefiid, sem ráðgefandi verði fyrir stjómir spítalanna. Aukin hagkvæmni Að sögn Áma Sigfússonar hefur stjóm sjúkrastofnana samþykkt að senda fjóra aðila til að taka þátt í þessum viðræðum. „Við telj- |H<rr0tmhlaMh t dag Hamingjuleit og losti______ Leikdómur um sýningu Nemenda- leikhússins 12 Brot reið yfir Margréti EA Mildi að mennimir sluppu 22 Marel vekur athygli i Atlanta Kjúklingaframleiðendur hrífast af framleiðslu Afare/ 28 Deilt um lögreglubúninga Ódýraii einkennisföt geta þýtt kjararýmun fyrir lögreglumenn 46 Leiðari odkJos Fjárhagsáætlun ar 24 Reykja víkurborg- Iþróttir ► „Gömlu“ mennimir Sigurður og Alfreð góðir með landsliðinu en liðið hefur tapað tveimur leikj- um af þremur I Noregi. Valdimar Grímsson meiddist í gær. um áhugavert að kanna hvort ekki megi ná frekari hagræðingu og auknum gæðum með þeim hug- myndum sem jiama era lagðar fram,“ sagði Ami í samtali við Morgunblaðið. Höskuldur Olafsson, formaður yfirstjómar St. Jósefsspítala, seg- ist vonast til að viðræðumar við síjóm Borgarspítalans leiði til já- kvæðrar niðurstöðu. „Hugmyndin er að ganga úr skugga um hvort ekki megi auka hagkvæmni og skilvirkni í heilbrigðiskerfinu hér á höfuðborgarsvæðinu. Við af- hentum bráðavaktimar yfir til Bíldudalur Skólahaldi aflýst vegna flensimnar Bíkiudal. AFLÝSA varð skólahaldi í grunnskólanum á BQdudal í gær vegna flensu sem herjað hefur á nemendur og kennara. Flensunni fylgir hár hití, bein- og höfuð- verkir, meltingartruflanir og sárindi í hálsi. Ámi Scheving Thorsteinsson, læknir á Patreksfirði, segir að búið sé að senda blóðprafur suður til Reykjavíkur til mótefnamælingar til að fá staðfest hvort um sé að ræða skæða inflúensu. Flensan ieggst jafnt á böm sem fullorðna og hafa heilu fiölskyldumar verið rúmliggjandi sökum þess. Ástandið á Patreksfirði og nágrenni er ekki jafnslæmt og á Bíldudal að sögn Áma. R. Scmidt. Borgarspítala í fyrra og það er komin ágæt reynsla á það,“ sagði Höskuldur. Hann segir að mikil aukning hafi orðið á þeirri starf- semi sem Landakotsspítali hefur sérhæft sig í á árinu. í maí á síðasta ári, en hann landaði 36 tonnum af Iaxi í Koloberzeg. Teljast það vera um 10.000 laxar á öðra ári í sjó. Rannsókn í Sviss Orri Vigfússon sagði enn fremur að lögregluyfirvöld í Sviss hefðu verið sett í málið og þau beðin að grafast fyrir um framgang málsins þar í landi, en talið væri að afkasta- miklar reykiðjur keyptu laxinn til vinnslu. „Löndin sem eiga hlut að vemdun laxins í hafinu era lítið hrifin af tiltæki Pólveija. Mörg þeirra hafa stutt Pólveija efnahags- lega í þrengingum þeirra eftir að kalda stríðinu lauk og vilja að þeir virði á móti fjölþjóðlegar tilraunir til náttúravemdar í stað þess að láta stjómast af skammtímasjón- armiðum. íslendingnr skot- inn til bana í Chile RAGNAR Ragnarsson, skipstjóri hjá Friosur í Chile, var skotinn tíl bana í Chile aðfaranótt laug- ardagsins. Hann var ásamt konu sinni gestkomandi á heimili þýsks vinar sína þegar atburður- inn varð. Annar gestur í húsinu, ChQemaður, skaut Ragnar til bana með byssu húsráðandans. Útför Ragnars Ragnarssonar var gerð í heimabæ hans, Puerto Montt, i Chile i gær. Samkvæmt upplýsingum starfs- manna Friosur voru tildrög atburð- arins á þá leið að upp hafði komið ágreiningur í samkvæminu þar sem Ragnar og kona hans vora gest- komandi. Húsráðandinn sótti byssu sem hann á og skaut af henni upp í loft en þá réðst á hann maður, tók af honum byssuna og skaut Ragnar tveimur skotum. Ragnar mun hafa látist áður en á sjúkrahús var kom- ið. Banamaður Ragnars er í haldi Iögreglu í Chile. Gestgjafinn hefur einnig verið kærður fyrir að eiga ólöglegt skotvopn. Ragnar Ragnarsson fæddist 19. febrúar 1960 og var því tæpra 33 ára. Hann hafði verið búsettur í Chile í u.þ.b. tvö ár. Hann var skip- stjóri á Friosur I, flaggskipi sam- nefnds útgerðarfyrirtækis sem Grandi hf. á um 20% hlut í. Hann Ragnar Ragnarsson var kvæntur chileskri konu, átti með henni nokkurra mánaða gam- ait barn og hafði gengið eldra bami hennar í föðurstað. Ragnar Ragnarsson var næst- yngstur sex bama hjónanna Ragn- ars Franzsonar og Lofthildar Lofts- dóttur. Útför Ragnars Ragnarssonar var gerð í Chile í gær. Vegna laga þar í landi reyndist ekki unnt að fresta henni til að hans nánustu hér á landi gætu verið viðstaddir. Laxiúrsjó | landaðí Póllandi | FULLTRÚAR pólsku ríkis- stjóraarinnar hafa staðfest I I samtölum við Alþjóðakvóta- kaupanefndina að sænskir og danskir laxveiðibátar hafi fengið að landa laxi óáreittir í pólska hafnarbænum Kolo- berzeg þrátt fyrir að islensk- um stjórnvöldum hafí verið heitið því að fyrir slikt yrði tekið. Orri Vigfússon, for- maður kvótakaupanefndar- innar, sagði afskiptaleysi pólskra stjórnvalda með ólík- indum og þeir bæru fyrir sig að þeir ættu eftir að setja reglugerðir um framkvæmd löndunarbanns. Laxinn hefur verið fluttur frá Póllandi til Sviss þar sem hann er full- nnninn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.