Morgunblaðið - 31.07.1991, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 1991
25
ELFA
IVQRTICEl
viftur til allra nota
mannaeyjum og var Helgafells-
hlaup aukagrein (úr Herjólfsdal,
kringum Helgafell og inn í Heijólfs-
dal). Jóhann varð þriðji í eftir Karli
Sigurhanssyni og Magnúsi Guð-
björnssyni. Þannig mætti draga
upp á yfirborð minninganna brot
úr afrekssögu Johanns, en slíkt er
ófáanlegt hjá íþróttamanninum
sjálfum.
Um þriggja ára skeið var Johann
í íþróttaráði Reykjavíkur en það
var fyrir tíð íþróttabandalags
Reykjavíkur og Fijálsíþróttasam-
bands íslands og því nógar annir.
Fram til 1938, að Johann gerðist
dreifingarmaður á mjólkurafurðir
Mjókursamlags Reykjavíkur, vann
hann hjá Reykjavíkurhöfn og í
Sænska frystihúsinu. Hjá Mjólkur-
samlaginu vann Johann í 38 ár.
Eftir að Jóhann vegna aldurs
hætti störfum að dreifingu mjólk-
urafurða, tók hann að helga sig
starfrækslu íþróttamiðstöðvar Ár-
manns. Þessi störf hafa verið meir
þegnskapur en atvinna. Formaður
félagsins bar eitt sinn að húsakynn-
um í miðstöðinni, sem voru nýmál-
uð, og varð að orði: „Hver hefur
afrekað þetta?“ Einhveijum varð
að svari: „Hver annar en hann Jó-
hann?“ Við þessi krefjandi þjón-
ustustörf hlaut Jóhann sjúkdóm í
andlit og missti framan af tveim
fingrum á hægri hendi. Undan
fjárskorti kvarta íþróttafélög sí-
fellt. Sala getraunaseðla bætti hag-
inn, en hún krafðist eljusemi fárra
félaga. í ellefu ár annaðist Johann
þessa sölu fyrir Ármann og hafði
afskipti af 32 sölustöðum. —
Slíkum störfum jafnframt að
sinna fullri atvinnu hefði Johann
ekki getað unnið félagi sínu, nema
eiga stuðning og samstiga áhuga
eiginkonu. Árið 1941 kvæntist Jo-
hann Þórnýju Guðrúnu Þórðardótt-
ur (f. 24. apríl 1912). Þórný var
stórvirkur Ármenningur að málum
félagsins, þó sérstaklega tengdum
leikfimi. Hun var um árabil í úrvals-
flokkum Ármanns undir stjórn Jóns
Þorsteinssonar. Hún tók þátt í
tveimur utanförum og fjórum
lengri ferðum innanlands. Börfi
þeirra hjóna eru þijú, barnaböm
þijú og barnabarnabörn 2. Hinn
mæti Ármenningur og húsmóðir,
Þórný, lést um aldur fram 1982.
Við Ármenningar eigum Johanni
margt að þakka, en ekki síður konu
hans, bömum og mökum þeirra.
Megi þau í mótinu finna virðingu
og þakklæti.
Heill þér, 85 ára íþróttamaður,
og þökk ykkur unga íþróttafólk,
sem veitið okkur ánægju með
keppni og heiðrið „J.J.“
Þorsteinn Einarsson
Nokkuð hefur borið á fölsuðum vörum merktum Levi's á
markaðnum. Ef þú kaupir föt merkt Levi's í öðrum búðum *
en í Levi's búðinni áttu á hættu að þau séu svikin
og gæðin alls ekki þau sömu.
Levi's búðin, Laugavegi 37, er löggild Levi's búð á íslandi
(AUTHORIZED LEVI'S DEALER) og því eina búðin þar
sem þú getur verið viss um að þú fáir ekta Levi's.
4»
Spaðaviftur - borðviftur -
baðviftur - gróðurskólaviftur
- röraviftur - iðnaðarviftur
- fjósviftur - gólfviftur.
Hagstætt verð
Elnar Farestvelt&Co.hf.
Borgartúni 28, sími 622901.
L*W 4 stoppar vW dymar
★ GBC-Pappírstætarar
Þýsk framleiðsla
Ýmsar stœrðlr og gerðir fáanlegar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Simar 624631 / 624699
Afmæliskveðja:
Jóhann Jóhannesson
m). Jóhann var hlaupari á milliveg-
alengdum og í grindahlaupi. Hann
lagði þó til við langhlaupara meira
af félagshyggju en sigurvon. Þátt
tók hann í Alafosshlaupi og varð
þriðji eftir Oddgeiri Sveinssyni og
Magnúsi Guðbjörnssyni. Tvisvar í
Hafnarfjarðarhlaupi og varð í öðru
sæti í bæði skiptin. Meistaramót
íslands 1931 fór fram í Vest-
„J.J.“ Stafirnir standa fyrir Jó-
hann Jóhannesson. Meðal íþrótta-
félaganna um 1930 var hann
nefndur „Jói Long“. Í 63 ár hefur
hann verið iðkandi íþrótta, kepp-
andi, í stjórn Glímufélagsins Ár-
manns, formaður einnar deildar
þess og rekstrarstjóri íþróttamið-
stöðvar félagsins, svo að engan
skyldi furða þó efnt sé til móts
honum til heiðurs, er hann verður
85 ára 31. júlí.
Ávallt er það varhugavert stjórn
stórs félags gagnvart samheldni
félagsmanna að gera dagamun til
heiðurs einum eða fleirum innan
hópsins.
