Morgunblaðið - 31.07.1991, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 1991
30
Gunnar Jónsson
múrari - Minning
Fæddur 31. maí 1938
Dáinn 21. júlí 1991
Gunnar mágur minn, sá öðlings-
maður, er allur. Mér fannst sem ský
drægi fyrir sól sunnudagsmorgun-
inn 21. júlí, þegar mér var sagt frá
láti hans.
Hann var í sumarleyfi ásamt
konu sinni, Þóru systur minni, þau
höfðu gist í tjaldi að Búðum á Snæ-
fellsnesi nóttina áður en kallið kom,
að morgni sunnudagsins. Þau hjón-
in höfðu ferðast um nesið daginn
áður og notið hinnar dásamlegu
náttúru saman, sem Snæfellsnes
hafði að bjóða þennan dag, það var
þeirra yndi að ferðast um eigið land
í sumarleyfum sínum.
Kynni okkar Gunnars hófust á
bernsku- og æskuárum, þó að ald-
ursmunur okkar væri sex ár kom
það ekki í veg fyrir að hann, þá
átta ára gamall, stundaði fótbolta
með okkur eldri strákunum, er voru
að alast upp í Kleppsholtinu, sem
var að byggjast upp á árunum
1942-50 og ég minninst þess að
hann gaf þeim eldri ekki eftir þó
yngri væri.
Gunnar gekk ekki heill til skóg-
ar, hann hafði um nokkur ár átt
við hjartasjúkdóm að stríða og ver-
ið háður lyfjum við vissar aðstæð-
ur, en stundaði iðn sína eigi að
síður. Gunnar var fæddur 31. maí
1938 í Reykjavík, sonur hjónanna
Jóns Jóhannssonar og Ingvarar
Önngu Guðbjömsdóttur sem bjuggu
í Efstasundi 31, þau eru látin fyrir
all mörgum ámm, hann var einn
af sex börnum þeirra hjóna og er
sá fyrsti sem fellur frá af þeim
systkinum.
Gunnar giftist á afmælisdegi
sínum 31. maí 1959 Þóm Sigur-
björgu, dóttur hjónanna Erlendar
Þórðarsonar og Eyrúnar Runólfs-
dóttur, sem lengst bjuggu á Lang-
holtsvegi 29 og em bæði látin, svo
ekki var langt á milli æskuheimil-
anna á uppvaxtarámm þeirra. Þau
byggðu hús að Glæsibæ 2 í Árbæj-
arhverfi í Reykjavík á ámnum
1962-68, efnin vom ekki mikil og
Gunnar mátti leggja á sig mikla
aukavinnu sem títt var um meðal
ungra húsbyggjenda þeirra ára,
vinnuskipti vom mjög stunduð á
þeim áram og var mörgum efna-
minni húsbyggjanda oft eini mögu-
leikinn til að eignast þak yfir höfuð-
ið og á ég undirritaður margar
minningar þeim stundum tengdar
er við Gunnar og aðrir vinir og
ættingjar okkar unnum að hús-
byggingum okkar saman á kvöldum
að afloknum vinnudegi og einnig
um helgar. Þá var oft glatt í hópn-
um í kaffihléum. Alltaf var gott að
eiga samskipti við þennan góða og
geðprúða mann og leita ráða hans,
þeir em margir ættingjar og vinir
sem minnast góðs drengs og góðra
verka hans á þessari kveðjustund.
Hann vann ávallt að því að fegra
heimilið og lóðina að Glæsibæ 2 og
vann að endurbótum í lóðinni þegar
andlát hans bar að. Kærleikar voru
miklir með þeim hjónum og gott
var að kíkja inn í kaffi á heimili
þeirra.
Þetta tímabil, ungra hjóna, með-
an húsbyggingar standa yfir, reyn-
ist oft erfítt eiginkonu og bömum,
reynir þá oft á þolrifin varðandi
hjónabandið, en að aflokinu basli
og fjárhagsáhyggjum sér í bjartari
tíma.
