Morgunblaðið - 31.07.1991, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚIÍ 1991
Viðræðum um evrópskt efnahag'ssvæði frestað:
íslendingar voru tilbúnir að bjóða
aðlögnnartíma á markaðaðgang
EB skorti pólitískan vilja til samninga, segir Jón Baldvin Hannibalsson
íslendingar voru tilbúnir til þess, ásamt öðrum EFTA-þjóðum, að
bjóða Evrópubandalaginu aðlögunartíma aðlögunartíma á fram-
kvæmd samkomulags um markaðsaðgang fyrir sjávarafurðir, ef það
samkomulag hefði nást á mánudagskvöld. Utanríkisráðherra segir
að ekkert hafi reynt á þetta tilboð, vegna þess að fulltrúar ein-
stakra EB-ríkja hafi ekki viljað fallast á markaðsaðgang fyrir ein-
hveijar tiltekar tegundir af fiski.
Þá höfðu utanríkisráðherrar
EFTA ákveða að halda símafund á
mánudagskvöldið um álitamál sem
kynnu að koma upp á lokastigum
samninganna við Evrópubandalag-
ið. Ekki varð af þeim fundi, vegna
þess að samningamir komust ekki
á það stig, áður en utanríkisráð-
herrar Evrópubandalagsins, sem
sátu á fundi á mánudagskvöldið,
ákváðu að fresta samningaviðræð-
unum um sameiginlegt evrópkst
efnahagssvæði þessara bandalaga
fram í september.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra sagði við Morgun-
blaðið í gær, að upp úr samninga-
viðræðunum hafi slitnað fyrst og
fremst vegna þess að nægur póli-
tískur áhugi hafi ekki verið fyrir
hendi innan Evrópubandalagsins.
„Það segir sína sögu um áhuga EB
á samningunum, að flestir af ut-
anríkisráðherrum EB voru famir
af fundinum þegar raunverulega
reyndi á alvarlega ákvarðanatöku
um kvöldið. í þeirra stað vom að-
stoðarmenn með takmarkað umboð,
sem gátu ekki tekið pólitíska
ákvörðun," sagði Jón Baldvin.
Hann sagði að einstakar þjóðir
innan Evrópubandalagsins hafi
staðið í vegi fyrir samkomulagi um
tollfijálsan aðgang fyrir sjávaraf-
urðir á mörkuðum EB. Þar <hafi
fyrst og fremst verið um að ræða
Breta og íra, en sérstökum von-
brigðum valdi staðfestar fregnir um
að Frakkar hafí einnig slegist í
'nilfisk
STERKA RYKSUGAN
Öflugur mótor með
dæmalausa endingu.
10 lítra poki og
fróbær ryksíun.
Afbragðs fylgihlutir.
NILFISK er vönduð og tæknilega
ósvikin - gerð til ao endast.
VERÐ AÐEINS fró kr. 19.420 (stgr).
iFOnix
^HÁrtN^^ÍMI(9T^442^l
þann hóp, þrátt fyrir velviljaðar
yfirlýsingar Frakklandsforseta í
garð íslendinga undanfarið.
Þegar Jón Baldvin var spurður
hvort þetta sýndi að íslendingar
gætu ekki treyst orðum þjóðarleið-
toga annara ríkja, sagði hann að
reynslan sýndi okkur, að ekki væri
hægt að treysta hinum stóm yfír-
lýsingum pólitískra leiðtoga Evr-
ópubandlagsins um framtíðarsýn
þeirra og hlut evrópska efnahags-
svæðisins í pólitískum framtíðar-
arkítektúr Evrópu.
„Þeir hafa allir fullvissað okkur,
forsætis- og utanríkisráðherra
EFTA-ríkjanna, að ekki skorti pólit-
ískan vilja, að þeir meti þessa samn-
inga mjög mikilvæga og þeir muni
tryggja það, að þeir muni ekki
stranda á einhveijum smámunum.
Það hefur bmgðist.
Það er undarleg og óvenjuleg lífs-
reynsla að upplifa það, að það fer
algerlega eftir því við hvern er tal-
að í Evrópubandalaginu hvað sagt
er. Ef talað er við pólitísku for-
ustuna fullvissar hún mann um
sterkan pólitískan samstarfsvilja.
