Morgunblaðið - 31.07.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 1991
11
Hvað ertu, líf, nema litur
________Myndlist____________
Bragi Ásgeirsson
„Ljósglampar ótal“, segir í upp-
hafi kvæðisins „Lífið“ eftir Krist-
ján Fjallaskáld.
Þótti mér við hæfi að hefja rit-
smíð mína um ferð til Austurlands
og heimsókn á sýninguna „Kjarval
í heimahögum" í Borgarfirði á
þessum upphöfnu hendingum.
Einkum fyrir það að litaríkidómur
Austurlandsins skartaði sínu feg-
ursta dagana sem ég var þar. Lit-
ir voru mjúkir, þýðir og blíðir í
breytilegri veðráttu, þar sem á
skiptust smáskúrir, þoku- skýja-
slæðingar svo að stundum náði
niður í flallsrætur, en á milli var
bjart veður og sindraði þá á spegil-
sléttan og lognkyrran hafflötinn,
sem var þá eins og „ljósglampar
ótal“. Formmjúkar og á stundum
nær gegnsæar skýjaslæðumar
gerðu sér dælt við fjallstoppana
og eins og struku þeim ástúðlega.
Ökuferð frá Norðfírði til Borg-
arfjarðar og aftur til baka á afhal-.
landi laugardeginum var ævintýr-
aleg fýrir þá sök hve mikil dul-
armögn vom í landslaginu, en
þannig er það aldrei í mjög þurru
og heiðskíru veðri. Grænn litarríki-
dómurinn var ævintýralegur og
grassvörðurinn lá sums staðar lík-
ast flosmjúku teppi yfír landinu.
Þetta hijóstmga, stórskorna
landsvæði á með sanni sínar mjúku
hliðar og stundum er það veðrátt-
an sem magnar þær fram, og
þannig var það einmitt þessa eftir-
minnilegu dagstund.
Að manni sóttu skáldlegar hug-
leiðingar, saga þessa landshluta
og auðskilin var trú fólks á álfa,
drauga og hindurvitni. Hér eru
vísast höfuðból og hjáleigur yfir-
náttúrlegra afla. Svona veðurfar
ásamt miklum andstæðum í lands-
lagi og hrikalegum fjallsnípum
kveikir í hugarfluginu, vekur jafn-
framt upp beyg og kenndir til
skuggalegra huliðsheima.
Flatlendið meðfram Lagarfljóti
var með blómlegasta móti og sum-
arhús Kjarvals kúrði á sínum stað,
einhvern veginn svo lítið , þögult
og umkomulaust eftir að hann er
horfinn á braut. Áður var lágreist-
ur kofinn sem ævintýri eins og
sögurnar, sem spruttu upp kring-
um meistarann á meðan hann lifði
og starfaði, en eftir lifa nú einung-
is sögumar og verkin sem hann
málaði á staðnum og í nágrenni
hans.
Allstaðar mátti sjá merki þess,
að verið var að gera út á hlýindi
sumars og góða uppskeru, svo sem
sagt er, hvítir plastbaggar utan
um hey lágu nær skipulagslaust á
víð og dreif, en formfagrar heysát-
ur engar svo sem fýrrum, er Kjarv-
al gekk um sveitir, hvað þá flekk-
ir eða fólk snúandi þeim í gríð og
erg með þróttmiklum tilburðum.
Áfram er ekið, og fyrr en varði
birtist manni undursamlegur
Borgaríjörðurinn og hið fjölbreyti-
lega landslag allt um kring. í miðj-
um ógnvænlegum Njarðvíkur-
skriðum er staðnæmst við hinn
helga kross, sem þar hefur staðið
frá ómunatíð og verið endurnýjað-
ur reglulega. Siður er að vegfar-
endur ái hér um stund og geri bæn
sína.
Fyrir neðan breiðir Njarðvíkin
úr sér og hinum megin rís voldugt
fjallabelti furðulegrar tilbreytni í
formum, sem minna fyrir sumt á
barrok- og æskustílinn í húsagerð-
arlist og á ég þá við mýkt og fjöl-
breytni en ekki skraut. Austast
er svo Kögur.
