Morgunblaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990 29 Sautján lagafrumvörp sam- þykkt á tveimur dögum Þingmcnn hafa notað löggjafarvaldið óspart síðustu daga. Auk fjár- laganna hafa sextán mál verið samþykkt sem lög frá Alþingi síðustu tvo sólarhringa. Brýna nauðsyn ber til að afgreiða mikinn málafjölda fyrir jólaleyfi þingmanna, reynir mjög á krafta og starfsþrek þingmanna, þingforseta og starfsmanna Alþingis. Til að mál fengju afgreiðslu hafa forsetar þing- deilda einnig beitt nokkurri lögvísi í beitingu afbrigða á þingsköpum; eft- ir að fundi lauk, hófst sá næsti, og mál tekin til umræðu og meðferðar með afbrigðum frá þingsköpum. í fyrradag og fyrrakvöld urðu sjö frumvörp að lögum. Til þess að svo mætti verða, voru haldnir 7 fundir í neðri deild, 4 í efri deild og 2 í sam- einuðu þingi. Þinghaldið hófst kl. 10 árdegis og lauk kl. 1.54 aðfaranótt föstudagsins. í neðri deild voru samþykkt sem lög: Sérstakur skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Þessi skatt- heimta á sér áratugs hefð en var í upphafi tímabundin. Frumvarp um samskiptamiðstöð heyrnarlausra varð að lögum. Frumvarp um Há- skóla íslands varð að lögum, lögin gera Háskólanum fært að færa miðs- vetrarpófín frá janúar til desember. í efri deild voru samþykkt lög um heilbrigðisþjónustu; um skipan sérs- taks samstarfsráðs sjúkrahúsanna í Reykjavík, m.a. til að móta fram- tíðarstefnu og stuðla að sem hag- kvæmastri verkaskiptingu. Einnig hlutu samþykki sem lög frumvarp um almannatryggingar, þ.e. elli- Kvöld- og næturum- ræða um fjárlög 1991 Egill Jónsson hafði síðasta orðið Frumvarp til fjárlaga var rætt á kvöld- og næturfundi Sameinaðs þings í fyrradag. Þingmenn ræddu bæði almennt um fjármálastjórnina og einnig nokkuð um einstaka málaflokka sem hefðu hlotið mismikla náð fyrir augum fjárveitingarncfndar. Egill Jónsson (S-Al) gagnrýndi ýmislegt varðandi framíög til land- búnaðar. Egill taldi núverandi land- búnaðarráðherra, Steingrím J. Sig- fússon, að mörgu leyti velviljaðan mann og undraðist því hvernig hann gæti átt hlut að öðru eins frumvarpi sem biyti lög á bændum m.a. varð- andi framlög og framkvæmdir vegna jarðræktarlaga. Einnig ræddi Egill nokkuð um fjárveitingar og útreikn- inga tengda landgræðsluáætlun. Danfríður Skarphéðinsdóttir (SK-Vl) saknaði margs í frumvarpinu og taldi að áherslur mættu vera með öðrum hætti. Til að reyna að breyta eða bæta frumvarpið eilítið, mælti hún fyrir nokkrum breytingatillög- um. T.d. um hækkuð frarhlög til barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Ennfremur' til Kvennaathvarfsins í Reykjavík. Steingrímur J. Sigfússon land- búnaðarráðherra taldi frumvarpið vera eftir atvikum „ásættanlegt" og ýmsar stofnanir landbúnaðarins fengju sanngjarnari meðferð nú en oft áður. Af orðum ráðherrans mátti ótvírætt skilja að hann teldi sig ekki hafa tekið við góðu búi er hann sett- ist í ráðherrastól. — Steingrímur hafði nokkrar tölur og reyndar línu- rit máli sínu til stuðnings. Ræðumað- ur taldi íhugunarefni hvort þingið útvegaði nútíma tæki til að miðla myndrænum upplýsingum. Guðrún Helgadóttir forseti sameinaðs þings kvaðst mundu ræða það mál við lífeyri sjómanna, frumvarp um tekju pg eignarskatt, frumvarp um hlut íslands í