Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C 20. tbl. 81.árg. ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Morð við höfuðstöðvar CIA OÞEKKTUR byssumaður skaut tvo menn til bana og særði þijá fyrir utan höfuðstöðvar bandarísku leyniþjónustunnar CIA skammt fyrir utan Washington í gær. Fómarlömbin voru í fjórum bílum sem biðu við gatnamót eftir því að geta beygt inn innkeyrslu sem liggur að höfuðstöðvunum. Sjónarvottar gátu lýst manninum fyrir lögreglu en hann hafði ekki náðst í gærkvöldi. Sögðu þeir að svo virtist sem byssu- maðurinn hefði ekki valið sér fórnarlömb heldur skotið handahófs- kennt á kyrrstæðar bifreiðarnar. Á myndinni sést annar hinna látnu. Danski forsætisráðherrann leggur fram ráðherralista Ráðhemim fjölgað — konur aldrei fleiri Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞEGAR Poul Nyrup Rasmussen forsætisráðherra Dan- merkur kynnti stjórn sína í gær, kom í ljós að þrjú ný ráðuneyti höfðu bæst við. Ráðuneytin eru nú 24 í stað 21 í fyrri stjórn. En fjöldi ráðherra er ekki aðeins nýtt met, aldrei hafa jafn margar konur sest í ráðherrastóla, en átta kvenráðherrar eru í nýju stjórninni. Skipting ráðuneytanna lá ekki fyr- ir fyrr en aðfararanótt mánudags. Jafnaðarmenn fá fimmtán ráðherra, mið-demókratar fjóra, róttækir vinstrimenn þijá og Kristilegi þjóðar- flokkurinn tvo. Mimi Jakobsen, for- maður mið-demókrata, fær nýtt ráð- herraembætti, sem felst í samræm- ingu atvinnulífsins, auk þess sem hún er varaforsætisráðherra. Marianne Jelved, formaður Róttæka vinstri- flokksins, verður efnahagsráðherra. Niels Helveg Petersen verður utan- ríkisráðherra eins og búist hafði ver- ið við. Faðir hans var einnig stjóm- málamaður og var meðal annars stuðningsmaður íslendinga í hand- ritamálinu á sínum tíma. Jafnaðarmaðurinn Mogens Lyk- ketoft verður fjármálaráðherra. Eig- inkona hans úr sama flokki, Jytte Hilden, verður menningarmálaráð- herra. Tveir ráðherrar eru undir þrít- ugu, þeir Jann Sjursen orkuráðherra, og jafnaðarmaðurinn Jan Tröjborg, sem er húsnæðismálaráðherra. Vildi gjarnan sjá öll Norðurlöndin í EB Rasmussen sagði við fréttaritara Morgunblaðsins í gær að vissulega kysi hann að sjá öll Norðurlöndin samankomin innan EB, en hvert land yrði auðvitað að gera þau mál upp við sig á eigin spýtur. Hann áliti norræna velferðarkerfið geta verið fyrirmynd annarra Evrópuþjóða og tæki því vel í hugmynd Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra Noregs um ráðstefnu Evrópuríkja um þau mál. Sjá fréttir á bls. 19. • • Oryggisráð SÞ Japanir og Þjóðverjar fái fast sæti Washington. Reuter. WARREN Christopher, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagðist í gærkvöldi hlynntur því að Þjóðveijar og Japanir fengju fastafulltrúa í öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Christopher sagði að þessi breyt- ing væri í samræmi við breytt valda- hlutföll á alþjóðavettvangi. Hann gaf ekki til kynna hvenær hann teldi að af fjölguninni í öryggisráðinu ætti að verða. Fastaríkin eru fimm: Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Rússland og Kína. Bretar og Frakkar eru taldir vera andvígir stækkun ráðsins og af ótta við að það dragi úr áhrifum þeirra á alþjóðavettvangi. Reuter Valdi sér borð Kennedys BILL Clinton Bandaríkjaforseti fer ekki leynt