Morgunblaðið - 31.07.1991, Qupperneq 38
- 38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 1991
KNATTSPYRNA
>
>
Ætlaði ekki að
leika í sumari
Stefán Amarson markvörður hefur átt
mjög góða leiki með FH
STEFÁN Arnarson, markvörð-
ur FH hefur staðið sig mjög vel
með liði sínu í sumar og fyrir
síðasta deildarleik gegn KR
fékk hann hæstu einkunn sum-
arsins hjá Morgunblaðinu, þrjú
M, og er nú efstur í einkunna-
gjöf blaðsins með fjórtán M.
Stefán hafði ekki hugsað sér
að leika knattspymu í sumar,
hann ætlaði að taka sér hvíld eftir
erfitt keppnistímabil með Gróttu í
handknattleiknum en allar áætlanir
hans þar að lútandi fóru út í veður
og vind þegar forráðamenn FH
höfðu samband og báðu hann um
að leika með liðinu til maíloka.
Aðalmarkvörður félagsins, Halldór
Halldórsson, hafði þá meiðst í æf-
ingaferð til Jamaíka og liðið var í
markmannsvandræðum. „Ég var
mjög tregur til enda ætlaði ég að
taka mér gott frí. Það var hins
vegar lagt hart að mér að leika
með liðinu til maíloka,“ sagði Stefán
sem á endanum tók fram hanskana
og náði að mæta á þijár æfíngar
fyrir fyrsta leik FH á mótinu gegn
Víkingi. „Ég var slakur í þeim leik
enda ekkert sniðugt að byrja að
spila eftir svo fáar æfingar."
Tókst að halda hreinu
„Leikurinn gegn KR [á sunnu-
daginn] var erfiður og það er sérs-
taklega í öllum horn- og aukaspyrn-
um, þrír þeirra raða sér á línuna
og það getur verið erfitt að eiga
við fyrirgjafímar. En mér tókst að
halda hreinu. Sjálfsagt er þetta
besta tímabilið hjá mér frá því ég
lék minn fyrsta leik með KR fyrir
ellefu árum en hlutimir geta verið
fljótir að breytast. Til að mynda
voru stuðningsmenn FH fljótir að
snúa við mér bakinu eftir að ég
fékk á mig vítaspyrnuna gegn KR.
Félagar mínir voru uppi í áhorf-
endastæðum á leiknum og heyrðu
tvo Hafnfirðinga segja að ég væri
nú bara tólfti KR-ingurinn fyrst ég
hefði gefið liðinu víti.“
Komið víða við
Stefán hefur víða komið við á
knattspyrnuferlinum. Hann er KR-
ingur að upplagi og lék sinn fyrsta
meistaraflokksleik sautján ára. Þá
kom hann inn í liðið er Stefán Jó-
hannsson meiddist. Fjórum ámm
síðar ákvað Stefán að freista gæf-
unnar hjá Val og var á Hlíðarenda
í þijú keppnistímabil. „Það virtist
vera alveg sama hvernig Stebbi
[Jóhannsson] stóð sig, hann fór allt-
Varla með úl
tímabilið
af í markið aftur og það var aðalá-
stæðan fyrir því að ég ákvað að
skipta um félag,“ sagði Stefán sem
sneri aftur á heimaslóðimar og lék
með KR fram til 1988. „Ég ákvað
að hætta í knattspyrnunni eftir leik-
inn við Tindastól þegar við féllum
út úr bikarnum, var búinn að fá
mig fullsaddan af knattspyrnu og
var harðákveðinn í að nú væri ég
að leika mitt síðasta tímabil í knatt-
spyrnunni. Ég stóð ekki við þau orð
því ég lék með Tindastóli í fyrra.
Það sem réði mestu um það var að
ég hafði alltaf haft áhuga á því að
búa úti á landi.“
Sjö lið í fallbaráttu
„Okkur hefur gengið vel upp á
síðkastið en ég lít þó þannig á
málin að við séum ekki lausir við
fallbaráttu. Deildin er mjög opin,
Fram, KR og hugsanlega Víkingur
em einu liðin sem em búin að bjarga
sér, hin liðin geta öll fallið," segir
Stefán sem stendur í marki FH í
kvöld en liðið mætir þá ÍBV í Eyj-
um. „Ég á von á erfiðum leik, það
verður án efa mikil stemming í
Eyjum því þjóðhátíðin er að byija
Stefán leikur líklega ekki með FH út keppn-
istímabilið. Hann er meiddur — liðbönd em
tognuð í hné — og læknar hafa sagt honum að ef
að hann ætlar að fá sig góðan af meiðslunum þá
verði hann að taka sér algjöra hvíld í þijár vikur.
„Ég leik örugglega með FH í undanúrslitaleikn-
um í bikarnum gegn Víði 8. ágúst en er síðan
ekki viss um það hvort ég leiki fleiri leiki með lið-
inu. Auðvitað verður erfitt að slíta sig frá FH sér-
staklega þegar vel gengur en ég þarf líka að hugsa
um Gróttu. Ef ég „þjösnast“ á hnénu út sumarið
gæti ég ekki leikið fyrstu leiki Gróttu í handboltan-
um,“ sagði Stefán sem ekki hefur æft að undan-
förnu vegna meiðslanna.
og leikmenn eru örugglega ákveðn-
ir í að gera betur en gegn Víði um
síðustu helgi,“ sagði Stefán en 12.
umferð íslandsmótsins hefst í kvöld
með þremur leikjum; ÍBV-FH,
UBK-Víðir og KR-Víkingur. Um-
ferðinni lýkur síðan annað kvöld en
þá mætast Valur og Fram og
Stjarnan leikur við KA.