stofnfé Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu. Og að end- ingu, frumvarp um tekju- og eignar- skatt til að tryggja óbreytta skatt- byrði einstaklinga. I gær var stundvíslega hafist handa við afgreiðslu mála kl. 10 ár- degis. Fyrst var fjárlagafrumvarpið samþykkt í sameinuðu þingi. Síðan hófust deildafundir. Neðri deild samþykkti lánsfjárlög fyrir árið 1990, einnig lög um Hús- næðismálastöfnun, þ.e. um stimpil- gjöld af lánssamningum vegna kaupa á félagslegum íbúðum. í efri deild voru samþykkt frum- varp um útflutningssjóð, frumvarp um iðnlánasjóð. Einnig frumvarp um jöfnunargjald. Frumvarp um trygg- ingagjald, því frumvarpi var breytt allverulega fyrir tilmæli framsóknar- manna. - Frumvarp um virðisauka- skatt. Frumvarp um staðgreiðslu opinberra gjalda. Einnig var frum- varp um starfsmannahald samþykkt, en það frumvarp gerir m.a. ráð fyrir Morgunblaðið/Árni Sæberg Þingmenn fóru í jólafrí í gær. Þing kemur aftur saman 14. jan- úar. Hér eru þau að kveðjast Guðmundur H. Garðarsson og Rannveig Guðmundsdóttir. því að launþegar þurfí ekki að skipta um stéttarfélag, vegna breytinga á verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga. Nokkur mál sem kapp hafði verið lagt á að hlytu afgreiðslu, verða að bíða fram yfir áramót. Má þar helst nefna lánsfjárlög fyrir árið 1991. Tímabundinn yfirdráttur Sukk og svínarí, segir Kristinn Pétursson ÓLAFUR Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra hefur mátt þola harða gagnrýni undanfama daga í umræðum um fjárlög næstkom- andi árs. Kristinn Pétursson (S- Al) hefur verið einna skeleggast- ur í gagnrýninni. I umræðum í fyrradag mælti Kristinn Pétursson fyrir tillögu um að afnema heimild fjármálaráðherra til að stofna til tímabundins yfir- dráttar á viðskiptareikningi ríkis- sjóðs. Kristinn telur heimild þessa vera framsal á valdi Alþingis. Krist- inn Pétursson telur að þetta og fleira í ráðsmennsku fjármálaráðherrans bijóti í bága við stjómskipunarlög. Kristinn sagði ríki hafa misst fjár- hagslegt sjálfstæði sitt í svipuðu sukki og óráðsíu og rekstur ríkis- sjóðs bæri nú vitni um. Ráðherrann brá sér hvergi við þessa gagnrýni og las dagblaðið Þjóðviljann. Við atkvæðagreiðslu um frum- varpið til fjárlaga í gær var tillaga Kristins felld með 37 atkvæðum gegn 2. húsfriðunamefnd. Landbúnaðarráðherra taldi sig hafa sýnt Agli Jónssyni og öðmm þingmönnum fram á að ekki væri hægt að greiða gamlar skuldir og um leið jarðræktarstyrki. Kristín Einarsdóttir (SK-Rv) taldi ýmislegt vanáætlað í þessu fmmvarpi og ekki athugað sem skyldi hver þörfin væri fyrir ýmsa þjónustu sem væri styrkt í frumvarp- inu. Ingi Björn Albertsson sagði m.a. að fjármálaráðherrann og skat- takóngurinn hefði nú slegið persónu- legt met, „hat trick“ á fótboltamáli. Asgeir Hannes Eiríksson ræddi fjárlögin vítt og breitt, taldi að víða væri vel gert, dró þó ekki dul á að nokkurs óraunsæis gætti við fjár- lagagerð, væri tími til þess kominn að ígrunda ríkisútgjöldin nánar, t.d. hversu lengi við gætum haldið uppi námslánakerfinu. Þegar hér var komið sögu lauk Ásgeir sinni ræðu, þótt hann ætti nokkur blöð ólesin. Ræðumaður vildi ekki lengja þinghaldið óhóflega en hann þóttist merkja nokkuð óþol hjá Halldóri Blöndal (S-Ne). Var nú fundi frestað og gengu