„J.J.“ hefur sérstöðu og heiður
honum sýndur orkar ekki tvímælis
eins og þegar hefur verið minnst á
og verður betur gert hér á eftir, —
en það er þetta „Hlaupa-, göngu-
og skokk“-mót við Ármannsheimil-
ið að Sigtúni daginn fyrir „J.J.“-
mótið, sem stofnað er til í heiðurs-
skyni við nafngreinda forystu-
þjarka og afreksöldunga.
Undirritaður er einn öldung-
anna. Mæti ég, þá geri ég það leið-
ur, því að margir, sem varpað hafa
ljóma á nafn félagsins með störfum
sínum, keppni, unnum meistara-
og mettitlum eða fært félaginu stig
á stórmótum, hafa enga heiðrun
hlotið, þó náð hafí háðum aldri.
Ég tek sem dæmi aðeins fjögur
nöfn úr hinum stóra hópi aldraðra
forystumanna og afreksmanna Ár-
manns: Sigurð Inga Sigurðsson
mjólkurfræðing, prestana Marino
Kristinsson og Grím Grímsson og
Guðjón Hannesson. Renna má huga
til allra þeirra, sem enn eru á lífi
en voru virkir um 1930 og því nú
aldraðir en gerðu kappmót, sýning-
ar innanlands og utan glæsilegar
með þátttöku sinni, og veittu þeim
sem sigurlaunin hluti harða keppni.
Þessum ágæta stóra hópi heill og
þakkir.
Sný ég mér þá aftur að „J.J.“
og fijálsíþróttamóti Ármenninga.
Framkvæmdanefndin hefur tileink-
að „J.J.“ og mótinu kjörorðin:
Hreyfing — vellíðan — bindindi —
heilbrigði. Til að keppa á mótinu
verður fræknasta íþróttafólk okkar
og frá Eistlandi. Enginn vafi er á
að þeir sem koma á Varmárvöll
miðvikudaginn 31. júlí munu njóta
þar góðrar keppni við frábærar
aðstæður.
Á allsheijarmóti ÍSÍ 1929 stóð
svo glöggt með stigafjölda hinna
„stóru“ félaga þriggja, er seinasta
grein mótsins skyldi hefjast, sem
var 10 km ganga, að tækist Ár-
menningum að ná þriðja sæti þá
var stigafjöldi félags þejrra mest-
ur. Ármenningurinn Johann Jó-
hannesson var meðal göngumanna.
Þol hans, mýkt og viljafesta komu
homum á löngum skrefum í annað
sætið. Þar með vann Ármann virt
verðlaun.
Árið 1928 gekk Johann í Glímu-
félagið Ármann og ári síðar var
hann kominn í stjórn þess. Hann
tók þá þegar að annast málefni
fijálsíþrótta, og eftir 15 ár í stjórn-
inni var stofnuð fijálsíþróttadeild
félagsins. Jóhann varð formaður
og starfaði af ötulleika sem slíkur
til 1979 — og þó hann léti af for-
mennsku hefur hann unnið fijáls-
íþróttum félagsins óslitið síðan og
eigi látið öldrun hefta sig.
Jóhann fæddist í Reykjavík 31.
júlí 1906. Foreldrar hans voru Jón-
ína Rósinkransdóttir og Jóhannes
Sigurðsson löngum kenndur við
Steinhúsið. Böm þeirra voru ein
dóttir og fimm synir. Fjölskyldan
fluttist út í Viðey er Johann var
átta ára og þar ólst hann upp til
16 ára aldurs. Fermdist í hinni
gömlu virðulegu Viðeyjarkirkju.
Átta ára dvölin á eynni varð honum
ævintýri. Þó oft væri þrældómur
ærinn á fiskireitum og í fiskhúsum,
við uppskipun og útskipun. Hlaup
voru milli staða í sendiferðum, og
vandist Jóhann því fljótt að greikka
sporin og lengja hlaupaskrefin.
Úr nágrannasveitum komu ung-
mennafélagar til vinnu í Viðey, t.d.
Þorgeir í Varmadal og Gísli í Fitja-
koti, sem urðu snemma góðir
íþróttamenn. þeir efndu til kapp-
hlaups úr þorpinu að búinu (Viðeyj-
arstofu) og til baka, um 3 km veg.
Jóhann var hvattur til að reyna
sig. Lét til leiðast og varð fyrstur.
Þetta var upphaf íþróttaferils hans,
sem lauk 1936, er hann sigraði í
800 m hlaupi „öldunga“.
Fluttur í land gerðist Johann
iðkandi knattspyrnu í Val. Jens
Guðbjömsson kom auga á lang-
leggjaðan ungling og fékk hann til
að spreyta sig í 5 km hlaupi Ár-
manns, þar sem keppt var um bik-
ar sem fótfrár Skaftfellingur hafði
unnið tvisvar. Johann vann, en
þótt leitt síðar, er hann varð þess
áskynja að sá sem var bikarhafi
tók sér nærri að missa af bikam-
um. Bikarinn vann JÓhann síðar til
eignar.
Úr þessu tók Jóhann að þjálfa
sig og æfa hlaup. Veturinn 1929-30
naut hann leiðbeininga sænsks
þjálfara, Evert Nielson (Vestervik-
Nielson), sem hér starfaði fyrir
væntanlegt mót tengt Alþingis-
hátíð. Á mótinu vann Jóhann 800
m, 1500 m og 110 m grindahlaup
og var í sigursveit 1500 m boð-
hlaupsins (800, 400, 200 og 100