Morgunblaðið - 28.06.1988, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988
Flokksráðstefna sovéska kommúnistaflokksins hefst í dag:
Verður vald flokksins
skert eftir 70 ára alræði?
Opnunarræðu Gorbatsjovs beðið í ofvæni
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
NÍTJÁNDA flokksráðstefna sovéska kommúnistaflokksins hefst í
dag. Fulltrúar á ráðstefnunni hafa lofað að breytingar á sovésku
stjórnarfari verði aðalumræðuefni hennar. Framkvæmd breyting-
anna sem boðaðar hafa verið er ótrygg einfaldlega vegna þess hvers
eðlis stjórnkerfið er sem á að breyta. Míkhaíl Gorbatsjov mun ávarpa
ráðstefnuna i dag og er talið að ræða hans verði einhver sú mikilvæg-
asta á ferli hans til þessa.
Míkhaíl Gorbatsjov, sem mun í
dag halda stefnuræðu sína fyrir
fulltrúana 5.000 sem sitja flokksr-
áðstefnuna, vill, að með þessari
flokksráðstefnu verði framtíð „per-
estrojkunnar" og breytinganna sem
hann hefur boðað tryggð með því
að minnka völd opinberra starfs-
manna.
„Aðalmál þessarar ráðstefnu er
enduruppbygging á pólitísku valda-
kerfí Sovétríkjanna, sem er úrelt
eins og flestum er ljóst," sagði
Naíl Bíkkenín, ritstjóri flokkstíma-
ritsins Kommúnist, á blaðamanna-
Ítalía;
Sósíalistar
vinna fylgi af
kommúnistum
Rómaborg. Reuter.
ÍTALSKIR sósialistar unnu mik-
ið fylgi á kostnað kommúnista í
sveitarstjórnarkosningum í
tveimur nyrstu héruðum Ítalíu
um helgina.
Fylgisaukning sósíalista nam um
sex prósentustigum og stefndi í að
þeir fengju 15,8% atkvæða. Allt
benti til þess að kommúnistar
fengju 17,7% atkvæða, sem er um
fimm prósentustigum minna fylgi
en í sveitastjómarkosningunum
1983.
Kosningamar fóru fram i Valle
d’Aosta í norðvesturhluta Ítalíu og
Friuli Venezia-Giulia í norðaustur-
hluta landsins. Kosningar fóru fram
í öðrum kjördæmum fyrir mánuði
og var þróunin sú sama þar; sósía-
listar unnu fylgi á kostnað komm-
únista.
fundi í gær. Aðstoðarritstjóri
Bíkkeníns, Ottó Latsís, sagði í sam-
tali við Prövdu, málgagn sovéska
kommúnistaflokksins, að líf fólks í
Sovétríkjunum hefði ekki breyst til
batnaðar frá því Gorbatsjov tók við
völdum og það væri rangt að gera
ráð fyrir því að flokksráðstefnan
myndi verða til þess að breytingam-
ar yrðu merkjanlegar á daglegu lífi
Sovétborgara. Báðir þessir menn
sitja flokksráðstefnuna.
Yfir 1,5 milljón óskir hafa borist
til ráðsins frá því kunngjört var að
hægt væri að koma á framfæri
óskum um umræðuefni flokksráð-
stefnunnar til Miðstjómar fiokksins
fyrir mánuði síðan. Flokksráðstefna
var síðast haldin árið 1941. Hundr-
uð óska hafa verið birtar í dag-
blöðum og afleiðing af „glasnost"-
stefnu Sovétleiðtogans hefur birst
í því að fjöldi sovéskra borgara
hefur krafist þess að í framtíðinni
verði gerðar róttækari og áþreifan-
legri breytingar en hingað til hefur
verið.