þingmenn til starfa í deildum. Að þeim afloknum nokkra eftir kl. 1 hófst umræðan að nýju. Einungis einn ræðumaður reyndist á mælendaskrá og hafði sá síðasta orðið, Egill Jónsson (S-Al) ítrekaði gagnrýni sína á fjárlögin, einkum varðandi framlög til landbún- aðarmála. Fundi var slitið kl. 1.54. Ekkí um lögbrot að ræða við ákvörðun vaxta bankanna - segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra HARÐORÐAR umræður urðu utan dagskrár um vaxtamál í sameinuðu þingi í gær, á síðasta starfsdegi Alþingis fyrir jólaleyfi þingmanna. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi þar harð- lega ummæli forsætisráðherra í fjölmiðlum um vaxtahækkanir Búnað- arbanka og sparisjóðanna og sagði að ástandið á lánamarkaðnum mætti fyrst og fremst rekja til aðgerða ríkissljórnarinnar. I umræðun- um sagði viðskiptaráðherra meðal annars, að ekki hefði verið um lög- brot að ræða við vaxtaákvörðun bankanna og Guðmundur G. Þórarins- son sagði að vaxtahækkunin væri aðeins aðlögun nafnvaxta að verð- bólgu. Þorsteinn Pálsson óskaði eftir umræðunum vegna þeirra ummæla Steingríms Hermannssonar, forsæt- isráðherra, í fjölmiðlum, að hækkun Búnaðarbanka og sparisjóðanna á nafnvöxtum væri ein versta aðför að þjóðarsáttinni, sem gerð hefði verið, og stangaðist jafnvel á við lög. Þorsteinn gagnrýndi þessi ummæli harðlega og sagði að ástandið á lána- markaðnum ætti fyrst og fremst rætur að rekja til stefnu ríkisstjórn'- arinnar og hún gæti ekki þvegið hendur sínar af því. Forsætisráðherra fjallaði almennt um þróun vaxtamála og taldi að veru- leg umskipti hefðu átt sér stað í átt til vaxtalækkunar þegar ríkisstjóm hans tók við völdum í september 1988. Hann sagðist telja, að stjóm- völd ættu að hafa afskipti af þessum málum til þess að koma í veg fyrir brask og gjaldþrot, sem væru afleið- ingar hávaxtastefnu. Frumvarp til fjárlaga 1991 samþykkt í gær í gærmorgun voru greidd atkvæði um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1991. Tekjur ríkisins á næsta ári eru áætlaðar tæpir 102 milljarðar en upphaflega voru þær áætlaðar um 99 og hálfur milljarður. Greidd voru atkvæði um frum- varpið í nokkrum liðum, ýmist með handauppréttingu eða nafnakalli. Þess má geta að tillaga frá þing- mönnum Samtaka um Kvennalista um styrk til rannsóknarstofu í kvennafræðum var felld með 28 atkvæðum gegn 9. Tillaga um framlag til stofnunar og reksturs búminjasafns á Hvanneyri var einnig felld með 32 atkvæðum gegn 7. Hins vegar var tillaga um heiðurslaun listamanna samþýkkt með 44 samhljóða atkvæðum. Breytingatillaga um að fjármála- ráðherra sé heimilt að gefa út fyr- ir hönd ríkissjóðs verðbréf og spa- riskírteini og ríkisvíxla fyrir 8 milljarða króna var samþykkt með 33 atkvæðum gegn 7 en 13 greiddu ekki atkvæði. Þessi tillaga var lögð fram sökum þess að ekki tókst að afgreiða frumvarp til lánsfjárlaga fyrir áramót. Þá var einnig samþykkt að fjár- málaráðherra væri heimilt að höfðu samráði við menntamála- ráðherra að leita samninga við Reykjavíkurborg og aðra aðila um lausn á fjárhagsvanda Islensku óperunnar. Var ákvæði þar um samþykkt með nafnakalli. Það kom til nokkurra orðaskipta. T.d. sagði Geir H. Haarde (S-Rv) að þessu ákvæði væri bætt inn í til að koma höggi á borgarstjórann í Reykjavík. Svavar Gestsson hins vegar hafði orð um framsýni, og ekki væri rétt að lýsa vantrausti á borgarstjórann. Þórhildur Þor- leifsdóttir (Sk-Rv) kallaði tilraun- ina yfirklór til að ýta vandanum yfir á aðra en hún vildi ekki standa gegn neinu sem orðið gæti óper- unni til bjargar. Þessi heimild var samþykkt með 33 atkvæðum, 7 voru andvígir, 14 greiddu ekki atkvæði og níu voru fjarverandi. í endanlegri gerð var frumvarp- ið samþykkt með 33 samhljóða atkvæðum. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, lagði áherslu í máli sínu á að fylgja bæri frjálslyndri stefnu í vaxtamálum og taldi hann að stefna ríkisstjórnarinnar í peningamálum væri almennt vel heppnuð. Varðandi ummæli forsætisráðherra sagði við- skiptaráðherra, að ekki hefði verið um lögbrot að ræða við ákvörðun Búnaðarbanka og sparisjóðanna á hækkun nafnvaxta. Guðni Ágústsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður Bankaráðs Búnaðarbanka, sagðist harma ummæli forsætisráðherra. I máli hans kom fram, að ósamræmi hefði verið orðið milli verðtryggðra og óverðtryggðra reikninga og vaxtahækkunin hefði aðeins komið fram á óverðtryggðum reikningum, þannig að ekki hefði verið um al- menna vaxtahækkun að ræða. Ólafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra, sagði það furðulegt, að forysta Sjálfstæðisflokksins vildi efna til almenns málfundar um þessi mál nú og treysti sér til að kenna ríkisstjórninni um stöðuna í vaxta- málum, í ljósi þess að spariskírteina- vextir hefðu verið komnir upp í 9% í stjómartíð sjálfstæðismanna en væru nú 6%. Friðrik Sophusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að ríkið hefði afgerandi áhrif á raunvaxtastig í landinu. Ríkið hefði getað sótt láns- fé á markaðinn í ár án þess að vext- ir hækkuðu mikið vegna þess að at- vinnulífið hefði haldið að sér höndum í þeim efnum, en ljóst væri að á næsta ári þyrfti atvinnulífið á meira lánsfé að halda og því gætu vextir hækkað þá. Friðrik sagði að með ummælum sínum hefði viðskiptaráð- herra rassskelt forsætisráðherra. Guðmundur G. Þórarinsson, þing- maður Framsóknarflokksins í Reykjavík, sagði að það væri í sam- ræmi við þjóðarsáttina að nafnvextir fylgdu verðbólgu og það væri það, sem gerst hefði nú hjá Búnaðarbanka og sparisjóðunum. Steingrímur Hermannsson sagði við lok umræðnanna að hann og við- skiptaráðherra væru ósammála um margt í vaxtamálum og hann sjálfur væri stoltur af því að vera lágvaxta- maður. Þorsteinn Pálsson líkti forsætis- ráðherra við keisarann í sögu H.C. Andersen og sagði að viðskiptaráð- herra, Guðni Agústsson og Guð- mundur G. Þórarinsson hefðu nú sýnt fram á að hann væri ekki í neinum klæðum. Þorsteinn vitnaði í orð forsætisráðherra um afstöðuna til vaxtamála og sagði það sýna best stöðuna í ríkisstjórninni, að forsætis- ráðherra væri stoltur af því að vera í andstöðu við viðskiptaráðherra eig- in ríkisstjórnar. Dé Longhi djúp- steikingarpotturinn er byltingarkennd nýjung Hallandi karfa, sem snýst meðan á steikingu stendur: • jafnari steiking • notar aðeins 1,2 Itr. af oliu í stað 3ja Itr. í venjulegum" pottum • styttri steikingartíma • 50% orkusparnaður ——50%— (DeLonghi) Dé Longhi erfallegur fy rirferdarlítill ogfljótur /rQniX HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.