með aðdáun sína á John F. Kennedy heitnum, fyrrverandi forseta. Hefur hann valið sér skrif- borð Kennedys til notkunar í skrifstofu sinni, Oval Office. Hér má sjá forsetann á fundi með Robert Rubin, formanni Efnahagsráðs- ins, sem sjá mun um samræmingu efnahags- stefnu ríkisstjórnarinnar nýju. Króatar gagnrýndir harðlega fyrir sóknina gegn Serbum Bjóða samninga um nýja vopnahléslínu Zadar. London. Reuter. KRÓATAR hafa undanfarna daga sótt fram gegn Serbum við Adríahafið og náð hernaðarlega mikilvægum svæðum á sitt vald. í gær buðu þeir Serbum samninga um nýja vopna- hléslínu sem er 20 km sunnar en sú gamla sem haldist hafði í eitt ár eða fram til þess er Króatar réðust á Serba á föstudag. Króatar hafa nú tryggt sér greiða leið að króatísku borginni Zadar við Adríahafið sem áður var svo gott sem einangruð vegna framrásar Serba. Stefna þeir að því að endurreisa Maslenica-brúna sem Serbar sprengdu árið 1991. Einnig náðu þeir í gær flugvelli í nágrenni Zad- ar. Gojki Susak varnarmálaráðherra Króatíu sagði í gær að Króatar hefðu ekki brotið rétt á Serbum með árás- um sínum. Sameinuðu þjóðimar hefðu það hlutverk að tryggja sam- göngur á þessu svæði en það hefði þeim ekki tekist og því yrðu Króatar að grípa til sinna ráða. Vítalíj Tsjúrkín aðstoðarutanríkis- ráðherra Rússlands gagnrýndi Kró- ata harðlega í gær og sagði að til greina kæmi að Rússar beittu sér fyrir refsiaðgerðum gégn þeim. Ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna for- dæmdi árásir Króata í yfirlýsingu á laugardag. David Owen sáttasemjari varaði við því í gær að bardagar Serba og Króata nú gætu haft mjög alvarlegar afleiðingar. Sjá kort af átakasvæðinu og viðtal á bls. 18. Reuter Sigrum fagnað Króatískur hermaður fagnar sigr- um sinna manna undanfama daga. Finnar á krossgötum Utilokar ekkiaðild að NATO Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. PAAVO Vayrynen, utanríkis- ráðherra Finnlands, flutti ræðu í Alþjóðamálafélaginu í Kaupmannahöfn í gær og sagði að Finnar myndu verða reiðubúnir að leggja fram sinn skerf við að endurbæta og þróa varnarsamstarf þjóða Evrópubandalagsins, EB, er þeir væru sjálfir orðnir aðild- arþjóð. Hann sagði þá heldur ekki útiloka aðild að Atiants- hafsbandalaginu, NATO. Váyrynen sagði Finna verða að taka tillit til þess að í Maastricht hefði verið ákveðið að stefna að vam- arsamstarfi EB. „Við útilokum held- ur ekki að við munum einhvem tíma í framtíðinni taka þátt í hugsanlegu varnarsamstarfi EB innan ramma VES [Vestur-Evrópusambandsins] eða gerast aðilar að NATO.“ Ráðuneyti stöðvar bækling Finnska utanríkisráðuneytið hefur stöðvað frekari dreifingu á sérstök- um bæklingi um finnskar landvamir að ósk Maunos Koivistos forseta. Ritið, sem er á ensku og heitir „The Finnish Defence Review", kom út í desember og hefur m.a. verið dreift fyrir milligöngu sendiráða landsins. í því er grein þar sem sagt er að Finnar eigi kröfu á landsvæði sem Sovétríkin tóku af þeim í síðari heimsstyijöld. Ráðuneytismenn segja að ekki sé um að ræða ótta við viðbrögð Rússa. Um mánaðamótin hefjist hins vegar viðræður um aðild Finna að EB og alls ekki megi við þær aðstæður láta bandalagsþjóðimar standa í þeirri trú að Finnar geri landakröfur á hendur Rússum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.