Á unglingsámm starfaði Gunnar
á skipum Eimskipafélags íslands í
millilandasiglingum og seinna um
nokkurra mánaða skeið starfaði
Gunnar á togaranum Geir. Gunnar
nam iðn sína við Iðnskólann í
Reykjavík, iðnmeistari hans var
Hjálmar Jóhannsson föðurbróðir
hans, Gunnar lauk iðnnámi árið
1962 og starfaði hann við iðn sína
síðan, að frátöldum þeim tíma, sem
hann starfaði við sjósókn.
Þóra og Gunnar eignuðust saman
íjögur böm, áður átti Þóra eina
dóttur, Ellen Sveinbjörgu Óladóttur
húsmóður, gifta Siguijóni Sigur-
jónssyni flugvirkja, eiga þau tvær
dætur, börn Þóru og Gunnars era:
Jón Ingvar, múrari, giftur Guðfínnu
Jónsdóttur húsmóður, þau eiga þijú
börn, Gunnar Þórir, múrari, giftur
Marcia Gunnarsson skrifstofu-
stúlku, Agnes, húsmóðir, gift Svan
Elíssyni iðnverkamanni, eiga tvo
syni, þau em búsett í Svíþjóð, og
Inga Ánna, gift Andrési Frey Gísla-
syni, húsasmíðameistara, og eiga
þau tvær dætur, fjölskyldur barn-
anna búa á Reykjavíkursvæðinu að
undanskilinni fjölskyldu Agnesar.
Á síðastliðnu ári gerðist Gunnar
ásamt yngri bróður sínum Gísla
einn af 27 stofnendum Lionsklúbbs-
ins Fjörgyn í Grafarvogi, hann hafði
áhuga á að vinna vel í þeim félags-
skap og styðja með því starfi ýmis
góð málefni.
Ég get ei minnst Gunna Jóns,
eins og við vinir hans kölluðum
hann alltaf okkar á milli, án þess
að minnast á ánægju hans af því
að renna færi fyrir físk. Ánægjulegt
er að minnast veiðiferða okkar frá
fyrri árum í góðra vina hópi að
fjallavötnunum Hítarvatni, Langa-
vatni og Arnarvatni hinu stóra.
Með Gunnari Jónssyni er genginn
góður heimilisfaðir, sem ætíð hugs-
aði um hag fjölskyldu sinnar. Megi
góður guð gefa Þóru og fjölskyldu
styrk í sorg þeirra. Að leiðarlokum
kveð ég kæran mág, vin og félaga.
Friður sé með sálu hans, friðhelg
veri minning hans.
Eg stend til brautar búinn,
mín bæn til þín og trúin
er einkaathvarf mitt,
ó, Guð, mín stoð og styrkur,
ég stari beint í myrkur,
ef mér ei lýsir ljósið þitt.
Að sama borði bar oss fyrst,
á bijósti móður líf nærðist
hvert bam í heiminn borið;
oss skorti auð og allan styrk
og öllum jafnt var leiðin myrk
við fyrsta ferðasporið.
Og sama brunni ber oss að,
þótt búi hver á sínum stað
og mörg sé mannsins ævi;
að lokum verður leiðin jöfn,
vér lendum brátt í sömu höfn
hjá breiðum banasævi.
(Matthías Jochumsson)
Hafsteinn Erlendsson
Á undanfömum missemm hafa
mörg ný félög og klúbbar séð dags-
ins ljós í hinni nýju byggð í Grafar-
vogi. Ungir menn og konur hafa
tekið sig saman og stofnað félög
sem vilja bæta allt mannlíf, fegra
umhverfíð og aðstoða þá sem minna
mega sín. Einn þessara klúbba er
Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafar-
vogi. 14. maí síðastliðinn var hann
stofnaður af áhugasömum og bjart-
sýnum mönnum. í þeim hópi var
Gunnar Jónsson sem var kvaddur
burt úr heimi fyrirvaralaust 21.
