Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 18
fil SieiJI flAlJV:Al. H'JDACJI.JWIIÍM QId/v*IHHUDíÍOW. 18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993 Enn mörg ljón í veginum - segir Hans Jochen Peters sérfræðingur NATO HANS Jochen Peters, vfirmaöur samskiptadeildar Atlants- hafsbandalagsins (NATO) við ríki Mið- og Austur-Evrópu, var bjartsýnn á frið í fyrrverandi Júgóslavíu þegar Morgun- blaðið ræddi við hann á laugardag, „bjartsýnni en ég hef verið Iengi“ sagði hann. Ástæðan var friðarsamkomulag það sem tekist hefur milli stríðandi aðilja um skiptingu Bosníu. En Peters, sem flutti erindi á hádegisverðarfundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs á laugar- dag, sagði að menn mættu búast við að enn væru mörg ljón I veginum áður en friður rikti á þessum slóðum. Og það var eins og við manninn mælt; um helgina brutust út mikil átök milli Serba og Króata eftir að hirnr síðamefndu réðust inn á svæði sem Serbar hafa hemumið, en friður hafði ríkt þar undir eftir- liti Sameinuðu þjóðanna í eitt ár. Peters var spurður hvort ástæða væri til að ætla að Serbar sætu nú á sér og snem sér ekki að Kosovo-héraði eða nýjum land- vinningum í Króatíu. „Ef þeir létu að sér kveða í Kosovo þá væri það eitthvað það versta sem komið gæti fyrir. Albanir myndu ekki geta horft aðgerðalausir á slíkt. Oryggi í þessum hluta álfunnar yrði stefnt í voða og mikil hætta væri á alþjóðlegu stríði þar sem einhver aðildarríki NATO væm þátttakendur. Það hefur verið reynt að gera Serbum ljóst að valdbeiting í Kosovo yrði ekki lið- in.“ Peters taldi litlar líkur á að átökin í Júgóslavíu fyrrverandi snemst upp í trúarbragðastríð milli kristinna og múslima. En vissulega yrðu utanaðkomandi aðilar eins og NATO að gera íslömskum ríkjum ljóst að ekki væri lagður misjafn mælikvarði á grimmdarverk gegn kristnum mönnum og múslimum. SLÓVENÍA KRÓATÍA BOSNIA- [HERZEGOVÍNA Leiðin tð Zadar ef bniin verður endurreisl. Aðalkort Eina leiðín sem nú er hægt að fara til Zadar. fjrval Maslenica-brú fróatar haía ráðist yfir vopnahlés- linu. setn Samemuðu þjóðimar mórkuðu, til að endurreisa brú sem Setbar sprengdu árið 1991. ADRÍAHAF REUTER BARDAGAR GEISA I KROATIU Króatískar hersveitir náðu flugvellinum í Zemunik við Adríahaf aftur á sitt vald í gær. Króatar og Serbar börðust í þorpum í grenndinni. Fegurst sígaunastúlkna Ifyrsta fegurðarsamkeppni sígauna fór fram í Búkarest í Rúmenlu um helgina en þar í landi eru þeir taldir vera um 410 þúsund tals- ins. Sigurvegari varð 18 ára stúlka, Cristina Manciu og var mynd- in tekin er hún fagnaði sigri að viðstöddum 8.000 áhorfendum, allt sígaunum. Miðasala fer fram á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói alla virka daga kl. 9 17. Einnig eru seldir miðar við daginn 28. janúar, kl. 20.00 msveitarstfóri: Gunther Schuller Einleikari: TommySmith William Sweeney: An Rathad Ur Konsert f. tenór sax og hljómsv. Sally Beamish: Sinfónía fýrir Róbert Haukur Tómasson: Afsprengi Lansinoh Natures Second Skin Græðandi og mýkjandi áburður á þurra og viðkvæma húð. Fæst í Þumalínu og flestum apótekum. Hringiðogfáið sent ókeypis sýnishorn. YMUShf., simi91-46100. Peters sagði að þegar reynt væri að stilla til friðar í Júgó- slavíu fyrrverandi lægju tvö meg- inviðhorf til grundvallar. Annars vegar yrði að binda enda á átökin sem fyret, hryllingurinn mætt ekki halda áfram lengur. Hins vegar yrði að varast að gera fríðareamn- ing þannig úr garði að svo virtist sem einn stríðsaðili færi með sigur af hólmi. En því hefur einmitt verið haldið fram að friðargjörð sáttasemj aran n a Cyrus Vance og Davids Owens verðlauni