Morgunblaðið - 28.06.1988, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988
Eigum fyrirliggjandi örbylgjuofna í úrvali, bæði frá
SANYO OG HUSQVARNA.
Ath. Með öllum okkar ofnum fylgir íslensk
matreiðslubók og kjötmælir.
Einnig lánum við okkar viðskiptavinum myndband með
matreiðslunámskeiði, 1 ]fr klst., sem erauðvitaðá íslensku.
\IERÐf^KR'
18.500.-„
Komið - sjáið - sannfærist.
E
Q)
O.
Gunnar Ásgeirsson hf. §
Suðurlandsbraut 16 - Sími 69 16 00
Garðar Eðvaldsson undirbýr síðasta pútt dagsins á St. Andrews og
Árni Stefánsson er reiðubúinn að taka flaggið úr holunni. Hús The
Royal and Ancient Golf Club í baksýn.
Kári Þormar bjargaði sér Iaglega upp úr einni af óteljandi sand-
gryfjum á Gamla vellinum í St. Andrews.
Grandagarði 2. siml 2885$, 101 Rvfk.
ÖRBYLGJUOFNAR
7 GERÐIR
I siiinar-
híisB
Olíulampar
Olíuluktir
Olíuofnar
Steinolía
Arinsett
Viðarkörfur
Slökkvitæki
Vasaljós
Veggljós
Rafhlöður
Tjara
Málning
Pinotex
Woodex
C-Tox
Verkfæri
Fatnaður
Björgunarvesti
Silunganet
SENDUM UM ALLT LAND
í föðurlandi
golfsins
íslenskir kylfingar lengja vertíð sína
á sögufrægum slóðum í Skotlandi
Nokkrir úr hópnum bíða eftir að byija að spila á West Links í North-Berwick.
Á VEGUM ferðaskrifstofunnar
Úrvals hefur undanfarin 20 ár
farið í maímánuði hópur íslenskra
golfiðkenda til Skotlands. Alla tíð
hefur hópurinn dvalist á sama
hótelinu í bænum North-Berwick,
sem er við sunnanverðan Forth-
fjörð. Þaðan er um hálftíma akstur
til Edinborgar. í North-Berwick
er dvalist í tíu daga og tíminn
nýttur til hins ítrasta, flestir spila
golf átta eða jafnvel níu daga. í
Lothian héraðinu eru um þijátíu
fyrsta flokks golfvellir, frægastur
þeirra Muirfield þar sem Opna
breska meistaramótið var haldið í
fyrra. 14 þessarra valla eru í
minna en hálftíma fjarlægð frá
North-Berwick. Það var sérstakt
við þessa 20. ferð að í tilefni henn-
ar var ákveðið að eyða síðasta
deginum í St. Andrews, Mekka
golfíþróttarinnar, og leika þar á
sögufrægasta velli jarðar, The Old
Course, Gamla vellinum.
Upphitun fyrir
vertíðina
í hópnum sem fór á vegum
Úrvals að þessu sinni voru 47
manns víðs vegar af á landinu og
á öllum aldri. Flestir höfðu verið
margsinnis áður með í för en
metið á Vilhjálmur Árnason
hæstaréttarlögmaður, sem var nú
með í nítjánda skipti. Skotland er
föðurland golfíþróttarinnar og
þjóðaríþrótt þarlendra. Vellimir
einhveijir þeir bestu og fallegustu
sem völ er á. Þetta er því tilvalinn
staður fyrir íslenska kylfinga til
að heimsækja og koma sér í form
áður en hin stutta golfvertíð hefst
heima á Íslandi.
Blaðamaður slóst með í för þeg-
ar nokkuð var liðið á dvölina. Það
var létt yfír hópnum og frábær
andi enda áttu allir sameiginlegt
áhugamál áhugamál og enginn
skortur á umræðuefni.
Harðar flatir
en lúxushótel
Á hvítasunnudag, daginn áður
en haldið var til St. Andrews, var
spilað á strandvellinum í North-
Berwick, Thé West Links, í um
18 stiga hita og sólskini. Dregið
var í þriggja til fjögurra manna
sinum“. Mestu munaði um að flat-
irnar í Skotlandi væru svo miklu
harðari og sneggri en heima að
púttin væru oft lengri en nauðsyn
krefði. Það breytti þó ekki því að
margir spiluðu fallegt golf þennan
hvítasunnudag og fáir betur en
fararstjórinn, Henning Bjarnason
flugstjóri, sem var á pari vallarins
eftir 9 holur en tapaði nokkmm
höggum á heimleiðinni enda stóð
þá strekkingur í fangið. West
Links völlurinn er tæpra sex kíló-
metra langur og víða mega menn
hafa sig alla við að gleyma sér
ekki við að dást að umhverfinu, í
stað þess að halda áfram leiknum.
Slíkt var ekki hægt að leyfa sér,
óþarfa tafir valda þeim óþægind-
um sem á eftir koma. Þó fallegur
sé, er völlurinn erfiður, ekki síst
á heimleiðinni þar sem margar
brautirnar eru hæðóttar og flæð-
armálið á vinstri hönd sér um að
refsa „húkkurum".
Eftir 18 holurnar bættu menn
við sig 10 mínútna göngu heim
að hótelinu, aldagömlum kastala
sem nú er eitt fjölmargra lúxus-
hótela Trusthouse Forte keðjunn-
ar. Þar beið þríréttaður kvöldverð-
ur, og að honum loknum æfing á
Jón Árnason og Hannes Hall á
léttri æfingu á púttvellinum við
hótelið.
hópa og fyrsti ráshópur lagði í
hann. Menn voru ekki á einu máli
um hvaða áhrif dvölin í Skotlandi
hefði á skorið, sumir sögðust ná
þama besta árangri ævinnar en
aðrir sögðust ekki komast nálægt
því sem best gerðist á „vellinum