Morgunblaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990 Samherji og Sæplast kaupa 30% hlut í K. Jónssyni SÆPLAST hf. á Dalvík hefur keypt 15% hlut í Niðursuðuverk- smiðju K. Jónssonar og co. á Akureyri og forráðamenn Samheija íhuga einnig kaup á 15% hlut í fyrirtækinu. Framkvæmdastjóri Sam- heija vildi ekki staðfesta að fyrirtækið væri búið að kaupa umrædd- an hlut í fyrirtækinu, sagði að menn væru að skoða málið, en sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins var gengið frá samningum um kaupin í vikunni og verða hlutabréf afhent í janúar. Um nokkurt skeið hefur 36% hlutur í fyrirtækinu verið til sölu, Kristján Jónsson stærsti eigandi þess nýtti sér forkaupsrétt sinn, en hefur nú selt áðurnefndum fyrirtækjum 15% hlut hvoru. Kristján Jónsson á 70% í fyrirtækinu. Pétur Reimarsson framkvæmda- stjóri Sæplasts hf. á Dalvík stað- festi að umrædd kaup hefðu verið gerð, en hann vildi ekki gefa upp kaupverð. Hann sagði að hlutafé væri lítið í fyrirtækinu sem stæði, en stefnt væri að því að auka það samhliða því að starfsemin yrði efld og jafnframt væri stefnt að því að gera fyrirtækið að almennings- hlutafélagi innan nokkurra ára. Pétur sagði að einnig væri fyrir- hugað að efla mjög sölustarfsemi á vegum fyrirtækisins, en um 90% af framleiðsluvörum þess fara á markað í útlöndum. „Við höfum mikla trú á fyrirtækinu og þeirri starfsemi sem þar fer fram. Það er þó ljóst að vinna þarf að öflugri vöruþróun og markaðssókn og okk- ur þykir það spennandi að taka þátt í að efla útflutningsfyrirtæki, þó það sé ekki á því sviði sem við höfum starfað á hingað til,“ sagði Pétur. Þorsteinn Már Baldvinsson fram- kvæmdastjóri Samheija vildi ekki staðfesta að fyrirtækið væri búið að kaupa hlut í Niðursuðunni, sagði að verið væri að skoða málið og það yrði gert fram yfír áramót og ákvörðun um kaup tekin þá. Hann sagði það vilja fyrirtækis- ins að styrkja atvinnulífið í bænum, en það hefði verið í mikilli lægð undanfarið. Hann nefndi sem dæmi samdrátt í Slippstöðinni, fækkun starfsmanna hjá Álafossi og Plast- einangrun væri hætt starfsemi á Akureyri. „Þrátt fyrir að okkur sé núið því um nasir, að allur kvóti sé að safnast hingað, þá er það alveg ljóst að deyfð hefur verið í atvinnulífinu hér. Ég held því að það sé mjög mikilvægt að við styðj- um við atvinnulífið í bænum. Það er fyrir því vilji að styrkja Niðursuð- una og þeir hafa rætt við okkur í því sambandi," sagði Þorsteinn. Niðursuðuverksmiðjan er um 50 ára gamalt fyrirtækið, það stærsta á þessu sviði í landinu með veltu upp á 1.000 milljónir á ári og þar starfa að jafnaði um 90 manns. Fyrirtækið hefur sagt sig úr Sölu- samtökum lagmetis og fer öll sala á framleiðsluvörum þess eftir ára- mót í gegnum söludeild fyrirtækis- ins sjálfs. Kirkjukór Dalvíkurkirkju. Morgunblaðið/Trausti Þorsteinsson Dalvíkurkirkja: Vel sóttir aðventutónleikar GÓÐ aðsókn var að aðventutón- leikum sem haldnir voru í Dalvík- urkirkju miðvikudagskvöldið 12. desember sl. Flutt voru ýmis kirkjuleg verk af tónlistarfólki Grímsey: Jólasveinar stytta börnun- um biðina á Þorláksmessu Grímsey. SJÓSÓKN gekk treglega í des- ember vegna veðurs og var veiði lítil. Voru flestir hættir um miðjan mánuðinn. Nú liggur bátafloti Grímseyinga bundinn í nýju höfn- inni og prýðir ljósasería stærsta bátinn. Kvenfélagið Baugur og Kiwanis- klúbburinn Grímur hafa nokkur und- anfarin ár staðið fyrir samverustund í félagsheimilinu þar sem allir eru velkomnir og á meðan fólkið staldrar við getur það keypt