Morgunblaðið - 31.07.1991, Blaðsíða 13
®Óseyri4, Auðbrekku 2, Skeifunni 13, J
Akureyri Kópavogi Reykjavik
S<enguryera settr
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JULI 1991
Afsal á fullveldi er það
eftir Jóhann
Þórðarson
í umræðum sem fram fóru í sjón-
varpinu 9. þ.m. um hinn væntanlega
samning um Evrópska efnahags-
svæðið EES fullyrti utnaríkisfáð-
herra, Jón Baldvin Hannibalsson,
að samningur þessi hefði ekki að
geyma ákvæði um afsal á fullveldi
Islands. í beinu framhaldi af þess-
ari fullyrðingu sagði hann að við
værum að sækjast eftir því að fá
samningsbundna aðild að samningi
um aðild að tollfrjálsum viðskiptum
með vörur, hafa einn sameiginlegan
fjármagnsmarkað og vinnumarkað.
Síðan sagði utanríkisráðherra orð-
rétt og vil ég undirstrika það: „um
þetta gilda lög og reglur Efna-
hagsbandalagsins."
Þama viðurkennir utanríkisráð-
herra að verið sé að framselja lög-
gjafarvaldið til erlends aðila, það
er alveg ljóst þvert á gagnstæða
fullyrðingu. Þessi lög sem ráðherr-
ann vitnar til eru upp á 11.000 bls.
Lagasafnið okkar er upp á 1359
bls. Lög þau sem ráðherrann er að
sækast eftir fjalla um málaflokka,
sem hafa hvað mest áhrif á okkar
efnahag og lífsstíl, þ.e. vinnurétt
okkar, viðskipti og peningamál. Við
eigum með þessu að láta erlenda
aðila segja okkur hvernig við eigum
að haga okkur við framleiðslu á
vörum okkar (fragt er danska dæm-
ið er varðaði það að Danir máttu
ekki framleiða gúrkur nema þær
væru með þeirri lögun sem EB sam-
þykkti.) Varðandi vinnurétt vil ég
benda á það sem dæmi að t.d. lög
um aðbúnað og hollustuhætti á
vinnustöðum yrðu að víkja fyrir lög-
unum hjá EB. Eigum við að treysta
betur á að erlendir aðilar hafi betri
yfirsýn yfir hvaða reglur sem að
þessu lúta henta best íslenskum
launþegum. Getum við sætt okkur
við þau lög sem utanríkisráðherra
sækist svo mjög eftir, samin af út-
lendingum og varða fijálsan flutn-
ing á vinnuafli milli aðildarríkja
EES og heimila að hingað komi
hópar útlendinga frá EB löndum
og taki t.d. tímabundna vinnu, sem
hér býðst t.d. vegna stórra verka
með þeim afleiðingum að íslending-
ar missa af vinnu og yrðu þá að
ganga um atvinnulausir. Þarna
gæti íslensk verkalýðshreyfing
engu breytt, þar sem hún yrði
áhrifalítil við ákvarðanatöku um
félagsleg mál innan EES, sökum
þess að lög og reglur sem utanríkis-
ráðherra er að sækjast eftir hindr-
uðu það. Ég vil biðja forráðamenn
í launþegahreyfingunni og alla
sanna Islendinga að hugleiða þetta
rækilega. Því hefur verið haldið
fram af þeim sem aðhyllast EES
að ekki sé mikil hætta á því að
vinnuafl frá EB löndum myndi
koma til íslands í atvinnuleit. Þessu
vil ég svara á þann hátt að benda
á frétt sem kom í hádegisútvarpinu
18. des. s.l. þar sem skýrt var frá
því að 7. hver íbúi í EB löndunum
byggi við fátækt. Mér sýnist ljóst
að aðeins sá þáttur fjórfrelsisins
sem snýr að fijálsum flutningi
vinnuafls milli landa mundi taka
brauðið frá íslenskum börnum. Ég
hef nú ekki trú á því að utanríkis-
ráðherra geri sér grein fyrir því
hversu alvarlegt þetta er enda hefur
hann oft misskilið hvað fer fram á
fundum EB og EFTA. Ég vil nefna
dæmi um það að 6. mars sl. kom
frétt í Morgunblaðinu er fjallaði um
viðræður ráðherra EFTA og EB um
veiðiheimildir til handa EB upp á
30.000 tonn af þorskígildum í Éyst-
rasalti og norðan 62. breiddargr-
áðu, þá taldi Jón Baldvin að það
væri rétt hjá forsvarsmönnum sjáv-
arútvegs innan EB að þessi veiði-
heimild félli ekki undir íslenska lög-
sögu. (ísland hefur fram að þessu
verið norðan 62. breiddargráðu held
ég að flestir telji). Síðan kemur frétt
um sama efni í Morgunblaðinu 8.