júlí síðastliðinn er hann dvaldi í
sumarleyfí ásamt eiginkonu sinni
vestur á Snæfellsnesi. Það er erfítt
að sætta sig við slíka staðreynd,
erfítt að sætta sig við að Gunnar
sem var fullur af eldmóði, starfsam-
ur og duglegur, skuli ekki lengur
vera á meðal okkar. Við Lionsfélag-
ar vomm þó lánsamir að hafa hann
á meðal okkar hvar hann virtist
njóta sín í góðra vina hópi, þó að
kynnin urðu allt of stutt. Við sjáum
á eftir stofnfélaga, sem var alltaf
reiðubúinn að taka að sér verkefni
sem honum vom falin. Hann var
góður félagi, sem nú þegar hafði
lagt heilmikið af mörkum til okkar
unga klúbbs. Fyrir það framlag
hans viljum við þakka um leið og
við biðjum góðan Guð að blessa
minninguna um góðan dreng. Við
biðjum góðan Guð að styrkja eigin-
konuna Þóru og fjölskyldu í erfiðri
raun.
Sigurjón Þ. Árnason for-
maður Lionsklúbbsins Fjörg-
yn.
t
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
HILMAR ÓLAFSSON,
Safamýri 44,
áður Bólstaðarhlíð 12,
sem lést af slysförum 24. þessa mánaðar, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. ágúst kl. 13.30.
Halldóra Hilmarsdóttir, Ólafur H. Jónsson
og systkini hins látna.
+
Sonur minn og bróðir okkar,
GUÐMUNDUR SIGURJÓNSSON,
Háaleitisbraut 15,
verður jarðsunginn frá kapellunni í Fossvogi fimmtudaginn
1. ágúst kl. 15.00.
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Viggó Sigurjónsson,
Magnús Sigurjónsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för móður okkar,
SIGURLÍNAR BJARNADÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Hrafnistu, Hafnarfirði,
fyrir góða umönnun.
Anna María Hallsdóttir,
Signa Hallsdóttir,
Sigurður V. Hallsson,
Helgi Hallsson,
Olga Anderson.
+
Hjartkær eiginmaður minn og faðir,
GUNNAR ÓLASON
efnaverkfræðingur,
Sólheimum 24,
lést 29. júlí.
Helga Guðmundsdóttir,
Þóra G. Gunnarsdóttir.
+
GUÐRÍÐUR ÁSMUNDSDÓTTIR
fyrrverandi forstöðukona,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
andaðist í sjúkrahúsi Akraness 29. júlí sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Aðstandendur.
+
Ástkær afi okkar,
SIGURJÓN JÓHANNESSON,
Fálkagötu 10a,
Reykjavík,
sem lést 24. júlí, verður jarðsunginn í Nýju kapellunni í Fossvogi
fimmtudaginn 1. ágúst kl. 13.30.
Matthildur Kristmannsdóttir,
Helena Kristmannsdóttir.
+
Konan mín,
BALDVINA H. HAFLIÐADÓTTIR,
Miklubraut9,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. ágúst
kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Barnauppeldissjóð
Thorvaldsensfélagsins.
Haraldur Ágústsson
og aðstandendur.
+
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts
og útfarar móður minnar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR SIGURÞÓRSDÓTTUR,
Vífilsgötu 21.
Gunnlaugur Kristjánsson, Hrefna Guðmundsóttir
og synir.
+
Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur vinarhug og stuðning við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu,
SOFFÍU ALFREÐSDÓTTUR,
Vallarbraut 15,
Akranesi.
Skúli Þórðarson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
ÞORGERÐAR JÓNSDÓTTUR
frá Vík.
Erlendur Einarsson, Margrét Helgadóttir,
Steinunn Einarsdóttir Fink, Albert Fink,
Erla Einarsdóttir, Gísli Felixson
og fjölskyldur.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
KARLS BJÖRNSSONAR
seglasaumara,
Faxabraut 69,
Keflavik.
Sérstakar þakkir til kvennaklúþbs og Karlakórs Keflavíkur.
Ingunn Sigrfður Sigurjónsdóttir,
Sigþór Borgar Karlsson, Guðrún Sigurjónsdóttir,
Vilberg Karlsson, Sigrfður Olsen,
Vigdfs Karlsdóttir, Oddur Guðni Friðriksson
og barnabörn.