Jegor Jakovlev, ritstjóri viku-
blaðsinsMoskvu-frétta, sem situr
flokksráðstefnuna, sagði í síðustu
viku að þær óskir sem borist hefðu
frá almenningi væra þess eðlis að
fyrir fimm áram hefði enginn þorað
að nefna þær í góðra vina hópi
hvað þá opinberlega. Hann, ásamt
fleiram sem styðja breytingar Gor-
batsjovs, hafa krafist þess að hátt-
settum opinberam starfsmönnum
verði bannað að gegna embætti í
meira en tíu ár. Jakolev viðurkenn-
ir að hann geri sér ekki fyllilega
grein fyrir því á hvem veg sé best
að þróa stjómkerfi Sovétríkjanna.
Undir það hafa margir þeir sem
sæti eiga á ráðstefnunni tekið.
Mótmæli í Moskvu
endurspegla óvissuna
Mikil mótmæli vora á Púshkín-
torgi í Moskvu síðastliðinn laugar-
dag og era þau dæmigerð fyrir þá
ringulreið sem ríkir í Sovétríkjunum
fyrir flokksráðstefnuna. Mótmælin
Reuter
Mótmælin i Moskvu á laugardaginn. Lögregla reynir árangurslítið
að halda aftur af mótmælendum.
vora líklega hin fjölmennustu sem
haldin hafa verið í Moskvu í sögu
Sovétríkjanna. Þau vora eins og
sýnishom af því sem er að gerast
innan stjómkerfísins. Engan veginn
var hægt að gera sér grein fyrir
hverju var verið að mótmæla eða
hveijir stæðu saman. Fólk hrópaði
hvert á annað og óbreyttir borgarar
svöraðu lögreglumönnum, sem
reyndu að stilla til friðar, fullum
hálsi.
Leiðtogafundur Evrópubandalagsins:
Horfum björtum augum til
sameiginlegs markaðar EB
- segir Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands
Noregur;
Bægslagang-
ur í réttinum
Ósló. Reuter.
FYRRVERANDI hlutabréfasali
við stærsta banka Noregs gerði
sér lítið fyrir á mánudag, þar
sem hann var staddur fyrir rétti,
og jós svívirðingum yfir kven-
dómara sem dæma átti i máli
hans auk þess sem hann hellti
yfir hana fullum bolla af vatni.
Maðurinn, sem er 37 ára gamall
Frakki, er sakaður um að hafa átt
í ólöglegum viðskiptum á meðan
hann starfaði fyrir norska Kredit-
bankann.
Atvikið, sem um er rætt, átti sér
stað eftir stutt matarhié í réttinum
á mánudag. Frakkinn, Philippe
Hecker, gekk að dómaranum og
kallaði til hennar; „Þú ert gömul,
þú ert ekki falleg, þú ert vitlaus
og þú ert óþolandi," um leið og
hann skvetti vatni í andlit hennar.
Dómarinn heimtaði strax að maður-
inn yrði færður burt.
Heeker, sem á yfir sér 6 ára dóm
reynist hann sekur, hefur áður sýnt
mótþróa í réttinum. Hann hefur t.d.
gengið út og sakað réttinn um að
vera einungis armur ríkislögregl-
unnar.
Réttarhöldin munu halda áfram
á mánudag án Heckers.
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
FUNDUR leiðtoga Evrópu-
bandalagsins hófst í Hannover
í Vestur-Þýskalandi í gær.
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands sem er í forseta-
stóli á fundinum, sagðist vera
ánægður með þann árangur
sem náðst hefði síðasta hálfa
árið, sérstaklega hvað varðaði
frjálst gjaldeyrisflæði innan
bandalagsins en það er lykil-
þáttur í þróun að sameiginleg-
um markaði eftir fjögur ár.
„Við horfum björtum augum til
sameiginlegs markaðar EB árið
1992 vegna þess hve vel hefur
gengið að leysa ágreiningsefni
ríkjanna tólf,“ sagði Kohl enn-
fremur. Sagðist hann vonast til
að á fundinum yrði mörkuð
stefna um hvaða verkefni væru
brýnust á næstu árum nú eftir
að deilum um landbúnaðarmál
væri lokið í bili.
