Morgunblaðið - 31.07.1991, Page 39
í
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 31. JULI 1991
39
GOLF / LANDSMOT
íslandsmeistararnir í fyrra; Úlfar Jónsson Keili og Karen Sævarsdóttir
GS. Margir veðja á að þau verji titla sína á Hellu.
Búist vid bar-
áttu Sjguijóns
oglllfars
Karen Sævarsdóttirtalin líklegust til sigurs
í meistaraflokki kvenna
HANDKNATTLEIKUR
-I
KEPPNI í meistaraflokki og 1.
flokki á Landsmótinu í golfi
hefst á Strandarvelli á Hellu í
dag. Flestir virðast búast við
mikilli baráttu íslandsmeistar-
ans Úlfars Jónssonar úr Keili
og Sigurjóns Arnarssonar úr
Golfklúbbi Reykjavíkur um ís-
landsmeistaratitilinn. í kvenna-
flokki veðja margir á að Karen
Sævarsdóttir úr Golfklúbbi
Suðurnesja fari með sigur af
hólmi.
Að mati nokkurra kennara sem
starfa hjá golfklúbbunum mun
baráttan standa á milli Úlfars og
Siguijóns og að auki voru nokkrir
aðrir nefndir til sögunnar sem
líklegir til afreka ef þessir tveir léku
ekki eins og þeir geta best.
„Breiddin er orðin svo mikil að
það má lítið út af bera hjá Úlfari
og Siguijóni. Ef þeir leika ekki vel
þá eru um tíu kylfingar sem gætu
bankað á dyrnar,“ sagði Sigurður
Pétursson, kennari hjá GR og fyrr-
verandi íslandsmeistari. Hann bætti
því við að hann ætti ekki von á
óvæntum sigurvegara á Hellu.
„Það er erfítt að þurfa að gera
upp á milli tveggja frábærra kylf-
inga, en ef Siguijón nær að halda
haus alla dagana þá held ég að
hann hafi það. Ragnar Ólafsson
verður ekki langt undan þeim félög-
um og Guðmundur Sveinbjörnsson
úr Keili mun standa sig vel,“ sagði
Sigurður.
Arnar Már Ólafsson kennari hjá
Keili var sammála Sigurði um að
baráttan stæði á milli Úlfars og
Siguijóns og að Guðmundur yrði
framarlega. „Úlfar hefur þetta á
reynslunni," sagði hann og bætti
því við að sjö Keilismenn yrðu í tíu
efstu sætunum.
Phillip Hunter hjá GS sagðist
búast við að Úlli hefði sigur í barátt-
unni við Siguijón og hann nefndi
einnig til leiks Sigurð Sigurðsson
úr GS, fyrrum Islandsmeistara.
„Sigurður er í góðri æfingu og ef
honum gengur þokkalega fyrstu
dagana þá er hann til alls líklegur
því hann er mikill keppnismaður,“
sagði Hunter.
David Barnwell hjá GA var með
röð efstu manna á hreinu. „í karla-
flokki vinnur Úlfar, Siguijón verður
í öðru sæti og Ragnar í þriðja sæti.
í kvennaflokki vinnur Karen, Þórdís
Geirsdóttir úr Keili verður önnur
og Ragnhildur Sigurðardóttir úr
GR þriðja," sagði hann.
Sigurður Pétursson bjóst við
keppni milli Karenar og Ragnhild-
ar, þær hefðu báðar leikið vel og
hann bjóst einnig við að Ásgerður
Sverrisdóttir blandaði sér í barátt-
una um efsta sætið.
„Karen vinnur og síðan beijast
þær Þórdís og Ragnhildur um ann-
að sætið. Ég vona líka að Herborg
Arnarsdóttir úr GR leiki vel og nái
sér á strik,“ sagði Arnar Már.
„Karen vinnur og Ragnhildur
verður í öðru sæti. Hún hefur leikið
vel en Karen er sterkari. Herborg
og Svala Óskarsdóttir munu beijast
um þriðja sætið,“ sagði Phillip
Hunter.
