Morgunblaðið - 31.07.1991, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3Í. JÚLÍ1991
UOÐLIST
Vill grípa augnablikið
Um þessar mundir er Ari Gísli
Bragason, að senda frá sér
sína þriðju ljóðabók. Blaðamaður
Morgunblaðsins náði tali af skáld-
inu þegar það var nýkomið til
Iandsins eftir að hafa ferðast um
Sovétríkin og Svíþjóð þar sem það
sat rithöfundaþing.
Fékk andagift í Svíþjóð
Ljóðabókin ber heitið í fjarskaog
að sögn Ara Gísla samdi hann flest
ljóðin í Bandaríkjunum þar sem
hann er við nám, eða á ferðalagi
um Evrópu. „A rithöfundaþinginu
í Svíþjóð fylltist ég fítonskrafti og
orti fjöldann allan af ljóðum. Þing-
ið var haldið á lítilli eyju og þar
dvaldist ég í nokkra yndislega
daga með tuttugu öðrum norræn-
um ungskáldum. Meðan á þinginu
stóð skeggræddum við um skáld-
skap og aðrar listir en þess á milli
var gengið um skóga og synt í á
sem þarna var. í ljóðum mínum
er ég ekki síst að lýsa því sem
fyrir augu ber, hvort sem það er
ljótleiki eða lystisemdir mannlífs-
ins eða náttúrunnar. Þegar maður
er á framandi slóðum skerpast öll
skilningarvit og hjá mér brýst
þetta út í ljóðunum. Þegar ég hef
orðið fyrir einhverri reynslu vil ég
miðla henni áfram sem fyrst. Ég
vil grípa augnablikið og gera eitt-
hvað úr því í stað þess að sitja
hjá. Það er ef til vill af þessum
orsökum sem ég hef alltaf gefið
út mínar ljóðabækur sjálfur. Þann-
ig getur maður persónulega fylgt
Ari Gísli Bragason.
málunum eftir en fari maður til
útgefanda getur tekið eitt eða tvö
ár að fá bókina gefna út,“ segir
Ari Gísli.
Trúin veitir styrk
Ari Gísli er kaþólskur og á vet-
urna stundar hann nám í fjölmiðla-
fræði og bókmenntum við jesúíta-
háskóla í Virginíu í Bandaríkjun-
um. „Ég er ekki messurækinn en
tel mig þó trúaðan og ég er viss
um að í trúna sækja allir einhvern
styrk sem þeir geta ekki útskýrt
hvaðan kemur. Eg er mjög heillað-
COSPER
COSPER
- Ég fann loks kjötið, það var undir einni kartöflunni.
Auglýsing
um að álagningu launaskatts á árinu 1991 sé lokið
Tilkynningar (álagningarseðlar), er sýna launaskatt
sem skattstjóra ber að ákvarða, hafa verið póst-
lagðar. Hér er annars vegar um að ræða launa-
skatt skv. b og c liðum 4. gr. laga nr. 14/1965 um
launaskatt með áorðnum breytingum, og hins veg-
ar launaskatt skv. 3. gr. sömu laga sem greiða
bar af greiddum launum á árinu 1990.
Kærur vegna álagðs launaskatts, sem skattaðilum
hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli 1991,
þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðsmanni
hans eigi síðar en 29. ágúst 1991.
31. júlí 1991
Skottstjórinn
Skattstjórinn
Skattstjórinn
Skattstjórinn
Skattstjórinn
Skattstjórinn
Skattstjórinn
Skattstjórinn
Skattstjórinn
Reykjavík. Gestur SteinÞórsson.
Vesturlandsumdæmí. Stelán Skjaldarsoil.
Vestfjarðaumdæmi. filatur Helgi Kjartansson.
Norðurlandsumdæmi vestra. BOfli SÍOUrbjðrnsson.
Norðurlandsumdæmi eystra. Guooar RatO Einarsson.
Austurlandsumdæmi. KaN LaurÍtZSOO.
Suðurlandsumdæmi. Hreion SveÍOSSOO.
Vestmannaeyjum. Ingi T. BjÖtflSSOn.
Reykjanesumdæmi. Sigmundur Stetánsson.
ur af hjáiparstarfi kaþólsku kirkj-
unnar víða um heim og gæti jafn-
vel hugsað mér að starfa við slíkt
í framtíðinni. Ég held að trúin
komi ekki sterkt fram í ljóðum
mínum en margir þykjast þó sjá
þunga trúarlega undiröldu í þeim.
Það er ef til vill ekki mitt að dæma
um það en oft kemur það fyrir að
ég hef samið heilu ljóðin um eitt-
hvert efni sem kemur fyrirvara-
laust upp i huga mér. Þetta kemur
helst fyrir þegar ég er á ferð í
stórborg og þá er bara um að
gera að vera nógu fljótur að
punkta slíkt hjá sér,“ segir Ari
Gísli.
Bandaríkin og Sovétríkin
„Það fer ekki hjá því að maður
beri Bandaríkin og Sovétríkin
saman eftir að hafa farið um þau.
Mér fannst það einkenna muninn
á þessum rikjum að í Bandaríkjun-
um vita menn af vandamálunum
og vilja reyna að leysa þau en í
Sovétríkjunum er eins og fólk hafí
hreinlega gefist upp. Sovéskir ráð-
amenn virðast þó hafa áttað sig á
því að eina leiðin frá hinni miklu
örbirgð er markaðsbúskapur og
vonandi gengur það vel fyrir sig.
Það verður þó að stíga eitt skref
í einu því það er vafasamt að
breyta heilu þjóðfélagskerfi í einu
vetfangi," sagði Ari Gísli að lok-
um.
Hummef
íþróttagallar
wjf
jr* l(W
Veró kr. 5.990,-
Stærðir: S-XXL Litir: Lillað, bleikt og Ijósblátt
Opið laugardaga frá kl. 10-14.
»hummél^P
SPORTBÚÐIN
ÁRMULA 40, SIMI 813555
UTSALAN
KARNABÆR
LAUGAVEGI 66 • SÍMI 22950
DÖMU- HERRA- OG BARNADEILD