jólaglögg og meðlæti, sem eru ostapinnar, pipar- kökur og snittur. Föstudaginn 14. desember hófst jólafrí í skólanum að afstöðnum litlu jólunum og að sjálfsögðu fengu börn- in jólasvein í heimsókn. Hann og bræður hans hafa verið á ferli um nætur og gefíð í skóinn. Frést hefur að kartöflur hafi slæðst innan um það sem í pokunum er. Þá eigum við von á jólasveinum í 'neimsókn á Þorláksmessu, en þeir hafa fyrir sið að banka upp á í hveiju húsi og færa bömum smá- glaðning til að dreifa huganum þegar biðin eftir hátíðinni er orðin löng. Jólaundirbúningur er sjálfsagt svipaður hér og annars staðar. Laufabrauð er búið til á öllum bæjum og hjá sumum er einnig bakað gróft laufabrauð. Mikið er bakað og þeir eru til sem búa sér til eigið jólakonf- ekt. Svo er allt þvegið hátt og lágt eða bara málað. Víða eru komnar ljósaseríur og alls kyns jólaljós bæði úti og inni, jólatré eru utan við félagsheimilið Múla og verslunina á staðnum og óneitanlega setur þetta jólalegan svip á eyjuna okkar og kemur okkur í jólaskap. Hólmfríður frá Akureyri og kirkjukór Dalvíkur. Nýtt og veglegt pípu- orgel hefur verið tekið í notkun í kirkjunni og lék Björn Steinar Sólbergsson organisti við Akur- eyrarkirkju einleik við þetta nýja hljóðfæri. Dagskráin hófst með því að Kirkjukór Dalvíkur flutti nokkra jólasálma frá 15., 16, og 17. öld undir stjórn Hlínar Torfadóttur. Þá lék Bjöm Steinar Sólbergsson Tocc- ötu og Pastorale eftir J.S. Bach á nýja pípuorgelið. Kirkjukórinn flutti síðan Litlu orgelmessuna eftir Jos- eph Hayden við undirleik Björns Steinars og strengjasveitar frá Ak- ureyri, en hana skipuðu Magna Guðmundsdóttir, Anna Podhajska, Örnólfur Kristjánsson og Jón Rafnsson. Einsöng annaðist Mar- grét Bóasdóttir. Tónleikarnir end- uðu síðan með því að leikið var Noél (jól) nr. 9 og 10 eftir Louis- Claude d’Aquin á pípuorgelið, sr. Jón Helgi Þórarinsson sóknarprest- ur flutti bæn og kirkjugestir sungu jólasálm. Fréttaritari lölaéiöfin í ái nýjar í pakka ( kr. 1.750.- ÆTTAR- MÓTIÐ ÞJÓÐLEGUR FRASI MEÐ SÖNGVUM EFTIR BÖÐVAR GUÐMUNDSSON. Leikstjórn: Þráinn Karlsson. Tónlist: Jakob Frímann ' Magnússon. Leikmynd og búningar: Gylfi Gíslason. Lýsing: Ingvar Björnsson. Leikendur: Ragnhildur Gísladóttir, Valgeir Skagfjörð, Björn Björns- son, Jón St. Kristjánsson, Þór St. Kristjánsson, Þórey Aðalsteins- dóttir, Sunna Borg, Björn Ingi Hilmarsson, Rósa Rut Þórisdóttir, Árni Valur Viggósson, Nanna Ingibjörg Jónsdóttir, Marinó Þor- steinsson, Kristjana N. Jónsdóttir, Guðrún Silja Steinarsdóttir, Þórdís Steinarsdóttir, Arnar Tryggvason, Kristján Pétur Sigurðs- son, Haraldur Davíðsson, Jóhann Jóhannsson, Svavar Þór Guð- jónsson og Hörður Kristinsson. Frumsýning: 27. des. kl. 20.30 2. sýning 28. des. kl. 20.30 3. sýning 29. des. kl. 20.30 4. sýning 30. des. kl. 17.00 mf pj l rrfíiiíí ffl w n Ul FIIhiribiI 3 1.S jjjsFO LEIKFÉLAG AKUREYRAR Miðasölusími: 96-2 40 73 SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Bautamótið Bautamótið í innanhússknattspyrnu sunnudaginn 30. des. Enn er mögulegt að tilkynna þátttöku til Sveins í síma 25885, vs. 25606, og Magnúsar í síma 26260, vs. 22543, til loka fimmtudags 27. des. Knattspyrnudeild KA. Óskum öllum styrktaradilum okkar, áhangendum og knattspyrnumönnum um allt land gledilegra jóla, árs og fridar. Þökkum stubninginn. L,ifib heil. Knattspymudeild Þórs. 7V ÚTGEFANDI: fSLENSK SPIL HF. DREIFING: verðbrefaspilið : T # SNJALLT SPIL FYRIR F( F0RSJALT F0LK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.