Kylfíngarnir hefja leik klukkan 8
í dag og það eru meistaraflokks-
menn sem byija. í fyrsta riðli verða
Haraldur M. Stefánsson frá Borgar-
nesi, Eiríkur Guðmundsson úr GR
og Tryggvi Traustason úr Keili.
Þátttaka í meistaraflokki er mjög
góð og 51 kylfingur mun beijast
um íslandsmeistaratitilinn. „Völlur-
inn er mjög góður og gerir miklar
kröfur. Hann er fljótur að refsa
manni og því verða menn að halda
haus allan tímann,“ sagði Sigurður
Pétursson um völlinn á Hellu.
Michal Tonar
með HK í vetur?
ALLAR líkur eru á að tékknesk-
ur landsliðsmaður í handknatt-
leik, Michal Tonar, leiki með
1. deildarliði HK úr Kópavogi í
vetur.
Tonar er örvhentur og öflugur
bæði sem skytta og hægri
hornamaður. Hann og hinn kunni
Sovadina hafa einmitt oft skipst á
um að leika þessar tvær stöður í
landsliðinu.
Tonar, sem verður 22 ára í næsta
mánuði, er 190 sentímetrar á hæð
og einn besti handknattleiksmaður
Tékkóslóvakíu. Hann hóf ferilinn
hjá Skoda Plzen, en lék síðar með
Dukla Prag um tíma — eins og
Michal Tonar
bestu handboltamenn landsins
gerðu meðan kommúnisminn var
og hét í landinu. Hann fór síðan
aftur til gamla félagsins eftir bgpt-
ingarnar í landinu.
Tonar var með tékkneska lands-
liðinu á Spánarmótinu sem lauk um
sl. helgi og gerði þá m.a. fimm
mörk gegn Júgóslavíu.
Þjálfari HK í vetur verður sá
sami og í fyrra, en hann er einmitt
einnig Tékki — Rudolv Havlik, fyrr-
um þjálfari Dukla Prag og landsliðs
Tékkóslóvakíu. Annar tékkneskur
landsliðsmaður leikur sem kunnugt
er hér á landi, Petr Baumruk hjá
Haukum.
luémR
FOLK
■ ARNAR Már Ólafsson golf-
kennari hjá Keili og þeir John
Drummond og Phillip Hunter
golfkennari hjá GS halda til Holl-
ands á Evrópumeistaramót golf-
kennara. Mótið hefst 6. ágúst og
leiknar verða 72 holur.
■ TRYGGVI Trausúison, meist-
araflokksmaður í Golfklúbbnum
Keili, slasaðist á vinstri hendi fyrir
skömmu og varð að sauma nokkur
spor. Hann hefur því lítið getað
æft, en ætlar engu að síður að taka
þátt í Landsmótinu á Hellu sem
hefst í dag og er í fyrsta riðli, sem
fer út kl. 8 árdegis.
■ SIGRÚN Stefánsdóttir frá
Sjónvarpinu kom upp í GR á dögun-
um til að taka upp hluta í þátt sinn
Hristu af þér slenið. Ákveðið var
að taka upp á 14. brautinni og þeg-
ar allt var klárt, að mati sjónvarps-
manna, hófst upptakan. Jens Sig-
urðsson, ungur kylfingur úr GR
sló annað höggið á par 4 holunni
glæsilega og fór boltinn beint ofaní
holuna. Flott myndefni, en því mið-
ur kom í Ijós að filman var ónýt!
ISLAN DSMOTIÐ SAMSKIPADEILD
• •
SANDGRASVOLLURINN
I KÓPAVOGI
Breiðablik - Víðir
kvöld kl. 20
i
BYKO
Mætum öll!
Aðkoma fyrir óhorfendur að sandqrasvellinum er sú
sama og að Kópavogsvelli. Bifreiðastæði eru við Fífuhvamms?
veginn og miðasalan er við norðurhlið Kópavogsvallar.