Serba með því að afhenda þeim hluta af Bosníu. Petere sagðist ekki geta tekið undir þá gagnrýni. Morgunbladið/Þorkell Hans Jochen Peters. Mubarak hvetur Saddam til að fara frá völdum SINFONIUHUOMSVEITISLANDS Háskólabíói við Hagatorg. Sími 622255. árás á skotmörk á flugbannssvæð- inu í suðurhluta íraks á sunnudag. Sögðust flugmennimir^ hafa verið að veijast skotárás en Irakar mót- mæltu því að hafa skotið á flugvél- amar. Slíkt hið sama gerðu þeir sl. fímmtudag og föstudag, héldu því fram í öll skiptin að aðgerðir Baridaríkjamanna hefðu verið til- efnislausar. Bandarísk yfirvöld staðfestu í gær að ratsjárgeislum hefði ekki verið beint að flugvélunum á sunnudag en verið væri að kanna hvort flugmennimir hefðu sagt rangt til um meinta árás frá loft- vamarbyssum. I fyrri tilvikunum tveimur var geislum loftvamar- kerfa læst á þotur yfír norðurhluta íraks. Menn sem fróðir eru um vamar- mál telja að írakar freisti þess að rugia nýju valdhafana í Bandaríkj- unum í ríminu með því að halda fram sakleysi sínu. írösk yfirvöld segja að tilboð þeirra um vopnahlé frá í byijun síðustu viku standi óhaggað. Hafi þau gefið fyrirmæli um að ögmnum á flugbannssvæð- unum skuli hætt. Þykja meintar árásir á bandarískar flugvélar síð- ustu daga til marks um óhlýðni yfirmanna á svæðunum. Eftirlitsmenn koma til Bagdad Tvær sveitir eftirlitsmanna á vegum SÞ komu I gær til Bagdad til þess að leita upplýsinga um framleiðslu og áætlanir um smíði gereyðingarvopna. Meðal annars verður reynt að fá íraka til að gefa upplýsingar um hvaða erlend ríki hafa séð þeim fyrir hlutum til smíði kjamorkuvopna. Bonn. Reuter. HOSNI Mubarak forseti Egyptalands skoraði á Saddam Hussein íraksforseta að draga sig í hlé í viðtali sem birtist I þýska vikuritinu Spiegel í gær. Mubarak sagði að hernað- arleg ævintýramennska Saddams hefði leitt hörmungar yfir irösku þjóðina og besta leiðin fyrir þjóðina út úr þreng- ingum væri að Saddam segði af sér. „Sé honum annt um velferð Mubarak sagði að Saddam væri þjóðar sinnar ber honum að afsala haldinn undarlegri valdasýki og sér völdum. Refsiaðgerðir Samein- uðu þjóðanna (SÞ) verða við lýði meðan Saddam situr við völd,“ sagði Mubarak. enginn leiðtogi í arabaríkjunum skildi íraksforsetann eða fyrirætl- anir hans. Bandarískar oirustuþotur gerðu Havel nær Öruggur Prag. Reuter. ÞÓTT vinsældir Vaclavs Ha- vels, fyrverandi forseta Tékkó- slóvakíu sem var, hafi minnkað mjög í Tékkneska lýðveldinu síðustu mánuði er hann talinn nær öruggur um að ná kjöri til embættis fyrsta forseta hins nýja lýðveldis á þingi í dag. Meiri óvissa ríkir í Slóvakíu þar sem einnig fer fram forseta- kjör. Samkvæmt skoðanakönnunum nefna 45% kjósenda Havel þegar spurt er um hæfasta stjómmála- mann landsins en sl. sumar fékk hann 60% fylgi í könnunum. Sam- steypustjóm landsins undir for- ystu Vaclavs Klaus hefur þegar tilnefnt Havel I forsetaembættið en stjómin hefur 105 sæti af 200 á bak við sig. Óljóst er hvað veld- ur dvínandi vinsældum Havels en sumir kjósendur segjast álíta að hann hafi breyst í hefðbundinn stjómmálamann. Hann hafi upp- ranalega sett óteljandi skilyrði fyrir því að taka við embættinu en að lokum hafi hann kyngt öllu til að vera viss um að hreppa það. í Slóvakíu þarf forseti að hljóta þrjá fímmtu atkvæða á þinginu þar sem 150 fulltrúar sitja. Allir Qórir helstu flokkamir hafa til- nefnt frambjóðendur og því líklegt að kjósa þurfi oftar en einu sinni. í annarri umferð er kosið milli tveggja efstu úr fyrstu umferð en hætt er við að þörf verði á fleiri tilraunum vegna áðumefnds skil- yrðis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.