í Borgarfirðinum sér vitt til lit-
auðugra fjalla, sem eru bæði í lípa-
rít og bágrýti, og sem margur
veit, þá er á þessum slóðum mikið
um fagra og fágæta steina og
bergkristalla. Jafnframt er hér um
grösuga og búsældarlega sveit að
ræða eins og svo víða á Austfjörð-
um.
Hér voru heimahagar Kjarvals
frá fímmta ári og fram að ferm-
ingu og þessi litríka sveit kom til
með að hafa varanleg áhrif á list
hans, sem engan skyldi furða, og
hingað sótti hann um árabil hug-
myndir í mörg nafnkennd mynd-
verk. Sum þeirra eru á sýningunni
„Kjarval í heimahögum" í Félags-
heimilinu Fjarðarborg um þessar
mundir og fram til föstudagsins
2. ágúst.
Hér er um að ræða myndir úr
eigu Kjarvalssafns í Reykjavík,
sem hann gerði á þessum slóðum
og eru þetta mest kunnar myndir,
sem ég hef áður fjallað um.
Ástæða er þó til að vekja athygli
á sýningunni, sem er þarft fram-
tak og fyrir margt vel að henni
staðið. En fram kemur enn einu
sinni, hve félagsheimili í sveitum
eru oft óhentug fyrir myndlistar-
sýningar, og er sem húsameistar-
amir hafí ekki vitað af þeirri list-
grein, er þeir teiknuðu þau.
Margar myndanna njóta sín alls
ekki á veggjunum, þótt henni sé
þokkalega fyrir komið, og má um
sumt kenna hráu umhverfí og
slakri lýsingu.
í krirkju staðarins er altaristafla
eftir Kjarval, sem enginn ætti að
láta óskoðaða er á annað borð
hefur áhuga á list hans, því að
hún er um margt óvenjuleg, m.a.
mótar fyrir landslagi úr sveitinni,
í bakgrunninum, sem uppmnalega
þótti ekki par fínt og féll ekki í
kramið hjá geistlegu valdi tím-
anna, þótt hún svo rataði á
sinn stað.
Ég kannaðist við ýmislegt úr
landslaginu frá myndverkum
Kjarvals og hafði ánægju og gagn
af, jafnfram þótti mér athyglisvert
hve formin og litirnir í umhverfínu
eru skyld og samofín list hans og
vinnubrögðum.
Það hlýtur að dýpka tilfínningu
hvers manns fyrir list Kjarvals,
að skoða heimahaga hans, einkum
ef hann er jafn heppinn og ég með
fjölbreytileg og- dulúðug veðra-
brigði. Hann var með sanni niðji
uppruna síns og jafnframt Islands
alls.
Það sem mér kom mjög á óvart
á staðnum, svo ég get ekki orða
bundist, er hve húsin stinga í stúf
við landslagið og þó er það mun
lakara að sjá bílhræ þar sem þau
ættu alls ekki að sjást og jafnfram
ýmislegt drasl annað, og áberandi
hirðuleysi í umhverfinu. Ég veit
nefnilega að víða varðar þetta við
ströngustu lög erlendis, enda stór-
spillir það umhverfinu og áliti ferð-
alanga á viðkomandi stöðum.
Ég tók ekki aðeins eftir þessu
í Borgarfirðinum, heldur of víða á
leiðinni, því mjög sker það í augu,
að sjá ryðguð bíla- og vélahræ í
undursamlega fallegu umhverfí
svo_ og ömurleg útihús.
Ég kemst í hátíðarkskap er ég
sæki heim mikilsháttar sýningar á
ferðalögum mínum og fæ mér
gjaman hressingu að lokinni skoð-
un þeirra og svo var einnig að
þessu sinni, en hér má einnig koma
fram, að hressingin sem við feng-
um á Fjarðarborg er ekki neinu
metnaðarfullu félagsheimili sam-
boðin. Hún kom okkur næstum
úr jafnvægi, en það mildaði þó
skapið að ágætt málverk eftir
Kjarval hangir á kaffístofunni,
sem er gjöf Þorsteins Jónssonar
til Borgfírðinga.
