Morgunblaðið - 31.07.1991, Blaðsíða 40
RISC SYSTEM/6000
KE YRIR UNIX
FRAMTÍÐARINNAR:
IBM AIX
— svo vel
sétryggt
SiÓVÁ ALMENNAR
MIÐVIKUDAGUR 31. JULI 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Kringlumýrarbraut breikkuð
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Mikil umferðarteppa myndaðist á Kringlumýrarbraut síðdegis
í gær. Þar stóðu þá sem hæst malbikunarframkvæmdir en
verið er að breikka götuna og fullgera þriðju akreinina á syðri
akbraut götunnar, milli Reykjavíkur og Kópavogs.
Ákvörðun um veiðar á næsta kvótatímabili:
Um 7-8 milljarða samdráttur
verður í útfhitningstekjum
AÆTLAÐ er að verðmæti botnfiskafla dragist saman um 10-12% á
næsta ári í kjölfar ákvörðunar Þorsteins Pálssonar um leyfilegt afla-
magn á næsta kvótatímabiii, 1. september 1991 til 31. ágúst 1992.
Að sögn sjávarútvegsráðherra jafngildir samdrátturinn 7-8 milljarða
króna samdrætti útflutningstekna. „Með þessum vanda hljótum við
að knýja á um aukna hagræðingu í greininni," sagði Þorsteinn Páls-
son sjávarútvegsráðherra á blaðamannafundi í gær.
Samkvæmt reglugerð sjávarút-
vegsráðherra má á næsta kvóta-
tímabili veiða 265 þúsund tonn af
þorski, 50 þúsund tonn af ýsu, 75
þúsund tonn af ufsa, 90 þúsund
^.onn af karfa, 25 þúsund tonn af
grálúðu, 11 þúsund tonn af skar-
kola, 110 þúsund tonn af síld, 28
þúsund tonn af úthafsrækju og
5.500 tonn af innfjarðarækju.
„Með þessari ákvörðun er lítillega
vikið frá tillögum Hafrannsókna-
stofnunar vegna þeirrar þröngu
efnahagslegu stöðu, sem við erum
í. Þetta hefur mikil áhrif á þjóðarbú-
skapinn í heild og við teljum að við
þessar aðstæður sé óhjákvæmilegt
að huga að mótun heildstæðrar
sjávarútvegsstefnu,“ sagði Þor-
^teinn Pálsson.
Kristján Ragnarsson formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna segir áhrif 12% samdráttar
á heildaraflanum sambærileg við
það að Vestmannaeyjahöfn,
stærstu löndunarhöfn landsins, yrði
lokað í heilt ár. Kristján kveðst
harma að sjávarútvegsráðherra hafi
zikki tekið meira tillit til tillagna
LÍÚ við ákvörðun sína og í sama
streng tekur Benedikt Valsson
framkvæmdastjóri Farmanna- og
fiskimannasambands íslands hvað
varðar tillögur FFSÍ. Einkum gagn-
rýna þeir ákvörðun um hámarksafla
ufsa, síldar og skarkola.
Jakob Jakobsson. forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar segir að sjald-
an eða aldrei hafi verið farið jafn-
nærri tillögum stofnunarinnar við
ákvörðun veiðiheimilda og nú. Ósk-
ar Vigfússon formaður Sjómanna-
sambandsins kveðst telja að sjávar-
útvegsráðherra hafi gert rétt með
því að víkja svo lítið frá tillögum
Hafrannsóknastofnunar sem raun
ber vitni. Hann segir stórfellda
kjaraskerðingu sjómanna óhjá-
kvæmilega og segir fyrstu kröfu
sjómanna vera þá að inngreiðslum
í verðjöfnunarsjóð verði hætt.
Sjá bls. 4 og Úr verinu bls. Bl.
Fólk saknað á hálendi:
Fundust við
bíl sinn eftir
skamma leit
HJÓN frá Húsavík og þrjár er-
lendar konur, sem saknað var í
bíl á hálendinu, fundust heil á
húfi í gærkvöldi. Bíll þeirra hafi
festst skammt frá Kiðagilsöldu.