Ef talað er við samningamann við
samningaborðið hefur hann ekki
umboð til neinna samninga og er
algerlega ósveigjanlegur. Þú talar
við fulltrúa einstakra aðildarríkja
og þeir þekkja ekki haus né sporð
á þessum samningum en em þarna
eingöngu til að gæta þrengstu sér-
hagsmuna einhveija aðila í sínu
heimalandi. Við þetta virðist enginn
fá ráðið. Ég ætla ekki fomstumönn-
um Evrópubandalagsins, að hafa
viljandi teygt okkur öll á asnaeyrun-
um; þeir geta aðeins ekki betur,“
sagði Jón Baldvin.
Hann benti á, að hægt væri að
bera þetta saman við Bandaríkin
og samningagerð við þau. „íslend-
ingar hljóta að bera vitni um það,
að samskipti okkar við Bandaríkin
em til fyrirmyndar um samskipti
sjálfstæðrar smáþjóðar við stór-
veldi. Þar hafa oft komið upp erfíð
samningamál en þau hafa alltaf
verið leyst, vegna þess að því hefur
mátt treysta að bandarísk stjóm-
völd hafa bæði vilja og getu til
þess að standa við orð sín,“ sagði
utanríkisráðherra.
Ekki á dagskrá að óska eftir
tvíhliða viðræðum
Norðmenn hafa dregið sjávarút-
vegstilboð sitt í samningaviðræðun-
um til baka, eftir að upp úr slitnaði
á mánudagskvöldið, en það var
aðalgrundvöllur samningaviðræðn-
anna_ um sjávarútveginn. Tilboð,
sem íslendingar settu fram, stendur
hins vegar enn. Jón Baldvin sagði,
að næstu daga muni íslensk stjóm-
völd endurmeta ástandið, ráðgast
við önnur EFTA-ríki og skoða stöð-
una í ljósi pólitískra afleiðinga
málalokanna.
Utanríkisráðherra sagði að menn
myndu meðal annars ræða, hvaða
annara kosta væri völ en samning-
anna með EFTA við Evrópubanda-
lagið. Til skamms tíma væri þar
fátt um fína drætti. „Það er ekki á
dagskrá af minni hálfu að fara að
óska eftir tvíhliða samningaviðræð-
um við EB, fyrr en slitnað hefur
endanlega upp úr núverandi samn-
ingum. Og ég er ekki bjartsýnn á
að okkur vegni betur í slíkum samn-
ignaviðræðum, vegna þess að þá
myndum við semja beint við sjávar-
útvegsdeild bandalagsins, og hún
hefur ekkert annað samningsumboð
en að heimta veiðiheimildir fyrir
tollfríðindi," sagði Jón Baldvin.
Hann bætti við,
að hefði enga trú
á því, að nokkur
stjórnmálaflokk-
ur á íslandi myndi
bregðast við
þessum tíðindum,
eða ef endanlega
slitnaði upp úr
samningnunum,
með því að lýsa
því yfír að engra annara kosta
væri völ en að ganga í EB.
Möguleiki að forusta EB sjái
sig um hönd
Þegar Jón Baldvin var spurður,
hvort það væri ekki útilokað að ná
samningum í haust, fyrst upp úr
slitnaði á mánudag, sagði hann að
sá möguleiki væri fyrir hendi, að
pólitísk forusta Evrópubandalags-
ins sjái sig um hönd, líti á þetta
sem mistök og leggi sig fram við
að standa við orð sín að tryggja
pólitísk samkomulag, vegna þess
að hún meti þann kost lakari að fá
inn á borð til sín aðildarumsóknir
flestra EFTA-landanna.
„Önnur ástæða getur einnig ver-
ið fyrir hendi. Menn tala um áfall
einstakra stjómmálamanna í
EFTA. En þetta er álitshnekkir fyr-
ir Evrópubandalagið, sérstaklega
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra segist hafa miklar efa-
semdir um að hægt verði að ná
samningum með EFTA-ríkjunum
við Evrópubandalagið í haust,
eftir að utanríkisráðherrar EB
ákváðu að fresta samnignavið-
ræðunum á mánudagskvöld.