mars sl. og er hún þvert á það sem
Jón Baldvin sagði tveimur dögum
áður, þar segir svo: „Framkvæmda-
stjóm Evrópubandalagsins lítur svo
á að þær kröfur sem settar verða
fram um veiðiheimildir í samningn-
um við ríki Fríverslunarbandalags
Evrópu (EFTA) eigi ekki síður við
um Islandsmið en fiskimið Norð-
manna og Svía...“ Nú er þess
skemmst að minnast eftir þeim
fréttum sem bárust af ráðherra-
fundinum í Lúxemburg sem haldinn
var um miðjan júnf sl. þá upphófust
miklar deilur um það milli manna
hvað hefði gerst á fundinum. Þetta
er afleitt þegar litið er á það að
verið er að íjalla um mjög alvarleg
málefni. Fleiri dæmi um óljósar
fréttir af ályktunum funda í sam-
bandi við EES samninginn mætti
tína til. Jón Baldvin sagði í tilvitn-
uðu sjónvarpsviðtali að dómstóll
EES mundi dæma um þann ágrein-
ing sem risi út af samningi þessum
og þá í samstarfi við EB dómstól-
inn. Hvort hér væri um að ræða
framsal á dómsvaldi svaraði Jón
Baldvin sér sjálfum á þann hátt að
í raun og veru væri ekki hægt að
segja það. Hér er um rakalausa
fullyrðingu að ræða og þarf engan
lögspeking til að sjá að hér er um
að ræða erlendan dómstól sem
dæmir eftir erlendum lögum. Þessi
dómstóll dæmir ekki einungis um
ágreiningsefni milli aðildarríkja
heldur getur einstaklingur eða lög-
aðili búsettur í aðildarríki verið að-
ili að máli, þannig að það er hægt
að sækja mál á hendur honum þar
án þess að mál sé rekið fyrir t.d.
íslenskum dómstól. Ef þetta er ekki
valdaafsal þá veit ég ekki hvað það
er. Meginhlutinn af því sem fram
kom hjá utanríkisráðherra var í
raun viðurkenning á því að EES
samningurinn eða drögin að honum
hafí að geyma fullveldisafsal.
Vegna þeirra orða sem utanríkis-
ráðherra lét frá sér fara í umrætt
sinn og oft í fjölmiðlum þess efnis
að við værum ekki að afsla sjálf-
stæðinu þá er tvennt til það er i
fyrsta lagi það að utanríkisráðherra
geri sér ekki grein fýrir því hvað
felst í drögum að EES samningn-
um, hinn möguleikinn er sá að ut-
anríkisráðherra sé búinn í sínum
Sumarmót Hvíta-
sunnumanna
Um Verslunarmannahelgina
verður haldið árlegt mót Hvíta-
sunnumanna í Kirkjulækjarkoti
í Fljótshlíð. Mótið stendur yfir
frá fimmtudagi til mánudags.