Lögregla á Húsavík sótti fólkið
og var áætlað að komið yrði með
það til Húsavíkur skömmu eftir
miðnætti i nótt.
Fólkið, sem var á fjórhjóladrifn-
um og sérútbúnum Dodge sendibíl
hafði ætlað Gæsavatnaleið niður í
Bárðardal og hafði í hyggju að
koma til Húsavíkur á sunnudag.
Farið var að spyijast fyrir um það
um hádegið í gær og reyndist það
ekki vera í sæluhúsum á leiðinni.
Um klukkan 16.30 lagði fjallabíll
lögreglunnar á Húsavík af stað til
leitar og um svípað leyti fór þyrla
Landhelgisgæslunnar í loftið og
flaug eftir uppgefmni leið fólksins
og fann bílinn fljótlega. Fólkið var
við bílinn og heilt á húfi.
Þyrlan feijaði fimmmenningana
yfir í bíl lögreglunnar sem ók því
til byggða. Bíllinn var skilinn eftir
og verður vitjað um hann síðar.
Bjart og hiýtt
veður verður
fram að helgi
BÚIST er við suðaustlægri átt
um allt land fram á föstudag.
Víðast hvar verður léttskýjað
og hlýtt í veðri. Helst má búast
við því að skýjað verði á Suður-
og Austurlandi.
Hlýtt og bjart veður verður
víðast um land næstu daga. Spáð
er hægri suðaustlægri átt og hlýju
veðri um allt land. í dag er spáð
11-18 stiga hita hérlendis og er
líklegt að hitastig verði svipað
fram að helgi. Víðast hvar verður
léttskýjað en búast má við því að
skýjað verði við suður- og austur-
ströndina.
Ekki er enn sem komið er hægt
að fá upplýsingar um veðrið um
verslunarmannahelgina hjá Veð-
urstofu íslands.
Álagning opinberra gjalda:
IBM greiðir mest í Reykjavík
Fyrirtækið greiðir 286 milljónir króna, 125 milljónum meira en Eimskipafélagið
IBM World Trade Corporation hf. er gert að greiða hæstu heild-
argjöld í Reylyavík, eða um 286 milljónir króna, samkvæmt
álagningarskrá Skattstofunnar í Reykjavík fyrir árið 1991.
Næst hæstu gjöld fyrirtækja í Reykjavík á Eimskipafélag Is-
lands að greiða, eða um 161 milljón króna. Þorvaldur Guðmunds-
son er með hæstu heildargjöld einstaklinga, rúmlega 33 milljón-
ir, og næst hæstur er Skúli Þorvaldsson, með um 13,5 milljónir.
íslenskir aðalverktakar eiga
að greiða hæstu heildargjöld fé-
laga og annarra lögaðila í
Reykjanesumdæmi samkvæmt
álagningarskrá, eða rúmlega 327
milljónir króna. Næst hæstu
gjöldin lenda á Stálskipum hf. í
Hafnarfirði, eða tæplega 69 millj-
ónir króna. Geir Gunnar Geirs-
son, Vallá á Kjalarnesi, á að
greiða hæstu heildargjöld ein-
staklinga í Reykjanesumdæmi,
um 12 milljónir króna, og Helgi
Vilhjálmsson, Hafnarfirði, næst
hæstu gjöldin, eða tæplega 11
milljónir.
Samkvæmt upplýsingum frá
embætti ríkisskattstjóra nemur
heildarálagning opinberra gjalda
á lögaðila í landinu rúmlega 10,3
milljarða, heildarálagning á ein-
staklinga um 41,3 milljarða og
heildarálagning á böm um 47,9
milljarða. Að sögn Bolla Þórs
Bollasonar, skrifstofustjóra í
fjármálaráðuneytinu, eru þessar
niðurstöður nánast alveg í sam-
ræmi við tekjuáætlun fyrir árið
1991, sem gerð var skömmu eft-
ir að ný ríkisstjórn tók við í vor.
Helsta frávikið frá fjárlögum árs-
ins sé hins vegar vegna laga-
breytinga á Alþingi í vor, sem
höfðu í för með sér lækkun skatta
fyrirtækja um milli fjögur og
fimm hundruð milljónir króna.
Sjá fréttir á bls. 14.