Morgunblaðið/Einar Falur
Stefán Arnarson hefur leikið mjög vel með FH í sumar. Hann fór til félags-
ins vegna meiðsla aðalmarkvarðarins og ætlaði að vera með út maí-mánuð...
GOLF / LANDSMOT
Frábært skor
hjá Valdimar
Morgunblaðið/SUS
Haraldur Júlíusson úr GA slær
fyrsta höggið á Landsmótinu. Hann
lék á 84 höggum í 2. flokki.
VALDIMAR Þorkelsson úr GR
lék manna best á fyrsta degi
Landsmótsins ígolfi sem hófst
á Hvaleyrarvelli ígær. Hann
kom inn á 71 höggi sem er frá-
bært skor hjá manni í 2. flokki.
Par vallarins er 68 þannig að
Valdimar var aðeins 3 yfir
pari og ef hann leikur eins það sem
eftir er ætti hann ef til vill frekar
að keppa á Hellu, en þar leika
meistaraflokkur og 1. flokkur. Tals-
vert rok var á Hvaleyrinni í gær
þegar leikið var.
I 2. flokki kvenna hefur Sigur-
björg Gunnarsdóttir úr GS forusstu,
lék á 95 höggum og Kristján V.
Kristjánsson úr Keili er með forustu
í 3. flokki karla, en hann kom inn
á 81 höggi.
Efstu menn eru:
2. flokkur karla:
Y aldimar Þorkelsson, GR..............71
Ágúst Húbertsson, GK..................76
Þorgeir V. Halldórsson, GS............79
Jón B. Hannesson, GA..................79
Pálmi Einarsson, GHH....................79
Annel Þorkelsson, GK....................79
Guðbjartur Þormóðsson, GK...............79
2. flokkur kvenna:
Sigurbjörg Gunnarsdóttir, GS............95
Magdalena s. Þórisdóttir, GS............99
Hafdts Gunnlaugsdóttir, GS.............105
Sigrún Gunnarsdóttir, GR...............106
Selma Hannesdóttir, GR.................107
Sigríður Kristinsdóttir, GR............108
3. flokkur karla:
Kristján V. Kristjánsson, GK............81
Kristinn Kristjánsson, GÍ...............82
Elías Helgason, GK................... „84
Guðmundur Sigurðsson, GR................84
Viktor Sturlaugsson, GR.................84
Mm
FOLX
■ FALUR Harðarson leikur með
körfuknattleiksliði Keflvíkinga í
vetur. Hann heldur til Banda-
ríkjanna í haust þar sem hann
verður við nám í tvö ár.
■ BRYNJAR Harðarson hefur
skipt í ÍBK frá Snæfelli og ungl-
ingalandsliðsmaðurinn Nökkvi
Már Jónsson kemur einnig aftur
til liðsins, en hann var í Banda-
ríkjunum 1' fyrra.
■ GUÐJÓN Guðmundson fyrr-
um aðstoðarmaður Bogdans Kow-
alczyk, landsliðsþjálfara í hand-
knattleik, hefur verið ráðinn liðs-
stjóri 1. deildarliðs Víkings fyrir
næsta vetur. Guðmundur Guð-
mundsson þjálfar liðið en leikur
ekki með.
■ EYJÓLFUR Sverrisson stóð
sig vel þegar Stuttgart sigraði Int-
er Milanó 2:1 í vináttuleik í Þýska-
landi um sl. helgi. Hann lék í 80
mínútur. Liði Stuttgart hefur
gengið vel í æfingaleikjum fyrir
deildarkeppnina, unnið níu leiki og
gert eitt jafntefli. Þýska úrvals-
deildin hefst um helgina.
■ HÁCKEN, liðið sem Gunnar
Gíslason leikur með, er komið í
16-liða úrslit sænsku bikarkeppn-
innar í knattspymu. Liðið vann
Elfsborg, sem einnig leikur í 1.
deild, 2:0 á útivelli og mætir 1.
deildarliðinu Spárvagen á heima-
velli í kvöld í 8-liða úrslitum.
■ BEN Johnson verður ekki með
á stórmóti í frjálsíþróttum í Svíþjóð
á mánudag. Forráðamenn mótsins,
sem verður í Malmö, riftu samning-
um við kappann vegna þess að hann
hefur ekki náð sér á strik eftir að
hann hóf keppni á ný eftir keppnis-
bann.
■ KEVIN Richardson, miðvall-
arleikmaður hjá Real Sociedad á
Spáni, var í gær seldur til Aston
Villa fyrir 450.000 pund. Hann var
aðeins eitt ár á Spáni, en lék áður
en Arsenal og Everton og varð
enskur meistari með báðum.
FRJALSAR
Vésteinn:
63,86 m
Vésteinn Hafsteinsson kast-
aði kringlunni 63,86 metra
á móti í Laugardal í fyrradag,
aukamóti í framhaldi af keppni
FRÍ, Visa og Masda í Mosfells-
bæ daginn áður. Árangur á
mótinu var mjög góður og var
þetta t.d. lengsta kast Vésteins
í ár og í annað sinn sem hann
kastar lengra lágmarkinu fyrir
HM í Tokyo.
Lettinn Vaclavas Kídíkas
sigraði á mótinu, kastaði 65,05
metra, landi hans Romas Ubart-
as varð annar með 64,74 og
Vésteinn varð þriðji. Síðan
komu: Sven Inge Valvik, Nor-
egi, 62,42 m, Helgi Þ. Helga-
son, USAH, 55,16 m og Unnar
Garðarsson, ÍR, 45,32 m.
Vésteinn Hafsteinsson