í þorpum og einnig víða um
sveitir, sem ekið var framhjá, er
það áberandi hve gömlu húsin eru
miklu fallegri og listrænni, en
staðlaðir, kuldalegir og andlausir
steinkassar eftirstríðsáranna, og
þá einkum ef þeim er vel við haldið.
Og þótt búið sé í sveit, jafnvel
afskekktri sveit, er ekki nauðsyn-
legt að afdalabragur sé á öllu og
það' sannaðist í Egilsbúð á Nes-
kaupstað, þar sem við að ferðalag-
inu loknu fengum viðurgjörning
og þjónustu, sem sómir bestu veit-
ingahúsum á höfuðborgarsvæð-
inu.
Þetta má gjama fljóta með
þessum pistli um meistara Kjarv-
al, sem var mikill fagurkeri og
viðkvæmur fyrir slíkum hlutum
og öllum náttúruspjöllum, svo að
hér er ekki alveg farið út fyrir
rammann.
Eins og sjá má í upphafinu leit-
aði kvæði hins orðhaga Kristjáns
Fjallaskálds á listrýninn við þessa
samantekt og vil ég ljúka henni
með því að birta það í heild sinni.
Hvað em líf, nema litur/ljósglamp-
ar ótal,/er dauða-sæ lygnum á
leiptra/í lífs-sólar skini?/ Hví ertu,
lífröðull ljósi,/svo ljúfur og fagur?/
Hví ertu, helsærinn kyrri/ svo
hulinn og djúpur?
KAMBASEL - RAÐHUS
Mjög gott ca 190 fm endaraðhús á tveimur hæðum.
Innb. bílskúr. Arinn í stofu. Suðursvalir. Mögul. að taka
4ra herb. íbúð uppí. Áhv. ca 1100 þús. Verð 12,8 millj.
DUNHAGI - BÍLSKÚR
Góð íbúð á 2. hæð. Parket á hluta. Góð staðsetning.
Verð 7,8 millj.
STELKSHÓLAR - 4RA
Falleg rúmgóð íbúð á 1. hæð. Búr innaf eldhúsi. Sér-
lóð. Verð 6,6 millj.
ÁLFAHEIÐI - BÍLSKÚR
Falleg „penthouse“-íbúð í fjölbýlishúsi. 2 svefnherb.
Glæsileg íbúð. Áhv. 4,8 millj. veðdeild. Verð 9,5 millj.
EIÐISTORG - 3JA
Glæsileg 110 fm íbúð á tveimur hæðum. Getur losnað
eftir þrjár vikur. Verð 8,5 millj.
LAUG ARN ESVEGU R - 3JA-4RA
Góð íbúð á 3. hæð. Góðar stofur. Stórar svalir. Verð
6,6 millj.
NEÐSTALEITI - 2JA - LAUS
Mjög góð íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli. Þvhús í íbúð.
Sérverönd. Bílgeymsla. Verð 7 millj. Áhv. 1,2 millj.
ÞlMiIlOLT
Suðurlandsbraut 4A,
sími 680666
Álfheimar
Mjög falleg sérhæð 123 fm nettó á annari og efstu
hæð. Allt sér. Ákv. sala. Verð 9,6 millj.
28 404 HðSEIGNIR
™ ™ VELTUSUNDI 1 Q
SIMI 28444 WL 9W%MW
Daníel Ámason, lögg. fast.,
HelgiSteingrímsson.sölustióri. 11
o
C0
Helluborð
„Moon“ keramik yfirborð,
snertirofar, svartur rammi
eða stálrammi, fjórar
hellur, þar af tvær halógen
og ein stækkanleg,
hitaljós, tímastilling á
hellum.
TH2010
Helluborð
Keramik yfirborð, svartur
eða hvltur rammi, fjórar
hellur, þaraftværhalógen
og ein stækkanleg,
sjálfvirkur hitastillir og
hitaljós.
TH490
tf*"1* Helluborð
„Moon“ kermik yfirborð,
</)
stálrammi, fjórar hellur,
þar af tvær halógen,
sjálfvirkur hitastillir og
hitaljós.
Helluborð
TH483B
Keramik yfirborð, svartur
eða hvítur rammi, fjórar
hellur, þar af tvær
halógen, sjálfvirkur
hitastillir og hitaljós.
Funahöfða 19
sími685680
s