Undanfarin ár hefur á leið-
togafundum EB verið þrefað um
alls konar smáatriði sem fagráð-
herrum og embættismannanefnd-
Reuter
Vopnaðir lögreglumenn skoða bifreið á leið á fiugvöllinn í Hano-
ver, skömmu áður en von var á leiðtogum Evrópubandalagsins.
um er annars ætlað að afgreiða.
Leiðtogafundimir hafa frekar ver-
ið áfrýjunardómstóll en sá vett-
vangur lifandi skoðanaskipta og
stefnumótunar sem ætlað var í
fyrstu.
Eitt af því sem liggur fyrir fund-
inum nú er að tilnefna nýjan for-
seta framkvæmdastjómarinnar.
Það er fastmælum bundið að Jac-
ques Delors verði tilnefndur til að
gegna embættinu áfram. Banda-
lagsþjóðimar standa nú frammi
fyrir þeirri staðreynd að ekki verð-
ur til baka snúið frá ákvörðuninni
um einn EB-markað frá 1992.
Dýrast að vera í Tókýó
Genf, Reuter.
NYLEG könnun alþjóðlegs ráð-
gjafarfyrirtækis sýnir að dýrast
er fyrir fólk í viðskiptaerindum
að dvelja í Tókýó, af 103 stór-
borgum heimsins. Osló er hins
vegar dýrasta borgin í Evrópu.
I könnuninni var týnd til inn-
kaupakarfa með mat, tóbaki,
áfengi, öðrum drykkjarvörum,
búsáhöldum, fötum og snyrtiá-
Félagsleg áhrif þeirrar ákvörðunar
verða rædd í Hannover. Leiðtog-
amir ræða jafnframt gjaldmiðilss-
amvinnu innan bandalagsins og
þróun hennar á næstu misseram.
Svo virðist sem þeirri skoðun
vaxi fylgi innan bandalagsins að
aðild að gjaldmiðilssamstarfinu
eigi að vera skilyrði fyrir aðgangi
að gjaldeyriskörfu EB sem þýðir
að Bretar verða að gera það upp
við sig hvort þeir vilja vera með
eða ekki. Þá era á dagskrá fundar-
ins umræður um evrópskan seðla-
banka og hvort stefna eigi að sam-
eiginlegum gjaldmiðli fyrir banda-
lagið allt. Á fundinum mun fram-
kvæmdastjómin gera grein fyrir
könnun sem er unnin á hennar
vegum, á neðanjarðarhagkerfínu
innan EB. Helmut Kohl hyggst
ræða innra öryggi aðildarríkjanna
og hvemig megi vinna gegn
hryðjuverkum, uppþotum og eitur-
lyfjasmygli þegar innri landamæri
hafa verið lögð niður.
Leiðtogar Evrópubandalagsins
hittast tvisvar á ári, og þá er skipt
um forseta í ráðherranefndum
bandalagsins. Frá síðustu áramót-
um hafa vestur-þýskir ráðherrar
stjómað ráðherrafundunum en
þann 1. júlí taka Grikkir við. Allt
bendir til að fundur leiðtoganna
nú verði með öðm sniði en venju-
lega þar sem færri ágreiningsefn-
um hefur verið vísað til fundarins
og umtalsverður árangur hefur
náðst á síðustu mánuðum í undir-
búningi EB-markaðarins.
höldum og auk þess var tekið mið
af verðlagningu á heimilishjálp,
skemmtun ýmiss konar og
leigubílum og almenningsvögnum.
Ekki var tekið tillit til kostnaðar
vegna gistingar.
I niðurstöðum könnunarinnar
var verðlag í New York miðað við
100 stig og þá var Tókýó með 221
stig, Osaka/Kobe 219, Teheran
192, Oslo 152, Zurich 143, Genf
141 og Helsinki með 140 stig.
Styrk staða jensins gagnvart
Bandaríkjadal veldur því að jap-
önsku borgimar em dýrastar.
Ódýrast var hins vegar að dvelja
í Caracas sem var með 38 stig en
miki! verðbólga veldur því að hag-
stætt er fyrir útlendinga að dvelja
í Suður-Ameríku.
ERLENT