Davíð segir þó að rétt sé að bíða
með umræðu um beinar viðræð-
ur við EB þar til ljóst verði hvort
samningar EFTA og EB takist
eða ekki.
„Það er ekki hægt að neita því
að þetti niðurstaða veldur miklum
vonbrigðum. Þótt ekki séu allar dyr
endanlega lokaðar þá hefur maður
miklar efasemdir um að það takist
að opna þær á nýjan leik,“ sagði
Davíð Oddsson við Morgunblaðið í
gær, þegar hann var spurður álits
á málalokum í samningaviðræðun-
um á mánudagskvöld.
Aðspurður neitaði Davíð því að
þessar málalyktir væru áfall fyrir
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra segir það vera von-
brigði að ekki náðust samningar
milli EFTA og Evrópubandalags-
ins á mánudagskvöldið. íslend-
ingar muni þó áfram stefna að
ná fram markmiðum sínum í
þeim samningum.
„Ég hafði vænst þess að það
gæti náðst samkomulag á þeim
grundvelli sem við þóttumst hafa
lagt á Lúxemborgarfundinum (sam-
eiginlegum ráðherrafundi EFTA og
EB í júní). Mér þykir þetta sýna,
að ákvarðanataka innan Evrópu-
bandalagsins er með nokkuð sér-
stökum hætti og það fer ekki á
milli mála að þeir hafaiómað-mjög
þegar skoðað er í samhengi hvemig
EB hefur mistekist í hveiju stórmál-
inu á fætur öðm. Það var álits-
hnekkir þegar þeir klúðmðu
GATT-samkomulaginu. Það er
álitshnekkir fyrir pólitíska fomstu
bandalagsins þegar í ljós kemur að
þeir annað hvort geta ekki eða vilja
ekki staðið við pólitískar yfírlýsing-
ar um að samkomulag um evrópskt
efnahagssvæði sé mikilvægur þátt-
ur í framtíðarsýn þeirra um nýjan
pólitískan arkítektúr í Evrópu, og
þeir láta þessa samninga stranda á
hreinum smámunum, sem mælast
ekki á neina peningaleega kvarða
í EB.
En sérstaklega held ég að for-
ustumenn EB verði að líta í eigin
barm, vegna Mið- og Austur-Evr-
ópu. Sannleikurinn var sá, að það
var ekki mikill áhugi á þessum
EES-samningum sem slíkum innan
EB, sérstaklega ekki meðal almenn-
ings. En það var litið á samning-
ana, og þetta fyrirkomulag sam-
starfs við EFTA, sem fyrirmynd
sem gæti síðar nýst bandalaginu
til að byggja upp samskiptakerfi
við aðra hluta Evrópu. Ég er ekki
í vafa um, að forustumenn A-Evr-
ópuríkja á borð við Havel og Va-
lesa, meti það svo, að getuleysi EB
að ná samningum við ríkin í EFTA,
íslensku ríkis-
stjómina. „ís-
lenskir stjómmál-
amenn höfðu í
höndunum yfir-
lýsingu formanns
ráðherraráðs
Evrópubanda-
lagsins á sínum
tíma um niður-
stöðu [Lúxem-
borgarfundarins]. Hins vegar gat
Evrópubandalagið ekki staðið við
það sem þar var sagt, vegna þess
hve þjóðirnar em sundurlyndar. í
rauninni finnst mér þetta frekar
sýna fram á veikleika í yfírstjórn
bandalagsinins. Ef það er svo, að
talsmenn bandalagsins geti ekki
farið út fyrir tiltekið umboð, og ef
þeir geri sé það markleysa ein, þá
er afskaplega óhöndugt að vera í
samningaviðræðum við þá. Það er
eins gott fá þennan ramma og fylla
út í hann sjálfír," sagði Davíð.
miklu fyrir lítið
með því að fresta
þessari samn-
ingsgerð," sagði
Þorsteinn Páls-
son við Morgun-
blaðið í gær.
Þegar Þor-
steinn var spurð-
ur hvort hann
teldi raunhæft að
ætla að af samn-
ingunum geti orðið í haust fyrst
þeir náðust ekki nú, svaraði hann
að varlegt væri að hafa uppi um
það spádóma. Augljóst væri að
uppi væru innbyrðis erfiðleikar í
bandalaginu og það yrði að koma
á daginn hvað úr því yrði. „Við
sem eru náskyld pólitískt og efna-
hagslega, spái ekki góðu um getu
þess til að leysa vanda þessra ríkja,“
sagði Jón Baldvin.