Dagskrá verður fjölbreytt með
mikilli tónlist og góðum fræðurum
sem flytja erindi um Biblíuna og
samtímann. Gestur mótsins verður
Aril Edvardsen frá Noregi sem um
daginn var kynntur á síðum Morg-
unblaðsins sem „dómsdagsprédik-
ari“ þar sem hann talaði gegn Evr-
ópubandalaginu. Mótið er bindindis-
mót og fjölskyldusamvera. Öllum
er fijálst að koma og eyða með
okkur helginni. Hægt er að tjalda
og kaupa tilbúinn mat á staðnum.
(Frétttatilkynning)
------HH-------
Leiðrétting
í frétt í Morgunblaðinu í gær um
rallmót á Sauðárkróki misritaðist
nafn eins keppandans. Hann heitir
Þórhallur Matthíasson en ekki Þor-
steinn. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
\/IKÚ
1pg5Sn
%00.
m
„Meginhlutinn af því
sem fram kom hjá ut-
anríkisráðherra var í
raun viðurkenning á
því að EES samningur-
inn eða drögin að hon-
um hafi að geyma full-
veldisafsal.“
huga að breyta skilgreiningunni á
því hvað er fullvalda ríki. Ég hugsa
að það eigi ekki fýlgi margra íslend-
inga að breyta skilgreiningu á því
hvað er sjálfstætt ríki. Við viljum
að þeir fulltrúar sem við kjósum til
að fara með völd í það og það sinn
þurfí ekki að spyija yfírþjóðlega
aðila hvað þeir eiga að gera, vald
sitt fá þeir frá okkur.
Af þeim fréttum sem berast er
alveg ljóst að EES samningurinn
er biðsalur að EB. Ég vil benda á
það sem Uffe Elleman Jensen ut-
anríkismálaráðherra Dana benti á
í grein í Morgunblaðinu 23. mars.
sl. að viðræðurnar um EES milli
EFTA og EB sé aðeins skiptistöð á
leiðinni að þátttöku að víðtæku
samstarfi. Athyglisvert er það sem
fram kemur hjá ráðherranum að
umræður þessar séu í raun æfing
í að taka inn ný aðildarlönd í EB.
Hann bendir á að EES samningur-
inn geti fleytt okkur í gegnum
ákveðið skeið. „En annað og meira
en millibilsástand verður það ekki.“
Þama höfum við það, inn í EB skul-
um við fara á það er augljóslega
stefnt af sumum ráðamönnum okk-
ar.
Heyrst hefur að fyrirhugað sé
að næsti fundur um EES samning-
inn eigi að fara fram 28. eða 29.
þ.m. og þá sé stefnt á því að ut-
anríkisráðherrar undirriti samning
þennan. Það er nokkuð kaldhæðnis-
legt ef þessi undirritun færi fram
28. júlí, það er á þeim degi þegar
íslendingar fyrir 329 árum undirrit-
uðu í Kópavogi samning þess efnis
að Danakonugur skyldi vera ein-
valdur á íslandi. Þá féllu tár um
hvarma þeirra sem undirrituðu enda
var þeim bent á fallbyssukjaftana
ef þeir hikuðu við að rita nafn sitt.
Látum ekki svipað ólán henda okk-
ur.
Ég vil að lokum benda á kafla
úr stofnskrá Sjálfstæðisflokksins
frá 25. maí 1929 en þar segir: „Að
vinna skuli að því að undirbúa það
að ísland taki að fullu öll mál í sin-
Jóhann Þórðarson
ar eigin hendur og gæði landsins
til að nota fyrir landsmenn eina
jafnskjótt og 25 ára samningstíma-
bili sambandslaganna er lokið.“ Ég
vona að -meirihlti sjálfstæðismanna
í dag vilji halda þesu merki forvera
sinna á lofti. Islendingar, haldið
vöku ykkar nú eru blikur á lofti.
Við viljum frelsi í viðskiptum hvar
sem er í heiminum, við viljum ekki
einangra okkur innan tollmúra EB.
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.