Morgunblaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 33
MORGÚNBLAÐIÐ LAUGARDAGUK 22. DESEMBER 1990 33 Perlur í náttúru íslands Perlur í náttúru íslands heitir nýútkomin bók hjá Máli og menn- ingu. Hún er eftir sama höfund og bókin Fuglar í náttúru Islands sem út kom hjá sama forlagi árið 1987. Höfundur beggja bók- anna er Guðmundur Ólafsson. í bókinni Perlur í náttúru Is- lands er ferðast fram og aftnr í tímanum, út í himingeiminn, nið- ur í iður jarðar og um allt Island þar sem sérstaklega er komið við á 70 stöðum. Morgunblaðið birtir hér úr tveim köflum; Lesið í landslag (niðurlag) og BrækUr og Baulur Norðurárdals. Lesið í landslag - niðurlag íslendingar eru börn náttúrunn- ar og verða það vonandi áfram á tækniöldum. Þeir eru bændur og veiðimenn að upplagi og uppruna, en breytingar á búsetu í landinu hafa líka breytt samskiptum okkar við náttúruna. Síðan fólk fluttist. úr sveitum landsins og sjómenn hættu að sigla eftir miðum á miðin hefur staðbundinni þekkingu hrak- að. Kennileiti og ömefni sem áður varðveittust mann fram af manni gleymast og sögur týnast eða geymast í besta falli á stofnunum, en nýtast ekki lengur; og er það miður. Þó að þekking á staðháttum hafi farið forgörðum má ekki gleyma því að nýr og öðruvísi fróðleikur um landið og náttúm þess hefur komið í staðinn. Þetta er víðfeðm þekking á jarðfræði og lífríki lands- ins, og þá vitneskju þarf nútímafólk að nema og læra að lesa á bók náttúrunnar á nýjan máta. Rétt eins og forfeður okkar lásu vitneskju úr miðum lesum við fróðleik úr fjöll- um og dölum. Því að víst er að án haldgóðrar þekkingar á náttúru landsins erum við illa stödd bæði sem einstaklingar og þjóð. Skilningur og þekking á náttúr- unni kemur ekki af sjálfu sér. Bæk- ur eru ágæt hjálpargögn svo og kort og myndir, en nauðsynlegast er að skoða og þekkja landið. Ein- ungis þannig kemst einstaklingur- inn í samband við það og landið fer að segja sögur og sýna honum heima sem hann hefur aldrei áður litið. Okkur væri hollt að kynnast i Við Eyjafjörð. heldur „hinn bjarti, glettni foss“. Upphaflegt heití fossins var Gleinarfoss og vera má að Glanni sé afbökun úr Gleinar eftir að menn höfðu gleymt því hver Glein- ar, Glen(u)r og Glan(u)r var, en hann var maki sólarinnar. Eins líklegt er að fossnafnið Glanni sé umskiptingur, í bókstaflegri merk- ingu og afbakað af ráðnum hug til þess að eyða hinni fomu náttúru- trú. En löngu eftir siðaskiptin árið 1000 reyndu kirkjunnar menn að afmá öll ummerki hins forna siðar í málinu og er nærtækt að nefna heiti vikudaga. Gleinarfoss er því fossinn hans Gleinar(s). Ef til vill hefur sumum okkar þótt æskilegt að einhver svo nákominn sólinni settist að í fossin- um eða eignaðist hann. Gleinar hefur kannski átt að vernda Norð- urárdal fyrir nepju Holtavörðuheið- ar? Fjállsheitið Baula hefur óljósan uppruna. Það er talið skylt orðinu beyla sem merkir kroppur, kryppa og herðakistill sem svipar til fom- sænsku orðanna bolin og bulin = bólginn, fomenskunnar býie = bóla, bólguhnúður og þýska orðsins beule = hnúður. Beyla er líka nafn á þjónustumey hinnar fögm Freyju, gyðju ásta, fijósemi og gróanda, en óvíst er hvort það hafi verið hrós að nefna meyna því nafni. Stílhrein og tignarleg sem Baula er þykir vafasamt að hún beri last- Vatnið rennur af háum fjöllum eftir hvössu grjóti landinu sjálfu og náttúra þess meira en við geram. Það þroskar okkur sem menn og íslendinga, líkt og lestur fomritanna, því að landið er ekki dautt á þann hátt, er vér hyggj- um, heldur á það sér eðli og örlög, sem svipar til okkar raka, mann- anna, en era aðeins máttugri, stór- brotnari, skáldlegri. Það er saga fyrir sig, hvemig dalurinn þinn hef- ur orðið til, hversu jöklar, vatn og vindar hafa sorfið hann í hin bláu hölkn frá afli og steðja eldsins, hvernig gróðurinn hefur gætt hann unaði og angan. Brækur og Baulur Norðurárdals Ömefnið Glanni er ekki talið uppranalega fossheitið og í merk- Svalþúfubjarg og Lónadrangar. ingunni „glannalegur" hæfir það ekki þessum fríða, bjarta fossi. En upphafleg merking orðstofnsins glan er að blika eða gljá og skylt orðinu glenna sem merkir m.a. skýjarof eða þar sem grillir í heiðan himin, hið bjarta. Orðin glotta- grannt og gletta era merkingartil- brigði af þessum orðum og í þeim skilningi er Glanni ekki rangnefni yrði. Þegar betur er að gáð minnir Baula óneitanlega á allvænt konu- bijóst og þess vegna er líklegra að Baula merki bijóstið á Beylu eða eitthvað í þá veruna og sé því glens- yrði. Samkvæmt því era bijóstin tvö og bæði björt. Gleinar í fossinum hefur þá oftlega gjóað augum til Beylubijósta og lái honum hver sem vill. SLOPPAR - SLOPPAR Frottesloppar - stuttir, síðir Verð frá 3.000,- kr. Velúrsloppar - Loðsloppar - Sloppasett lympii Laugavegi 26 - Glæsibæ - Kringlunni 8-12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.