Niðurstaðan sársaukafyllst
fyrir Norðmenn
Utanríkisráðherra sagðist telja,
að sú niðurstaða, sem orðið hefði á
mánudagskvöld, hefði verið sárs-
aukafyllst og erfíðust fyrir Norð-
menn.
„Það er staðreynd að Gro Harlem
Bruntland forsætisráðherra Noregs
talaði við allflesta kollega sína inn-
an EB fyrir helgina. Ég var í dag-
legu sambandi við Thorvald Stolten-
berg utanríkisráðherra Noregs og
ég veit að hann talaði við mjög
marga af sínum samstarfsaðilum.
Norðmenn eru til fyrirmundar í al-
þjóðlegu samstarfí og eiga víða
hauk í homi. Auðvitað voru þau
Stoltenberg og Bruntland fullvissuð
um það, af þessum fomstumönnum,
að þau þyrftu ekki að óttast nein
slys. Þau vom einfaldlega að leita
eftir staðfestingu á þeim fögra orð-
um, sem sögð hafa verið við okkur
í tvö ár. Þau orð stóðu ekki og það
er ekki álitshnekkir fyrir Noreg
heldur þá sem ekki stóðu við orð
sín,“ sagði utanríkisráðherra.
Hvað íslendinga varðaði, viður-
kenndi Jón Baldvin að málalyktir
hefðu orðið sér pólitísk vonbrigði,
en ekki pólitískt áfall. „Þegar ég lít
til baka get ég ekki séð hvemig við
gátum haldið öðru vísi á þessu
máli. Ef samningar hefðu tekist þá
hefðum við náð samningsmarkmið-
um okkar án þess að þurfa að leggja
fram fómarkostnað, þ.e. einhliða
veiðiheimildir. En þetta gekk ekki
eftir, og þá er að taka því,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson.
í kjölfar þess að upp úr viðræðum
slitnaði hafa heyrst raddir í öðmm
EFTA-ríkjum að réttast væri að
taka upp beina samninga við Evr-
ópubandalagið. Davíð sagðist að-
spurður ekki telja að slíkar raddir
ættu rétt á sér hér fyrr en í ljós
kæmi í haust hvort mögulegt yrði
að ná samningum með EFTA-ríkj-
unum. „Ég held að menn eigi ekki
að hlaupa neitt til strax. Það er
búið að leggja gríðarlega mikla
vinnu í þennan samningsferil og við
höfum sagt að rétt væri að fylgja
honum til enda. En við höfum einn-
ig sagt, og ég held að það sé eng-
inn ágreiningur um það á milli
flokkanna, að ef þetta gegngur
ekki upp sé rétt að skoða aðra kosti.
En ég tel að það eigi að bíða eftir
þessum fundi í byijun september
og sjá hvernig hljóðið er í mönnum
þegar þeir koma brúnir og afslapp-
aðir úr sumarfríinu," sagði Davíð
Oddsson.
hljótum hins vegar enn að stefna
að því að ná okkar samningsmark-
miðum,“ sagði Þorsteinn.
Þorsteinn lýsti því yfír á Alþingi
í vor, að fullur markaðaðgangur
fyrir sjávarafurðir væri forsenda
samnings um evrópskt efnahags-
svæði af hálfu EB en á það hefur
EB ekki viljað fallast. Aðspurður
sagðist Þorsteinn ekki vita hver
hefði orðið niðurstaðan ef samnign-
ar hefðu náðst í fyrrinótt. „Því mið-
ur virðist ekki hafa verið nægur
skilningur á því innan Evrópuband-
alagsins að þetta væri forsenda af
okkar hálfu. Við vitum hins vegar
ekki hve langt þeir hefðu verið til-
búnir að ganga á endapunktinum,“
sagði Þorsteinn Pálsson.
Davíð Oddsson forsætisráðherra:
Rétt að bíðameð umræðu
um beinar viðræður við EB
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra:
Islendingar munu áfram reyna
að ná fram markmiðum sínum
Davíð Oddsson